Morgunblaðið - 05.05.1992, Síða 55
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 5. MAÍ 1992
55
Ályktun miðsljórnar Framsóknarflokksins um EES:
Ekkí tímabært að taka eiidan-
lega afstöðu tíl samningsins
Stuðningur verði bundinn fimm skilyrðum
„NIÐURSTAÐAN varð sú að það væri ekki skynsamlegt að taka endan-
lega afstöðu nú, hvorki með eða á móti þessum samningi," sagði Stein-
grímur Hermannsson, formaður Framsóknarflokksins, um ályktun
miðstjórnar flokksins um afstöðuna til samningsins um evrópskt efna-
hagssvæði, við lok miðstjórnarfundar á sunnudag. Á fundinum kom
í ljós töluverður ágreiningur um hvaða afstöðu flokkurinn ætti að
taka til samningsins. Var tillögu framkvæmdasijórnar og þingflokks,
sem lögð var fyrir miðstjórnarfundinn, breytt talsvert í meðferð nefnd-
ar sem fór yfir hana og dró formaðurinn að því loknu enga dul á að
niðurstaðan hefði orðið málamiðlun. I setningarræðu sinni á laugar-
dag óskaði Steingrímur hins vegar eftir að miðstjórn mótaði skýra
afstöðu til málsins.
Fram kom á fundinum að ýmsir
Framsóknarmenn töldu réttast að
flokkurinn hafnaði samningnum en
flestir virtust þó vera sáttir við þá
niðurstöðu sem samkomulag varð um
þar sem enn vantaði miklar upplýs-
ingar um málið af hálfu stjórnvalda.
Endanleg ályktun miðstjórnar til
samningsins um EES er svohljóð-
andi: „Miðstjórnarfundur Framsókn-
arflokksins ályktar að stuðningur við
aðild íslendinga að hinu evrópska
efnahagssvæði komi ekki til greina
nema eftirgreindum skilyrðum sé
fullnægt:
1. Samningurinn standist ákvæði
stjórnarskrár.
2. í stað fyrirvara sem ekki feng-
ust viðurkenndir, verði hagsmunir
landsins tryggðir með einhliða laga-
setningu á Alþingi.
3. Tvíhliða samningur um fiskveið-
ar reynist ásættanlegur enda sé eftir-
lit með veiðum erlendra aðila full-
nægjandi sem og önnur ákvæði hans.
4. Tryggt verði að íslendingar
hafi fullar heimildir til þess að leggja
jöfnunargjöld á innfluttar landbún-
aðarafurðir.
5. Formlega verði viðhorf Evrópu-
bandalagsins kannað til breytinga á
samningi um evrópskt efnahags-
svæði í tvíhliða samningi íslendinga
og Evrópubandalagsins, ef og þegar
önnur EFTA-ríki hafa gerst aðilar
að EB. Að slíkri breytingu verði
stefnt.
Verði ofangreindum skilyrðum
fullnægt hafa Islendingar tryggt sér
það sem þeim er mikilvægt í sam-
skiptum við þjóðir Vestur-Evrópu,
sérstaklega frjálsan aðgang fyrir
framleiðslu Islendinga að markaði
þar. Þess er jafnframt vænst að öllum
verði þá ljóst að aðild að Evrópuband-
alaginu kemur ekki til greina.
Samningurinn í endanlegri gerð
og hin ýmsu lagafrumvörp liggja
hinsvegar ekki fyrir í heild. Tvíhliða
samningur um veiðiheimildir er enn
ekki gerður. Ríkisstjómin hefur ekki
sýnt hvort og hvernig hún hyggst
tryggja hagsmuni íslendinga. Af
þeirri ástæðu er ekki tímabært að
taka endanlega afstöðu til samnings-
ins. Miðstjórn ákveður því að koma
saman til fundar á ný áður en samn-
ingur EES kemur til lokaafgreiðslu
á Alþingi, ef ekki næst að ræða hann
á flokksþingi.
