Morgunblaðið - 30.05.1992, Blaðsíða 31

Morgunblaðið - 30.05.1992, Blaðsíða 31
30 MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 30. MAÍ 1992 fltargtiiitybifelfe Útgefandi Framkvæmdastjóri Ritstjórar Fulltrúar ritstjóra Fréttastjórar Ritstjórnarfulltrúi Árvakur h.f., Reykjavík Haraldur Sveinsson. Matthías Johannessen, Styrmir Gunnarsson. Þorbjörn Guðmundsson, Björn Jóhannsson, Árni Jörgepsen. Freysteinn Jóhannsson, Magnús Finnsson, Sigtryggur Sigtryggsson, Ágúst Ingi Jónsson. Björn Vignir Sigurpálsson. Ritstjórn og skrifstofur: Aðalstræti 6, sími 691100. Auglýsingar: Aðal- stræti 6, sími 691111. Afgreiðsla: Kringlan 1, sími 691122. Áskriftar- gjald 1200 kr. á mánuði innanlands. í lausasölu 110 kr. eintakið. Borgin iðar af list Listahátíð í Reykjavík verður sett í dag, en að þessu sinni stendur hún yfír í þrjár vikur, 30. maí til 19. júní. Höfuðborg- in verður því iðandi af list á næstunni og verður velflestum listgreinum gerð skil af innlend- um og erlendum listamönnum. Listahátíð hefur verið haldin í Reykjavík frá árinu 1970 á tveggja ára fresti og hefur hún áunnið sér fastan sess í þjóðlíf- inu. Aðalhvatamaðurinn að há- tíðinni var Vladimir Askenazy, sem þá var búsettur hér á landi, en ásamt honum hafa fjölmarg- ir mætir menn átt þátt í því fyrr og síðar að afla henni vin- sælda og virðingar. Höfuðmarkmið Listahátíðar er að sjálfsögðu að glæða áhuga almennings á listum og gefa mönnum kost á að njóta þess bezta, sem íslenzkir listamenn hafa fram að færa, svo og að fá erlenda listamenn til landsins í sama skyni. Aðsókn að listahá- tíð hefur alla tíð verið mjög góð og því er óhætt að fullyrða, að markmiðinu hafí verið náð. Listahátíð hefur gefíð islenzk- um listamönnum tækifæri til sköpunar og túlkunar, sem ella hefði ekki fengizt, og hún hefur veitt tækifæri til að fá til lands- ins marga beztu listamenn heimsins, sem sumir hveijir hefðu ekki komið að öðrum kosti. Frá upphafi var ætlunin að Listahátíð færði listalíf um- heimsins nær okkur, væri vett- vangur þar sem almenningur gæti kynnzt því sem áhugaverð- ast væri og hæst bæri í samtíð- armenningu erlendra þjóða. Þessi þáttur Listahátíðar hefur verið fyrirferðamikill alla tíð og hefur verið ein helzta ástæðan fyrir vinsældum hennar meðal almennings. Það má líka með sanni segja, að margir mestu listamenn samtímans hafí sótt Reykjavík heim vegna Listahá- tíðar. Of langt væri að telja þá alla upp, en þó er ekki úr vegi að minnast á Daniel Barrenbo- im, Jacqueline du Pré, Mstislav Rostropovitsj, André Prévin, Emil Gilels, Claudio Arrau, Elly Ameling, Ingmar Bergman, Doris Lessing og Dave Brubeck, svo og fjölmarga leikflokka og aðra hópa listamanna, t.d. San Fransisco-ballettinn undir stjóm Helga Tómassonar. Margar stórmerkar sýningar hafa verið haldnar á verkum listamanna eins og t.d. Picass- os, André Massons og nú að þessu sinni, Joan Miro. Sumir listamennimir hafa gefíð íslend- ingum verk eftir sig og má þar nefna landslagverkið Áfanga eftir