Morgunblaðið - 30.05.1992, Blaðsíða 5

Morgunblaðið - 30.05.1992, Blaðsíða 5
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 30. MAI 1992 5 Gullgrafarastemmning á Tálknafirði; Morgunblaðið/Róbert Schmidt Hann var ekki hár í loftinu þessi ISndunarstjóri sem landaði úr nokkrum handfærabátum i vik- unni. Hann heitir Steinar Snæbjörnsson og er 10 ára. Handfærabátar mok- fiska á Vestfjarðamiðum Bíldudal. „Gleðjufjörð- ur“ endur- heimtir foma frægð Patreksfirði. LIF og fjör er á Patreksfirði þessa dagana. Höfnin er svo troðfull af aðkomubátum að það liggur við vandræðum í landleg- um. Um 100 bátar leggja hér upp afla og enn er að bætast við. Patreksfjörður, sem er gamall og gróinn útgerðarstaður, virðist vera að endurheimta forna frægð, þegar fjörðurinn fylltist af útlend- um duggum og gárungarnir köll- uðu staðinn „Gleðjufjörð". Bandalag áhugaleikfélaga halda þing sitt hér um helgina og telst fréttaritara svo til að þegar trillu- karlarnir og áhugaleikarar eru taldir hafi orðið 30% fjölgun á staðnum. Ingveldur. MOKAFLI hefur verið undan- farna daga hjá handfærabátum á Vestfjarðamiðum. Talið er að á annað hundrað smábáta séu á veiðum út af Vestfjörðum um þessar mundir. Aflinn hefur verið frá einu tonni upp í rúm- lega þrjú tonn á bát eftir dag- inn. 100 tonnum var landað á Fisk- markað Tálknafjarðar í síðustu viku sem er langmesti handfæra- afli sem komið hefur á land á Tálknafirði á svo stuttum tíma. Að sögn Helgu Jónasdóttur hjá fiskmarkaðinum bjuggust þau aldrei við svona miklum afla. „Þetta er orðið viðráðanlegra ástand núna, en þetta var ævin- týrlegt um síðustu helgi þegar 31 bátur kom að landi á föstudags- kvöldið og allir með frá 1.200 kg upp í 3 tonn,“ sagði Helga í sam- tali við Morgunblaðið í gær. Um 40 smábátar eru núna á Tálkna- firði og koma þeir víða af landinu.' „ Trillukarlar setja mikinn svip á mannlífíð á staðnum. Verslun og þjónusta nýtur góðs af dvöl þeirra og karlarnir eru líka ánægðir með hlutskipti sitt á milli sjóferða. Það er því óhætt að taka undir orð eins Tálknfirðingsins sem sagði: „Það er gull- grafarablær yfir þessu öllu saman.“ R. Schmidt. Helga Jónasdóttir er allan dag- inn í símanum að svara trillu- körlum sem vilja koma afla sín- um á markaðinn. Mikið öngþveiti myndast oft í höfninni á Tálknafirði. Athafnalífið við Fiskmarkað Tálknafjarðar. Tíl hamingju með félagsheimilið og opnun nýrrar skrifstofu að Mörkinni 6 Nýtt heimilisfang: Mörkin 6,108 Reykjavík. Ný númer: Sími 682533, fax 682535. Ferðafélag íslands hefur flutt skrifstofu sína af Öldugötu 3 í glæsilegt húsnæði í nýju félagsheimili að Mörkinni 6, Reykja- vík. Með byggingu félagsheimilisins hefur áhugafólk um ferða- lög og útiveru á íslandi eignast fastan samastað. í risi þess er salur sem nýttur verður til félagsstarfsemi Ferðafélagsins og annara aðila er því tengjast. Ferðafélag íslands er stærsta og elsta áhugamannafélag lands- ins með það markmið að hvetja til ferðalaga um okkar fagra land. Göngudagur F.I. sunnudaginn 31. maí er tileinkaður opnun nýju skrifstofunnar. Eftirtaldir aðilar óska Ferðafélaginu til hamingju með félagsheimilið og opnun nýju skrifstofunnar: Ljósafoss hf., RAFVERKTAKAR. EYKTyf VERKTAKAR iívktakás.v iioki vkmvIks k.mt ALHLIÐA PÍPULAGNIR SF. Nýlagnir, breytingar, stillingar, og alhliða viðgerðir á pípulögnum T=n=r STEINDh/f TTT BYGGINGAVERKTAKAR VERIÐ VELKOMIN í MÖRKINA - GERIST FELAGAR
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.