Morgunblaðið - 21.06.1992, Síða 19
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 21. JÚNÍ 1992
19
hætti í Almenningi gegn ofbeldi,
systurhreyfingu Borgaravettvangs
í tékkneska hluta landsins, og
stofnaði Hreyfingu fyrir lýðræðis-
legri Slóvakíu, HZDS. Nefnd í sló-
vakíska þinginu var þá að rann-
saka misgjörðir Meciars í embætti
innanríkisráðherra. Hann komst
sem slíkur yfir valin StB-skjöl um
sjálfan sig og nokkra andstæðinga
sína og þau misnotaði hann. Talið
er víst að hann hafi starfað með
StB eftir 1976 og verið á skrá
undir nafninu „Doktor“ frá 1985.
í embættisbifreið sína. Hann fann
þau þar sem Meciar hafði sagt að
þau væru og klukkan sjö morgun-
inn eftir afhenti Cimo honum skjöl-
in í embættisbústað ráðherrans í
Bratislava. Hann nefndi þau ekki
á nafn í skýrslunni um húsrann-
sóknina. Cimo hafði í rauninni
engan rétt til að gera þessa hús-
rannsókn þar sem StB fellur undir
sambandsstjórnina og það er ekki
á vegum innanríkisráðuneytis Sló-
vakíu að fara þar um að nóttu til.
Húsrannsóknin er því kölluð inn-
Stuðningsmenn Meciars í Slóvakíu.
Vladimir Meciar, fyrrum hnefa-
leikari, er helsti leiðtogi þjóðar
sinnar. Cimo sakar hann um að
hafa skipað sér að stela leyni-
skjölum til að bjarga eigin skinni.
Sjálfur hefur hann viðurkennt að
hafa haft þessi skjöl undir höndum
en segist hafa fundið þau einn
góðan veðurdag á skrifborðinu
sínu.
Cimo er á öðru máli. Hann sagði
þingnefndinni í Slóvakíu og ann-
arri rannsóknarnefnd á sambands-
þinginu í Prag nú í vetur að Mec-
iar hefði kallað sig á sinn fund
klukkan 10 að kvöldi hins 26. jan-
úar 1990. „Farðu í Tiso-villuna og
náðu í skjöl sem Skultedy hefur
tekið saman og komdu með þau
hingað,“ segir hann að Meciar
hafi sagt. StB hafði aðstöðu í
gamla bústað Josefs Tisos í Tenc-
in. (Tiso var leiðtogi Slóvakíu þeg-
ar hún var sjálfstæð undir verndar-
væng Hitlers á stríðsárunum. Og
Skultedy var starfsmaður öryggis-
lögreglunnar.) Meciar sagði Cimo
nákvæmlega í hvaða skáp 18
möppur með skjölum StB væri að
finna og tók skýrt fram að hann
ætti ekki að geta þeirra í skýrslu
um húsrannsókn í villunni. Eftir
byltingu hafði Lorenz, yfirmaður
StB, gefið út skipun um að eyði-
leggja öll gögn öryggislögreglunn-
ar og Meciar taldi Cimo trú um
að hann ætlaði að senda Sacher,
innanríkisráðherra Tékkóslóvakíu,
skjölin til að koma í veg fyrir að
þau yrðu eyðilögð.
Cimo fékk lögreglumann til að
opna fyrir sig Tiso-villuna um mið-
nætti og bað hann að hringja í
samstarfsmenn úr eftirlitsnefnd
ráðuneytisins og segja þeim að
koma til að gera húsleit. Hann
notaði tímann á meðan þeir voru
á leiðinni til að flytja bindin 18 út
brot og Meciar þvemeitar að hafa
gefið fyrirskipun um það.
Þeir svífast einskis
Mitro, yfírlögreglustjóri Slóvak-
íu, fékk vitnisburð Cimos fyrir
þingnefndinni í Prag sendan til
Bratislava. Hann er góður vinur
Meciars svo að Meciar veit hvað
Cimo sagði þegar nefndin spurði
hvað hann hefði aðhafst aðfara-
nótt 27. janúar 1990. Lauko, yfir-
saksóknari Tékkóslóvakíu, hefur
sagt að það hafí verið mistök að
senda skýrslu nefndarinnar til
Bratislava en það kemur Cimo
ekki að miklu gagni úr þessu.