Richard Serra, stuðla- bergssúlur, sem um ókomin ár munu standa í Viðey. Hér hefur að sjálfsögðu aðeins verið minnzt á fáa þeirra erlendu listamanna, sem auðgað hafa listalíf þjóðarinnar frá fyrstu dögum Listahátíðar. Listahátíð 1992 er að ýmsu leyti sérstæð miðað við fyrri hátíðir og er það vegna þess, að leiklistin skipar fyrirferðarm- ikinn sess. í tengslum við hátíð- ina nú er efnt til Norrænna leik- húsdaga, en þeir em haldnir til skiptis á Norðurlöndum. Alls koma fímm norrænir leikhópar til landsins, svo og fjöldi norr- æns leikhúsfólks, sem situr fundi og ráðstefnur um leikhús- mál. Þessi norræna leiklistarhá- tíð nýtur styrks frá Norræna menningarsjóðnum og „Teater og dans i Norden“. Þá ber tals- vert á franskri menningu á Listahátíð nú og er það vegna samnings um gagnkvæm menn- ingarsamskipti íslands og Frakklands, sem undirritaður var í kjölfar heimsóknar Mitter- ands, forseta, til íslands árið 1990. Frakkar senda hingað víð- frægan dansflokk,leiklistarhóp, hljómsveit og loks kemur mynd- listarmaðurinn Daniel Buren, sem vinnur að útilistaverki í samvinnu við Listasafn íslands og Gallerí 11. Margir þekktir erlendir Iista- menn aðrir koma fram á Lista- hátíð 1992 og má þar sérstak- lega nefna píanósnillinginn og öldunginn Shura Cherkassky, flautuleikarann James Galway og söngvarana Grace Bumbry og Gösta Winbergh. Hlutur ís- lenzkra listamanna er einnig mikill og gegnir Sinfóníuhljóm- sveit íslands þar miklu hlut- verki, svo og Islenzka óperan, sem sýnir Rigoletto. íslenzkt leiklistarfólk kemur og mikið við sögu og má nefna, að unnin hefur verið leikgerð eftir Banda- mannasögu af Sveini Einarssyni og er-það framlag íslands til Norrænna leiklistardaga. Sú gagnrýni heyrðist oft, einkum á fyrstu árum Listahá- tíðar, að hlutur íslenzkra lista- manna væri fyrir borð borinn. Þessi gagnrýni hefur að mestu þagnað, enda hefur Listahátíð þróast til aukinnar þátttöku landsmanna sjálfra, bæði skap- andi og túlkandi listamanna. Því ber að fagna. ÍÍ----H Bráðabirgðagreinargerð miðstjómar ASÍ um EES-samninginn; Öllum vafaatriðum verði svarað á fullnægjandi hátt Miðstjórn ASÍ minnir á samþykkt Sambandsstjórnar ASÍ um að efnt skuli til þjóðaratkvæðagreiðslu um samninginn MIÐSTJÓRN Alþýðusambands íslands leggur mikla áherslu á það í bráðabirgðagreinargerð um Evrópska efnahagssvæðið að öllum vafaatriðum um samhengi EES-samningsins og íslensku stjórnarskrárinnar verði svarað á fullnægjandi hátt áður en samningurinn verður afgreidd- ur. í greinargerðinni, sem sam- þykkt var 26. maí síðastliðinn, segir að EES-samningurinn sé svo víðtækur og áhrif hans það mikil á íslenskt þjóðlíf að ryðja Eignarhaldsfélagið svarar Fjölmiðlun: Verðmæti sjónvarps- kerfis og taps kemur á móti skuldunum EIGNARHALDSFÉLAG Verslunarbankans hefur skrifað Fjölmiðlun hf. vegna mats á verðmæti hlutabréfa Fjölmiðlunar hf. í íslenska sjónvarpsfélaginu sem gert var að kröfu Fjölmiðlunar. f bréfinu bendir Eignarhaldsfélagið á að misræmi í upplýsingum