Morgunblaðið - 05.05.1992, Síða 42

Morgunblaðið - 05.05.1992, Síða 42
42 MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 5. MAÍ 1992 Minning: Margrét Dungal í dag kveð ég ástkæra tengda- móður mína, Margréti Dungal. Engin orð fá lýst þeim söknuði og trega, sem fylla mitt hjarta. Kynni okkar Margrétar hófust fyrir 17 árum þegar ég og sonur hennar, Páll Halldór, hófum okkar lífshlaup saman. Frá upphafi tók hún mér opnum örmum og með okkur óx og dafnaði yndislegur vin- skapur. A 10 ára búskaparferli okkar Páls í Kaupmannahöfn, var Margrét tíður og kærkominn gestur og dvaldi þá oft allt upp í mánuð í senn. Þá var það ekki eingöngu tengdamóðir mín að heimsækja okkur, heldur einnig vinur okkar og félagi og mikill vinur vina okk- ar. Aldrei fann maður fyrir kyn- slóðabili, það sem Margrét átti í hlut. Þegar Kaupmannahafnadvöl okkar lauk og við fluttum heim með tvo litla drengi, Baldvin 1 árs og Alexander nýfæddan, hófst nýr kapítuli í vináttutengslum okkar Margrétar. Daglega höfðum við samband. Alltaf bauð hún fram aðstoð sína, vildi aka drengjunum úr eða í skólann og æði oft var það hún sem gætti þeirra fyrir okkur kvöldstund. Á sumrin bættust við þær ógleymanlegu stundir sem við átt- um saman í sumarbústað Margrét- ar, Birkihlíð við Þingvallavatn. Þar naut Margrét sín allra best. Þar leið henni alltaf vel. Birkihlíð var henni helgur reitur. Hún sagðist fyllast krafti þegar hún væri þar. Mörg sumarkvöldin sat ég heilluð og hlýddi á Margréti segja frá lið- inni tíð, liðnum sumrum, þar sem allt iðaði af lífi og fólki, hjá henni og Baldvin, eiginmanninum, sem hún elskaði , virti og dáði. Saman byggðu þau upp þennan unaðsreit. Margar eru minningarnar úr eld- húsinu í Birkihlíð, vöfflubakstur, uppvaskið, spjallið og hláturinn sem alltaf fylgdi Margréti. Síðastliðið sumar bættist nýfædd dóttir okkar, Anna Jóna, í hóp aðdáenda hennar. Á þessari kveðjustund, er mér hugsað til, hversu mikla gæfu ég hlotnaðist, að fá að kynnast og eiga að vin slíka manneskju, sem Mar- grét var, og hversu margt hún kenndi mér um lífið og tilveruna. Þrátt fyrir mótlæti og sorg strax á unga aldri, þegar hún missti móður sína, aðeins 9 ára gömul, og seinna varð ekkja í blóma lífsins, þá missti hún aldrei sjónar af veginum. Já- kvætt hugarfar, tillitssemi og bjart- sýni voru ætíð hennar leiðarljós. Það sem hryggir mig hvað mest, er að bömin mín fengu að njóta ástar og umhyggju ömmu sinnar svo stutt, en það veit sá sem allt veit, að minning hennar mun lifa í hjörtum okkar og að við munum gera allt til þess að sú minning endist okkur og börnum okkar um aldur og æfí. Guð blessi og geymi elsku hjart- ans tengdamóður mína. Hennar mun ég ætíð sakna. Elín Kjartansdóttir. Þú skalt ekki hryggjast, þegar þú skilur við vin þinn, því að það, sem þér þykir vænst um í fari hans, getur orðið þér Ijósara í Qar- veru hans, eins og fjallgöngumaður sér fjall- ið bezt af sléttunni. (Spámaðurinn - Kahil Gibran.) Það er með sorg í hjarta sem við kveðjum Margréti, vinkonu okkar, í dag. Fyrir aðeins nokkrum vikum sáum við saman Þrúgur reiðinnar, sem var síðasta leikrit á dagskrá litla leikhúshópsins okkar. Eftir sýninguna áttum við saman yndis- lega kvöldstund, þar sem við rædd- um m.a. um yfirstaðið leikár og lögðum drög að næsta vetri. Við tökum lífið alltaf sem svo sjálfsagðan hlut. Því er dauðsfall vina alltaf jafn