Morgunblaðið - 29.07.1992, Page 4
4
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 29. JÚLÍ 1992
i
V erðlagsstofnun:
Auglýsingar OLIS
taldar brot á lögum
um viðskiptahætti
VERÐLAGSSTOFNUN hefur beint þeim tilmæium til Oliuverzlunar
íslands hf. að stöðva auglýsingar fyrir átak fyrirtækisins „Græðum
landið með OLÍS“. Að mati Verðlagsstofnunar brjóta þessar auglýsing-
ar í bága við lög um óréttmæta viðskiptahætti og neytendavemd.
Fram kemur í bréfi, sem Verð-
lagsstofnunin sendi OLÍS í byrjun
júlí, að stofnunin telji að í auglýsing-
unum sé skírskotað til óviðkomandi
mála þar sem fram komi að hluti
af verði bensíns renni til Land-
græðslunnar. yerðlagsstofnun hefur
ítrekað við OLÍS að hætta með þess-
ar auglýsingar og gefið fyrirtækinu
frest til 30. júlí nk. til þess að koma
að athugasemdum. En ef OLÍS fer
ekki að tilmælum Verðlagsstofnunar
verður málið lagt fyrir Verðlagsráð.
Sigrún Kristmannsdóttir hjá
Verðlagsstofnun sagði að ekki væri
búið að taka endanlega afstöðu í
þessu máli. Gerðar hefðu verið at-
hugasemdir við auglýsingamar og
frestur OLÍS til þess að svara væri
ekki liðinn.
Óskar Magnússon, stjómarfor-
maður OLÍS, sagði að fyrirtækið
hefði ekki í hyggju að hætta með
umræddar augíýsingar. Hvorki sam-
kepnnisaðilar né viðskiptavinir hefðu
látið í ljós óánægju með þær. Hann
hefur sent Verðlagsstofnun bréf þar
sem tekið er fram að forráðamenn
OLÍS álíti ekkert rangt, ófullnægj-
andi eða villandi sé í auglýsingum
fyrirtækisins. Óskar sagði að ekki
yrði hætt með auglýsingamar nema
fyrirtækið yrði neytt til þess með
dómi.
Morgunblaðið/Gunnlaugur Rögnvaldsson.
Siglt í þríþraut
Fyrsta þríþrautarkeppnin þar sem keppt er í siglingum, hjólreiðum og golfi fór fram um helgina á Akra-
nesi. Stærstu seglskútur landsins sigldu milli Reylq'avíkur og Akraness og áhafnarmeðlimir þeirra kepptu
síðan í hjólreiðum og golfi. Ahöfnin á Svölunni sigraði á þríþrautarmótinu og á myndinni sést skútan sigla
seglum þöndum á meðan hraðbátur geysist framúr.
VEÐUR
I/EÐURHORFUR IDAG, 29. JÚLÍ
YFIRÚT: Um 2.000 km vestur af Reykjanesi er 990 mb iægð sem mun
fara austur og síöar norðaustur. Yfir Grænlandi er 1013 mb hæð.
SPÁ: Breytiieg átt, gola eða kaldi. Víða skúrir eða súld, einkum norðvest-
an og suðvestanlands. Hiti 5-15 stig.
VEÐURHORFUR NÆSTU DAGA:
HORFUR Á FIMMTUDAG OG FÖSTUDAG: Fremur hæg vestlæg átt
og svalt. Smáskúrir um vestanvert landið og við norður-ströndina en
annars þurrt. Víðast lóttskýjað á Austur- og Suðausturlandi. Fremur
svalt um vestanvert landið en vel hlýtt yfir daginn suðaustan- og austan-
lands.
Svarsími Veðurstofu Islands — Veðurfregnir: 890600.
Heiðskírt Léttskýjað Hálfskýjað
Skýjað
r r r * r *
r r * r
r r r r * r
Rigning Slydda
* * *
* *
* * *
Snjókoma
Alskýjað
V f V
Skúrir Slydduél Él
Sunnan, 4 vindstig.
Vindðrin sýnir vindstefnu
og fjaðrirnar vindstyrk,
heil fjöður er 2 vindstig.^
10° Hitastig
Súld
Þoka
stig..
FÆRÐA VEGUM: (Kl. 17.30 ígær)
Allir helstu vegir um landið eru nú greiðfærir. Fært er nú fjallabílum um
allt hálendið nema Hlöðuvallavegur er ennþá ófær. Uxahryggir og Kaldi-
dalur eru opnir allri umferð. Að gefnu tilefni skal bent á að klæðingaflokk-
ar eru nú að störfum víða um landið og eru ökumenn beðnir um að
virða sérstakar hraðatakmarkanir til þess að forðast tjón af völdum
steinkasts. Upplýsingar um færð eru veittar hjá Vegaeftirliti í síma 91-
631500 og í grænni línu 99-6315. Vegagerðln.
VEÐUR ViÐA UM HEIM
kt. 12.00 í gær að ísl. tíma
hiti veður
Akureyri 16 akýjað
Reykjavlk 11 skúr ý siðs, klat.