um stöðu Sjónvarpsfélagsins stafi af ónákvæmum upplýsingum félagsins sjálfs og að vanmetnar eignir komi þar á móti. Þá er á það bent að sam- komulag hafi verið gert um að hinir nýju hluthafar féllu frá eftirmál- um varðandi hlutafjáraukninguna og ítrekuð sú skoðun að málinu sé ranglega beint gegn Eignarhaldsfélaginu. Höskuldur Ólafsson fram- kvæmdastjóri Eignarhaldsfélagsins sendi Jóhanni J. Olafssyni stjómar- formanni Fjölmiðlunar svarbréf vegna matsins í gær. Höskuldur staðfesti það í gær. Samkvæmt upplýsingum Morgunblaðsins mót- mælir Eignarhaldsfélagið sérstak- lega upplýsingum um aðdraganda þess að Fjölmiðlun fór fram á mat- ið sem lögmaður Fjölmiðlunar dreifði á blaðamannafundi á mánu- dag þegar niðurstaða matsins var kynnt. Telur Eignarhaldsfélagið að þar sé farið rangt með staðreyndir málsins. Varðandi það 200 milljóna kr. misræmi sem matsmennirnir telja að hafí verið á upplýsingum sem Verslunarbankinn veitti um eigin- fjárstöðu Stöðvar 2 við hlutabréfa- kaupin og raunverulegri niðurstöðu bendir Eignarhaldsfélagið á að þetta sé í samræmi við það sem Fjölmiðlun hafí áður haldið fram. Eignarhaldsfélagið hafi á móti bent á að misræmið fælist aðallega í því að í áætluninni hafi verið byggt á upplýsingum frá Islenska myndver- inu hf., dótturfyrirtæki Islenska sjónvarpsfélagsins, um að ekki þyrfti að gera ráð fyrir tapi á rekstri þess á árinu 1989. Tapið hafi hins vegar reynst verulegt og ekki hafí legið fyrir að aðstöðugjald yrði lagt á fyrir árið 1989. Ennfremur skýrð- ist mismunurinn á breyttum reikn- isskilaaðferðum og vantalinni skuld KFUK: Sumarstarf- ið að hefjast SUMARSTARF KFUK í Vindáshlíð hefst sunnudaginn 31. maí næst- komandi með guðsþjónustu í Hall- grímskirkju í Vindáshlið sem hefst kl. 14.30. Prestur verður séra Einar Sigurbjörnsson. Að guðsþjónustu lokinni verður kaffisala. Sumarstarf KFUK hefur rekið sum- arbúðir í Vindáshlíð í rúm 40 ár og á ári hverju dvelja þar um 550 stúlkur. Þar eru bæði bama- unglinga- og kvennadagar í lok sumars. Á sunnu- daginn eru allir hjartanlega velkomnir í Vindáshlíð. Stjórn Vindáshlíðar. sem fram hafi komið sumarið 1990. Telur Eignarhaldsfélagið að á móti þessu misræmi komi að ekki hafi allar eignir félaganna komið fram í áætluninni, t.d. verðmæti sjón- varpskerfis og yfirfæranlegs taps. í bréfinu kemur fram, samkvæmt upplýsingum Morgunblaðsins, að Eignarhaldsfélagið telur að með samkomulagi milli hluthafa 22. mars 1990, að loknum umræðum um þetta mál, hafi hluthafarnir fallið frá frekari eftirmálum varð- andi hlutafíáraukninguna. Eignarhaldsfélagið vekur athygli á því að kaupendur hluthafanna hafi engár ávöxtunarkröfur gert við kaupin en niðurstaða matsmann- anna byggist á 15,35% ávöxtun- arkröfu. verði öllum vafaatriðum úr vegi áður en hann verði tekinn til afgreiðslu. Minnir miðstjórnin í þessu sambandi á samþykkt Sam- bandsstjórnar ASÍ frá síðastliðnu hausti um að efna skuli til þjóðar- atkvæðagreiðslu um samninginn áður en hann verður tekinn til