Morgunblaðið - 12.05.1992, Síða 23
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 12. MAÍ 1992
23
Nikulás keisari í haldi í Tsarshoe Selo árið 1917. Vopnaðir verð-
ir gæta hans.
Rússland:
Jarðneskar leifar
Romanov-keisarafj öl-
skyldunnar fundnar
London. Reuter.
RÚSSNESKIR fornleifafræðingar hafa fundið jarðneskar leifar
Nikulásar II, síðasta keisara Rússlands, og fjölskyldu hans en bylt-
ingarmenn kommúnista tóku hana af lífi fyrir nærri 75 árum. Var
sagt frá þessu í breska blaðinu Sunday Times en keisarafjölskyld-
an var Nikulás, kona hans, Alexandra, og fimm börn þeirra. Auk
þess fundust beinaleifar fjögurra hirðmanna.
Fornleifafræðingarnir segja það
engum vafa undirorpið, að um sé
að ræða Romanov-fjölskylduna,
sem kommúnistar tóku af lífi 17.
júlí árið 1918, ári eftir byltinguna.
Eru grafirnar, sem eru tvær, rétt
við bæinn Ekaterínbúrg í Úralfjöll-
um, 1.360 km austur af Moskvu.
Að sögn Ljúdmílu Kotjakova, tals-
manns fornleifafræðinganna,
skipaði Borís Jeltsín Rússlandsfor-
seti sjálfur svo fyrir um, að líkam-
sleifar keisarafjölskyldunnar
skyldu grafnar upp.
{ annarri gröfinni voru bein níu
manna en tveggja í hinni, þar á
meðal Anástasíu, yngstu dóttur
keisarans. Hafa lengi verið á kreiki
sögur um, að hún hafi komist lífs
af og kona nokkur, Anna Ander-
son, stóð á því fastar en fótunum
í 64 ár eða þar til hún lést 1984,
að hún væri Anastasía.
Sunday Times sagði, að með
uppgreftinum hefðu einnig verið
staðfestar frásagnir um, að keis-
aradæturnar hefðu lifað af skot-
hríðina frá afstökusveitinni vegna
þess, að þær höfðu vafið sig með
skartgripum innanklæða, en þá
voru þær stungnar til bana með
byssustingjum. Að því búnu voru
líkin svipt klæðum, bensíni hellt
yfir þau og kveikt í. Síðan voru
teknar tvær grafir' og yfir líkin
níu í þeirri stærri var hellt brenni-
steinssýru en áður en mokað var
ofan í var vörabíl ekið fram og
aftur yfir líkin til að gera þau sem
óþekkjanlegust.
Gerðar verða erfðafræðilegar
samanburðarprófanir á líkamsleif-
unum og hárlokkum, sem varð-
veist hafa af Romanov-fjölskyld-
unni, og er búist við, að þær stað-
festi fullyrðingar fornleifa-
fræðinganna.
Samsteypustj órn
í Tadzíkhístan
Dúshanbe. Reuter.
RÍKISSTJÓRN Tadzíkhístans og leiðtogar stjórnarandstöðunnar
komust að samkomulagi í gær um myndun samsteypustjórnar til að
koma í veg fyrir að borgarastyijöld brjótist út í landinu. Samkomu-
lagið tókst á fundi með Rakhmon Nabíjev, forseta Tadzíkhístans,
stjórnarandstöðuleiðtogum og Qazi Akbar Turazhondzade, helsta
trúarleiðtoga múslima í landinu.
Þessir aðilar hófu samingavið-
ræður sl. sunnudag en þeim var
frestað þegar öryggislögregla
landsins skaut á mótmælendur við
bækistöðvar öryggislögreglunnar
með þeim afleiðingum að níu manns
létust og 24 særðust alvarlega.
Vjatsjeslav Zabolotníj, ofursti í
setuliðinu í höfuðborginni Dúsh-
anbe, sem var í forsvari fyrir friðar-
viðræðunum, sagði að ekki hefði
verið rætt um hvort Nabíjev segði
af sér sem forseti. Einn af leiðtog-
um íslamska endurreisnarflokksins,
Davlat Uzmon, sagði hins vegar að
það væri enn meginkrafa stjórnar-
andstöðunnar. „Ríkisstjórn hefur
verið mynduð, en þrátt fyrir það
hafa viðræðurnar engum árangri
skilað. Okkar meginkrafa er afsögn
Nabíjevs,“ sagði Uzmon.
Samkomulagið kveður á um að
stríðandi aðilar leggi niður vopn og
mótmælafundir múslima og lýðræð-
issinna í miðborg Dúshanbe verði
leystir upp, en þeir hafa verið haldn-
ir daglega í meira en einn og hálfan
mánuð. Her Samveldisríkjanna mun
afvopna almenning í höfuðborginni
og á eftirlitsstöðvum í útjöðrum
hennar. Samveldisherinn og innan-
rfkisráðuneyti Tadzíkhístan munu
sameiginlega beita sér fyrir því að
samkomulagið verði haldið.
