Morgunblaðið - 30.05.1992, Blaðsíða 38
38_________________MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 30. MAÍ 1992_
Orlofsdvöl hjá Sólarsetri
eftir Valdimar
' Olafsson
Orlof er nokkuð sem allir þekkja
og flestir þrá. Orlof, hvíld og til-
breyting frá amstri hversdagsleik-
ans, í nýju umhverfi, með skemmti-
legu fólki á fögrum og sólríkum
stað.
Landið okkar er „fagurt og frítt
og fannhvítir jöklanna tindar“. Við
elskum landið okkar, erum ánægð
með að vera böm þess og íbúar,
þurfum vissulega að ferðast um
eigið land og kynnast sem best
dásemdum þess, en útþrá er okkur
einnig í blóð borin.
Flest okkar erum vön að láta
aðra um að skipuleggja orlofsdvalir
okkar erlendis, vön að kaupa okkur
svokallaða pakka og fara í hópferð
til fjölsóttra staða, þar sem gjaman
er mannmergð og oft mikill hávaði.
Mig langar til að benda ykkur,
lesendur góðir, á annan ferðamögu-
leika.
Sólarsetur
Já, hvað er þetta sólarsetur?
Nafnið táknar að þar ríki sólin, í
fleiri en einum skilningi. Setur sól-
arinnar, þeirrar „sem elskar allt og
allt með kossi vekur“.
Við erum sólþyrstir íslendingar,
enda veturinn langur á Fróni og
sólin sést ekki langtímum saman.
Um 50 íslendingar stofnuðu því
hlutafélagið Sólarsetur fyrir rúm-
lega þremur ámm, með það mark-
mið að annast sölu á hlutabréfum
í bresku orlofsfyrirtæki, Holiday
Property Bond, HPB, með það fyrir
augum að geta notið hagkvæmrar
dvalar á úrvalsstöðum.
Holiday Property Bond
- Orlofshúsakeðjan HPB var stofn-
uð árið 1981 og hóf skipulega starf-
semi tveimur ámm síðar. Menn
kaupa sér hlutdeildarbréf, þ.e. fjár-
festa í fyrirtækinu. Lágmarksgjald
til þátttöku er nú 2.000 sterlings-
pund eða um 200 þúsund íslenskar
krónur. Sólarsetur hefur samið við
VISA ísland og íslandsbanka um
bæði safngreiðslur og raðgreiðslur
fyrir þá sem óska.
Hluthafar Sólarseturs eiga þann-
ig kost á að dvelja í eigin húsnæði.
Isle of Man Assurance Ltd. gefur
Út priofsbréfín, en Midland Bank
Trust varðveitir orlofssjóð HPB.
íslandsbanki tekur við greiðslum
íslenskra hluthafa og sendir þær
áfram til HPB.
Orlofssjóður HPB fjárfestir um
60—70% eigna sinna í fasteignum,
en 30—40% í verðbréfum. Eignir
orlofssjóðsins eru endurmetnar
tvisvar á ári og það mat ræður ein-
ingaverði orlofssjóðsins.
Vinsældir Holiday Property Bond
hafa verið svo miklar og eignaaukn-
ingin svo ör, að nú á fyrirtækið um
20 orlofsbúðir í fjölda landa, þ.e.
Skotlandi,! -Englandi, Frakklandi,
Ítalíu, Austurríki, Spáni, Portúgal,
Kýpur, Majorca, Tenerife og
Flórída.
Orlofspunktar
Fyrir hvert sterlingspund sem
kej^pt er fær hluthafinn einn orlofs-
punkt. Orlofspunktarinir eru verð-
tryggðir og hækka í samræmi við
verðbólgu. Því meiri sem hlutafjár-
eignin er, því lengur er hægt að
dvelja og velja rýmra húsnæði. Um
margs konar íbúðir og einbýlishús
er að ræða og fyrsta flokks aðbún-
að og aðstöðu, jafnt innan húss sem
utan.
