Morgunblaðið - 12.05.1992, Blaðsíða 35
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 12. MAÍ 1992
35
KENTUCKV
ÁRMÚl.l
FELLSMÚLI
SKEIFAN
MIKI ARRÁUT
This Masquerade sem heyrist ekki
oft á jasstónleikum.
í Norræna húsinu í kvöld kl.
20.30. verða tónleikar með tríói
Hilmars Jenssonar, en auk hans
koma fram Kjartan Valdimarsson
og Matthías M.D. Hemstock. Kl.
22 hefst jass á veitingahúsum.
Kvartett Björns Thoroddsen er á
Hressó, skipaður James Olsen,
Bjarna Sveinbjörnssyni og Pétri
Grétarssyni. í Djúpinu verða KGB
og Dave Cassidy, í Jazz verður
Andrea Gylfadóttir og tríó Carls
Mollers, á Kringlukránni kvartett
Reynis Sigurðssonar skipaður Jóni
Páli Bjarnasyni, Þórði Högnasyni
og Alfreð Alfreðsyni. í Púlsinum
verður stórsveit Tónlistarskóla FÍH.
Richard Boone og KGB
___________Jass_____________
Guðjón Guðmundsson
RÚREK ’92 var sett í Tjarnarsal
Ráðhússins sl. laugardag. Þar komu
fram Stórsveit Reykjavíkur, Ric-
hard Boone og tríó Carls Mollers,
en það verður fulltrúi íslands á
norrænum jassútvarpsdögum í Ósló
í sumar. Tríóið er með skemmtilegt
prógramm af velþekktum jasslög-
um og íslenskum dægurlögum sem
Carl hefur útsett á bráðskemmtileg-
an hátt, t.a.m. Sigurður er sjómað-
ur og vögguvísuna Sofðu unga ást-
in mín, sem Andrea Gylfadóttir
gerir frábær skil.
Á sunnudag hófst svo hin eigin-
lega jassvika sem stendur til laugar-
dagsins 16. maí. Richard Boone fór
á kostum í Púlsinum með öflugum
liðstyrk heimamanna, þ.e. Kjartani
Valdimarssyni, Þórði Högnasyni og
Pétri Grétarssyni. Flutt voru tvö lög
sem Billie Holliday gerði fræg,
There is no greater love og When
your lover has come. Boone hefur
mjög sérstæðan stíl sem básúnu-
leikari. Hann spilar ofurveikt en
spuninn er í fínu lagi. In a mellow
tone í latín-takti var skemmtilega
flutt og píanósólóið var stórglæsi-
legt. Svo fór Boone af sviðinu og
tríóið lék skemmtilega útsetningu á
Someday your prince will come.
Fyrri hluta tónleikanna lauk með
því að Boone söng á sinn einstæða
hátt Misty. Það má segja að rödd
hans dragi dám af básúnuleiknum,
eða öfugt. Hann syngur lágt en af
góðri tilfínningu og hann skattar
öðrum mönnum betur.
Næst lá leiðin í Hressó þar sem
KGB bandið var að hefja síðara
settið. Þar var mikið fjör þegar
sveitin lék C-jam eftir Ellington.
Fiðlarinn bandaríski Dave Cassidy
var í sólóhlutverkinu ásamt Krist-
jáni Guðmundssyni píanista og
Stefán Ingólfsson og Steingrímur
Guðmundsson héldu bítinu í lagi.
Næst kom sambaperlan Wave í
fremur hefðbundnum flutningi og
svo var aftur farið í smiðju Ellingt-
ons með Take the A-train. Síðasta
lag sem undirritaður heyrði var
____________Brids_______________
Umsjón Arnór G. Ragnarsson
íslandsmótið í parakeppni
1992
Islandsmótið í parakeppni var hald-
in á Hótel Höfn, Siglufirði, 9.-10. maí
og var metþátttaka, 41 par. 27 pör
frá Norðurlandi, 13 pör frá Reykjavík
ogJ frá Suðurlandi. Spilaður var baró-
meter 2 spil á milli para. Hjördís Ey-
þórsdóttir og Sigurður B. Þorsteins-
son, Reykjavík, tóku strax afgerandi
forystu og sigruðu með glæsibrag,
enduðu með 394 stig, 128 stigum fyr-
ir ofan næstapar, Esther Jakobsdótt-
ir og Sverrir Ármannsson, Reykjavík,
sem hlutu 266 stig. Næstu sæti skip-
uðust þannig:
Sólveig Róarsd. - Gunnar Sveinsson, Skagastr.222
Björk Jónsdóttir, — Jón Sigurbjömss., Sigluf. 216
Guðrún Jóhannesd. - Jón H. Elíasson, Rvík 171
Ágústa Jónsd. -Kristján Blöndal, Sauðárkr. 142
Mótið fór vel fram undir öruggri
stjórn Jakobs Kristinssonar og reikni-
meistari var Sveinn R. Eiríksson.
Bridsfélag Breiðholts
Eftir fyrra kvöld firmakeppninnar
er staðan þessi:
A-riðill stig
Nuddstofa Þórunnar
spilari: Haraldur Þ. Gunnlaugsson 116
Bílaverkstæði Steindórs
spilari: María Ásmundsdóttir 107
Neon
spilari: Rúnar Einarsson 102
Hreyfill
spilari: Bryndís Þorsteinsdóttir 100
B-riðill
Stjörnusalat
spilari: Kolbrún Thomas 112
íslandsbanki
spilari: Guðjón Siguijónsson 110
Árni Gunnarsson sf.
spilari: Óli Björn Gunnarsson 102
Kjötborg, Ásvallagötu
spilari: Ingvar Ingvarsson 100
Keppninni lýkur næsta þriðjudag.
Bridsfélag Kópavogs
Sl. fimmtudag hófst þriggja kvölda
vortvímenningur. Spilað var í tveim
riðlum.
Staðan:
A-riðill stig
Þröstur Ingimarsson - Ragnar Jónsson 139
Jón Steinar Ingólfsson - Sigurður ívarsson 121
Haraldur Ámason - Trausti Finnbogason 120
B-riðill stig
Þórður Bjömsson - Birgir Örn Steingrímsson 130
Magnús Aspelund - Steingrímur Jónsson 121
Freyja Sveinsdóttir - Sigríður Möller 120
Önnur umferð verður spiluð næsta
fimmtudag.
Bridsfélag Breiðfirðinga
Sl. fimmtudag var spilaður eins
kvölds Michell-tvímenningur með
þátttöku 18 para.
Hæsta skor í N/S:
Guðrún Jóhannesdóttir - Gróa Guðnadóttir 251
Björn Arnarson—Jón Gíslason 250
Guðlaugur Sveinsson - Lárus Hermannsson 245
Hæsta skor í A/V:
Geirlaug Magnúsdóttir - Torfi Axelsson 258
Sigríður Pálsdóttir - Eyvindur Valdimarsson 256
V aldimar Elíasson - Óli Björn Gunnarsson 233
Fimmtudaginn 14. maí verður létt
spilamennska fram eftir kvöldi og af-
hent verðlaun fyrir keppni vetrarins.
Richard Boone
?. .
‘W - ' V- V
„BUÐURIANDSBRAUT
Re / ðhjó/avers/unin
ÖRNINN
SÍMI67 98 90 verkstæSio sími 67 98 91
ÞAR SEM FJALLAHJÓUN FÁST