Morgunblaðið - 12.05.1992, Qupperneq 14

Morgunblaðið - 12.05.1992, Qupperneq 14
14 MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 12. MAÍ 1992 Míkíll fjöldi námsmanna hef- ur fengið námslán án þess að skila lágmarksárangri 40 NAMSARANGUR LANÞEGA LIN 90-91 Miðað við fullt nám skv. skipulagi skóla % af fjölda námsmanna 32.5 30 20 10 8.7 I 12.4 35.5 Undir 75% 75-80% 80-90% 90-99% 100% Árangur m.v. fullt nám A við þá sem skilað hafa upplýsingnm. eftir Steingrím Ara Arason Því miður er það svo að veruleg- ir gallar hafa komið í ljós við fram- kvæmd laga og reglna um starfsemi Lánasjóðs íslenskra námsmanna. Rúmlega helmingur námsmanna, sem fengu lán hjá sjóðnum skólaár- ið 1990-1991, vanáætlaði tekjur sínar en tekjur manna hafa mikil áhrif á upphæð námslána. Þannig hafa námsmenn skammtað sér, a.m.k. um stundarsakir vaxtalausa fjármuni svo nemur hundruðum milljóna króna, sem þeir áttu engan rétt á að fá. Auk þess hefur fjöldí námsmanna fengið lán án þess að skila lágmarks námsárangri. Hundruð námsmanna hafa einnig hætt í námi án þess að láta svo lít- ið að gefa Lánasjóðnum upplýs- ingar um hvort þeir hafi yfirleitt stundað nám á viðkomandi misseri eða skólaári. Þetta eru alvarlegir annmarkar sem hafa kostað mikil fjárútlát, sem engu skila í aðra hönd fyrir námsmenn eða þjóðfé- lagið. Þessir gallar námslánakerfis- ins eiga fyrst og fremst rót sína að rekja til þess að í reglum Lána- sjóðsins er gert ráð fyrir að einung- is nýnemar þurfí að skila árangri áður en þeir fá lán sín greidd. Aðr- ir námsmenn fá námslán sín í raun fyrirframgreidd en skila árangri síðar með fyrrgreindum afleiðing- um. Brýn nauðsyn breytinga Það gefur augaleið að þessu þarf að breyta, enda er slík framkvæmd á aðstoð við námsmenn varla til þess fallin að kenna ungu fólki að umgangast íjármuni svo til farsæld- ar horfi. Ætlunin er að gjörbreyta þessu kerfi með því að taka upp þá reglu að allir námsmenn fái lán eftir að þeir hafa skilað náms- árangri. Þá fá menn t.d. haustlán sín greidd þegar tekjuárið, sem við er miðað, er liðið. Strangar kröfur er þá hægt að gera til þess að upp- lýsingar um tekjur manna séu rétt- ar, þegar lán er afgreitt. Þá er ekki Steingrímur Ari Arason „Verulegur hluti þess- ara ofgreiddu lána greiðast sjóðnum án vaxta þegar frá líður. Það er þó ekki kjarni málsins. Hann er sá að með röngum upplýsing- um fékk rúmlega helm- ingur námsmanna á þessu skólaári í hendur mikla vaxtalausa fjár- muni, sem þeir áttu ekki rétt á.“ síður mikilvægt að með þessu móti er hægt að fylgjast miklu betur með því að menn stundi það nám, sem þeir fá lánað til og hvort árang- ur þeirra er í samræmi við reglur sjóðsins. Alvarlegar brotalamir Gerð hefur verið sérstök athugun hjá LÍN á námsframvindu, skilum námsmanna á árangri og vanáætl- uðum tekjum námsmanna og maka þeirra skólaárið 1990-1991. í ljós komu eftirfarandi niðurstöður, sem sýna glöggt stóraivarlegar brota- lamir í núverandi námslánakerfi. 