Árlega er tilkynnt hvað vikudvöl
kosti marga orlofspunkta á hverjum
stað, miðað við íbúðarstærð. Dvöl
að vetri til, eða haust og vor kostar
víðast mun færri orlofspunkta en
um annatíma sumarsins.
Bónusdvöl
Félagar í Sólarsetri eiga þess
einnig kost að framlengja dvöl á
hveijum stað um vikutíma, eða
dvelja um viku á nýjum stað, án
þess að skerða inneign orlofs-
punkta, sé íbúðin laus 28 dögum
áður en dvöldin hefst.
Hversvegna ég valdi
Sólarsetur
Þegar ég fór að kynna mér mál-
ið komst ég að þeirri niðurstöðu að
hér væri um traust og blómstrandi
fyrirtæki að ræða.
Kaupi maður litla íbúð á sólar-
strönd er maður bundinn við sama
staðinn, þarf að greiða fasteigna-
gjöld, sjá um eftirlit, viðhald o.fl.,
sem sé umstang og vissar áhyggj-
ur. Hjá HPB get ég valið um 20
Valdimar Ólafsson
„Þessar 2 vikur voru
liðnar, með þakklátum
huga kvöddum við sam-
félagið í Constant og
þetta skemmtilega hér-
að. Sannarlega góð til-
breyting frá hinum
hefðbundnu sólarferð-
um.“
mismunandi staði og alls staðar
dvalið í eigin húsnæði og greiði
enga leigu, engin árgjöld, aðeins
fyrir hita, rafmagn og þjónustu.
Þessu fylgir aðgangur að tóm-
stundaiðkunum, sundlaugum, golf-
og tennisvöllum og oftast heilsu-
ræktarstöðvum innanhúss.
Árlegir orlofspunktar eru vextir
af hlutafénu sem ég greiddi í upp-
hafi eða bætti við síðar, í eitt skipti
fyrir öll.
Noti menn ekki orlofspunktana
eitt árið má geyma þá til næsta
árs. Þá má líka velja þann kost að
leggja vextina við höfuðstólinn í
stað þess að nota orlofspunktana,
vilji menn það fremur. Sem sé bæði
fjölbreytni og sveigjanleiki.
Vilji einhver hætta við og selja
sinn hlut, sem mun vera fátítt, er
það hægt eftir tveggja ára þátt-
töku. Tilkostnaður við hverja orlofs-
dvöl er því ferðakostnaður og þjón-
ustugjald á staðnum.
Tvær eða fleiri fjölskyldur geta
auðveldlega sameinast um aðild og
það kostar tiltölulega færri orlofs-
punkta að dvelja í stærri íbúð eða
einbýlishúsi, en smáíbúð. Upplagt
að sameina þannig fjölskyldur eða
ættingja og vini og jafnvel fagna
stórafmælum.
Fyrsta orlofsdvöl mín á vegum
Sólarseturs og HPB
Úr hinum 20 orlofsdvalarstöðum
sem í boði voru völdum við Const-
ant í Perigord-héraði í Dordogne-
dal Frakklands. Endilega að sjá
eitthvað nýtt, fræðast og víkka
sjóndeilarhringinn. Brottför ákveð-
in síðari hluta október, þá væntan-
lega sæmilega hlýtt ennþá á 45.
gr. norðl. breiddar.
Við flugum til London tvenn hjón
og áfram með AirFrance um Paris
til Bordeaux við Biseay-flóann,
næsta alþjóðlega flugvallar Const-
ants.
Yfir Ermarsundið flugum við
með breiðþotunni Airbus, sem tekur
um 240 farþega, lentum á de
Gaulle-flugvellinum í Paris og héld-
um áfram frá sömu flugstöð með
B737 til Borde aux. Þar var 15
gráðu hiti og sumarblíða fyrir okk-
ur. Pöntun á bíl hja Hertz stóð eins
og stafur á bók, bifreið af Peugeot
309 gerð beið okkar. Ferðaskrif-
stofa HPB hafði skipulagt þetta vel
og fær afslátt af fargjöldum í allar
áttir frá Bretlandi.
