Morgunblaðið - 12.05.1992, Blaðsíða 29
MORGUNBLAÐIÐ yiDSKDPTI/XIVlNNUIÍF ÞRIÐJUDAGUR 12. MAÍ 1992
29
iTypPTTTPHF
Yfirtaka Skandia á trygginga-
félaginu Hafnia úr sögunni
Hafnia, annað stærsta tryggingafélag í Danmörku, verður áfram í
danskri eigu og fyrri samningar stjórnar fyrirtækisins við sænska
tryggingafélagið Skandia eru úr sögunni, í bili að minnsta kosti. Hafa
þar með orðið nokkur kaflaskipti í mesta tryggingafélagastríði, sem
geisað hefur á Norðurlöndum.
Þegar ljóst þótti, að Skandia
myndi kaupa upp Hafnia risu ýmsir
hluthafar í fyrirtækinu upp á aftur-
fætuma enda sveið mörgum Dönum
að sjá á bak fyrirtækinu í hendur
Svíum. Það var Dýrtíðarsjóður laun-
þegahreyfíngarinnar, sem hafði for-
ystu fyrir andófinu, og fengu for-
svarsmenn iians fljótt aðra hluthafa
í lið með sér. 30. apríl sl. ákvað svo
stjórn Hafnia, sem átt hefur í miklum
fjárhagserfiðleikum, að fallast á
„dönsku lausnina", sem svo er köll-
uð, en Dýrtíðarsjóðurinn og Eftir-
launasjóður sveitarfélaganna hafa
einkum beitt sér fyrir henni.
Samkvæmt þessari lausn munu
fyrrnefndir sjóðir og aðrir hluthafar
leggja Hafnia til að minnsta kosti
15 milljarða ÍSK. og verður það í
formi hlutafjáraukningar þar sem
núverandi hluthafar hafa forkaups-
rétt. Allt er þó enn á huldu um hvern-
ig og hvenær Hafnia losar sig við
hlutabréfin í Skandia og Baltica,
stærsta tryggingafélagi í Dan-
mörku, en J)au eru metin á um
70 milljarða ÍSK. Eru kaupin á
þeim aðalástæðan fyrir fjár-
hagsþrengingum Ilafnia.
Stjóm Hafnia bar það fyrir sig
þegar hún hafnaði yfirtöku Skandia,
að forsvarsmenn þess hefðu ekki lagt
reikninga yfir stöðu fyrirtækisins á
borðið innan tiltekins tíma en í her-
búðum Skandia er það að frétta, að
þar á bæ hafi menn fengið nýjar og
áður ókunnar upplýsingar um slæma
stöðu Hafnia. Ymsir forsvarsmenn
beggja fyrirtækjanna harma þó, að
ekki skyldi hafa orðið af samrunan-
um, sem þeir telja nauðsynlegan með
tilliti til samkeppnisstöðunnar á innri
markaði Evrópubandalagsins. Búist
er við, að ýmsum ráðamönnum Hafn-
ia verði fómað ,á altari „dönsku
lausnarinnar" en Ebbe J.B. Christ-
ensen, núverandi stjómarformaður,
sagði, að fyrr en síðar yrði Hafnia
að leita sér nýs félaga ef það
ætlaði sér að lifa áfram.
Tölvur
Mips selur einkatölvur
MIPS Computer Systems setur uú á vordögum á markað fyrstu einka-
tölvu sína, en hingað til hefur Mips sérhæft sig einkum í fram-
leiðslu tölvukubba. Nýja vélin er afrakstur samstarfs Mips, Micro-
soft, Digital og nokkurra annarra aðila innan upplýsingaiðnaðarins.
Tölvan, sem kölluð er ARCSyst-
em line, notar nýjan og öflugan
tölvukubb sem Mips hefur hannað
og framleiðir. Tölvan er ennfremur
sérstaklega hönnuð til þess að nota
Bílar
Japanir draga úr bíla-
útflutningi til Evrópu
EFTIR viðræður við Evrópubandalagið samþykktu japönsk yfirvöld
að draga úr bílaútflutningi til Evrópu á þessu ári, en vegna sam-
dráttar eiga evrópskir bílafrainleiðendur nú margir hverjir í erfið-
leikum
Windows NT stýrikerfið.
Nýja Windows NT stýrikerfið er
hannað með það í huga að hægt
verði að nota það jafnt á vélar sem
noti tölvukubba frá Intel, sem og
þær sem nota nýja kubbinn frá
Mips eða aðra kubba.
Aukinn vinnsluhraði byggir á
svokallaðri Risc tækni sem einkum
hefur verið notuð í dýrari vinnu-
stöðvum hingað til. Þeir verða þó
ekki einir um að bjóða nýja og
öfluga kubba sem byggja á þessu,
Jiví Digital hefur einnig kynnt nýjan
kubb sem nefndur er Alpha.