afgreiðslu á Alþingi. I greinargerð miðstjórnarinnar kemur fram að ASÍ hefur ekki tek- ið endanlega afstöðu til EES-samn- ingsins og að fjallað verði áfram um þetta mál á vettvangi sam- bandsins. Þá muni afstaða til samn- ingsins einnig mótast af þeim að- gerðum sem íslensk stjómvöld ætla sér að framkvæma samhliða því að samningurinn verður afgreiddur, en í greinargerðinni er komið ítar- lega inn á þær ábendingar og kröf- ur sem miðstjórn ASÍ gerir til stjórnvalda og annarra í því sam- bandi. Meðal þeirra aðgerða sem mið- stjórn ASÍ telur að nauðsynlegar séu í tengslum við EES-samninginn er að íslensk stjómvöld hviki ekki frá núgildandi skilningi varðandi félagafrelsi hér á landi, og að inn- lend löggjöf sem tryggir að laun og vinnuskilyrði sem almennt tíðk- ast hér álandi gildi einnig fyrir út- lendinga og erlend fyrirtæki. Þá vill miðstjórnin að eftirlit með flutn- ingi útlendinga til og frá landinu verði stóreflt, og sömuleiðis eftirlit með þátttöku útlendinga á vinnu- markaði þannig að unnt verði að grípa til aðgerða ef í óefni stefnir. Einnig verði að tryggja eftirlit með kjörum erlends starfsfólks, og verði verkalýðshreyfíngin að fá aðgang að upplýsingum um þessi mál og möguleika til aðgerða ef hún telur þróunina vera varasáma. Miðstjórn- in telur að stjórnvöld verði að beita viðurlögum gagnvart þeim sem gerast brotlegir gegn samningnum, og jafnframt að verkalýðshreyfing- in fái aðstöðu til að hafa áhrif á framkvæmd samningsins og þróun. Morgunblaðið/KGA Starfsmannaráð Landspítalans á fundi í gær: Egill Jóhannsson, formaður, Gyða Baldursdóttir, Þórey Eiriksdóttir, Gunnar Jón Hilmarsson og Hanna S. Ásvaldsdóttir. Á myndina vantar þau Helgu Hjálm- arsdóttur og Guðmund Vikar Einarsson. Starfsmannaráð Landspítalans: Oánægja með niðurskiirð o g almennan aðbúnað Á FUNDI starfsmannaráðs Landspítalans í gær kom fram, að með- al starfsmanna værí megn óánægja með niðurskurð á spítalanum og allar aðstæður starfsfólks. Starfsmenn hefðu miklar áhyggjur af auknu vinnuálagi vegna takmarkana á ráðningum í afleysinga- störf og teldu að til stórfelldra vandræða horfi í sumar vegna lok- ana á deildum. Þá kom fram að ýmsir starfsmenn væru farnir að huga að því að segja upp, þrátt fyrir erfitt ástand á vinnumarkaðn- um. Helst væru það sérfræðingar, sem væru að athuga atvinnumögu- leika erlendis. Á fundi starfsmannaráðsins kom fram, að fyrir fáum árum hefði flat- ur niðurskurður verið fyrirskipaður í heilbrigðiskerfinu. Starfsmenn spítalans hefðu lagt sig fram við að fylgja honum eftir og mjög hefði verið þrengt að allri starfsemi. Nú væri á ný fyrirskipaður samdráttur á ýmsum sviðum en slíkar aðgerðir væru miklum vandkvæðum bundn- ar. Sem dæmi mætti nefna, að ný tækni væri dýr og þá vaknaði sú spurning, hvort starfsmenn ættu að fresta því að tileinka sér hana, þótt þeir vissu, að hún gæti hjálpað einhveijum, sem ella væri ekki hægt að hjálpa. Þannig væru starfsmenn settir í óþolandi að- stöðu. Lokun öldrunardeildar