1. Fjöldi fólks, eða um 1.000 manns, hefur ekki enn skilað sjóðn- um upplýsingum um námsárangur, þótt nú sé nærri ár liðið frá lokum skólaársins 1990-1991. 2. Varlega áætlað hafa 300-400 manns af þessum hópi hætt námi án þess að skila tilskildum árangri. Þetta fólk fékk námslán en ekkert liggur fyrir um hvort þetta fólk sótti yfirleitt skóla eða ekki. 3. Rúmlega helmingur náms- manna fékk meiri námslán einhvern tíma vetrarins en viðkomandi átti rétt á. Þetta stafar fyrst og fremst af því að 4.373 námsmenn og 794 makar þeirra vanáætluðu sér tekj- ur, þegar haustlán voru reiknuð. Lánþegar með tekjur voru 8.079. Samtals nam þessi vanáætlun tekna 640 milljónum króna. 4. Þessir námsmenn hafa því fengið ofreiknuð haustlán sem námu 350-400 milljónum króna umfram það sem þeir áttu rétt á. í því sambandi má minna á að skerðing lána vegna tekna umfram frítekjumark var mjög hátt á þessu skólaári eða 75%. Þess skal getið að hjá mörgum leiðréttist þetta þegar vorlán voru reiknuð, en í lok skólaársins höfðu eftir sem áður um 500 manns fengið ofgreidd lán að upphæð um 50 milljónum króna. Þessi lán eru öll vaxtalaus en verð- tryggð. Verulegur hluti þessara of- greiddu lána greiðast sjóðnum án vaxta þegar frá líður. Það er þó ekki kjarni málsins. Hann er sá að með röngum upplýsingum fékk rúmlega helmingur námsmanna á þessu skólaári í hendur mikla vaxta- lausa íjármuni, sem þeir áttu ekki rétt á. Kostnaður vegna nýrra reglna um útborgun námslána Á það hefur verið bent að nýjar reglur, sem kveða á um aðra tilhög- un á greiðslu námslána en verið hefur, hafi kostnað í för með sér fyrir námsmenn. Það er rétt. Til þess þarf einfaldlega að taka tillit þegar námslán eru ákveðin og hækka lán til þess að mæta þeim kostnaði. Ennfremur þarf að draga enn úr því að tekjur hafi áhrif á námslán. Með því móti er mönnum gefið aukið svigrúm til þess að afla sér tekna til þess að standa straum af námi sínu. Rúmlega þriðjungur lánþega LÍN skilaði eðlilegum afköstum í námi Það er athyglisvert að einungis 35,5% af námsmönnum, sem fengu lán hjá LÍN skólaárið 1990-1991 skilaði fullum afköstum eða 100% námsframvindu samkvæmt skipu- lagi skóla. (Sjá meðfylgjandi súlu- rit.) Þá er átt við að menn ljúki því námi, sem skóli telur eðlileg afköst á hveiju ári. Álíka hátt' hlutfall skilaði 75-80% námsframvindu, en sjóðurinn hefur sett að skilyrði að námsmenn skili að lágmarki 75% eða 3/4 af þeim einingaijölda, sem skóli telur eðlilegt að menn ljúki. Athyglisvert er þó að 8,7% af þeim námsmönnum, sem upplýsingar liggja fyrir um fengu lán, en skil- uðu ekki lágmarksárangri. Þar er um að ræða nálægt 600 manns. Að þessu athugðu hlýtur að koma til álita að reglur LÍN hvetji menn í ríkari mæli en gert hefur verið til eðlilegra afkasta í námi. Hvernig á að rifa seglin? Það liggur fyrir að draga þarf úr fjárþörf LÍN. í stórum dráttum eru til þess tvær leiðir. Hin fyrri er sú að skerða öll námslán. Hin síðari er að sneiða slíka agnúa af sem hér hafa verið gerðir að umtals- efni og nýta fjármuni sjóðsins mun betur. Þetta eru dýrir agnúar í fleiri en einum skilningi. Einsýnt er að þá