óvænt. Við höfum átt svo ótal margar ánægjustundir með vinum okkar, Palla og Ellu, og mæðrum okkar. Bæði meðan við bjuggum í Dan- mörku og eftir heimkomuna. Seint gleymist ilmandi pönnukökulyktin sem tók á móti manni þau skipti sem við heimsóttum Birkihlíð. Það er engin furða að einn af sonarson- um hennar hafi svarað spurningu prestsins um hvað hann héldi að amma væri að gera núna hjá Guði: „Baka pönnukökur fyrir englana." Það hefur sannarlega aukið lífs- gildi okkar að hafa kynnst Möggu Dú. Gurrý, Guðni og Dagur Tómas Margrét systir mín er látin, svo fljótt bar þetta að. En vegir Guðs eru órannsakanlegir og maður hlýð- ir þegar kallið kemur. Við sem minnumst Margrétar geymum í hug okkar mynd af henni sem frískri, duglegri konu, sem tókst á við mótlætið í lífinu með reisn og hélt sínu striki þó margt hafi gerst og byijað snemma, því Margrét var aðeins á níunda ári þegar móðir okkar fórst í snjóflóði á Óshlíð í febrúar 1928 og skildi eftir fjögur ung böm. Margrét var elst okkar systkinanna, síðan kom Guðrún, Jakop og ég, sem skrifa þessar lín- ur, þá aðeins 5 mánaða. Það hafa verið erfið spor sem pabbi gekk þegar hann fékk fregn- ir af þessu slysi og lagði af stað ásamt hjálparmönnum til að freista þess að finna fólkið á lífi, en aðeins einn fannst á lífi, afabróðir okkar. Hin fjögur tók hafið til sín. Eftir þetta mikla slys skildu leiðir okkar systkina og við fórum sitt á hvert heimilið og hittumst ekki oft, sum á nokkurrra ára fresti. Leið Mar- grétar lá til Isafjarðar til frændfólks þar og síðan til Akureyrar þar'sem hún sótti skóla. Eftir þetta lá leið Margrétar til Reykjavíkur til at- vinnu þar. Hún hóf störf hjá Stef- áni Thorarensen í Laugavegsapó- teki og einnig vann hún í Týli og Oculus. Á þessum árum sáumst við sjaldan, hún kom í frí vestur og heimsótti okkur þegar hún gat. En á þessum árum voru samgöngurnar ekki eins góðar og nú. Samband á milli okkar Margrétar hófst ekki aftur fyrr en ég kom til Reykjavík- ur, 14 ára gömul, þá bjuggu þær saman á Njálsgötu 72 Guðrún og Margrét. Dvaldi ég hjá þeim í tvær nætur. Síðan lá leið mín á Landa- kotsspítala, sem var mitt aðsetur í tvö og hálft ár. Margrét giftist Baldvini Pálssyni Dungal 22. apríl 1944 og bjuggu þar fyrst á Reynimel 47 og síðan á Miklubraut 20, sem varð svo einn- ig mitt heimili um árabil. Eftir að þangað kom breyttist viðhorf mitt til lífsins. Meðan ég dvaldi á Miklu- braut fæddust börnin þeirra þrjú, Sigrún, Gunnar og Páll Halldór. Umgekkst ég þau mikið, enda liggja taugar mínar sterkt til þeirra systk- ina og finnst mér ég eiga mikið í þeim. Baldvin andaðist 5. mars 1969. Eftir fráfall Baldvins fór Margrét að starfa fyrir Rauða krossinn við bókasafn sjúkrahúsanna og voru það margir sem tóku á móti bók úr hendi hennar. Margrét reyndist dóttur minni Þórunni sem besta móðir, en við dvöldum á Miklubraut fyrsta árið eftir að hún fæddist og síðar sumar- langt í sumarbústaðnum Birkihlíð við Þingvallavatn, sem var eftirlæt- isstaður þeirra og hefur verið alla tíð, og stefndi hugur þeirra alltaf austur þegar vora tók og svo var einnig á þessu vori, hún var búin að skreppa austur til þess að líta eftir hvort ekki væri alit í lagi eftir veturinn. Við hjónin ásamt dóttur okkar Þórunni og fjölskyldu hennar kveðj- um Margréti með þökk fyrir allt og minnumst hennar sem góðrar og glæsilegrar konu sem kvaddi