Landspít- alans bar á góma. Starfsmannaráð- ið lýsti furðu sinni á því það gerð- ist á sama tíma og verið væri að breyta öldrunardeild Borgarspítal- ans í lyflækningadeild. Oldrunar- lækningadeild Landspítalans í Hátúni væri rekin í óhentugu leigu- húsnæði og leigusamningurinn væri að renna út og skynsamlegast væri að huga að byggingu nýrrar öldrunarlækningardeildar á Vífils- stöðum. Fram kom, að lokanir á deildum hefðu aldrei verið meiri en nú yfír sumartímann. Af þeim sökum væru mikil vandræði fyrirsjáanleg, meðal annars vegna þess, að Landspítal- inn væri skyldur til að taka við sjúklingum utan af landi. Miklar lokanir væru á sjúkrahúsum á landsbyggðinni, til dæmis á fæðingardeildum og skurðstofum, og sjúklingum þar væri vísað á Landspítalann, án þess að þar væru nokkrar aðstæður til að taka við þeim. Þá mætti einnig búast við auknu álagi á starfsfólk vegna að- halds í yfirvinnu og takmörkun nýráðninga og afleysingaráðninga. Búast mætti við að niðurskurður í yfirvinnu kæmi verst niður á lægst launaða fólkinu vegna þess að sam- ið væri um fasta yfirvinnu við ýmsar betur settar stéttir. Einnig kom fram að meðal starfsmanna væri megn óánægja vegna viðhalds húsa og tækja og almennrar aðstöðu á spítalanum. Aðbúnaður starfsfólks væri víða slæmur og plássleysi mikið. Landsspítalinn væri aðalkennslusp- ítali landsins, en þar væri samt sem áður illa búið að stúdentum. Litið rými væri til kennslu, tækjabúnað- ur af skornum skammti og segja mætti að stúdentar og kennarar þeirra hefðu hvergi aðstöðu nema á göngunum. í tengslum við aðstæður starfs- fólks mætti einnig nefna, að sífelld- ar breytingar á áformum um starf- semi kæmu sér illa. Þannig væri til dæmis ákveðið nú að opna aftur deildir, sem áður hafði verið stefnt að að loka og það hefði þau áhrif, að starfsmenn þyrftu að breyta sumarfríum sinum. Einnig hefðu breytingar varðandi flutning bráða- vakta frá Landakotsspítala valdið vonbrigðum. Heilbrigðisráðherra hefði lofað formanni stjórnarnefnd- ar Ríkisspítalanna því að helmingur bráðavakta Landakotsspítala flytt- ist til Landspítalans en nú væri ljóst að þær færðust allar til Borgarspít- alans. Landspítalinn hefði því nú um 35% bráðavakta í borginni en Borgarspítalinn um 65%. Þetta væri slæmt fyrir Landspítalann, enda hefðu fleiri bráðavaktir styrkt stöðu hans sem bráðamóttöku- sjúkrahúss. Það væri mikilvægt fyrir sjúkrahús að taka stöðugt við bráðainnlögnum til þess að efla þar kennslu, rannsóknir og þróunar- starf. Að lokum kom fram, að starfs- menn væru ósáttir við hugmyndir um lokun barnaheimila starfsfólks. Þegar væri búið að leggja eitt nið- ur og talað væri um að loka öðru, á sama tíma og Borgarspítalinn notaði bamaheimili til að ná sér í nýja starfsmenn. Einnig mætti benda á til dæmis um aðstöðu 3.000 starfsmanna Landspítalans, að þeir hefðu aðgang að einum sumarbú- stað fyrir kr. 12.500 á viku á með- an til dæmis starfsmenn annarrar ríkisstofnunar, Landsbankans, hefðu aðgang að heilu sumarbú- staðahverfi