Morgunblaðið - 30.05.1992, Page 42

Morgunblaðið - 30.05.1992, Page 42
42 MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 30. MAÍ 1992 -----------------------------------------------r-------------------•--------------- Valgeir Elíasson, Miklaholti Síðla kvölds 20. maí sl. hvarf 15 yfir móðuna miklu gamall sveit- ungi, góður vinur minn og fjar- skyldur ættingi, Valgeir Elíasson í Miklaholti, eftir langvinnt veikindastríð, en að öðru leyti far- sæla ævi. Mér finnst mér skylt að minnast þessa góða manns í fáum og fá- tæklegum línum, því enda þótt aldursmunur okkar væri allmikill, áttum við margvísleg samskipti á lífsleiðinni. Ég verð þó að játa það að ég er lítt til þess fær að rekja bemsku- ' og uppvaxtarár Valgeirs heitins, en fæddur var hann í Þórðarbúð í Eyrarsveit 22. janúar 1906 og því kominn á 87. aldursárið þegar hann lést. Foreldrar hans voru Elías Elíasson og seinni kona hans Valgerður Jónsdóttir, en hún lést við fæðingu Valgeirs. Elías bjó með konum sínum tveim og síðan ráðskonum á ýmsum bæjum í Eyr- arsveit og Fróðárhreppi og stund- aði bæði búskap og sjómennsku. Þau Elías og Valgerður eignuðust einnig soninn Sölva, en auk þessa eina albróður átti Valgeir allmargt hálfsystkina. Valgeir hlaut þannig það hlut- skipti að verða að mestu eða öllu af foreldraumhyggju sem ekki mun þó hafa veitt af, því ég hefi það fyrir satt að hann muni aðeins hafa vegið sex merkur við fæðingu og sjálfsagt verið það sem nú á tímum er kallað fyrirburi. Heilladísir hans komu þó málum hans svo fyrir að ung kona, Eli- veig Snæbjamardóttir, tók hann að sér og gekk honum algerlega í móðurstað. Ég hætti mér ekki út á þá hálu braut að rekja þá sögu nánar, en víst er um það að vel hefur henni tekist að rækja upp- eldi fóstursonarins. Eliveig átti fyrir mann, Jón Sig- urðsson, og bjuggu þau lengst af -Minnmg í Húsanesi í Breiðuvík og þar tók Valgeir út sín æsku- og unglings- ár. Næst er til að taka að hann vistast sem vinnumaður að Rauð- kollsstöðum í Eyjahreppi, kominn þá nokkuð yfir tvítugt og var þar í átta ár. Var hann á þeim áram nokkur sumur í vegavinnu hjá Guðjóni Backmann í Borgamesi, um Mýrar og Borgarfjörð að ég hygg. Menntunarþrá bar hann í bijósti og stundaði nám við Flensborgar- skólann einn vetur og þótt skóla- dvölin yrði ekki lengri, hefur hún án efa orðið honum haldgott vega- nesti. A.m.k. skrifaði hann ágæt- lega vel og fróðleiksfús var hann ævina á enda og hafði yndi af lestri bóka meðan heilsan leyfði. Sem áður sagði vistaðist Valgeir á Rauðkollsstöðum og hans góðu hamingjudísir réðu málum þannig að þar var einnig til heimilis stúlk- an Guðlaug Jónsdóttir, árinu yngri en hann. Hún var dóttir Jóns Oddssonar og Rósu Þórðardóttur, sem vora það sem nú er kallað sambúðarfólk og slitu raunar sam- vistum þegar Guðlaug var á barns- aldri. Var því nokkuð líkt á komið með þeim Valgeiri að hvoragt naut nema að litlu leyti foreldraumsjár. Guðlaug var að miklu leyti alin upp af hjónunum á Rauðkollsstöðum, Hákoni Kristjánssyni og Elísabetu Jónsdóttur. Er ekki að orðlengja það að með þeim tókust kynni góð og ástir sem leiddi tii þess að þau Valgeir og Lauga gengu í hjónaband 20. maí 1933 og bar því andlát Valgeirs upp á 59. brúðkaupsafmælisdag þeirra. Þetta var því orðið langt sam- band, sem ég held þó að aldrei hafi borið skugga á og var með þeim hætti að ávallt þegar ég heyrði talað um sérlega gott hjóna- band, komu mér Valgeir og Lauga Minning: Anton S. Olason Fæddur 3. maí 1931 