Er ég settist undir stýri kom í
ljós að bíllinn var beinskiptur, en
ég hafði aðeins ekið sjálfskiptum
bílum síðustu 20 árin. Þetta kom
nú ekki að sök, ég fann réttu gír-
ana fljótlega og við ókum af stað
um vesturhluta borgarinnar eftir
mikilli hraðbraut þar sem mest bar
á végaskiltum hinnar frægu höfuð-
borgar Parísar. Skyndilega hvarf
dagsbirtan og erfiðara varð að
fylgjast með vegvísunum. Við viss-
um að ákvörðunarstaður okkar var
eiginlega beint austur af Bordeaux,
lítið þorp í nánd við borgina Berg-
erac, en við fundum aldrei skiltið
þar sem beygja skyldi til hægri og
austurs. Nú voru góð ráð dýr, erf-
itt að átta sig á hvorum vegarkant-
inum skyldi fylgja, því víða lágu
lykkjur undir hraðbrautina. Þrauta-
lendingin varð að stansa við bensín-
stöð og spyija til vegar, en hér tal-
aði enginn ensku.
Ég hafði að vísu aðeins byijað á
frönskunámi fyrir 45 árum og sú
litla kunnátta æði ryðguð orðin, en
þó, tveir ungir menn á mótorhjóli
sem þar voru staddir, skildu mig
og voru fúsir til hjálpar. Við vorum
að vísu komin heldur langt eftir
hraðbrautinni, en næsti afleggjari
til hægri myndi koma okkur á rétta
leið. Allt gekk eins og í sögu, um
Liboume til Bergerac, beinn og
mátulega breiður vegur, þ.e. hófleg
umferð.
Okkur kom í hug franski rithöf-
undurinn Cyrano de Bergerac, sem
uppi var á 17. öld og samnefnt leik-
rit eftir Edmond Rostand, frá 1897,
sem einkum hefur haldið nafni hans
á loft. Það er vandalítið að fylgja
vel merktum þjóðvegum, meiri
vandi að rata rétta leið út úr borg-
unum.
Við fundum þó D32 að Iokum
og stefndum til litla þorpsins St.
Felix de Villadaex, 19 km leið.
Götuljósunum fækkaði mjög og því
miður hafði okkur láðst að lesa á
ökumælinn er við ókum út úr borg-
inni, enda líka of dimmt til þess,
nema þá að stansa og nota vasaljós-
ið. Nú, við vildum helst ekki aka
of langt og villast, enda áliðið
kvölds, svo ég ók heim að næsta
sveitabæ og knúði dyra. Þar voru
tvenn hjón að ljúka kvöldverði og
búin með rauðvínið sitt. Þau hlust-
uðu þögul á misþyrmingar móður-
máls síns, en þá upphófst mikill
orðaflaumur, sem fór nú mest fyrir
ofan garð og neðan, en lyktir máls-
ins urðu þær að bóndi hnippti í
kellu sína og hún tók að sér að leið-
beina okkur. Ekki með orðum, eins
og við væntum, heldur settist undir
stýri bifreiðar sinnar og ók af stað.
Við eltum og eftir æði dijúgan
spöl stöðvaði hún við skilti sem á
stóð, St. Felix de Villadaex. Síðan
kvaddi hún og bað okkur blessun-
ar. Það var rétt svo að hún fékkst.
til að þiggja koníakspela fyrir greið-
ann.
Þetta kalla ég elskulegt fólk.
