Morgunblaðið - 05.05.1992, Page 52
52
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 5. MAÍ 1992
sannCu<3.rn.b ?*
Með
morgunkaffínu
/2-27
. . . eins og bálið sem yljar.
TM Reg. U.S. Pat Off.—all nghts reserved
° 1991 Los AngelesTimes Syndicate
4V? ífc-.
Keyrðu ljósavélina í botn ...
HOGNI HREKKVISI
/, é<3 £"Æ. V/SS UM A£> CfVUUkJNN GERJf?
ítTT OAGN 'ANrfiii-:K,4TU LE/&6G1N/NGA."
BREF HL BLAÐSINS
Aðalstræti 6 101 Reykjavík - Sími 691100 - Símbréf 691222
EB og framtíðin
Frá Einarí Birni Bjarnasyni:
EF HALDIÐ verður áfram að dýpka
samstarfið innan EB, eins og stefnt
er að samkvæmt Maastrichtsam--
komulaginu, munu Þjóðvetjar óhjá-
kvæmilega verð allsráðandi innan
þess. Spumingin er sú hvort Suður-
Evrópuríkin, t.d. Frakkland, muni
sætta sig við yfírráð Þjóðverja. Ég
segi að þau muni ekki gera það og
að hætt verði við Maastricht og
frekari samruna Evrópu. Evrópu-
bandalagið muni því þróast yfir í
stærra og laustengdara bandalag
fyrst og fremst sjálfstæðra ríkja,
en er nú í stíl við Norðurlandasam-
starfið að sumu leyti. Því eina leið-
in sem Suður-Evrópuþjóðirnar
munu hafa til að koma í veg fyrir
yfirráð Þjóðverja er að draga úr
völdum þeirra stofnana EB sem
Þjóðvetjar verða allsráðandi í.
Austur-Evrópuþjóðunum mun svo
verða hleypt smám saman inn í EB
í kjölfar EFTA-þjóðanna, nema ís-
landi sem mun vitaskuld ekki sækja
um aðild. íslendingar munu ekki
heldur ganga í EES. Enda er hagur
okkar af EB- og EES-aðild augljós-
lega mun minni en kostnaðurinn
sem fylgir henni. Meirihluti lands-
manna mun sjá hve EES-aðild er
heimskuleg, sérstaklega vegna þess
að hún getur aðeins leitt til EB-
aðildar sem meirihluti landsmanna
er andvígur.
Nú þegar eru ýmsar blikur á lofti
í sambandi við Maastrichtsamkom-
ulagið. Helmingslíkur virðast vera
á að Danir felli það. Þýsku sam-
bandslöndin eru óánægð með það
vegna þess að það virðist geta falið
í sér valdatilfærslu frá þeim til
Bonnstjórnarinnar og þau heimta
að fá neitunarvald um allt frekara
fullveldisafsal. Á írlandi rekst lög-
gjöf þeirra um bann við fóstureyð-
ingum á Maastricht, sem þýðir að
ný þjóðaratkvæðagreiðsla þarf
væntanlega að fara fram þarlendis
um það mál. Bretar hafa alltaf ver-
ið andvígir Maastricht og fengust
aðeins til að samþykkja það með
því að fá umfangsmiklar undanþág-
ur frá einstökum ákvæðum þess.