Að sögn fulltrúa Evrópubanda-
lagsins er búist við að samdráttur
í sölu nýrra bíla í Evrópu í ár nemi
um 5%. Japanir munu hafa sam-
þykkt að draga úr útflutningi sínum
sem næmi þessu hlutfalli, og örlitlu
betur. Á síðasta ári voru seldir
1.250.000 japanskir bílar í Evrópu,
þannig að hér er um að ræða sam-
drátt upp á 62.500 bíla hið minnsta.
Talsmaður Evrópubandalagsins
sagði að Japanir hefðu tekið þessa
ákvörðun í ljósi þeirra erfiðleika
sem bílaiðnaðurinn í Evrópu á nú
við að eiga, og þeir vonuðust enn-
fremur til þess að með þessu móti
mætti forðast að koma á of miklu
róti á markaðinn.
Síðastliðið sumar var gengið frá
samkomulagi milli Evrópubanda-
lagsins og Japan um aðlögun-
artímabil fyrir framleiðendur í Evr-
ópu fram til ársins 1999, en þá
verður markaðurinn opnaður að
fullnustu fyrir Japani. Samkvæmt
þeim samningi verður innflutningur
á japönskum bílum á næsta ári tak-
markaður við 1.230.000 bíla, en sú
tala var byggð á sölutölum frá ár-
inu 1990.
Hjartans þakkir vil ég fœra öllum þeim, sem
glöddu mig meÖ heillaóskum, gjöfum, heim-
sóknum eða á annan hátt geröu mér ógleyman-
legt 90 ára afmœli mitt þann 5. maí sl.
Guð blessi ykkur öll.
Oddur Ágústsson.
Nýja símanúmerið okkar er:
634000
BEINIR SIMAR:
Varahlutadeild .............63 41 30
Bílasala ...................63 40 50
Bílaverkstæði ..............63 40 30
Raftæknideild ..............63 40 40
Rafvélaverkstæði ...........63 40 42
Fóðurafgreiðsla ............68 56 16
Fóðurblöndunarstöð .........68 68 35
JUUiísOHlfej
HÖFÐABAKKA 9 112 REYKJAVÍK
I 1 imrnt í Sbbifrffe
Meim en þú geturímyndað þér! co
8.6%
Aisávöxlun iimfram verðbólgu s.l. 3 mán.
SJOÐSBREF5
Mjög öruggur sjóður
sem eingöngu fjárfestir
ríkistryggðum verðbréfum.
VlB
VERÐBRÉFAMARKAÐUR ÍSLANDSBANKA HF.
Ármúla 13a, 155 Reykjavík. Sími 68 15 30.
SIEMENS
Með SIEMENS heimilistœkjum verður lífið léttara!
Traustir umboðsmenn okkar eru víðs vegar um landið!
• Akranes: Rafþjónusta Sigurdórs, Skagabraut 6.
• Borgarnes: Glitnir, Fálkakletti 13.
• Borgarfjörður: Rafstofan Hvítárskála.
• Hellissandur: Verslunin Blómsturvellir, Munaðarhóli 25.
• Grundarfjöröur: Guðni Hallgrímsson, Grundargötu 42.
• Stykkishólmur: Skipavík, Hafnargötu 7.
• Búðardalur: Versl. Einars Stefánssonar, Brekkuhvammi 12.
• ísafjöröur: Póllinn hf., AÖalstræti 9.
• Blönduós: Hjörleifur Júlíusson, Ennisbraut 1.
• Sauðárkrókur: Rafsjá hf., Sæmundargötu 1.
• Siglufjörður: Torgið hf., Aðalgötu 32.
• Akurevri: Sír hf.. Revnishúsinu. Furuvöllum 1.
• Húsavík: öryggi sf., Garðarsbraut 18a.
• Þórshöfn: Norðurraf, Langholti 3.
• Neskaupstaöur: Rafalda hf., Hafnarbraut 24.
• Reyðarfjörður: Rafnet, Búðareyri 31.
• Egilsstaðir: Raftækjav. Sveins Guðmunds., Kaupvangi 1.
• Breiödalsvík: Rafvöruv. Stefáns N. Stefánss., Asvegi 13
• Höfn í Hornafirði: Kristall, Hafnarbraut 43.
• Vestmannaeyjar: Tréverk hf., Flötum 18.
• Hvolsvöllur: Kaupfélag Rangæinga, Austurvegi 4.
• Selfoss: Árvirkinn hf., Eyrarvegi 29.
• Garöur: Raftækjav. Sigurðar Ingvarssonar, Heiðartúni 2.
• Keflavík: Ljósboginn, Hafnargötu 25.
c cn
=1
o|
o o
3 <Q
°:Ö
=3 Q
II
oS
Q Q'
3
q£
=50
Q^
3
Q.