Bergen
Helsinkt
13 skúrásíðs.kfst
16 skúr
Kaupmannahöfn 20 skýjað
Narssarssuaq
Nuuk
Osló
Stokkhólmur
Þórshöfn
skur
4 ekkertveðurné
ský
20 léttskýjað
12 rigning
12 rigning
Algarve
Amsterdam
Barcelona
Berlin
Chicago
Feneyjar
Frankfurt
Glasgow
Hamborg
London
LosAngeles
Lúxemborg
Madríd
Malaga
Mallorca
Montreal
NewYork
Orlando
Parfs
Madeira
Róm
Vfn
Washíngton
Winnipeg
30 léttskýjað
18 iéttskýjað
28 mistur
18 skýjað
18 hálfskýjað
13 hálfskýjað
22 féttskýjað
16 skýjað
18 skýjaö
21 háifskýjað
1B mistur
20 hálfskýjað
34 hálfskýjað
28 mistur
33 heiðskfrt
17 léttskýjað
21 heiðskfrt
24 léttskýjað
23 skýjað
23 léttskýjað
30 helðskfrt
24 léttskýjað
20 léttskýjað
11 skýjað
Heimild: Veðurstofa íelands
(Byggt é veðurspá ki. 16.15 I gœr)
ÍDAGkl. 12.00
Leiðangur Bjarna Sæmundssonar:
Höfum lítið orðið
varir við þorsk
við Ólaf Karvel á mánudag. Hann
sagði að rannsóknin byggðist upp
á því að safna sýnum úr fæðu 30
botnfisktegunda. Sýnin væru sett í
flát og þau rannsökuð seinna þann-
ig að erfitt væri að segja nokkuð
um niðurstöðumar nú. Aftur á
móti sagði hann að vísindamennirn-
ir hefðu lítið orðið varir við þorsk
við sýnatökuna. Þess má geta að í
tengslum við fjölstofna rannsókn-
imar hefur þegar verið safnað sýn-
um úr fæðu sela og hvala. Þriðji
sýnaleiðangurinn af þessu tagi á
árinu verður farinn í nóvember en
einnig var farið í mars á næsta ári.
Farið verður í árlegar seiðarann-
sóknir á rannsóknarskipunum
Bjama Sæmundssyni og Árna Frið-
rikssyni eftir verslunarmannahelgi.
Bann við bjórdrykkju utandyra á veit-
ingahúsum:
Þröngsýn viðhorf
í þessum efnum
- segir dómsmáiaráðherra
ÞORSTEINN Pálsson dómsmálaráðherra segir að mjög þröngsýn
viðhorf séu ríkjandi á Alþingi hvað varðar breytingar á áfeng-
islöggjöfinni. Segir ráðherra að sér hefði verið bannað að leggja
fram stjórnarfrumvarp í vetur, er heimilaði Flugleiðum að af-
greiða létt vín í innanlandsflugi, eins og tíðkaðist hjá öðrum flug-
félögum heims.
Þorsteinn var spurður hvers
vegna íslendingar mættu ekki
drekka bjór utandyra í veitinga-
húsum, eins og aðrar þjóðir heims,
og hvort ekki væri tímabært að
breyta reglugerð sem bannaði
slíkt: „Það eru nú ekki önnur svör
við þessu, en þau að þegar svipuð
spurning kom upp í vetur um það
hvort Flugleiðir mættu eins og
ýmis önnur flugfélög heims af-
greiða létt vín um borð í innan-
landsflugi, þá þótti mér það sjálf-
sagt mál og ætlaði að breyta lög-
unum til þess að það væri heimilt.
En það mætti slíkri andstöðu, að
ég fékk ekki einu sinni heimild til
þess að leggja slíkt frumvarp fram
sem stjómarfrumvarp," sagði
dómsmálaráðherra.
„Það eru ríkjandi mjög þröng-
sýn viðhorf í þessum efnum á Al-
þingi, en þetta sérstaka mál hef
ég ekki skoðað sérstaklega, þann-
ig að ég geti svarað frekar fyrir
um það,“ sagði dómsmálaráð-
herra.
----» » ♦---
Orgelleikur í
Dómkirkjunni
ANN Toril Lindstad leikur á
orgel Dómkirkjunnar í dag og
hefjast tónleikarnir kl. 17.
Tónleikarnir eru liður í sumar-
tónleikum Dómkirkjunnar. Ann
Torill var organisti við Laugarnes-
kirkju um árabil, en starfar nú í
Noregi.
- segirÓlafur
Karvel Pálsson
fiskifræðingur
UM ÞAÐ bil þriggja vikna rann-
sóknarleiðangri rannsóknaskips-
ins Bjarna Sæmundssonar kring-
um landið lýkur á næstu dögum.
Leiðangurinn er liður í svoköll-
uðum fíölstofna rannsóknum að
sögn Olafs Karvels Pálssonar
fiskifræðings. Hann segir að vís-
indamennirnir hafi lítið orðið
varir við þorsk.
Lagt var af stað í leiðangurinn
fyrir rúmum tveimur vikum og
komið á Öræfagrunn suðaustur af
landinu þegar Morgunblaðið ræddi