þetta líf með reisn. Ég minnist orða’' séra Auðar Eir- ar er hún kvaddi Margréti með okkur við kistulagninguna að litur sorgarinnar er ekki bara svartur. Nú vitum við að Margrét er kom- in til Baldvins sem hefur beðið eft- ir henni og tekið á móti henni opn- um örmum. Guð blessi börnin hennar, tengdabörn og barnabörn og styrki þau í sorginni. Inga. Margrét Dungal lést á Borgar- spítalanum 25. apríl síðastliðinn, eftir stutta legu þar. Hún fæddist 19. september 1918 í Bolungan/ík og ólst þar upp og á ísafirði. Árið 1944 giftist hún Baldvini Dungal og eignuðust þau þijú börn, Sig- rúnu, Gunnar og Pál. Baldvin stofn- setti verslunina Pennann, sem allir eldri Reykvíkingar muna eftir á horni Hafnarstrætis og Pósthús- strætis. Eftir lát Baldvins var versl- unin áfram í eigu fjölskyldunnar og er nú stærsta ritfangaverslun borgarinnar og er reksturinn í hönd- um sona þeirra Margrétar og Bald- vins. Hefur Margrét örugglega átt sinn þátt í vexti og farsæld fyrir- tækisins. Margréti kynntist ég fyrir rúm- um 20 árum, er ég hóf störf á Bókasafni Borgarspítalans. Hún var þá ein í hópi elskulegra kvenna úr kvennadeild Reykjavíkurdeildar Rauða kross íslands, er unnu sem sjálfboðaliðar á Sjúkrabókasafni Borgarspítalans. Mér er minnis- stætt hversu mjög ég dáðist að öt- ulu og fórnfúsu starfi þessara kvenna og geri enn í dag eftir að hafa starfað með þeim í 22 ár. Margrét Dungal er sú þriðja sem fellur frá nú á stuttum tíma. Hinar voru þær Elísabet Bjarnason og Hjördís Jónsdóttir og minnist ég þeirra allra með miklum söknuði og jafnframt þakklæti fyrir óeigin- gjarnt og gott starf í þágu Sjúkra- bókasafns Borgarspítalans. Margrét Dungal var falleg kona og hafði einstaklega aðlaðandi og hlýja framkomu. Veit ég að margir sjúklingar spítalans minnast henn- ar, þegar hún kom færandi hendi með sitt ljúfa bros og lesefni til að létta sjúkrahúsleguna. Hún var ákaflega umhyggjusöm gagnvart öllum, sem hún umgekkst, og er þess skemmst að minnast, að okkur hér á bókasafninu bárust kveðjur frá henni, þar sem hún lá fársjúk hér á spítalanum, og sýnir það hug- ulsemina gagnvart okkur sam- starfsfólkinu þrátt fyrir þrengingar hennar sjálfrar. En nú er Margrét okkar öll. Við bókaverðir Borgarspítalans þökk- um henni áralanga vináttu og allt elskulegt í okkar garð. Við munum ætíð minnast hennar með hlýhug og virðingu og sendum fjölskyldu hennar hugheilar samúðarkveðjur á sorgarstundu. Matthildur Marteinsdóttir. Margrét Dungal er dáin — þessar fréttir bárust okkur laugardaginn 25. apríl sl. Tíu dögum áður hitt- umst við nokkrir sjúkravinir á bóka- safni Borgarspítalans. Það hafði lengi staðið til að við gerðum okkur dagamun. Margrét var ein úr þess- um hópi, en einmitt þennan dag veiktist hún, og olli það okkur von- brigðum að hún gat ekki glaðst með okkur þetta kvöld — en ekki óraði okkur fyrir því að við ættum ekki eftir að sjá hana aftur, en svo varð þó, því sjúkdómurinn reyndist svo alvarlegur að ekki varð við ráð- ið. Margrét er þriðji sjúkravinurinn á Borgarspítalanum sem kveður þennan heim á síðastliðnum þremur árum. Margrét var ákaflega ljúf og elskuleg kona, sem vildi hvers manns vanda leysa — ekki síst þeirra, sem áttu við erfiðleika að stríða. Það var ánægjulegt að starfa með henni, hún var jafnan róleg og yfirveguð en samt var alltaf stutt í brosið hjá henni, enda kímnigáfan í góðu lagi. Við