Miðstjórnarfundurinn leggur
áherslu á að samningurinn verði
vandlega og hlutíaust kynntur fyrir
þjóðinni og ítrekar fyrri samþykkt
um þjóðaratkvæðagreiðslu."
Rétta ríkisstjórninni
hjálparhönd
„í raun og vera fínnst mér að við
séum að rétta ríkisstjóminni hjálpar-
hönd í þessu máli. Við erum að reyna
að beina áhrifum okkar til að hún
lagfæri þá annmarka sem við sjáum
á þessum samningi," sagði Stein-
grímur. Sagðist hann hafa miklar
efasemdir um þá afstöðu sumra að
hafna bæri samningnum þar sem
fyrirvarar hefðu ekki náðst. „Eg tel
að með því skákum við okkur út í
hom og að við gætum ekki ætlast
til að tekið sé tillit til okkar. Ég ótt-
ast mest að við sogumst inn í Evrópu-
bandalagið en ef unnt er að koma
af stað formlegri viðræðu við EB um
breytingar á þessum samningi, þegar
önnur EFTA-ríki hafa gengið í EB,
þá höfum við unnið stórvirki," sagði
Steingrímur í ræðu sinni þegar af-
greiðsla ályktunarinnar fór fram á
sunnudag en hún var samþykkt með
öllum greiddum atkvæðum.
Meðal þeirra sem lýstu andstöðu
við samninginn bar einna mest á
Bjarna Einarssyni og Ástu Ragnheiði
Jóhannesdóttur sem vildi lýsa því
yfir að stuðningur við samninginn
kæmi ekki til greina. Hún kvaðst þó.
sætta sig við þá málamiðlun sem
náðist en sagðist telja að ályktunin
hefði þá þýðingu að flokkurinn styddi
ekki samninginn í raun þar sem ekki
verði hægt að fullnægja þeim skilyrð-
um sem sett eru fram í ályktuninni.
Guðni Ágústsson alþingismaður
lagði m.a. til í ræðu sinni að flokks-
þingi verði flýtt fram í ágúst eða
september en það fer að óbreyttu
fram 27.-29. nóvember. Páll Péturs-
son alþingismaður vildi að í ályktun-
inni yrði tekið fram að samningurinn
um EES þyrfti ótvi'rætt að standast
ákvæði stjórnarskrárinnar. Því hafn-
aði Steingrímur með þeirri röksemd
að ótvíræð niðurstaða yrði aldrei
fengin nema Hæstiréttur fjallaði um
samninginn.
Alþýðubandalagið:
Endanleg* afstaða þeg-
ar málið liggur allt fyrir
ÓLAFUR Ragnar Grímsson, formaður Alþýðubandalagsins, segir að
þingflokkur og aðrar stofnanir flokksins hafi lagt mikla vinnu í að
skoða samninginn um evrópskt efnahagssvæði að undanförnu en
muni gera j*rein fyrir endanlegri afstöðu sinni þegar öll mál lægju
ljós fyrir. „Eg reikna með að það verði frekar fyrr en síðar,“ segir hann.
Ólafur sagði að á fundi utanríkis- en í fyrsta lagi í lok mánaðarins. Þá
málgnefndar í gærmorgun hefði
komið fram af hálfu ráðuneytisstjóra
sjávarútvegsráðuneytisins að enginn
samningur lægi fyrir um sjávarút-
vegsmál og næsti viðræðurfundur
um hann væri ekki fyrirhugaður fyrr
Þessi framsetning boðar
ekki mikinn ágreming
-segir utanríkisráðherra um álykt-
un miðstjórnar Framsóknarflokksins
JÓN Baldvin Hannibalsson utanríkisráðherra segir að skilyrði sem
miðsljórn Framsóknarflokksins setur við stuðningi við samninginn um
evrópskt efnahagssvæði séu öll af sama tagi og bæði fyrrverandi og
núverandi ríkisstjórn hafi sett fram. „Mér sýnist þessi framsetning
ekki boða mikinn ágreining og legg áherslu á að þess er að vænta
að framsóknarmenn geti stuðlað að því að gott samkomulag takist á
milli stjórnar og stjórnarandstöðu á þinginu um meðferð málsins.