Hann óttast um líf sitt og fjöl-
skyldu sinnar.
Hann segir að það hafi sex sinn-
um verið ráðist á sig. Eitt sinn
voru það tveir menn með hnífa sem
réðust á hann að kvöldi til þegar
hann var á leið að kaupa sígarett-
ur. Þeir ávörpuðu hann með nafni
en hann yfirbugaði þá með karate-
tækni. Þeir voru ekki með nein
skilríki á sér. Lögreglan kom ekki
þótt hann hringdi og tilkynnti árás.
Síðan hefur hann ekki kallað á
lögregluna. „Hún gæti handtekið
mig fyrir líkamsárás í stað þeirra
sem réðust á mig,“ sagði hann.
Fjórir menn réðust á 17 ára dóttur
hans og reyndu að nauðga henni
en tveir fylgdarmenn hennar komu
henni til hjálpar. Og bílhurð var
skellt á fótleggi konu hans þegar
hún var að stíga út úr bíl.
Cimo tók því illa þegar ég efað-
ist um að hann væri í lífshættu.
„Þessir menn svífast einskis,"
sagði hann og starði lengi í augun
á mér til að sannfæra mig um
hættuna sem hann er í.
Meciar og helstu samstarfsmenn
hans í HZDS kærðu Cimo fyrir
meiðyrði miðvikudaginn 10. júní.
Hann er sannfærður um að málið
geti ekki fengið sanngjarna máls-
meðferð { Slóvakíu þar sem þessir
óvinir hans eru við völd. Fjölskylda
hans grátbað hann að flýja land
þegar hann frétti að það ætti að
handtaka sig og hann kæmist ekki
lengur úr landi yfír landamæri
Slóvakíu. Hann pakkaði niðu allra
nauðsynlegustu hlutum og flúði í
gegnum Mæri, Bæheim og Þýska-
land til Sviss. Hann vonast til að
fá pólitískt hæli eins og landi hans,
Alexej Zak, sem svissnesk stjóm-
völd veittu pólitískt hæli í vor. Zak
flúði land í fyrra þegar honum og
fjölskyldu hans var hótað lífláti af
því að hann gekk of sköruglega
til verks við rannsókn á Slusovice,
einu stærsta samvinnufélagi
Tékkóslóvakíu.
Á'PUSHr .................................
V BAL inil|... rr *
_Jupeílec)) flCD-3QD0
LflSCfl TflflCHING SYSTCM CD-S flCflDV
im-
! SHUI
r->. asss 3» onon n> f
yl)_ Wsct C 3 Ju-ju DX I
ACD 3000 LW/MW/FM sterió hljómgæði. Geislaspilari. 30 stöðva
minni magnari 2x25 wött Geislaspilari lagaleitara o.fl.
Útgangur fyrir kraftmagnara. >
■ rsí’n í. sdk
OG VIÐ BROSUM í UMFEfifi/yy^
ARC180 AlvörutækiMW/FMsterióútvarpogsegulband.2x25wött. Upplýstur
stafraenn gluggi. Sjálfvirk spólun á snældu. Tenging fyrir CD geislaspilara.
Útgangur fyrir fjóra hátalara með fullkomið steró innbyrgðis.
hverri. - Stafrænn gluggi er sýnir bæði bylgjulengd og klukku.
ARC 710 MW/FM sterio útvarp og segulband. Sjálfvirkur leitari og „skanner“,
magnari 2x12 wött. Frábær hljómgæði. Tækið er með klukku og sérstaklega
skemmtilegri lýsingu í tökkum.
9V. sAL& °9 Sfo
^VerslaoW 0 ^ '^Þessab Wsta*
Heimilistæki hf
SÆTÚNI8 SÍMI691515 ■ KRINGLUNNISÍMI6915 20
'SaM/ttítpUM>
bíltæki.
Metsölublad á hverjum degi!
MEfíKlSMEHN HF