leið á að fara og veijast því um leið að námsmenn, sem eru í alvöru námi með eðlileg afköst þurfí að taka á sig meiri skerðingii námslána en nauðsynlegt er. Höfundur er stjórnarmaður í LÍN og aðstoðarmaður fjármálaráðherra. FAGURGRÆN - VATNSÞOUN Henta á svalir - verandir og tíl útstillinga. Hagstætt verð! Breidd 200 cm og 400 cm 4 TEGUNDIR Teimisvelúr(2og4m) kr. 980 Við sníðum eftir þínu málí. Opið laugardaga kl. 10-14. TEPPABODIN GÓLFEFNAMARKAÐUR SUÐURLANDSBRAUT 26 S-91 681950 Heill þér þingheimur eftir Elsu B. Valsdóttur Alþingi íslendinga er virðuleg og valdamikil stofnun. Þar sitja 63 lýð- ræðislega kjörnir fulltrúar þjóðar- innar sem fara með löggjafarvaldið. Lögin sem Alþingi setur hafa víð- tæk áhrif á líf þegnanna í landinu og stundum bein áhrif á afkomu þeirra. Við hljótum því að gera þá kröfu að lögin sem sett eru séu réttlát og skynsamleg. Þrátt fyrir það mikla vald sem við gefum þing- mönnum okkar erum við ekki alltaf sátt við þau vinnubrögð sem þeir beita eða lögin sem þeir vilja setja. Þessa dagana eru 15.000 náms- menn mjög ósáttir við það laga- frumvarp sem nú er komið til þriðju umræðu í þinginu og íjallar um Lánasjóð íslenskra námsmanna. Og það eru ekki bara námsmenn sem eru ósáttir, það sést best á 30 klukkustunda umræðu sem þegar hefur farið fram á Alþingi um frum- varpið og þeim átta þúsund undir- skriftum sem safnað hefur verið gegn því hjá fólkinu í landinu. Þetta frumvarp er hvorki réttlátt né skyn- samlegt. Það dregur gróflega úr jafnrétti til náms, eykur aðstöðu- mun og á eftir að hafa veruleg áhrif á kjarabaráttuna þegar fram í sækir. Menntamálaráðherra og þingheimi öllum hefur hvað eftir „Getur verið að í þessu mikilvæga máli sem LÍN er, sjóður sem fjöldi manna byggir tímabundna afkomu sína á, að ráðherra og ríkisstjórn séu í póli- tískum skollaleik með það á Alþingi?“ annað verið bent á galla þessa frumvarps. Fulltrúar námsmanna hafa gert það, þingmenn hafa gert það og allir sem eitthvað kynna sér frumvarpið gera sér strax grein fyrir alvarlegum göllum þess. Þrátt fyrir þetta er frumvarpið nú komið til þriðju umræðu og endanlegrar afgreiðslu í þinginu nær óbreytt frá fyrstu gerð. Hvernig stendur á þessu? Getur það verið að í þessu mikilvæga máli sem LÍN er, sjóður sem fjöldi manna, kvenna og barna byggja tímabundna afkomu sína á, að ráðherra og ríkisstjórn séu í pólitískum skollaleik með það á Alþingi? Getur verið að þijóskan við að „láta undan“ stjórnarand- stöðunni með því að samþykkja eitt- hvað af þeim breytingartillögum sem hún hefur gert á frumvarpinu Elsa B. Valsdóttir yfirgnæfi þá rödd skynsemi og rétt- lætis sem hlýtur að segja hveijum þingmanni að gera það? Sá þing- maður sem þannig hugsar er ekki verður þess trausts sem kjósendur hafa sýnt honum, sá ráðherra sem svo hugsar ber ekki hag skjólstæð- inga sinna fyrir bijósti og sú ríkis- stjórn, sem þannig starfar, hún starfar hvorki af skynsemi né rétt- læti. Höfundur situr í Stúdentaráði HI f.h. Vöku, f.l.s.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.