Þjóðernissinnum virðist vera að
vaxa fiskur um hrygg innan EB,
sérstaklega þeim af öfgakenndara
taginu sbr. nýlega kosningasigra
öfgahægrimanna í Frakklandi og á
Ítalíu. Slíkir öfgaflokkar munu ekki
komast til valda, en þeir munu hafa
þeim mun meiri áhrif á stefnu ann-
arra stjórnmálaflokka á hægri
vængnum, enda keppa þeir helst
við þá um fylgi. Með það í huga
ber að skoða að skoðanakannanir-
og niðurstöður síðustu bæjar- og
sveitarstjórnakosninga, sem benda
til ósigurs sósíalista í næstu þing-
kosningum og taps meirihluta
þeirra á þingi. Mikil og vaxandi
andstaða virðist vera komin upp í
Frakklandi gegn Maastricht ef
marka má nýlegar skoðanakannan-
ir þarlendis. Kröfur um þjóðarat-
kvæðagreiðslu um afstöðuna til
Maastricht eru orðnar háværar í
kjölfar fullyrðinga mikilsvirtra
manna um að það þyrfti að breyta
stjórnarskránni svo hægt yrði að
staðfesta Maastrichtsamkomulagið,
en tvísýnt væri um úrslit slíkrar
atkvæðagreiðslu. Nýlega hvatti
Jacques Chirac, formaður Lýðveld-
isfýlkingarinnar (RBR), til þess að
slík þjóðaratkvæðagreiðsla færi
fram. Því til þess að þingið gæti
samþykkt nauðsynlegar stjórnar-
skrárbreytingar, yrði að vera ljóst
að það hefði þjóðina á bak við sig.
Þá er spurningin hvað hinn aðal
hægriflokkurinn gerir þegar RBR
hefur tekið þannig afstöðu gegn
Maastricht. Hafandi í huga fortíð
Gaullista sem stækra þjóðernis-
sinna veðja ég á að sá flokkur
muni taka svipaða afstöðu og Lýð-
veldisfylkingin og þannig komið í
veg fyrir að hægt verði að ná nauð-
synlegum aA meirihluta fyrir slíkum
stjórnarskrárbreytingum. það verð-
ur spennandi að fylgjast með því
hvað gerist eftir næstu þingkosn-
ingar. Öfgaflokkur Le Pen gæti þá
hugsanlega komist í oddaaðstöðu
sbr. skoðanakannanir og úrslit síð-
ustu bæjar- og sveitarstjórnakosn-
inga. Þetta mikla fylgi öfgahægri-
manna mun náttúrulega setja þá
flokka sem standa þeim næst í varn-
arstöðu, þ.e. flokk gaullista og Lýð-
veldisfylkinguna, svo þeir munu lík-
lega sveigja lengra til hægri og á
áttina að þjóðernissinnum sbr.
kröfu Lýðveldisfylkingarinnar. um
þjóðaratkvæðagreiðslu. Stjórnvöld
eru andvíg þjóðaratkvæðagreiðslu
og vilja láta þingið staðfesta Maast-
richtsamkomulagið sem fyrst og
telja það ekki bijóta í bága við
stjórnarskrána, enda var Francois
Mitterrand, forseti Frakklands, einn
af höfundum þess. Ef Maastric-
htsamkomulagið verður fellt í
Frakklandi, verður það úr sögunni
í bili. Að vísu er því haldið fram í
nýjasta tölublaði Economist að það
nægi að Danir felli Maastricht. Þá
yrði komin upp ankannaleg staða
fyrir bandalagið og eina lausnin
væri að semja að nýju. Það verður
spennandi að fylgjast með atburð-
um næstu vikna og mánaða í aðild-
arlöndum EB.
EINAR BJÖRN BJARNASON,
nemi í stjórnmálafræði,
Brekkugerði 30, Reykjavík.
Mörg- er ambaga
okkarmáls
Frá Asmundi U. Guðmundssyni:
MÖRG er ambaga okkar ritmáls,
ekki er með nokkru móti hægt
að kenna prentvillupúkanum um,
þó blaðamenn sem aðrir geti ekki
með góðu skilað frá sér réttorð-
uðum setningum, í töluðu orði
hvað þá í rituðu. Æði oft bera
slíkar hörmunga andagiftir fyrir
augu mér við lestur dagblaðanna.