Dáinn 21. maí 1992 í dag verður til moldar borinn tengdafaðir minn, Anton S. Ólason, er lést að kvöldi 21. maí í Fjórð- ungssjúkrahúsinu á Isafirði. Toni, eins og hann var ætíð kall- aður, var næst elstur af fimm systkinum, fæddur 3. maí 1931 á Ytra-Ási, Árskógsströnd. Foreldrar hans vora Óli Trausta- son og Anna Ámadóttir. Toni ólst upp á Hauganesi, Árskógsströnd, en þar eins og í öðrum sjávarpláss- um á íslandi snerist lífið um sjó- sókn og fiskvinnslu. Snemma byij- aði hann að leggja hönd á plóginn og þurfti þá að setja kassa fyrir hann að standa á til að hann gæti • stokkað upp lóðir. Um fermingu byijaði hann að sækja sjóinn sem varð hans aðalstarf. Toni giftist Þórunni Vemharðsdóttur 25. maí 1953 og eignuðust þau fjögur böm. Selma, f. 1953, Halldór, f. 1954, Anna María, f. 1959 og Óli Vem- harður, f. 1962. Bjuggu þau sína búskapartíð í Hnífsdal eða þar til þau slitu samvistir eftir tuttugu og fímm ára hjónaband, en héidu þó alltaf góðu sambandi. Mín fyrstu kynni af Tona vora þegar ég kynnt- ist dóttur hans, Önnu Maríu, 1974 , en þá var Toni til sjós en síðar þegar starfsþrekið minnkaði og Toni kom í land var hann daglegur gestur á heimili okkar Önnu og tókst þá með okkur góður vinskap- ur. Á þessum tíma stóðum við í húsbyggingu og vora þær ekki ófá- ar stundirnar sem hann vann við byggingu hússins. Árið 1987 hóf hann störf hjá mér við bygginga- vinnu og starfaði við það eins og heilsan leyfði til 1990 er hann varð að hætta sökum heilsubrests. Aldr- ei heyrðist hann kvarta og virtist sáttur við sitt hlutskipti. Ég vil þakka honum samfylgdina sem var allt of stutt. Mér var sagt að dauðinn væri eins og góður vinur; því betur sem þú þekkirhann því minna óttaðistu hann. Ég gekk niður að vatninu ogkastaði steini og vatnið gáraðist. Það var kvöld. (Vilmundur Gylfason) Hafi hann góða ferð, góða heim- komu og þökk fyrir samfylgdina. Auðunn J. Guðmundsson. í dag verður borinn til jgrafar elskulegur afi minn, Anton Olason, en hann lést í Fjóðungssjúkrahús- inu á Isafirði fimmtudaginn 21. maí. Afí Toni (eins go við afabömin kölluðum hann alltaf) var fæddur á Ytra-Ási, Árskógsströnd 3. maí 1931. Foreldrar hans voru Óli Traustason og Anna Ámadóttir og bjuggu þau lengst af á Hauganesi, Árskógsströnd. Afí var næst elstur af fimm systkinmn. Elstur er Trausti, svo afi, Árni, Anna Björk og Eygló. Afi og amma, Þórann Vern- harðsdóttir, giftust 25. maí 1953 og eignuðust þau fjögur böm: Selmu, f. 1953, Halldór, f. 1954, Önnu Maríu, f. 1959 og Óla Vem- harð, f. 1962. Afi og mamma skildu þegar ég var lítil. í Miklaholti í hug. Slík var ein- drægni þeirra og samheldni í gegn- um þessi mörgu ár. Búskap sinn hófu þau í Dals- mynni, og bjuggu þar í tvö ár. Þaðan fluttu þau að Litlu-Þúfu og bjuggu þar í fímm ár. Þá losnaði nágrannajörðin Miklaholt úr ábúð, en hún var í ríkiseign þá og hafði frá ómunatíð verið prestssetur. Eftir að sr. Ámi Þórarinsson, sá þjóðkunni klerkur flutti þaðan, hafði hún þó verið setin af bændum einvörðungu. Vorið 1939 fluttu þau Valgeir og Lauga á þessa gamalfrægu jörð og þar var ekki tjaldað til fárra nátta. í röska hálfa öld, eða 52 ár, hafa þau helgað þessari jörð krafta sína og bætt hana í ræktun og húsakosti. Það er því engin furða að rætur þeirra hjóna standi djúpt í mold hennar. Jörðina fengu þau keypta af ríkinu upp úr 1950. Ég læt vera að fara nánar út í búskaparsögu þeirra, en hún einkenndist alla tíð af far- sæld og nægjusemi og sátt við líf- ið. Engin