fyrir kr. 2.500 á viku. Þetta þætti mönnum sýna vel hver væri munurinn á aðstöðu þeirra sem annars vegar ynnu við að- hlynningu sjúkra og þeirra hins vegar, sem störfuðu að því að geyma og ávaxta peninga. Aldrei fleiri hjólum stolið en á sumrin MEÐ hækkandi sól fara hjólreiða- menn á stjá en þeir ættu að gæta vel að hjólum sinum því aldrei er fleiri reiðhjólum stolið en á sumrin. Þannig var júlí til að mynda met- mánuður hvað varðaði reiðhjóla- þjófnaði í fyrra. Þann mánuð var tilkynnt um 64 þjófnaði en samtals var 450 reiðhjólum stolið allt áríð. Besta leiðin til að tryggja að hjóli verði ekki stolið er að nota viður- kenndan reiðhjólalás en auk hans mælir lögreglan með keðju- eða vír- lás. Aukalásinn skal notaður til að læsa hjólinu við fastan hlut, t.d. hjóla- grind, ljósastaur eða eitthvað álíka. Ennfremur skal forðast að skilja hjól- ið eftir á almannafæri og sérstaklega að næturlagi. Reiðhjólaskoðun fer fram einu sinni á ári og til þess að fá viðurkenningu lögreglu þurfa auk láss að vera á hjól- inu hemlar, bjalla, glitauga að aftan, fram- og afturljósker og glitauga á fótstigum. Á mánudag verða reiðhjól- askoðanir við Hlíðarskóla, Austurbæj- arskóla og Grandaskóla kí. 10.00—11: 30 og við Melaskóla, Vesturbæjar- skóla og Hvassaleitiskóla kl 13.30— 15.00. ------» ♦ » Frágangur í fjölskyldu- garði fyrir 18 milljónir BORGARRÁÐ hefur samþykkt, að taka 18.243.885 milljón króna tilboði lægstbjóðanda Garðaprýði hf., í yfirborðsfrágang í fjöl- skyldugarði í Laugardal. Tilboðið er 70,02% af kostnaðaráætlun. Sex tilboð bárust í verkið og átti Jón Stefánsson næst lægst boð tæp- ar 20 millj. eða 76,75% af kostnað- aráætlun. Garðaval hf., bauð rúmar 23.7 millj. eða 91,26% af kostnaðará- ætlun, BJ verktakar hf., buðu rúmar 25.7 millj. eða 98,94% af kostnaðará- ætlun, Hagvirki-Klettur, bauð rúmar 25.8 millj. eða 99,38% af kostnaðará- ætlun og G. Valgeirsson hf., bauð 31,5 millj. éða 120,92% af kostnað- aráætlun. Kristján Ragnarsson formaður LÍÚ um hugmyndir um úttekt ríkissjóðs úr Fiskveiðasjóði: Öll lán sjóðsins í út- löndum fara í uppnám Hræðsluáróður, segir Hreinn Loftsson formaður einkavæðingamefndar KRISTJÁN Ragnarsson formaður Landssambands íslenskra útvegs- manna og sljórnarmaður í Fiskveiðasjóði segir að ef hlutafé sjóðsins í íslandsbanka verði selt og andvirðið látið renna í ríkissjóð, væri verið að rýra eigið fé sjóðsins það mikið að öll lán, sem sjóðurinn hefur tekið í útlöndum, fari í uppnám, en þau bera ekki ríkis- ábyrgð. Einkavæðingarnefnd ríkissljórnarinnar hefur sett fram hugmynd um sölu hlutabréfa sjóðsins í íslandsbanka og segir Hreinn Loftsson formaður nefndarinnar að þessi málflutningur Kristjáns sé hræðsluáróður og úttekt ríkisins á fé Fiskveiðasjóðs muni þvert á móti undirstrika að sjóðurinn sé í eigu ríkisins og því styrkja stöðu hans á erlendum fjármagnsmörkuðum. ,Við erum mjög hlynntir einka- væðingu og teljum það af hinu góða, að fólkið í landinu fái sjálft tilfínningu fyrir