munu sakna Mar- grétar og er nú skarð fyrir skildi í okkar hópi við fráfall hennar. Börnum hennar, tengdabörnum, barnabörnum og öðrum vanda- mönnum vottum við okkar dýpstu samúð. Við þökkum Margréti samleiðina og biðjum henni guðsblessunar. Sjúkravinir á bókasafni Borgarspítala. Vor mitt, hvert fórst þú, ó hvert? Til hvaða vidda hvarf ilmur þinn? Um hvaða lönd leggur þú leið? Til hvaða himins munt þú höfði lyfta oghveijumhugþinnsegja? (Kahlii Gibran.) Kristur Jesús afmáði dauðann, en leiddi í ljós líf og óforgengileika með fagnaðarerindinu. (2. Tím.1.10.) í dag verður jarðsungin Margrét Dungal, kona sem var mörgum svo einkar kær. I huganum kristallast nú minningarbrot um þessa yndis- legu manneskju sem mér auðnaðist að eiga sem vin og tengdamóður síðastliiðna tvo áratugi. Brotin renna saman í undur tæra traust- byggða og glaðlega mynd. Fyrir þessi kynni langar mig að þakka og minnast hennar örfáum orðum. Margrét hafði það eðli að eldast svo fallega hægt. Hún stóð enn í blóma þegar strengurinn sem skilur að lifendur og dána slitnaði mjög snögglega. Hún var eins og ein af þessum fágætu rósum sem virðast ætla að standa að eilífu. Undruðust margir er þeir heyrðu að árin væru orðin 73. Stelpan í henni var alltaf til staðar. Ýmsir heilsubrestir höfðu þó knú- ið á dyr hennar síðustu árin, en alltaf beitti hún stórkostlegri hæfni til að yfirvinna kvíðann sem fylgir slíku andstreymi. Þar var í ríkum mæli gripið til skopskyns og still- ingar á þann veg að henni fipaðist aldrei flugið. Af þeim orsökum átt- um við bágt með að trúa því að þessi síðasta og óvænta hindrun næði að stöðva Margréti okkar og vorum svo sannfærð um að hún kæmi til með að hlaupa áfram í hópnum að nokkrum tíma liðnum. Sú varð þó ekki raunin. Hér verður aðeins stiklað á stóru í æviferli Margrétar. Hún hét fullu nafni Margrét Ingunn Kristjáns- dóttir. Síðar notaði hún ættarnafn eiginmanns síns Dungal í stað föð- urnafnsins. Foreldrar hennar voru Þórunn Björg Jensdóttir og Kristján Bárður Sigurðsson búsett í Bolung- arvík. Margrét var elsta barnið, þá Guðrún Blöndal búsett í Reykjavík, Jakob Elías (d. 1982) og Ingibjörg Kristín búsett í Reykjavík. Faðir þeirra stundaði sjómennsku og fisk- verkun. Þann 11. febrúar 1928 grípa ör- lögin ógnvænlega inn í líf þessarar fjölskyldu og annarra í Bolungar- vík. Móðirin ferst þá í miklu snjó- flóði er fellur á veginn í Óshlíð, fimm Bolvíkingar eru á heimleið frá ísafirði og verða að ganga um Ós- hlíðarveg, því slæmt var í sjóinn. Skyndilega fellur á þá mikið snjó- flóð. Fjórir menn farast, þar á með- al Þórunn Björg, móðir framan- greindra systkina. Engin orð fá nokkurn tíma lýst hvílík angist og sorg nístir fjölskyldur sem verða fyrir slíkum harmi og hve langvar- andi áhrifa gætir vegna atburða af þessum toga. Þarna urðu algjör þáttaskil í lífi Margrétar og fjölskyldu hennar. Heimilið leystist upp og varð úr ráði að koma börnunum ýmist fyrir hjá ættmennum eða vandalausum. Margrét var send til ísafjarðar og ólst þar up fram yfir fermingarald- ur hjá Ingibjörgu Jensdóttur móður- systur sinni og manni hennar Rögn- valdi Guðjónssyni. Þar á heimilinu var og fósturmóðir Rögnvalds, Kar- itas Hafliðadóttir, mjög merk kona sem m.a. tók börn í lestrarnám og fleira. Hún er einnig þekkt fyrir sérkennilega myndgerð úr manns- hári og er myndir eftir hana að finna á Byggðarsafninu