Morgunblaðið - 29.07.1992, Side 2
2
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR. 29. JULÍ 1992
15 ára körfuknattleiksmaður úr Vestmannaeyjum:
1,99 áhæð
o g notar
skó nr. 50
Keflavík.
UNGUR og efnilegur Eyjamaður,
Friðrik Stefánsson, sem hefur
aldrei leikið leik með félagsliði,
æflr nú á fullum krafti með dren-
gjalandsliðinu, sem tekur þátt í
Evrópumóti í Belgíu í ágúst. Axel
Nikulásson, þjálfari liðsins, uppg-
vötaði Friðrik fyrir tilviljun. Frið-
rik, sem er 15 ára og 1,99 m á
hæð, notar skó númer 50 og sagð-
ist hann oft eiga í erfíðleikum
með að fá svo stóra skó hér á
landi. Friðrik verður væntanlega
fyrsti Eyjamaðurinn til að leika
með landsliðinu í körfuknattleik.
BB
Sjá nánar umsögn í íþrótta-
blaði /C9
Morgunblaðið/Bjöm Blöndal
Framtíðarmaður í körfubolta
Eyjamaðurinn Friðrik Stefánsson með körfu-
boltann. Á minni myndinni má sjá skó Friðriks
og skó eins félaga hans í drengjalandsliðinu.
Félagsstofnun stúdenta semur við Dagvist barna:
Leikskóli í stúdentahverfi
Forgangnr fyrir börn stúdenta við HI
SAMNINGAR um byggingu nýs leikskóla fyrir böm stúdenta og for-
gang fyrir þau innan dagvistarkerfís borgarinnar vom undirritaðir
milli Félagsstofnunar stúdenta og Dagvistar bama í Reykjavík í gær.
Að sögn Amars Þórissonar, framkvæmdastjóra Félagsstofnunar stúd-
enta, hafa samningarair í för með sér þrenns konar breytingar. Reist-
ur verði nýr leikskóli í stúdentagarðahverfinu, fjölgun verði á for-
gangsplássum fyrir böra stúdenta og fleiri börn muni komast að þar
sem kerfið verði sveigjanlegt.
Leikskólinn verður til húsa í Ás-
görðum, nýju hverfí stúdentagarða
sem Félagsstofnun stúdenta er að
reisa og eru framkvæmdir við hann
þegar hafnar. Að sögn Amars er
áætlað að hann verði tilbúinn undir
tréverk í nóvember og unnt verði
að taka hann í notkun næsta vor.
Um verður að ræða þriggja deilda
leikskóla af fullri stærð, fyrir að
minnsta kosti 100 böm, í sveigjan-
legu kerfí. Böm stúdenta við Há-
skóla íslands munu koma til með
að hafa forgang að leikskólanum.
Þá var undirritað samkomulag um
forgang bama stúdenta við Háskóla
íslands á umræddan leikskóla svo
og aðra leikskóla Dagvistar bama
sem Reykjavíkurborg rekur. Að sögn
Amars gengur samkomulagið út á
að böm stúdenta njóti ákveðins for-
gangs innan dagvistarkerfis borgar-
innar gegn því að reistur verði leik-
skóli í nýja stúdentahverfinu við
Eggertsgötu. „Stúdentar munu nú
auk þess geta valið um vistun fyrir
börn sín frá 4 upp í 8 eða 9 tíma á
dag en þeir hafa hingað til einungis
getað haft börn sín í heilsdagsvist-
un,“ segir Amar.
Hann segir að einstæðir foreldrar
sem séu við nám í Háskóla íslands
teljist ekki á forgangskvóta stúdenta
heldur séu þeir á forgangi sem ein-
stæðir foreldrar. „í heild er því um
180 pláss að ræða og er það miðað
við heilsdagsrými. Tvö böm í hálfs-
dagsrými geta því nýtt eitt heils-
dagsrými. Þetta gefur stúdentum
möguleika á að kaupa sér þjónustu
einungis upp að því marki sem þeir
telja sig þurfa,“ segir Arnar.
Á leikskólum Dagvistar bama
verða eingöngu vistuð böm þeirra
stúdenta sem em með lögheimili í
Reykjavík. Um vistgjöld munu gilda
þær reglur sem em í gildi hjá Dag-
vistun barna.