Orlofsþorpið Constant stendur á
hæð í fögru umhverfi. Þarna hafði
upphaflega verið lítið sveitaþorp og
sum eldri húsin verið endurbyggð,
en flest voru ný, alls um 30 tals-
ins. Fyrsta húsið sem við komum
að var þjónustubústaður þar sem
lyklar að húsi okkar voru til taks,
þó að enginn væri að störfum enda
klukkan rúmlega 10 að kvöldi. Öll
Timman og Short reyna kraftana
___________Skák______________
Margeir Pétursson
ÁSKORANDI Gary Kasparovs
heimsmeistara á næsta ári verð-
ur frá Vestur-Evrópu og á ekki
aðeins mikla upphefð í vændum
heldur fylgja einnig góðar tekj-
ur, jafnvel þótt viðkomandi tapi
heimsmeistaraeinvíginu. Það er
því til mikils að vinna fyrir Eng-
lendinginn Nigel Short og Hol-
lendinginn Jan Timman er þeir
mætast í úrslitum áskorenda-
keppninnar í janúar á næsta ári.
Eftir að Short sló Karpov óvænt
út í apríl hefur um fátt annað
verið rætt í skákheiminum en
hvor þeirra sé sigurstranglegri.
Sá þeirra sem vinnur fær ekki
aðeins sigurlaunin, u.þ.b. 7 milljón-
ir króna, heldur er hann öruggur
með að fá hlut þess sem tapar
heimsmeistaraeinvíginu í Los Ang-
eles á'næsta ári. Það er engin smá-
fúlga, því heildarverðlaunin þar
verða nýtt met í sögu skáklistarinn-
ar, íjórar milljónir dala, eða 240
milljónir íslenskra króna. Sá sem
tapar fær dágóða fúlgu úr þeim
potti, hátt í 100 milljónir. Að auki
hefur þýskt skáktölvufyrirtæki lof-
að milljón þýskum mörkum, eða 36
milljónum íslenskum krónum, þeim
vestrænum skákmanni til handa
sem næst verður áskorandi heims-
meistarans. Svo virðist þó sem hug-
ur hafí ekki fylgt máli hjá Þjóðverj-
unum, þeir hafi fyrst og fremst
verið að reyna að ná sér i ódýra
auglýsingu og treyst Anatólí
Karpov til að afgreiða fremstu
skákmenn Vesturlanda.
Þegar sigur Short lá fyrir sögð-
ust þeir hafa afturkallað loforðið á
síðasta ári, en bara ekki verið bún-
ir að segja frá því. Það verður að
teljast hæpið að þeir komist upp
með slík undanbrögð og má sigur-
vegari einvígisins vænta þess að fá
a.m.k. 130-140 milljónir íslenskra
króna fyrir vikið. Sá sem tapar fær
hins vegar „aðeins“ 4-5 milljónir
sem dugar rétt fyrir kostnaði við
aðstoðarmenn, þjálfara og æfinga-
búðir. Líklega fara báðir þá leið að
ráða hjálpárkokka sína upp á hluta-
skipti.
Það má því búast við að þeir
Timman og Short hafí hvor annan
undir smásjánni næstu mánuði og
mikil var eftirvænting skákáhuga-
manna í Hollandi er þeir mættust
í tveimur skákum á minningarmót-
inu um Euwe sem lauk um síðustu
helgi. Timman stóð betur að vígi í
þeim báðum, en missti fyrst unnið
endatafl niður í jafntefli og þeirri
síðari lék hann af sér alla leið í
tap. Þetta varð þess valdandi að
Short náði að deila sigri á mótinu
með Anand og hlutu þeir 3'A v. af
6 mögulegum, en Timman og Seir-
awan sátu á botninum með 2'h v.
Þátttakendur voru aðeins fjórir.