auðsöfnun átti sér þar stað, en skuldasöfnun var jafn fjarri. Ævinlega þótti mér gaman að koma til þeirra hjóna og jafnan Afi bar ætíð mikla umhyggju fyrir okkur afabörnunum, maður fann það vel, jafvel þótt hann hafi verið mjög hlédrægur. Alltaf þegar ég fór með afa í bíltúr mátti ég sitja frammí er þótti mikið sport. Þegar við fluttum vestur umgekkst ég hann mun meira. Sérstaklega þegar hann vann hjá pabba. Pabbi minn og afi voru góðir vinir. Afi hætti að vinna fyrir fáeinum árum eða þegar hann byijaði að missa heilsuna. Síðustu mánuðina bjó afi á elliheimilinu í Mánagöt- unni, þar sem hugsað var vel um hann. Síðustu dagarnir vora mjög erfiðir fyrir hann og þegar mér var sagt að afi væri dáinn fann ég fyr- ir mikilli sorg ásamt létti fyrir hans hönd. Með þessum orðum langar mig til að kveðja afa minn sem ég mun aldrei gleyma heldur mun hann ætíð lifa í minningunni. Þórunn Auðunsdóttir. vofu þáú glöð óg góð og gestrisin og Valgeir sagði margar skondnar sögur af samferðamönnum lífs og liðnum. Þá blikaði oft kankvís glettni í augum hans. Hann var mjög ræðinn maður og frásagna- glaður og það var því þyngra en táram tæki að sá sjúkdómur sem lagðist á hann á efri árum varð þess fljótlega valdandi að hann hætti að geta gert sig skiljanlegan. Þó var öll hugsun hans skýr, sem og sjón og heym til æviloka. Þeim hjónum varð tveggja dætra auðið, en þær eru Elín Rósa, gift Guðbjarti Álexanderssyni frá Stakkhamri, en þau stofnuðu ný- býlið Miklaholt II árið 1956 og hafa byggt það upp með veglegum húsakosti og mikilli ræktun. Ætíð var sambýli þeirra tengdafeðra gott og sameiginlega byggðu þeir fjós með tilheyrandi heygeymslum á fyrstu búskaparáram Guðbjarts og Elínar Rósu. Yngri dóttirin, Gyða, hefur ávallt dvalið með foreldram sínum að kalla og átt heimili sitt í Mikla- holti, enda þótt hún hafi sótt ýmsa vinnu við verslunarstörf o.fl. og þá einkum um vetrartímann. Hún er ógift en hefur helgað foreldram sínum krafta sína af þeirri dóttur- legu umhyggju sem best getur orðið. Valgeir var ekki þeirrar gerðar að hann héldi sér fram til metorða eða mannaforráða. Hann „þráði ekki völd sem má týna og tapa — tuma sem hrapa — frægð sem er fals og hjóm“ eins og segir í einu kvæða Davíðs Stefánssonar. Hins- vegar fór ekki hjá því að honum væru falin ýmis trúnaðarstörf í sveitinni. Hann var m.a. eitt kjör- tímabil f hreppsnefnd en- baðst undan endurkosningu. Einnig var hann lengi í stjórn Sjúkrasamlags- ins eða þar til það var lagt niður, og deildarstjóri Kaupfélags Borg- firðinga var hann um hríð; söng í kirkjukórnum fyrr á árum og var nleðhjálpari í Miklaholtskirkju. Öll- um þessum störfum sinnti hann af alúð og nærfæmi, en losaði sig við þau með lipurð og lagni þegar honum fannst kominn tími til. Valgeir var mikill léttleikamaður meðan heilsu naut og fylginn sér var hann og röskur í haustsmala- mennskum meðan þær vora og hétu; fljótur og þolinn og mun hafa tekið þátt í keppnum á yngri áram. Mikla ánægju hafði hann af því að fylgjast með íþróttaefni sjónvarpsins sem og ýmsu öðra efni þess, þegar árin færðust yfir og þrek dvínaði. Jeppa eignuðust þau Valgeir og Lauga snemma á vélaöld. Síðan Land-Rover og ferð- uðust mikið um landið ein saman, eða í fylgd með öðram og voru fróðari um mannlíf og staðhætti eftir. Margt er það enn sem ég vildi sagt hafa um Valgeir heitinn og þau Miklaholtshjón, en þessi fá- tæklegu orð verð ég að láta nægja. Þau era í flaustri skrifuð á anna- samri tíð, til þess