atvinnurekstrinum. En þetta mál snýst ekki um það. Það snýst um að ríkissjóður er að ágirnast eigið fé Fiskveiðasjóðs. Hlutafé Fiskveiðasjóðs er hluti af eigin fé sjóðsins og kemur einka- væðingu ekkert við. Fiskveiðasjóð- ur hefur rætt um að selja hlutabréf- in í íslandsbanka þegar markaðsað- stæður verða hagstæðar en hingað til hefur þetta fjármagn ávaxtast betur en útlánsfé og er þess vegna mjög góð eign fyrir sjóðinn," sagði Kristján Ragnarsson við Morgun- blaðið. Hann benti á að Fiskveiðasjóður hefði ekki ríkisábyrgð á lántökum, hvorki innlendum né erlendum, og byggði traust sitt gagnvart erlend- um lánveitendum á eiginfjárstöðu sinni. „Verði eiginfjárstaða Fisk- veiðasjóðs rýrð um 4-500 milljónir fara öll lán sjóðsins í uppnám, því þá sjá erlendu lánveitendurnir að þessi sjóður er ekki traustsins verð- ur og ekki hægt að treysta á að ríkissjóðir gangi ekki í hann eftir sínum þörfum. Þess vegna höfnum við því að það komi til álita að eig- ið fé sjóðsins verði rýrt með þessum hætti,“ sagði Kristján. Hreinn Loftsson sagði við Morg- unblaðið, að eiginíjárstaða Fisk- veiðasjóðs væri mjög sterk, eða 4 milljarðar króna. Hlutabréf sjóðsins í íslandsbanka væru að nafnvirði 276 milljónir, 4-500 milljónir að markaðsverði. Þessi sterka eigin- fjárstaða hafí byggst upp á grund- velli greiðslna frá fyrirtækjum í sjávarútvegi og framlögum ríkis- sjóðs þegar vel áraði. „Nú árar illa hjá ríkissjóði og því teljum við eðli- legt að hann gangi í þessa eign með þessum hætti,“ sagði Hreinn. Hann sagði fráleitt að halda því fram að þetta myndi skerða stöðu sjóðsins í útlöndum. í fyrsta lagi væri aðeins um að ræða lítinn hluta eigin fjár sjóðsins. Og í öðru lagi sé ekki ólíklegt að á erlendum lánsfjármörkuðum sé litið svo á að í rauninni sé ríkisábyrgð á lántök- um sjóðsins. Úttekt ríkissins myndi staðfesta að ríkið ætti sjóðinn og því gæti það ekki virkað illa á er- lendum lánsfíármarkaði. Hreinn sagðist því líta á málflutning Krist- jáns Ragnarssonar sem hræðslu- áróður. Samkvæmt lögum er Fiskveiða- sjóður sjálfstæð stofnun í eigu ríkis- ins en Kristján Ragnarsson bendir á að fyrirtæki í sjávarútvegi hafí greitt framlög til sjóðsins og því sé hann í raun í eigu sjávarútvegs- ins. Hreinn Loftsson sagði hins vegar ótvírætt að sjóðurinn væri í ríkiseigu og vitnaði m.a. í greinar- gerð Markúsar Sigurbjömssonar prófessors frá september 1991 um Iðnlánasjóð í því sambandi. Hreinn sagði, að skýr lagaheimild þyrfti að vera fyrir því að selja hlutabréf sjóðsins í íslandsbanka og láta and- virðið renna í ríkissjóð. Hlutafjáraukning í íslandsbanka Hreinn Loftsson sagði að Fisk- veiðasjóður hefði verið notaður á sl. vetri til að kaupa 130 milljóna króna hlutafjáraukningu í íslands- banka. Þetta hlutafé hefði sjóðurinn keypt og staðgreitt og síðan fram- selt til LÍÚ. „Það ber því að skoða yfírlýsingar Kristjáns Ragnarsson- ar í ljósi þess, að það er á grund- velli þessara eigna sem að hann verður formaður bankaráðs ís- landsbanka. Það er