Morgunblaðið - 05.05.1992, Blaðsíða 56
-=~.
HS8SSSSS^M8888S38S88SSSSS8SSESS8S^^lt»»V
ásmmsfe
'Vtj
MOKGUNBLAmt), ADALSTRÆTI 6, 101 KEYKJAVÍK
SÍMI 691100, SÍMBRÉF 691181, PÚSTHÓLF 1555 / AKURLVRI: HAFNARSTRÆTl 85
ÞRIÐJUDAGUR 5. MAI 1992
VERÐ I LAUSASOLU 110 KR.
Aldís fauk
á landgang
á Keflavík-
urflugvelli
ALDÍS, ein Boeing 737 flugvéla
Flugleiða, skemmdist á Kefla-
víkurflugvelli í gærkvöldi þegar
snörp vindhviða snéri vélinni
sem var tengd við einn af land-
göngurönum flugstöðvarbygg-
ingarinnar.
Að sögn Einars Sigurðssonar
blaðafulltrúa Flugleiða kom dæld
á annað vængbarð Aldísar þegar
það lenti á rananum. Skemmdirnar
rværu ekki miklar en nægar til
þess að vélin er óflughæf og hófst
viðgerð þegar ,í gærkvöldi. Þá
skemmdist raninn eitthvað.
Áætlunarflug til Glasgow og
Amsterdam verður sameinað í dag
vegna þessa óhapps en að sögn
Einars er ekki gert ráð fyrir öðrum
breytingum á áætlun. Hann sagði
þó ekki ljóst hvað viðgerðin tæki
langan tíma eða hver kostnaður
Flugleiða yrði vegna þessa.
Gripnirvið að
reykja hass
FJÓRIR menn voru hand-
teknir vegna gruns um hass-
reykingar á almannafæri í
miðborginni um helgina. I
báðum tilfellum sáu óein-
kenniskiæddir lögreglu-
menn, sem komið höfðu sér
fyrir inni í háhýsum við mið-
borgina, til mannanna og
gerðu viðvart um athæfi
þeirra.
Þannig voru tveir rúmlega
tvítugir menn handteknir þar
sem þeir sátu í skjóli, að því
er þeir töldu, í skoti við Gimli
í Lækjargötu og reyktu hass.
Einnig voru tveir menn
handteknir með hass á sér
skammt frá stjórnarráðinu við
Lækjartorg eftir svipaða
ábendingu.
Áburðurinn til bænda
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Þessa dagana eru starfsmenn Áburðarverksmiðjunnar í Gufunesi í óðaönn að koma áburðinum til bænda
um land allt. Samdráttur í búvöruframleiðslunni undanfarin ár hefur gert það að verkum að áburðarsalan
hefur dregist saman jafnt og þétt. Áætlað er að seld verði 52 þúsund tonn af áburði nú í ár, en það er um
fímm þúsund tonnum minna magn en selt var í fyrra.
Kvartað
yfírstærð-
fræðiprófi
NEMENDUR í 10. bekk hafa
kvartað yfir því að samræmt próf
í stærðfræði á þriðjudag lia.fi ver-
ið of langt og þeim hafi ekki tek-
ist að Ijúka prófinu á tilskildum
tíma. Meyvant Þórólfsson, náms-
stjóri í menntamálaráðuneytinu,
sem liafði umsjón með yfirferð
prófanna um helgina ásamt fleir-
um segir að greina megi að tími
hafi verið naumur fyrir suma en
matið sé á þann veg að útkoman
virðist ekki ætla að verða lakari
en í meðalári.
Hann sagði að lengd prófsins
myndi hafa áhrif á yfirferð þess.
„Prófdómarar munu taka tillit til
þess í matinu þegar um er að ræða
erfíð matsatriði. Þeir verða fremur
mildari en hitt. En gæta þess auðvit-
að að allir sitji við sama borð hvað
það snertir," sagði Meyvant. Hann
sagði að svipað mál hefði komið upp
vegna samræmds prófs í íslensku
fyrir tveimur árum. Þá hefðu verið
gerðar smávægilegar breytingar á
fyrirkomulagi prófsins sem virtust
hafa tafið nemendur eins og nú.
Nemendur fá einkunnir sínar um
miðjan maí og má þá búast við að
endanlegur úrskurður fáist í málinu.
Stefnt að því að leggja EES-samninginn fyrir Alþingi 12. maí:
Tillaga ríkisstjórnar um
sumarþing í tvennu lagi
JÓN Baldvin Hannibalsson utan-
ríkisráðherra segist stefna að því
að leggja samninginn um evr-
ópskt efnahagssvæði fyrir Alþingi
næstkomandi þriðjudag 12. maí.
Ríkisstjórnin hefur komið sér
saman um sérstaka tillögu um
meðferð og afgreiðslu málsins á
Alþingi sem var kynnt stjórnar-
andstöðunni í gær. Var þing-
flokksformönnum stjórnarflokk-
anna falið að vinna að samkomu-
lagi við stjórnarandstöðuflokkana
um málið. Gerir tillagan ráð fyrir
að umræða um samninginn fari
fram fyrir þinglok 15. maí en síð-
an verði haldið sumarþing í
tvennu lagi, síðustu tíu daga júní-
mánaðar og frá 15. ágúst.