á ísafirði og víðar. Margrét minntist oft þess- arar konu. Guðrún systir hennar fór til ömmu sinnar, Guðrúnar Þórðar- dóttur í Bolungarvík, ásamt Jakobi sem síðar fór til vandalausra í ná- lægðri byggð. Þau voru sjö og fjög- urra ára er slysið varð. Ingibjörg, yngsta dóttirin, var aðeins fimm mánaða gömul og ólst hún upp hjá fjölskyldu Valdimars Samúelssonar á Ósi sem er skammt frá bænum í Bolungarvík. Margrét sjálf var 9 ára að aldri er þetta átti sér stað og mundi því vel þann dag. Nærri má geta að í barnshjartanu hefur myndast djúpt sár, en gæfa hennar var þó að lenda hjá góðu fólki sem ræktaði mann- kosti hennar. Faðir hennar fluttist til ísafjarðar og bjó þar síðan. Þar lést hann árið 1961. Fljótlega eftir ferminguna fór Margrét til dvalar á Akureyri. Þar bjó hún hjá systrun- um Elísabetu og Margréti Eiríks- dætrum. Höfðu þær þekkt Þórunni móður Margrétar. Á Akureyri stundaði hún gagnfræðaskólanám í fyrstu og einnig vann hún um tíma á Kristneshæli. Hana langaði að læra hjúkrunarfræði, og víst hefði hún orðið úrvals starfskraftur á þeim vettvangi menntunar ef draumamir hefðu ræst. Um 1937 flyst Margrét svo til Reykjavíkur. Þar starfaði hún næstu árin, m.a. hjá Guðna Jóns- syni gullsmiði, við afgreiðslustörf í Laugavegsapóteki og í snyrtivöru- versluninni Öcúlus. Árið 1944 gift- ist Margrét Baldvini Pálssyni Dung- al, stofnanda ritfangaverslunar Pennans sf. Þau bjuggu við Miklu- braut, þar sem Margrét bjó fjöl- skyldu sinni hlýtt og fallegt heim- ili, annaðist uppeldi barna sinna af aðúð og kostgæfni og bjó þar síðan til æviloka. Börn þeirra hjóna urðu þijú. Elst er Sigrún, sem er gift Sveini Björnssyni, börn þeirra eru Anna Margrét og Henrik Baldvin, þá Gunnar, kvæntur Þórdísi Öldu Sigurðardóttur, og yngstur er Páll Halldór, sem kvæntur er Elínu Kjartansdóttur og eiga þau þijú börn, Baldvin, Alexander og Önnu Jónu. Margrét missti mann sinn með snöggum hætti árið 1969 er hann var í innkaupaferð erlendis á vegum fyrirtækisins. Þá var hann 65 ára gamall en hún 50 ára. Þarna upp- lifði Margrét annað undirbúnings- laust fráfall ástvinar og eflaust voru erfiðir tímar í sjónmáli. Börnin og fjölskyldur þeirra, auk minning- ar um mann hennar, skipuðu önd- vegi í lífi Margrétar. Það var henni mikið hjartans mál að halda hópn- um sínum heilum og glöðum. Hún var stolt af þeim og dyggur stuðn- ingsmaður þeirra til æviloka. Um persónuleika Margrétar væri margt hægt að skrifa, sem gott er og fallegt og erfitt að koma því fyrir í stuttri grein. Hún var ríku- lega búin ýmsum þeim mannkostum sem reynast haldbestir í lífinu. Kærleikur er samheiti þessara kosta og af honum átti hún gnótt. Innan kærleikans rúmast svo margt og í daglegu fari Margrétar mátti m.a. skynja fordómaleysi, tryggð, rausn og alúð við umhverfið að ógleymdu skopskyni hennar. Ekki var því að undra hve allir aldurshóp- ar löðuðust að henni. Hún átti vini í vinum barna sinna og tengda- barna. Barnabörnin tóku líka þátt í ýmiss konar leikjum og uppátækj- um með ömmu sinni og höfðu gam- an af. Hún var svo greind og djúphygg- in á hvernig manneskjan fær lifað best og kunni alveg þann leik að lifa í núinu. Manneskja sáttar og réttlætis. Brosin voru bæði glettin og ljúf, húmorinn alltaf til staðar og sögurnar hennar sjaldnar fyndn- ari en þegar spaugað var á eigin

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.