Morgunblaðið - 29.07.1992, Side 1
64 SIÐUR B/C
170. tbl. 80. árg.
MIÐVIKUDAGUR 29. JÚLÍ 1992
Prentsmiðja Morgunblaðsins
Neyðarástand ríkir meðal múslíma í borginni Gorazde í Bosníu:
Rætt um beitingu
hervalds til að
hjálpargögn berist
Sar^jevo, Genf, London, Bonn. Reuter.
SKOTHRÍÐ heyrðist öðru hverju í Sarajevo í gær og talsmaður for-
seta Bosníu-Herzegóvínu sagði að 60 júgóslavneskir skriðdrekar hefðu
haldið inn yfir landamærin til aðstoðar Serbum í borgini Brcko. Sam-
bandsherinn vísaði þeim fregnum hins vegar á bug. Múslimar sitja um
borgina. Bandarískur ráðherra sagði á ráðstefnu Sameinuðu þjóðanna
í Genf að stjórn George Bush ráðfærði sig nú við önnur riki um mögu-
leikann á beitingu hervalds til að tryggja að hjálpargögn berist til
nauðstaddra múslima í Gorazdeborg.
Enginn árangur varð á fundum
sem fulltrúar Evrópubandalagsins
(EB) áttu með deiluaðilum í London.
Haris Silajdzic, utanríkisráðherra
Fischer í
forsvari
nýs skák-
félags?
MAÐURINN á bak við einvígi
þeirra Fischers og Spasskíjs
er serbneskur auðmaður,
Jezdimir Vasiljevic. Hann á
Júgóscandic-bankann sem
styrkir keppnina og hefur tek-
ið hálfeyjuna Sveti Stefan, þar
sem einvígið verður, á leigu
til 25 ára. Vasiljevic vill beita
sér fyrir að skáksnillingar
stofni með sér félag með
Bobby Fischer í forsæti.
Tanjug-fréttastofan hefur
greint frá því að Vasiljevic ætli
að beita sér fyrir félagi skák-
risa, nokkurs konar andsvari við
Alþjóða skáksambandið, FIDE.
Fischer vill ekkert hafa með
FIDE að gera.
Fischer undirritaði 11. júlí
samning um einvígið við Spasskí
og batt sig um leið við að greina
blaðamönnum frá ástæðum fjar-
veru sinnar úr sviðsljósinu síð-
ustu tvo áratugi. Danska blaðið
Berlingske Tidende setti á
sunnudag fram þá kenningu að
Fischer væri í giftingarhugleið-
ingum með 19 ára ungverskri
stúlku og gæti vel notað verð-
launafé úr einvíginu til að stofna
með henni heimili.
Svíar auka
vínsmygl
Stokkhólmi. Frá Erik Liden fréttaritara
Morgunblaösins.
ÁFENGISSMYGL til Svíþjóðar
eykst stórum þrátt fyrir að ríkið
hafi lækkað verð á víni.
Það sem af er árinu hefurtollgæsl-
an lagt hald á um 100.000 lítra af
sterkum vínum og léttum. Um helg-
ina fundust um borð í dönsku skipi
32.000 lítrar af 96% vínanda sem
smygla átti frá Þýskalandi til Sví-
þjóðar. Talið er að söluverð góssins
hefði verið rúmlega 110 milljóna
ÍSK. Er þetta stærsti smyglfarmur
sem hald er lagt á í skipi í Svíþjóð.
Bosníu-Herzegóvínu og múslimi,
hefur hafnað öllum hugmyndum um
skiptingu lýðveldisins milli þjóða-
brotanna þriggja. „Þessar þjóðemis-
legu markalínur yrði aðeins hægt
að draga með blóði," sagði ráðherr-
ann. Serbar og Króatar vilja skipta
landinu.
Utanríkisráðherra Þýskalands,
Klaus Kinkel, segir að koma verði á
algeru samskiptabanni á Serbíu og
reka landið úr öllum alþjóðasamtök-
um. Jafnframt verði Rússar að hætta
algerlega að halda hlífisskildi yfir
frændþjóð sinni en Serbar nutu lengi
vemdar og aðstoðar Rússa vegna
skyldleika og einingar þjóðanna í
trúmálum og menningu. Kinkel
hvatti í gær serbnesku kirkjuna,
háskólafólk og almenning í Serbíu
til að grafa undan afskiptum stjórn-
ar Slobodans Milosevics forseta af
Bosníu-Herzegóvínu.
Sjá ennfremur bls. 20.
Reuter
Múslímskir hermenn í Sarajevo skýla sér á bak við hjólbarðastafla.