Samkvæmt upplýsingum Morgun-
blaðsins er m.a. gert ráð fyrir að
EES-samningurinn verði lagður fyr-
ir utanríkismálanefnd en einnig er
til ■ skoðunar að sérnefnd þingsins
ljalli um lagafrumvörp auk fasta-
nefnda þingsins. „Það má kalla þetta
tveggja stoða lausn,“ sagði einn við-
Slitnar upp úr sérkjaraviðræðum í álverinu:
VSÍ fellir væntanlega miðlun-
artillöguna fyrir hönd ISAL
SLITNAÐ hefur upp úr sérkjaraviðræðum Vinnuveitendasambands
íshinds fyrir hönd Islenska álfélagsins og starfsmanna ÍSAL og mun
því sérstök miðlunartillaga ríkissáttasemjara í deilu þessara aðila
koma til atkvæða. AHt bendir til þess að VSÍ felli miðlunartillöguna
fyrir hönd ÍSAL,
Þórarinn V. Þórarinsson fratn-
kvæmdastjóri VSÍ sagði að ISAL
. hefði lagt megináherslu á að fá svip-
aðan rétt til stjórnunar og svipaðan
rétt til að nýta sér utanaðkomandi
verktaka og önnur íslensk fyrirtæki
hefðu, auk tveggja annarra atriða
sem varða hagræðingu. í þeirri
samningalotu sem leiddi til miðiun-
artillögu ríkissáttasemjara hefði
náðst samkomulag um að ISAL hefði
svigrúm til samninga við sína starfs-
menn með sama hætti og verið hefur
undanfarin ár en deilan yrði ekki
tekin inn í heildarpakkann. Aðilar
hefðu síðan einsett sér að ná saman
um þau ágreiningsefni sem stóðu í
vegi fyrir samningi en öllum óskum
ÍSAL um breytingar á meginatriðum
hefði síðan verið hafnað.
Gylfí Ingvarsson aðaltrúnaðar-
maður hjá ISAL sagði að á samn-
ingafundum hefði verið ítrekað af
hálfu VSÍ að ef ekki yrði samið um
þau atriði sem ISAL vildi fá breytt
yrði enginn samningur. Þetta sýndi
að VSÍ og ÍSAL hefðu aldrei ætlað
sér að semja við starfsfólk heldur
stilla því upp við vegg. Það dygði
ÍSAL ekki að semja á sömu Iágu
nótunum og aðrir. Alltaf þyrfti að
vera eitthvað meira í mínus.
Sérsök miðlunartillaga var lögð
fram gagnvart ISAL sem er efnislega
samhljóða almennu tillögunni.
Greidd eru atkvæði um hverja tillögu
sérstaklega og fer framkvæmda-
stjórn VSÍ með atkvæði viðkomandi
vinnuveitenda í atkvæðagreiðslunni.
Þórarinn sagði að þótt ekki hefði
komið fram formleg afstaða frá ÍSAL
væri ekki áhugi á því þar að fram-
lengja óbreyttan samning með sam-
þykkt tillögunnar.
Gylfí Ingvarsson sagði að VSI,
sem hefði lagt áherslu á að neita
öllum sérkröfum verkalýðsfélaga
sem hafi í för með sér útgjaldaauka
fyrir fyrirtæki, hefði lýst því yfir að
ef ekki yrði samið við starfsmenn
ÍSAL um sérkröfur verði enginn
samningur. „Þarna á að meðhöndla
launþega suður í Straumsvík á allt
annan hátt en annað launafólk."
Þegar Þórarinn var spurður hvort
það væri ekki erfið staða fyrir VSÍ
að fella miðlunaitillöguna gagnvart
einum hópi en samþykkja hana gagn-
vart öllum öðrum sagði hann svo
vissulega vera. „En viðkomandi fyrir-
tæki hljóta að hafa ráðandi afstöðu
um hvernig fer með málið á sama
hátt og starfsmennirnir ráða þeirra
megin. í annan stað verður okkur
ekki órótt vegna þess að kröfur ÍSAL
eru ekki aðrar en þær að fá að búa
við samskonar skilyrði og önnur fyr-
irtæki innan Vinnuveitendasam-
bandsins. Það teljum við fullkomlega
sanngjamar óskir.“
mælenda við Morgunblaðið.
Eyjólfur Konráð Jónsson, formað-
ur utanríkismálanefndar, sagðist *
ekki vita annað en að allt sem skipti
máli varðandi samninginn verði lagt
fyrir utanríkismálanefnd.
Að sögn Jóns Baldvins var enn á
viðræðustigi hvernig afgreiðslu
samningsins verður háttað þegar
hann hélt af landi brott vegna undir-
ritunar samningsins fyrir helgina.
„Ég hafði gert rækilega grein fyrir
hvað væri nauðsynlegt í þeim efnum
til að tryggja að unnt verði að málið
fái góða og vandaða umfjöllun en
þó þannig að stefnt væri að því að
afgreiða það fyrir áramót," sagði Jón
Baldvin í samtali við Morgunblaðið
í gær.
Forysta þingflokka stjórnarand-
stöðunnar hélt fund síðdegis í gær
um tillögu ríkisstjórnarinnar en
frestaði að taka afstöðu til hennar
og verður annar fundur haldinn fyr-
ir hádegi í dag. Að sögn Önnu Ólafs-
dóttur Björnsson, Kvennalista, er
ýmislegt jákvætt í tillögum ríkis-
stjórnarinnar en annað óljósara sem
ræða þurfi nánar. Margrét Frí-
mannsdóttir, þingflokksformaður
Alþýðubandalagsins, sagði að í sum-
um atriðum væri komið til móts við
sjónarmið stjórnarandstöðunnar.
„Við höfum fengið viðbrögð við
bréfi okkar og erum að kanna þetta.
Það er að hluta til komið til móts
við sjónarmið okkar en það er einnig
atriði sem við komum ekki til með
að geta felit okkur við. Því verður
komið til réttra viðsemjenda," sagði
Páll Pétursson, formaður þingflokks
framsóknarmanna í gærkvöidi.