Kostnaður við ráð
hús 36% umfram
kostnaðaráætlun
í MINNISBLAÐI Stefáns Hermannssonar, aðstoðarborgarverkfræð-
ings, um framkvæmdir við ráðhús Reylqavíkur, sem lagt var fram
á fundi borgarráðs í gær, kemur fram að kostnaður við ráðhúsbygg-
inguna verði 36% hærri heldur en kostnaðaráætlun frá janúar 1989
sagði til um.
í upplýsingunum sem lagðar voru
fram á fundi borgarráðs í gær kem-
ur fram að framreiknað til vísitölu
marsmánaðar, sem sé síðasti fram-
kvæmdamánuður, sé gert ráð fyrir
að kostnaður við bygginguna verði
sem næst 3.240 milljónum króna,
kostnaður við húsgögn og búnað
203 milljónir, Íslandslíkan kosti 35
milljónir og listskreyting 16 milljón-
ir. Samkvæmt þessu verði kostnað-
ur við ráðhúsbygginguna því 36%
hærri en kostnaðaráætlun frá jan-
úar 1989 sagði til um.
Fram kemur að af þessum kostn-
aði falli 481 milljón króna á þetta
ár vegna byggingarinnar en 220
milljónir króna vegna húsgagna,
búnaðar, Íslandslíkans og list-
skreytingar. Aðeins listskreytingu
sé enn ólokið.
í minnisblaði sem birt var í byij-
un apríl síðastliðnum var gert ráð
fyrir að kostnaður yrði 3.170 millj-
ónir eða 35% hærri en áætlunin frá
janúar 1989 gerði ráð fyrir. í lok
janúar var birt minnisblað þar sem
gert var ráð fyrir að kostnaður yrði
tæplega 3.087 milljónir eða 32%
umfram kostnaðaráætlun og í sept-
ember á síðasta ári gerðu áætlanir
ráð fyrir að kostnaður yrði 2.950
milljónir, eða 27,6% umfram
kostnaðaráætlun.
Mikil loðna en fá
skip eru á veiðum
MIKIL Ioðna er á loðnumiðunum en fá skip á veiðum. Þórshamar
GK hélt á miðin uppúr miðnætti í nótt eftir að hafa landað 600
tonnum á Raufarhöfn en norsku skipunum hefur verið bannað
að veiða tímabundið vegna löndunarbiðar í Noregi. Mesta loðnu-
afla sem landað hefur verið á Raufarhöfn var landað úr norska
loðnuskipinu Bömmelöy I gærkvöld. Árni Sörensson, verkmiðju-
stjóri SR á Raufarhöfn, sagði að Ioðnan hefði fengist í 4 köstum á
12 tímum.
Fyrsta loðnuaflanum sem land-
að hefur verið á Þórshöfn var land-
að úr norska loðnuskipinu Ligrunn
í gær. Hilmar Þór Hilmarsson,
verksmiðjustjóri í Hraðfrystistöð-
inni, sagði að um væri að ræða
900 tonn af velútlítandi loðnu.
Minni áta hefði verið í henni en
talað hefði verið um á Raufarhöfn.
Hann sagði að engin hreyfing
væri á mjölmarkaðnum en lýsis-
markaðurinn væri eitthvað skárri.
Greiddar voru 420 norskar krónur
fyrir loðnutonnið.
Ámi Sörensson, verksmiðju-
stjóri SR á Raufarhöfn, sagði .að
landað hefði verið rúmlega 2.000
tonnum af loðnu þar í gær. Böm-
melöy landaði 1.500 tonnum síð-
degis og Þórshamar tæplega 600
tonnum um kvöldið. Eftir loðnu-
löndunina hélt Þórshamar á loðnu-
miðin að nýju en þangað er um
það bil 18-19 tíma sigling. Að-
spurður sagði Ámi að aflinn úr
Bömmelöy væri sá mesti sem sem
landað hefði verið í Raufarhöfn.
Næst mestum afla landaði Hilmir
í fyrra eða 1.300 tonnum. Að sögn
Áma er norsku skipunum bannað
að veiða meira í bili þar sem lönd-
unarbið er í Noregi.
Trilla bilar á
Breiðafirði
RÚMLEGA fjögurra tonna
trilla, Kristín HF 12, bilaði á
Breiðafirði í gærkvöldi.
Landhelgisgæslunni barst til-
kynning um bilunina kl. 20.21.
