Morgunblaðið - 21.06.1992, Qupperneq 30
JMtorgmilrlafrlfc
ATVINNU/RAD-
OG SMÁAUGLYSINGAR
Blaðberar óskast
við Laugarásveg og Kleifarveg.
Upplýsingar í síma 680577.
Kennara vantar
við Grunnskólann á Suðureyri
Hlunnindi íboði
Um er að ræða alla almenna kennslu.
Upplýsingar gefa skólastjóri í síma 94-6119
og formaður skólanefndar í síma 94-6250.
Heimakynning
Óskum eftir að ráða duglegan sölumann sem
getur starfað sjálfstætt. Æskilegt/ekki nauð-
synlegt að viðkomandi hafi bíl til umráða.
Góð laun fyrir góðan mann.
Upplýsingar í síma 91-624244 frá kl. 10-18.
Rafeindavirki
Rafeindavirki óskast til starfa nú þegar eða
sem fyrst. Góð vinnuaðstaða, góð laun.
Farið verður með umsóknir sem trúnaðarmál
og skulu þær leggjast inn á auglýsingadeild
Mbl. fyrir 26. þessa mánaðar, merktar:
„Rafeindavirki - 12969".
Símavarsla
Lögmannsstofa vill ráða strax ungan, röskan
og drífandi starfskraft til símavörslu og léttra
starfa.
Umsóknir sendist auglýsingadeild Mbl., merkt-
ar: „Símavarsla - 3499“, fyrir þriðjudagskvöld.
Tveir þroskaþjálfar
óskast á leikfangasafn í Ólafsvík og leikskól-
ann í Grundarfirði frá 1. sept. ’92.
Upplýsingar gefur Laufey í'síma 93-61600
eða 93-61225 eða skrifstofa Svæðisstjórnar,
sími 93-71780.
Ferðamálafulltrúi
óskast
Ferðamálasamtök Vestfjarða óska eftir að
ráða ferðamálafulltrúa til starfa.
Sérmenntun eða reynsla af ferðamálum skilyrði.
Um er að ræða fullt starf með búsetu á ísa-
fjarðarsvæði, en starfinu fylgja ferðalög um
Vestfirði.
Upplýsingar gefur formaður Ferðamálasam-
taka Vestfjarða, Áslaug Alfreðsdóttir, í síma
94-4111 og 94-3915.
Umsóknarfrestur er til 1. júlí nk.
Frá Tónlistarskóla
Rangæinga
Tónlistarskóli Rangæinga óskar að ráða
kennara fyrir næsta skólaár. Um er að ræða
ýmsar kennslugreinar, s.s. píanó og hljóm-
borð, gítar og blásturshljóðfæri, tónfræði og
forskóla.
Umsóknum er tilgreina menntun og fyrri störf
skal skilað til formanns skólanefndar, Guð-
jóns Ólafssonar, Syðstu-Mörk, 861 Hvols-
velli, sem einnig veitir nánari upplýsingar
í síma 98-78900.
Umsóknarfrestur er til 1. júlí nk.
Skólanefndin.
Gæslufólk að Sogni
f Ölfusi
Stöður gæslufólks að Sogni í Ölfusi eru
lausar til umsóknar. Æskilegt er að umsækj-
endur hafi reynslu af störfum við gæslu á
geðdeildum, stofnunum fyrir þroskahefta
eða í fangelsum.
Gert er ráð fyrir að starfið á stofnuninni
hefjist í október nk., en umsækjendur þurfa
að gera ráð fyrir að fara áður í allt að eins
mánaðar námsdvöl erlendis.
Umsækjendur í Ölfushreppi ganga fyrir að
öðru jöfnu.
Umsóknarfrestur um stöðurnar er til 30. júní
1992. Umsóknir skulu sendast til skrifstofu
Sjúkrahúss Suðurlands á Selfossi.
Allar upplýsingar um stöðurnar eru gefnar í
heilbrigðis- og tryggingamálaráðuneytinu.
Heilbrigðis- og tryggingamálaráðuneytið.