Báðum aðilurn ætti að vera það kappsmál að samningurinn og fylgi-
frumvörp hans fái vandaða og ítarlega umfjöllun. Við þurfum því að
ná samkomulagi um sumarþingið og málsmeðferðina,“ segir Jón Bald-
vin.
I máli utanríkisráðherra um ein-
staka fyrirvara Framsóknarflokksins
kom fram að sérfróðir aðilar ættu
að skila niðurstöðum sínum um hvort
samningurinn stæðist ákvæði stjórn-
arskrár fyrir lok júní. „Ég er alveg
ásáttur með að bíða þeirrar niður-
stöðu en bendi á að málið hefur ver-
ið rannsakað rækilega af þjóðréttars-
érfræðingum aðildarríkja EFTA og
það er athyglisvert að allstaðar nema
í Sviss hafa þeir komist að þeirri
niðurstöðu að ekki verði gerð krafa
um þjóðaratkvæðagreiðslu vegna
þess að samningurinn kalli ekki á
breytingar á stjórnarskrá," sagði
hann.
Jón Baldvin sagði einnig að í und-
irbúningi væri löggjöf sem snerti þá
fyrirvara sem settir voru fram, m.a.
um rétt til kaupa á hlunnindajörðum
og um orkulindirnar.
Þá sagði hann að efnissatriði tví-
hliða samnings um fiskveiðar væru
þegar staðfest með erindaskiptum
og hefðu verið þaulrædd í utanríkis-
málanefnd. Eftirlitsþátturinn gerði
m.a. ráð fyrir að íslenskir eftirlits-
menn yrðu um borð í erlendum skip-
um sem hefðu leyfi til veiða við Is-
land. Þetta lægi allt skýrt fyrir en
samningurinn sjálfur yrði væntan-
lega útfærður í sumar.
Utanríkisráðherra sagði að EES-
samningurinn tæki aðeins til land-
búnaðarafurða í undantekningartil-
vikum. Ráð væri fyrir því gert að
álagning jöfnunargjalds væri heimil.
Jón Baldvin sagðist ætla að ræða
við Frans Andriessen varaforseta
framkvædmastjórnar EB um stöðu
samningsins um EES ef öll önnur
EFTA-ríki ganga í Evrópubandalag-
ið, þegar hann kæmi til Reykjavíkur
20. maí á fund ráðherraráðs EFTA.
„Það er mál sem verður ekki til
lykta leitt á þessum tímapunkti. Það
er mikilli óvissu undirorpið hvort og
hvenær þau lönd sem eru í biðröð-
inni um aðild hafa lokið þeim gamn-
ingum. Það er opinbert leyndarmál
að menn telja með öllu óraunsætt
að þeim verði lokið 1995 heldur taki
þeir lengri tíma. Fari hins vegar svo
að þessi lönd verði orðin aðilar að
EB mun þurfa að taka upp þann
þátt samningsins sem lýtur að stofn-
unum, sérstaklega varðandi eftirlit
og lausn deilumála,“ sagði Jón Bald-
þyrfti álit sérfróðra manna um hvort
samningurinn stæðist stjórnarskrá
að liggja fyrir og einnig þyrfti að
vera ljóst hvort ríkisstjómin ætlaði
að hafna endanlega þjóðaratkvæða-
greiðslu um samninginn áður en
umræða um hann gæti hafíst á AI-
þingi.
Olafur sagði að ekkert samkomu-
lag væri komið á milli stjórnar og
stjórnarandstöðu urn afgreiðslu
málsins á Alþingi. Ef ríkisstjómin
sétlaði að þrýsta á að Alþingi tæki
samninginn til umfjöllunar áður en
þessi atriði lægju öll fyrir yrði aldrei
um samkomulag að ræða.