FYRIR
ÞÁTTTÖKUINIA
TIL HAIVIIIMGJU ÍVIEÐ
GÓÐAIM ÁRAIMGUR
/
1 tilefni af nýafstaöinni teikni- og slagorðasamkeppni
grunnskólanema, viljum viö koma sérstöku þakklæti
til skólastjóra, kennara og nemenda þeirra grunnskóla
sem tóku þátt í keppninni - en alls voru skólarnir
44 talsins.
Eftirtaldir nemendur fengu verðlaun fyrir teikningar:
Bjarnfríður Einarsdóttir, Garði. Jens Freymóðsson, Garði. Guðbjörg Rannveig
Jóhannesdóttir, Garði. Guðmundur Gisli Gunnarsson, Sandgerði. Daöi
Bertelsson, Sauðárkróki. Stefán Örn Stefánsson, Kópavogi. Margrét Sæný
Gísladóttir, Hveragerði. Árni H. Gunnlaugsson, Stykkishólmi. Stefán Bogi
Sveinsson, Egilsstöðum. Þráinn Gíslason, Hellu. Gunnar Marel Hinriksson,
Selfossi. Auðunn Karlsson, Hvammstanga. Jóhann Gunnlaugsson,
Hvammstanga. Kristin Þorsteinsdóttir, Hvammstanga. Perla Ósk Kjartansdóttir,
Hvammstanga. Þórarinn Sigurvin Jónsson, Hvammstanga. Sigursteinn
Agnarsson, Raufarhöfn. Elsa Rún Erlendsdóttir, Hvammstanga. Lára Betty
Harðardóttir, ísafirði. Ágústa Sigurðardóttir, ísafirði. Bára Dröfn Kristinsdóttir,
lsafirði. Birna Sveinbjörnsdóttir, Dalvik. Daníel Páll Jónasson, Reykjavik. lnga
Maria Brynjarsdóttir, Reykjavik. Embla Kristjánsdóttir, Reykjavík. Þuriður
Uelgadóttir, Reykjavík. Geir Þór JóKannsson, Reykjavík. Eyrún Björk
Jóhannsdóttir, Eiðum. Hólmfríður Leifsdóttir, Reykjavík. Amar Haraldsson,
Reykjavík. Gunnar Tryggvason, Reykjavik. Rúna Egilsdóttir, Reykjavík.
Pétur Már Egilsson, Reykjavík. Guðjón Birgir Tómasson, Borgarnesi.
Hallbera Eiríksdóttir, Borgarnesi. Guðrún Ðalía Salómonsdóttir, Reykjavík.
Steindór G. Steindórsson, Reykjavík. Aðalheiöur Ýr Ólafsdóttir, Reykjavík.
Birgitta Anný Baldursdóttir, Reykjavík. Rósa Dögg Gunnarsdóttir, Reykjavik.
Ása Gunnarsdóttir, Reykjavík. Ingibjörg Sigurbjörnsdóttir, Reykjavík. Katrin íris
Kortsdóttir, Reykjavík. lvar Unnsteinsson, Kópavogi. Páll Heiðar Halldórsson,
Kópavogi. Þórir Breiðfjörð Kristinsson, Kópavogi. Ólafur H. Sverrisson,
Seltjarnarnesi. Jóhann H. Gunnarsson, Reykjavik. Gunnar Torfi Jóhannsson,
Reykjavík. Logi Guðjónsson, Garðabæ. Anna Stefanía Kristmundsdóttir,
Reykjavík. Jóhann D. Kristjánsson, Reykjavik. lngunn Ósk Benediktsdóttir,
Reykjavík. Brynja Kristjánsdóttir, Mosfellsbæ. Sigurður Steinn Sveinsson,
Reykjavík. Eyjólfur Hannesson, Reykjavík. Kolbrún Eva Helgádóttir, Grenivík.
Ama Óttarsdóttir, Eáskrúðsfiröi. Una Lorenzen, Reykjavík, verðlaun iyrir tvær
myndir.
Eftirtaldir bekkir fengu verðlaun fyrir slagorð:
7.1M Hlíðaskóla, Reykjavík.
6. BH Hamraskóla, Reykjavik.
3. Y Grunnskóla SigluQarðar.
9. bekkur Grunnskólans í Borgamesi.
6. SK Grundaskóla, Akranesi.
4. A Myllubakkaskóla, Keflavík.
6. ÓS Seljaskóla, Reykjavik.
7. S Grandaskóla, Reykjavík.
8. SS Brekkubæjarskóla, Akranesi.
Eftirtaldir skólar fengu verðlaun fyrir heildarframlag
til keppninnar:
Gerðaskóli, Garði.
Laugarbakkaskóli, V-Húnavatnssýslu.
Laugarnesskóli, Reykjavík.
Fyrstu verðlaunamyndirnar munu birtast á umbúöum skóla-
mjólkurinnar næsta vetur.
Fyrir hönd Markaðsnefndar mjólkuriðnaðarins,
Óskar H. Gunnarsson
formaöur Mjólkurdagsnefndar.