Maast-
richt
breytt?
Kaupmannahöfn. Reuter.
POUL Schliiter, forsætisráð-
herra Danmerkur, sagði í gær
að Danir hygðust leggja til breyt-
ingar við Maastricht-sáttmála
Evrópubandalagsins síðar á ár-
inu. „Við ætlum að leggja vinnu
í að finna nýjan grundvöll fyrir
Maastricht-sáttmálann þannig að
Danir geti undirritað evrópska
samstarfssamninginn,“ sagði
Schluter að loknum fundi EB-
nefndar danska þingsins í gær.
Danir höfnuðu Maastricht í þjóð-
aratkvæðagreiðslu í júní.
Að sögn danska forsætisráðherr-
ans verður lögð fram tillaga af
hálfu ríkisstjórnarinnar, um hvemig
breyta megi Maastricht, fljótlega
eftir að úrslit liggja fýrir í þjóðarat-
kvæðagreiðslu um sáttmálann í
Frakklandi sem haldinn verður 20.
september. Tillaga Dana yrði síðan
rædd á ríkisstjórnarfundi banda-
lagsins í október eða nóvember.
Schlúter vildi ekki tjá sig neitt
efnislega um hvaða breytingar Dan-
ir myndu hugsanlega leggja til á
sáttmálanum en sagði að ef sam-
komulag næðist við aðrar banda-
lagsþjóðir EB um breytingar gætu
Danir efnt til nýrrar þjóðarat-
kvæðagreiðslu um Maastricht.
Eftirlitsmenn SÞ rannsaka byggingu íraska landbúnaðarráðuneytisins:
Bandaríkjamenn vilja
auka þrýsting' á Iraka
Bagdad, Washin^ton. Reuter, The Daily Telegraph.
EFTIRLITSMÖNNUM Samein-
uðu þjóðanna var í gær hleypt
inní byggingu íraska landbúnað-
arráðuneytisins í Bagdad þar
sem grunur leikur á að geymd
hafi verið gögn um gjöreyð-
ingarvopn íraka. Eftirlitsmenn-
irnir leituðu í byggingunni í sex
klukkustundir og ætla að halda
starfi sínu þar áfram í dag. írak-
ar höfðu Iengi þráast við að
leyfa eftirlitsmönnunum inn-
göngu i ráðuneytið og það var
ekki fyrr en bandamenn í Persa-
flóastríðinu hótuðu að grípa til
hernaðaraðgerða að þeir létu
undan.
Eftirgjöf íraka í málinu hefur
gert það að verkum að nokkuð hef-
ur dregið úr spennunni í deilu íraka
og bandamanna. Tilkynntu Banda-
ríkjamenn í gær að þeir hefðu fall-
ið frá því að senda flugmóðurskipið
Kennedy til Persaflóa en þar eru
þegar fyrir tvö flugmóðurskip og
fjörutíu herskip. Hins vegar hefur
einnig verið boðað að Bandaríkjaher
muni efna til tvennra fjölmennra
Byggingin umdeilda
Reuter
Hér má sjá byggingu íraska landbúnaðarráðuneytisins sem eftirlitsmenn
Sameinuðu þjóðanna fengu loks að skoða í gær eftir miklar deilur.
heræfinga ásamt Kúveither í ágúst-
mánuði í Kúveit.
George Bush Bandaríkjaforseti
hvatti í gær til þéss að vopnaeftir-
lit á vegum Sameinuðu þjóðanna í
Irak yrði eflt en Bandaríkjastjórn
telur mikilvægt að láta reyna á vilja
Saddams Husseins til að framfýlgja
vopnahlésskilmálum nú þegar at-
hygli umheimsins beinist að írak á
ný. Leiðtogar Demókrataflokksins
á Bandaríkjaþingi lýstu í gær yfir
stuðningi við hugsanlegar hemað-
acaðgerðir gegn írökum með því
skilyrði að Bush myndi ráðfæra sig
við þingið í þeim efnum og að þær
nytu stuðnings annarra banda-
manna Bandaríkjamanna í deilunni.
Samkvæmt skoðanakönnun sem
birt var í gær eru 70% Bandaríkja-
manna fylgjandi því að gripið verið
til vopna á ný gegn Irökum en ein-
ungis 24% því andvígir.
Douglas Hogg, aðstoðarutanrík-
isráðherra Bretlands, lýsti í viðtali
við BBC í gær yfir stuðningi við
stefnu Bandaríkjamanna. Sagði
hann Saddam ekki vera mann sem
myndi „deyja á sóttarsæng."