Skipveija tókst sjálfum að
gangsetja bátinn og þurfti
ekki á aðstoð að halda.
Sjór komst í vélarrúm trill-
unnar og var báturinn Sigurósk
BA 57 lagður af stað til móts
við hana. Hann snéri hins vegar
fljótlega við þar sem skipverja
tókst sjálfum að tæma vélar-
rúmið og gangsetja bátinn
skömmu síðar.
Engiirgögn um styrki sovéska kommúnistafiokksins hjá Máli og menningu:
Verk Leníns meðal útgáfubóka 1970
LENÍN var meðal þeirra höfunda sem
Máí og menning gaf út árið 1970, en það
ár komu út þrjú bindi af verkum hans
þjá forlaginu. Að sögn Halldórs Guð-
mundssonar útgáfustjóra fyrirtækisins
eru það einu útgáfubækuraar það árið
sem núverandi ráðamenn forlagsins geta
imyndað sér að sovéski kommúnistaflokk-
urinn hefði séð sér akk í að styrkja út-
gáfu á. Árni Kr. Einarsson framkvæmda-
stjóri Máls og menningar segir að þrátt
fyrir ítarlega leit i gögnum fyrirtækisins
og fyrirspurnir meðal kunnugra hafí ekk-
ert komið fram sem staðfesti að sovéski
kommúnistaflokkurinn hafi styrkt forlag-
ið á árunum í kringum 1970.
Gögn sem fundist hafa í skjölum sovéska
kommúnistafiokksins greina frá því að Mál
og menning hafí fengið styrk frá flokknum
á árinu 1970. Þá var Kristinn E. Andrésson
formaður stjórnar Máls og menningar og
jafnframt framkvæmdastjóri fyrirtækisins.
Aðrir í stjórn voru Halldór Stefánsson, Magn-
ús Iíjartansson, Jakob Benediktsson og Hall-
dór Laxness, en hann hafði þá ekki mætt á
stjórnarfundi árum saman og sat Sigfús
Daðason í stjórninni sem varamaður hans.
Þegar Kristinn E. Andrésson dró sig í hlé
frá störfum að læknisráði í kringum 1970
tók Sigfús Daðason við formennsku í stjórn
Máls og menningar og jafnframt við fram-
kvæmdastjóm útgáfunnar.
Verk Leníns voru gefín út í útgáfuflokkn-
um Heimspeki og stjórnmál. Önnur verk í
þeim flokki árið 1970 voru 3. bindi ritgerða
Maos Tse-tung og bók Brynjólfs Bjarnason-
ar, Lögmál og frelsi. Meðal annarra útgáfu-
bóka Máls og menningar þetta ár voru Von-
in blíð eftir færeyska rithöfundinn William
Hejnesen, Hús skáldsins eftir Peter Hallberg
og síðara bindi Ævisögu Árna prófasts Þórar-
inssonar eftir Þórberg Þórðarson. Þetta ár
kom einnig út Ijóðabók Jóhannesar úr Kötl-
um, Ný og nið, og barnaljóð hans, Jólin koma,
vom endurprentuð. Þá var fímmta bindið af
þýðingum Helga Hálfdanarsonar á leikritum
Shakespeares meðal útgáfubóka Máls og
menningar árið 1970.
Mál og menning hefur átt bankaviðskipti
sín við Vegamótaútibú Landsbanka íslands
frá árinu 1939. Að sögn Jóhanns Ágústsson-
ar aðstoðarbankastjóra Landsbankans er úti-
lokað að fínna gögn um gjaldeyrisyfírfærslur
inn á reikning fyrirtækisins frá árunum í
kringum 1970. Jóhann segir að þetta væri
ekki gerlegt jafnvel þótt Mál og menning
heimilaði það þar sem gögn af slíku tagi
væru ekki geymd nema í sjö ár.
Árni Kr. Einarsson framkvæmdastjóri seg-
ir að hann líti svo á að orðrómur um yfírvof-
andi gjaldþrot Máls og menningar árið 1970
hafi verið orðum aukinn. Hann segir að
lausaf|árstaða fyrirtækisins hafí að vísu ver-
ið mjög slæm á árunum um og eftir 1970
en hún hafi meðal annars verið rétt af með
sölu efstu hæðar húseignarinnar að Lauga-
vegi 18.
Sjá einnig forystugrein.