Atvinnurekendur ath!
26 ára rekstrarhagfræðingur (MSc), sem
nýlega lokið hefur námi, óskar eftir föstu
starfi. Starf utan stór-Reykjavíkursvæðisins
kemur einnig til greina. Góð fjármála-, tölvu-
og tungumálakunnátta (enska, sænska).
Tilboð sendist til auglýsingadeildar Mbl.
merkt: „Rkh - 123“ fyrir 30. júní 1992.
Framkvæmdastjóri
íÞýskalandi
ISLAND TOURS er ferðaheildsölufyrirtæki
sem sérhæfir sig í sölu íslandsferða sem og
ferða tjl Færeyja og Grænlands. Fyirtækið er
í eigu íslendinga og er í forystu á sínu sviði
í Evrópu.
Starfssvið framkvæmdastjóra er stjórnun
tveggja skrifstofa, markaðsmál, fjármál,
starfsmanna- og tölvumál.
Framkvæmdastjóri ber ábyrgð á daglegum
rekstri, þarf að hafa mikið frumkvæði og
vera góður stjórnandi. Skilyrði er að umsækj-
andi hafi einhverja þýskukunnáttu en góð
þýskukunnátta er mjög æskileg. Reynsla úr
ferðaþjónustu er ekki skilyrði. Um er að
ræða mjög lifandi starf sem veitir góða
reynslu í erlendum viðskiptum.
Með allar umsóknir verður farið sem trúnað-
armál og öllum umsóknum verður svarað.
Umsóknir sendist til auglýsingadeildar
Mbl. fyrir 29. júní merktar:
„Ómar Benediktsson - 7994".
Starfsmaður
vanur viðhaldi og viðgerðum á þungavinnu-
vélum, óskast til framtíðarstarfa. Æskilegt
að viðkomandi hafi vélstjóraréttindi.
Svör óskast send auglýsingadeild Mbl. fyrir
föstud. 26/6 ’92 merkt: „Viðhald - 12968".
Staða
heilbrigðisfulltrúa
(framkvæmdastjóra heilbrigðiseftirlits)
á Norðurlandi vestra
er hér með auglýst laus
Umsóknir með upplýsingum sendist for-
manni svæðisnefndar í pósthólf 83 á Sauðár-
króki fyrir 20. júlí nk., en hann og formenn
heilbrigðisnefnda á svæðinu veita frekari
upplýsingar.
Sauðárkróki, 18.júní 1992.
Héraðslæknirinn Norðurlandshéraði vestra.
Hjúkrunarfræðingar
- deildarstjóri
Laus er til umsóknar staða deildarstjóra við
hjúkrunarheimilið Víðihlíð í Grindavík.
Víðihlíð, sem er hjúkrunarheimili fyrir aldr-
aða, er ný deild frá Sjúkrahúsi Keflavíkur-
læknishéraðs með 29 rúmum, en þar af
verða 14 rúm tekin í notkun í ágúst nk.
Allar nánari upplýsingar um starfið veitir
hjúkrunarforstjóri S.K. í síma 92-14000.
Umsóknarfrestur er til 30. júní nk. og skulu
umsóknir berast fyrir þann tíma.
Reyklaus vinnustaður.
Sjúkrahús Keflavíkurlæknishéraðs.
Tölvusalaim he
Tölvusalan hf. er heildsala og smásöluversl-
un, sem flytur inn og selur tölvur og tölvu-
íhluti, iðntölvur, netkerfi, tengiefni og fleira.
Við leggjum áherslu á góð, persónuleg tengsl
og faglegar ráðleggingar til viðskiptavina
okkar.
Við óskum að ráða starfsmann með þekkingu
á tölvum og sérhæfðum íhlutum ásamt ýmis-
konar tækniþjónustu við viðskiptavini og
umsjón með varahlutalager.
Skriflegar umsóknir, er tilgreini menntun og
reynslu, sendist fyrir 26. júní '92 í pósthólf
8960, 128 Reykjavík. Farið verður með um-
sóknir sem trúnaðarmál.