ekki hægt að horfa fram hjá þessum persónulegu hagsmunatengslum hans sjálfs, þegar hann er að gefa út þessar yfirlýsingar,“ sagði Hreinn. Kristján Ragnarsson vísaði því á bug, að hann væri að verja persónu- lega hagsmuni og benti á að hann hefði verið valinn sem fulltrúi Fisk- veiðasjóðs í bankaráði íslandsbanka löngu áður en LÍU hefði keypt þennan hlut í bankanum. Um það sagði hann, að Fiskveiðasjóður hefði tekið þátt í hlutafjáraukningu bankans í hlutfalli við hlutafjáreign sína, en þar sem fyrir hefði legið að sjóðurinn þyrfti lagaheimild til að eiga þessi hlutabréf hefði LÍU ákveðið að kaupa þetta hlutafé með það fyrir augum að selja það aftur til útvegsmanna. Hann sagði að LÍU hefði keypt bréfin á stað- greiðsluverði og að auki greitt Fisk- veiðasjóði vexti. Evrópusamband sparisjóða: Utgáfa sameiginlegs greiðslukorts undirbúin Á STJÓRNARFUNDI Evrópusambands sparisjóða, sem haldinn var hér á landi og lauk í gær, var lögð áhersla á mikilvægi þess að sparisjóðirn- ir styrktu stöðu sína á sameiginlegum markaði Evrópubandalagsins eftir næstu áramót. Meðal þess sem er á döfinni hjá Evrópusambandinu er útgáfa sérstaks greiðslukorts sem viðskiptavinir sparisjóða innan sambandsins geta notað í öllum útibúum hvar sem er í Evrópu. Áætlan- ir miðast við að skrifað verði undir samkomulag þess efnis í júní nk. Dr. Klaus Meyer Horn, fram- kvæmdastjóri Evrópusambands spari- sjóða, sagði í samtali við Morgunblað- ið að forsvarsmenn sparisjóða innan Evrópu legðu mikla áherslu á að fmna leiðir til þess að tryggja stöðu þeirra í samkeppni við aðrar bankastofnanir í Evrópu áður en sameiginlegum markaður Evrópubandalagsins verður að veruleika. Ein þeirra leiða væri útgáfa sérstaks greiðslukorts sem gerði viðskiptavinum sparisjóða innan Evrópusambandsins kleift að eiga við- skipti við útibú þeirra hvar sem er í Evrópu. Mikið starf hefði verið unnið við undirbúning þessa máls og stæðu vonir til að samkomulag um það yrði undirritað á næsta fundi sambandsins í júní nk. Innan 20 aðildarríkja Evrópusam- bands sparisjóða eru starfandi 1.540 sparisjóðir og fjöldi útibúa er tæp 64.000. ísland hefur haft aðild að sambandinu frá því í desember 1990. Baldvin Tryggvason, sparisjóðsstjóri Sparisjóðs Reykjavíkur, situr í stjórn sambandsins fyrir hönd íslenskra sparisjóða og Sigurður Hafstein, framkvæmdastjóri Sambands spari- sjóða er þar varamaður. Að sögn Baldvins felur hugmyndin um sameiginlegt greiðslukort í gróf- um dráttum í sér að viðskiptavinir sparisjóða innan sambandsins geti m.a., hvar sem er í Evrópu, tekið út peninga og millifært fjárhæðir á milli sparisjóða. Á stjórnarfundinum var einnig rætt um áframhaldandi aðstoð við sparisjóði í löndum Austur-Evrópu. Aðstoðin felst í fjárhagslegum styrk, þjálfun starfsfólks og tæknilegri endurnýjun. Þegar hefur Póllandi, Tékkoslóvakíu og Ungveijalandi verið veitt aðild að Evrópusambandinu og önnur lönd eru í gættinni að sögn Baldvins.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.