að minnast góðs drengs sem horfinn er á braut. Valgeir er í dag til moldar bor- inn í Miklaholtskirkjugarði, svo að segja á heimahlaðinu. I þeirri mold verður svefninn rór. Við hjónin, sem og allir sveit- ungamir, vottum Laugu, dætrun- um og venslafólki öllu dýpstu sam- úð. Erlendur Halldórsson, Dal. Einar A. Einars- son - Kveðjuorð Fæddur 17. október 1965 Dáinn 26. apríl 1992 Ó, Faðir, gjðr mig lítið ljós um lífs míns stutta skeið, til hjálpar hveijum hal og drós, sem hefur villst af leið. Elsku bróðir minn og frændi, Einar Auðunn Einarsson, er dáinn. Við kveðjum hann með söknuði og þökkum honum fyrir allar þær góðu stundir sem við áttum saman, og þann boðskap sem hann færði okkur með lífi sínu. Nægjusemi Auðuns undraði okk- ur flest. Meðan flestir vora að beij- ast við að hafa það aðeins betra en náunginn lét hann sér nægja fjallahjólið sitt og ást sína á konu og dóttur. Auðunn heitinn var alltaf léttur í lund, gamansamur og kærleiksrík- ur, með honum varð lífíð léttara og tilveran björt. Það er með sárum söknuði sem við kveðjum elsku Auðun. Megi hann hvíla í friði. Elsku Erla og Silfá, megi góður Guð gefa ykkur styrk í þessari miklu sorg, og okkur öllum sem fengum hans að njóta. Allt eins og blómstrið eina upp vex á sléttri grand Fagurt með frjóvgun hreina fyrst um dags morgunstund, á snöggu augabragði af skorið verður fljótt, lit og blöð niður lagði, - líf mannlegt endar skjótt. Hilmar og Sylvía. Minn ástkæri bróðir Einar Auð- unn Einarsson er Iátinn. Það er mjög sorglegt að hugsa til þess að hann hafi þurft að yfírgefa okkur svona skyndilega, þetta var ungur maður í blóma lífsins. Hann skilur eftir sig konu og dóttur sem hann elskaði mjög heitt. Megi góur Guð styrkja þær í þess- ari miklu sorg. Mér veittist sú ánægja að starfa með honum síðasta vinnudaginn hans hjá Skákprenti, hann var áhyggjulaus og spaugsamur að vanda. Það er því með söknuði sem ég kveð bróðir minn og þakka hon- um fyrir þær stundir sem við áttum saman. Er ég minnist þess, hve gleðin var mikil yfir þinni fögru dóttur, fyllist ég sáram söknuði og þrái að hann væri hér ávallt hjá okkur. Margrét Lára Einarsdóttir. Lífið er stormur eða logn, við erum stráin. Streitumst á móti and- streymi. Fljótum með golu gleðinn- ar. Éins lengi og vindur vonarinnar lifír, lifum við. Einar Auðunn Einarsson, hann Auðunn, lifir í hjörtum og björtum minningum ástvina sinna. Megi guð blessa og styrkja Erlu konu hans og Silfá litlu dóttur þeirra. Guð blessi og styrki föður hans, fósturmóður og systkini. Sóley Gróa. Sunnudaginn 26. apríl síðastlið- inn barst okkur skólafélögunum sú sorglega frétt að Einar Auðunn væri látinn. Það var aðeins sólar- hringur liðinn frá því að við komum saman sem Réttó ’65 og áttum yndislegt laugardagskvöld. Þar var Einar Auðunn mættur brosandi og kátur eins og ávallt. Hann sagði okkur frá litlu dóttur sinni sem hann var mjög stoltur af. Ekki datt okkur í hug að þetta væri kveðju- stund Einars Auðuns. Hann sem átti allt lífið framundan. En vegir Guðs eru órannsakanlegir, honum vora ætluð önnur og meiri verk. Við skólafélagar Einars Auðuns sendum Erlu, Silfá og öðram ástvin- um okkar dýpstu samúðarkveðjur. Jesús, bróðir vor og frelsari. Þú þekkir dánarheiminn. Fylgdu vini vorum, þegar vér getum ekki fylgst með honum lengur. Miskunnsami faðii; tak á móti honum. Heilagi andi, huggarinn, vertu með oss. Amen. Skólafélagarnir ór Réttarholtsskóla.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.