Morgunblaðið - 29.07.1992, Qupperneq 3

Morgunblaðið - 29.07.1992, Qupperneq 3
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 29. JÚLÍ 1992 3 Víkurbergið á strandstað við ísafjarðarhöfn. Víkurbergið komið á veiðar SKIPVERJUM á Albert GK tókst að draga Víkurbergið GK á flot af strandstað í innsiglingunni við ísafjarðarhöfn á flóðinu klukkan 6 í gærmorgun. Við könnun á skennndum kom i ljós að þær voru óverulegar og hélt Víkur- berg strax á veiðar. Víkurberg sem er 328 lesta rækjuskip strandaði á tíunda tíman- um á mánudagskvöld og þá tókst ekki að ná því á flot þrátt fyrir ítrek- NM í skák í Svíþjóð: Jón L. og Hellers efstir JÓN L. Árnason er efstur á Norð- urlandameistaramótinu i skák ásamt Svianum Ferdinand Hell- ers. Annarri umferð lauk í gær- kvöldi og hafa þeir báðir tvo vinn- inga. Að sögn Margeirs Pétursson- ar stórmeistara er mótið mjög sterkt, en Islendingarnir hafa byrjað vel. Af 18 þátttakendum eru 14 stórmeistarar og meðal- stigafjöldi er 2.508. Mótið er hald- ið í Östersund í Sviþjóð. í fyrstu umferð, sem tefld var á mánudag, gerði Jóhann Hjartarson jafntefli við Helga Ólafsson og í ann- arri umferð sigraði hann Piu Craml- ing frá Svíþjóð. Margeir Pétursson gerði jafntefli við Jouni Yijölá frá Finnlandi í fyrstu umferð og við Jon- athan Tisdall frá Noregi í annarri. Jón L. Ámason sigraði Heikki West- erinen frá Finnlandi og Carsten Hei frá Danmörku, en skák Helga og Yijölá í annarri umferð lyktaði með jafntefli. Alls verða tefldar níu umferðir á mótinu, en í dag munu efstu menn mótsins, Jón L. Ámason og Ferdin- and Hellers, eigast við. Jóhann Hjart- arson, Lars Bo Hansen frá Dan- mörku og Lars Karsson frá Svíþjóð hafa allir Vh vinning. -----» ♦ ♦----- aðar tilraunir. Var því ákveðið að bíða flóðsins í gærmorgun. Sex skipveijar voru um borð en skipið er nú gert út á rækju frá ísafirði. Frá því snemma í sumar hefur ávöxtunarkrafan farið hækkandi, úr 7,15% í 7,45% nú. Sigurbjöm sagðist búast við að hún væri að nálgast hámarkið að þessu sinni og þegar líða tæki á haustið mætti búast við lækkandi ávöxtunarkröfu í kjölfar líflegri viðskipta. „Það er lítil eftirspum eftir hús- bréfum sem stendur. Ástæðuna má kannski að einhveiju leyti rekja til þessa árstíma þar sem sumarleyfi manna virðast draga úr viðskiptum,“ sagði Sigurbjöm. Hann sagði enn- fremur að þrátt fyrir umtalaða deyfð á fasteignamarkaði væri talsvert framboð af húsbréfum, a.m.k. hjá Landsbréfum. Ekki væri um það að ræða að stórir aðilar væru að losa mikið magn í einu, heldur kæmi þetta inn jafnt og þétt. Önnur verðbréfafyrirtæki fylgdu í kjölfar Landsbréfa í gær og hækkuðu ávöxtunarkröfu sína í 7,45%. Forseti ís- lands tek- ur við emb- ætti á ný FORSETI íslands, frú Vigdís Finnbogadóttir, tekur á ný við forsetaembætti á laugardag, 1. ágúst. Athöfn vegna embættistök- unnar verður í Dómkirkjunni og Alþingishúsinu. Athöfnin hefst í Dómkirkjunni kl. 15.30 með helgistund í umsjá Ólafs Skúlasonar biskups. Kl. 15.50 verður gengið úr kirkju til Alþingishússins og á meðan leikur Lúðrasveit Reykjavíkur á Austurvelli. í Alþing- ishúsinu syngur Dómkórinn, en að því loknu lýsir forseti Hæstaréttar forsetakjöri og útgáfu kjörbréfs og mælir fram eiðstafinn, sem forseti íslands undirritar síðan. Vigdís Finnbogadóttir, forseti ís- lands, gengur þessu næst út á sval- ir Alþingishússins og minnist fóstur- jarðarinnar. Að því loknu flytur hún stutt ávarp í þingsalnum. Námsmannaþjónusta sparlsjólanna Kraftmikil og kynngimognuð f)ármála|iiónusta fyrir námsmenn á la snarisjáðirnir Félögum í Lidveislu sparisjóðanna býðst allt að 100% lán í tengslum irið Lánsloforð LÍN. Lánið er í formi yfirdráttarheimildar og aðeins eru reiknaðir vextir af þeirri uppltæð sem lántakandi nýtir sér. Yfirdráttarheimild af Sér-tékkareikningi getur numið allt að 150.000 kr. Visa eða Eurocard greiðslukort strax og þú gengur í liðið. Skólaferðalán - fyrir námshópa sem ætla til útlanda. Launalán - allt að 350.000 kr. fyrir þá sem leggja námslánin og/eða aðrar greiðslur inn á reikning í sparisjóðnum. Námslokalán fyrir þá sem eru að Ijúka framhaldsnámi og vilja koma sér þaki yfir höfuðið. Sendum námslánin til námsmanna erlendis. Þú greiðir aðeins sendingarkostnaðinn en enga þóknun til sparisjóðsins. Örugg og þægileg þjónusta sem sparar þér ótal spor. Útskrift á greiðslubyrði skuldabréfa. Ef tafir verða á námi eru sparisjóðirnir sveigjanlegir varðandi afborganir af lánum. Hvers kyns fjármálaráögjðf á sviði innláns og verðbréfaviðskipta. Vönduð dagbók. Kynntu þ ér ótal aðra kosti Liðveislu uisjóðanna því að sparisjóðurinn liggui ekki á liði sínu þegar námsmenn eru annars vegar. tt SPARISJÓÐIKNIR Leggja námsmönnum lið. Avöxtunarkrafa húsbréfa hækkar ÁVÖXTUNARKRAFA húsbréfa hækkaði í gær hjá Landsbréfum hf. úr 7,35% í 7,45% á nýjustu flokkum bréfanna. Að sögn Sigurbjörns Gunnarssonar, deildarstjóra hjá Landsbréfum, er ástæða hækkunar- innar lítil sala húsbréfa undanfarið.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.