Morgunblaðið - 30.05.1992, Page 19

Morgunblaðið - 30.05.1992, Page 19
19 MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 30. MAÍ 1992 EVROPSKA VINNUVERNDARARIÐ 1992-1993 Reykingar á vinnustöðum eftir Hólmfríði Gunnarsdóttur — Tíminn vinnur með okkur, seg- ir Guðmundur Eiríksson umdæmis- stjóri Vinnueftirlitsins í Reykjavík, þegar ég spurði hann hvernig gengi að framfylgja lögum um tóbaks- varnir á vinnustöðum. — Það var víða hörku andstaða, segir Guðmundur, og ekki bætti úr skák, ef öryggistrúnaðarmaðurinn, sem átti að hafa framgöngu í mál- inu, reykti sjálfur og forstjórinn líka. En þetta er að breytast. Núna vilja jafnvel reykingamennimir vera í hreinu lofti. — Þegar kvartanir berast um reykingar á vinnustöðum sendum við staðlað bréf til forstöðumanns- ins og segjum að okkur hafi borist kvörtun um að settum reglum sé ekki fylgt. Við gætum ævinlega þagnarskyldu og gefum aldrei upp, hver hafí kvartað, en fólk óttast oft um hag sinn, ef það kæmi fram, að það hefði leitað til Vinnueftirlits- ins með kvörtun af þessu tagi. — Ef þessi viðvörun ber ekki árangur hnykkjum við á henni með símtölum og svo getur farið að við verðum að hóta harðari aðgerðum eins og lög heimila. Það hefur aldr- ei náð svo langt, en við höfum lent í stappi jafnvel við lögfróða menn í háum embættum, sem hafa ekki viljað fara eftir ábendingum okkar í fyrstu atrennum. — Við höldum okkur við lagabók- stafínn í þessu efni, en látum óholl- ustu og persónulega afstöðu til reykinga liggja á milli hluta. En ég hef tekið eftir því, að vinnuveitendur eru farnir að draga það við sig að ráða fólk sem reykir. Þeir segja að reykpásurnar minnki vinnuafköstin. En hefur þú sjálfur einhvern tímann reykt? — Já, ég reykti frá sextán ára aldri til fimmtugs. — Hvers vegna hættirðu? — Það var bæði dýrt og óhollt. — Hvemig fórstu að því að hætta? Var það erfítt? - Nei, það var ekkert svo erfítt. Aðdragandinn var dálítið skrítinn. Ég var í sumarhúsi uppi í Borgar- fírði í ágúst og gekk með krökkun- um upp á Grábrók. Þegar ég kom upp á fjallið stóð ég á öndinni af mæði. Það ískraði og surgaði í mér. Þá hugsaði ég sem svo að ég yrði að hætta að reykja. Ég ákvað að það væri best að hætta á fímm- tugsafmælinu, sem var í október. En svo fékk ég nokkra vindlakassa í afmælisgjöf og ég horfði á þessa dýrindis vindla og sagði við sjálfan mig: „Það er best að ég reyki upp úr þessum kössum, svo hætti ég.“ í nóvember átti ég eftir einn Bjarna frá Vogi og ég hugsaði að ég yrði að fara að treina mér það sem eft- ir væri. Ég reykti mig þannig smátt og smátt niður og á gamlársdag átti ég tvo vindla eftir. Þann síð- asta reykti ég á gamlárskvöld með viskí í glasi. Guðmundur Eiríksson — Ég vann lengi sem vélstjóri á skipum og menn reyktu mikið á sjónum. Eg reykti pípu meðan ég var að læra og vafði mér sígarettur til að spara. En þegar sígarettur fengust fyrir lítið í siglingum reyktu menn ótæpilega. Ég komst þó aldr- ei upp í pakkann á dag. Ég gerði mér líka snemma grein fýrir, að þegar ég var með skít og olíu á höndunum væri varasamt að fá þau efni ofan í mig með reyknum. — Það eru tíu ár síðan ég hætti að reykja, og ég er miklu þolnari en ég var, þótt ég sé tíu árum eldri. Ég á auðveldara með að vakna á morgnana og nú teygar maður bara að sér hreina loftinu með ánægju. Ég er alls ekki frá