Sú allra nýjasta var i Morgun-
blaðinu 15. marz 1992, í smá-
klausu á öftustu síðu, undir fyrir-
sögninnni „Fékk tundurdufl í
trollið". Þar var sagt frá því að
togarinn Drangavík VE 555 fékk
slíkan vágest inn á dekk í troll-
inu. Síðan segir orðrétt: „Duflið
var virkt og tóku sprengjusér-
fræðingar frá Landhelgisgæsl-
unni við duflinu þegar skipið
lagðist við höfn í Sandgerði upp
úr kl. 17 í gær.“ Aldrei hef ég
vitað það fyrr en nú, að skip legð-
ist við höfn þá komið er að landi,
hingað til hafa skip lagst við
bryggju í þessari eða hinni höfn-
inni, kannski er þarna á ferðinni
ný skilgreining á sagnorðinu
bryggja, gaman væri að vita
nánar af því. Seinni hluti greinar-
innar var að góðum hluta til
upptalning á því sem áður var
komið fram.
ÁSMUNDUR U. GUÐMUNDSSON
Suðurgötu 124, Akranesi
Víkverji skrifar
Operusmiðjan réðist í að setja
upp La Bohéme í Borgarleik-
húsinu um páskana og það var ljóst
að mikill metnaður lá að baki upp-
setningunni. Þrátt fyrir það hefur
Víkveiji ekki orðið var við mikla
umræðu um hana manna á meðal
og varð satt að segja undrandi þeg-
ar hann sá að síðustu sýningar
hafa þegar verið auglýstar. Vík-
veiji átti þess ekki kost að sjá
sýninguna fyrr en núna um helgina
og ekki minnkaði undrun hans,
vegna þess að La Bohéme er tví-
mælalaust meðal bestu óperusýn-
inga sem hafa verið settar upp hér
á landi.
Óperusmiðjan er um það bil
tveggja ára gömul og er félagsskap-
ur ungra söngvara, sem hefur sam-
starf við leikhúsið Frú Emilíu.
Vegna reynsluleysis á óperusviðinu
hefði verið vel fyrirgefanlegt að
einhveijir hnökrar hefður verið á
sýningu þeirra á La Bohéme. En
það var alveg ljóst að hér var á
ferð fólk sem vissi hvað það var
að gera og kunni sitt fag. Þrátt
fyrir reynsluleysi — í óperuflutningi
— tókst söngvurunum að fleyta
þessari líflegu og skemmtilegu sýn-
ingpi áfram af krafti og uppskáru
viðtökur sem Víkveiji hefur ekki
áður séð í íslensku leikhúsi.
Það er greinilegt að það mikla
starf sem hefur verið unnið í Söng-
skólanum hefur þegar skilað
árangri. Þeir fjölmörgu söngvarar
sem hafa útskrifast úr honum,
stundað framhaldsnám erlendis og
starfa bæði hér heima og á er-
lendri grundu, eru fullfærir um að
halda uppi líflegu óperulífi hér
heima. Þetta unga fólk sem starfar
hjá Óperusmiðjunni er mjög fram-
bærilegt og hefur hæfni til að halda
út stór óperuhlutverk.
Það sem er kannski enn athyglis-
verðara, er hversu góðir leikarar
þessir ungu söngvarar eru. Tjáning
þeirra á tilfinningum og örlögum
persónanna er lofsverð, svo það er
óhætt að segja að þarna sé á ferð-
inni hörku gott leikhús.
Við ættum kannski að fara að
gefa því meiri gaum sem er að
gerast í kringum okkur og skoða
Setur það unga hæfileikafólk sem
við höfum verið að ala upp í lista-
lífi okkar á seinustu árum. Þetta á
ekki síst við um unga söngvara og
hljómsveitarstjóra. Tónlistin var
mjög vel flutt og áheyrileg og Vík-
veija varð hugsað til þeirra und-
arlegheita að hér skuli vera upp
undir tíu menntaðir hljómsveitar-
stjórar, sem ganga að mestu um
atvinnulausir. Við þurfum að líta
okkur nær og gera okkur grein
fyrir þeim efniviði sem er í kringum
okkur.
Öll umgjörð sýnigar Óperusmiðj-
unnar á La Bohéme er vel unnin
og enginn ætti að láta þennan ein-
stæða viðburð framhjá sér fara.