Þeir Short og Timman hafa báð-
ir bráðskemmtilegan skákstíl en
eiga það sameiginlegt að vera mis-
tækir, Timman er þó sýnu verri
hvað það varðar, íslenskum skák-
áhugamönnum er vafalaust enn í
fersku minni botnbarátta hans á
heimsbikarmótinu í Reykjavík sl.
haust. Ef aðeins annar þeirra verð-
ur fjarri sínu besta í einvíginu verð-
ur strax einsýnt um úrslit. Hins
vegar ef báðir verða í banastuði,
eða heillum horfnir, má búast við
geysilega skemmtilegu einvígi. Það
verður líklega stríðsgæfan sem mun
ráða úrslitum, ekki er hægt að full-
yrða neitt um það hvor þessara frá-
bæru meistara sé snjallari.
Short er oft seinn í gang, tapaði
t.d. fyrstu skákinni fyrir Karpov.
Eftir fyrri helming mótsins í Amst-
erdam var hann neðstur en sneri
dæminu við með glæsilegum sigri
á Seirawan. I þessari skák nýtir
hann sér vel þekkta oftrú Banda-
ríkjamannsins á varnarmætti eigin
kóngsstöðu:
Hvítt: Yasser Seirawan
Svart: Nigel Short
Drottningarbragð
1. d4 - Rf6 2. c4 - e6 3. Rf3 -
d5 4. Rc3 - Be7 5. Bf4 - 0-0 6.
e3 - c5 7. dxc5 - Bxc5 8. Dc2 —
Rc6 9. a3 - Da5 10. Hdl - Be7
11. Rd2 - e5 12. Rb3 - Db6 13.
Bg5
I þessari stöðu hefur svartur
reynt 13. - d4 og 13. - Bg4 14. f3
- Be6. Short kemur með nýjung,
sleppir millileiknum 13. - Bg4, til
þess að hvíti kóngurinn eigi ekki
flóttareitinn f2 í framhaldinu.
13. - Be6I? 14. Ra4
Eftir 14. Bxf6 skýtur svartur
inn 14. - dxc4! og jafnar taflið.
14. - Da6 15. cxd5
Eftirtektarverður möguleiki fyrir
hvít var 15. Rbc5 - Bxc5 16. cxd5
og fjórir menn svarts standa í upp-
námi. Svartur virðist þó halda tafl-
inu gangandi með 16. - Bb4+!
15. - Dxa4 16. Bxf6?
Eftir öflugt svar svarts lendir
hvítur í miklum vandræðum. 16.
dxe6 - Bb4+! 17. axb4 - Rxb4
gæfi svarti ekki eins hættuleg færi
fyrir mannsfórn.
16. - Rb4!! 17. De4
17. • axb4 - Bxb4+ 18. Ke2 -
Hac8 hefði leitt til sömu niður-
stöðu, því ekki gengur 19. Dd3 -
Bd7!
17. - Hac8 18. axb4 - Bxb4+ 19.
Ke2 - Dxb3 20. Bxe5 - Hc4! 21.
Hd4 - Hxd4 22. Dxd4 - Bxd5
og Seirawan gafst upp.
Boðsmót TR 1992
Hið svonefnda Boðsmót TR hefst
mánudaginn 1. júní kl. 20. Tefldar
verða 7 umferðir eftir Monrad-
kerfi. Umferðir eru á mánudögum,
miðvikudögum og föstudögum kl.
20. Umhugsunartími er l'/z klst. á
36 leiki og síðan hálf klukkustund
til að ljúka skákinni. Mótinu lýkur
15. júní. Skráning í símum 681690
og 813540 dagana fyrir mótið og
áður en það hefst.
Úrslit í Firmakeppni TR
Fjöldamörg fyrirtæki og félög
tóku þátt í hinni árlegu fírma-
keppni Taflfélags Reykjavíkur.
Teflt var í mörgum undanrásariðl-
um en úrslitakeppnin fór fram
mánudaginn 25. maí. Hún var bæði
jöfn og spennandi. Úrslit urðu þessi:
1. Stétt sf. (keppandi Hannes H.
Stefánsson) 11 v. af 14.
2. Hagkaup (Þráinn Vigfússon)
10'/2
3. Úrval-Tímarit (Helgi Áss Grét-
arsson) 10 v.