því að ég sé yfírleitt fjörugri í víðasta sam- hengi! Nei, ég hef ekkert saknað þess að hætta. Þetta er reynsla Guðmundar Ei- ríkssonar, sem hefur starfað við eftirlit á vinnustöðum í Reykjavík í 19 ár. En hvernig á að tala um reyking- ar á vinnustöðum? Reykingafólk býst til varnar sem vonlegt er, því það er erfítt að breyta vana, einkum því, sem okkur fínnst gott og skemmtilegt. Allir geta litið í eigin barm í því efni. Hvernig á þá að ná því takmarki, að útrýma tóbaks- reykingum, sem allir hljóta að fall- ast á að væri æskilegt. Allir vita, að það er heilsuspillandi að reykja, bæði fyrir þann sem reykir og þá sem sitja í reyknum. „Allir“ verða þó aldrei ánægðir, því öflugar sam- steypur hafa hagnað af sölu tóbaks og auglýsa vaming sinn með öllum tiltækum ráðum. Þótt tóbaksauglýsingamar séu bannaðar á íslandi er þeim samt lætt inn á markaðinn. Skófatnaður með Camel-merkingu er auglýstur sem eftirsóknarverð vara og plast- pokar með sama merki afhentir sem umbúðir um vömr, svo dæmi sé nefnt. Þetta er að sjálfsögðu bein auglýsing, — en óbeinar auglýsing- ar hafa ekki síður áhrif svo sem reykingar glæsilegs fólks á kvik- myndatjaldi eða í hversdagslífí. Tí- skan er öflug, kannski öflugasti áhrifavaldurinn. Flestum kemur saman um, áð það þótti einhvem tímann fínt að reykja. Tímarnir hafa sannarlega breyst í þessu efni. Þeir sem reykja, kvarta fremur undan því, að þeir séu litnir hornauga, — að það sé sótt að þeim úr öllum áttum. Því miður virðist ástæða til að herða sóknina. — Hvers vegna? Vegna þess að tóbaksréykur er hættuleg mengun, bæði fyrir reykingamann- Hólmfríður Gunnarsdóttir inn og þá sem anda að sér reyk úr umhverfínu. ... „Sum efnin í tóbaksreyk em eitruð og vitað er um fleiri en 50 krabbameinsvalda í honum. Meng- un frá tóbaksreyk hefur margfalda virkni á við asbest í innviðúm skrif- stofuhúsnæðis hvað varðar líkur á að valda krabbameini hjá þeim sem þar vinna og reykja ekki.“ ... „Á skrifstofum þar sem reyk- ingar em leyfðar, má gera ráð fyr- ir að sá sem ekki reykir en vinnur við slíkar aðstæður, fái í sig eitur- efni úr tóbaksreyk í svipuðum mæli og sá sem reykir eina til fímm sígarettur daglega miðað við átta stunda vinnudag." Þessar tilvitnanir em í bæklingn- um Óbeinar reykingar. Hreint loft — betri heilsa, sem Sigurður Áma- son læknir þýddi og Tóbaksvama- nefnd gaf út í samvinnu við Krabba- meinsfélag Reykjavíkur 1988. Hvemig vilt þú hafa andrúms- loftið? Ég vil hafa það hreint. Höfundur er lyúkrunarfræðingur hjá Vinnueftirliti ríkisins. Tækifæri til að gera góð bílakaup fyrir sumarið! NOKKUR DÆMI: Tegund Árgerð Subam Sedan 1988 Nissan March GL 1987 SuzukiFox410 1988 Mazda 626 GLX 2,0 1985 MMC Lancer ST 1986 BMW316 1986 Ford Escord XR3I 1984 Fíat Uno 45 1987 Peugot 205 GR 1987 Lada Safir 1987 Lada Sport 1987 Staðg. verð Afsl.verð 750.000,- 690.000,- 370.000,- 320.000,- 630.000,- 530.000,- 450.000,- 390.000,- 400.000,- 290.000,- 650.000,- 530.000,- 490.000,- 410.000,- 250.000,- 190.000,- 390.000,- 320.000,- 150.000,- 95.000,- 330.000,- 270.000,- OPIÐ: Virka daga kl. 10-19 og laugardaga kl. 13-17 Bílaumboðið hf Krókhálsi 1-3, Reykjavík, sími 686633 og 676833 í notuðum bílum ENGIN ÚTBORGUN RAÐGREIÐSLUR TIL ALLT AÐ 18 MÁNAÐA SKULDABRÉF TIL ALLT AÐ 24 MÁNAÐA

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.