„Mér skilst að ríkisstjómin hafi
guggnað á að taka málið úr utanrík-
ismálanefnd en til að bjarga ein-
hveiju andliti hafi í staðinn verið
komið með sérstaka hugmynd um
að öll önnur mál færu til sérstakrar
nefndar. Það gengur hins vegar ekki
upp því um er að ræða tvennskonar
mál, annars vegar hinn eiginlega
samning og fylgisamninga sem hljóta
að fara til utanríkismálanefndar og
hins vegar sjálfstæð lagafrumvörp
sem þurfa að fá venjulega þingmeð-
ferð.“ SagðisttMafur ekki hafa neina
trú á að fastanefndir þingsins féllust
á að vísa umboði sínu yfir í eina
sémefnd og því væri hugmyndin
andvana fædd.
Ólafur sagði ennfremur að sér
þætti út í hött að ræða sumarþing
fyrr en fullbúinn samningur um sjáv-
arútvegsmál og skýr niðurstaða um
að samningurinn stangaðist ekki á
við stjómarskrá lægju fyrir. Hins
vegar hefði stjórnarandstaðan boðið
að nefndir störfuðu að einstökum
þáttum sem vörðuðu samninginn í
sumar þótt hin eiginlega umræða
hæfíst ekki fyrr en öll atriði lægju
fyrir.
Reykjavíkurdeild Rauða kross íslands:
Námskeið í skyndihjálp
REYKJAVÍKURDEILD Rauða kross íslands gengst fyrir námskeiði í
skyndihjálp sem hefst miðvikud. 29. apríl kl. 20 og stendur 4 kvöld.
Kennsludagar verða 29., 30. apríl og 4. og 6. maí.
Kennt verður frá kl. 20 til 23.
Námskeiðið verður haldið í Ármúla
34, 3. hæð (Múlabæ). Öllum 15 ára
og eldri er heimil þátttaka. Þeir sem
hafa áhuga á að komast á námskeið-
ið geta skráð sig í síma 688188 á
skrifstofutíma.
Meðal þess sem kennt verður á
námskeiðinu er blástui'saðferðin,
hjartahnoð, hjálp við bruna, bein-
broti og mörgu öðru. Einnig verður
fjallað um það hvernig má koma í
veg fyrir slys. Þetta er síðasta nám-
skeiðið í vor sem skólafólk getur
treyst á að geta fengið metið í fram-
haldsskólum. Margir aðilar halda
reglulega námskeið í skyndihjálp fyr-
ir sitt starfsfólk. Meðal þeirra fyrir-
tækja sem standa myndarlega að
þessum málum er Rafmagnsveita
Reykjavíkur sem hélt 8 námskeið
með alls 143 þátttakendum í febrúar
sl. Leiðbeinandi var Guðlaugur Leós-
son. Á meðfylgjandi mynd má sjá
hluta hópsins.
Næsta barnfóstrunámskeið hefst
29. apríl.
Aðalfundur Reykjavíkurdeildar-
innar verður haldinn 12. maí í Ár-
múla 34 kl. 20.30.
(Fréttatilkynning)
VANN MN
FJÖLSKYLDA?
Heildarvinningsupphæðin :
125.251.781 kr.
18. leikvika 2.- 3.
Röðin : 11X-211-112-1X11
13 réttir:
12 réttir:
11 réttir:
10 réttir:
309 raðir á
5.528 raðir á
43.576 raðir á
210.664 raðir á
109.440- kr.
3.850 - kr.
510- kr.
220 - kr.
Alls komu 37 raöir fram meö 13 réttum hérlendis, 549 meö
12 réttum, 3.554 meö 11 réttum og 13.713 meö 10 réttum.
Þaö var tippaö fyrir 9.852.890 kr. á íslandi en greiddir veröa
út vinningar fyrir 11.101.013 kr = 112 % vinningshlutfall.
- fyrir þlg og þina fjölskyldu!