Morgunblaðið - 29.07.1992, Page 15
MOR^UNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 29. JÚLÍ 19þ2
15
Að verða að ljúga
eftir Siglaug
Brynleifsson
Ilona Duscinska, eiginkona Karls
Polanyi (höfundur frægs rits: „The
Great Transformation") skrifaði
grein um Georg Lukacs í eitt þeirra
tímarita sem kommúnistar gáfu út
í Berlín og víðar eftir byltingu
kommúnista í Pétursborg 1917.
Franz Borkenau, fyrrum kommún-
isti, birtir kafla úr greininni í riti
sínu „The Communist Internation-
al“, sem kom út í London 1939.
Kafli þessi er lýsing á gerð og hug-
myndum þeirra einstaklinga sem
réðu og ráða stefnu kommúnista
um allan heim og er því mjög upp-
lýsandi um starfsaðferðir, rétlæt-
ingar og heimsmynd þeirra sem
móta stefnuna. Greinin birtist í
„Unser Weg“ í marz 1921.
Ekið á konu í
Austurstræti
Lögregla óskar
eftir vitnum
EKIÐ var á konu í Austurstræti
í Reykjavík á móts við Hallæris-
planið miðvikudaginn 15. júlí um
kl. 1.30. Okumaður stöðvaði bíl-
inn og ræddi við konuna en ók
síðan á brott.
Lögreglan í Reykjavík óskar nú
eftir því að ökumaðurinn gefí sig
fram og óskar jafnframt eftir vitn-
um að atburðinum. Að sögn lög-
reglu meiddist konan á fæti, þó
ekki alvarlega.
„Hugmyridafræðingur (Lukacs)
sem var e.t.v. aðalheilinn bak við
ungversku byltinguna ... svarar
spurningu minni um hvort réttlæt-
anlegt sé að forustumenn komm-
únista stunda lygar og svik við eig-
in flokksmenn. (Svar Lukacs): Sam-
kvæmt kommúnískri siðfræði þá er
það skylda flokksmanna að sam-
þykkja og réttlæta nauðsyn þess
að vinna öðrum illt. Þetta er strang-
asta krafan um fórn, sem byltingin
leggur okkur á herðar. Kommúnist-
inn er þess fullviss að illskan muni
ummyndast í sæluvitund og síðar í
sæluríkið um refilstigu sögulegrar
þróunar. Kenningin um réttlætingu
glæpsins þ.e. illskunnar í samhengi
við sögulega nauðsyn hefur ekki
verið gerð opinber (þ.e. 1921) en
þessi boðskapur hefur borist frá
manni til manns í röðum flokks-
manna og skilningur þessa er frum-
skilyrði þess að vera „sannur
kommúnisti“.“
Þessar kenningar samhæfast
fullkomlega kenningum hins kunna
nihilista Netsjaevs, sem varð fyrir-
mynd Dostojevskíjs að aðalpersón-
unni í „Djöflunum". Ekkert gott og
illt, engar skilyrðislausar siðferð-
iskröfur (Kant) engar trúarlegar
útlistanir á góðu og illu. Aðstæð-
urnar ráða hegðun og mati hvetju
sinni og í sambandi við pólitíska
baráttu kommúnista er allt leyfi-
legt. Lygar, svik, morð er réttlætan-
legt svo fremi að það stuðli að
valdatöku flokksins. Því ber þeim
sem stjórna og móta flokksstefnuna
að Ijúga og svíkja stuðningsmenn
og flokksfélaga ef söguleg nauðsyn
baráttunnar krefst þess og þeir
skulu átta sig á nauðsyninni fýrir
að logið sé í þá og „hugsjónir"
þeirra sviknar. Þeir eru aðeins hjól
„Samkvæmt mati
rússneskra sagnfræð-
inga og viðtölum við þá
í fjölmiðlum, virðast
þeir flestallir þeirrar
skoðunar að saga Sov-
étríkjanna frá 1917, sé
saga glæpamanna og
stjórnar þeirra.“
í flokksvélinni „apparatinu" sem
mun að lokum skapa fullkomlega
vísindalega uppbyggt samfélag.
Fyrst í maímánuði sl. voru birtar
fréttir í Sjónvarpinu um skjöl úr
skjalasafni Komitern varðandi
tengsl íslenskra kommúnista við
stjórnendur sovéskra kommúnista
og samkvæmt þessum skjölum var
íslenskum kommúnistum stjórnar
beint frá stjómaraðsetri Komintern
í Moskvu. Margir höfðu vitað um
þessa stjórnun í áratugi, en íslerisk-
ir kommúnistar höfðu alltaf neitað
beinum teriglsum og stjórnun frá
Moskvu. Bein og óbein stjórnun
virðist vera skjalfest frá 1921 til
1938 og allt til 1940. Nokkrir dygg-
ustu samstarfsmenn Kominters
voru nafngreindir og birt bréf til
þeirra, þar sem þeim var þakkað
samstarf og stuðningur við fram-
gang stefnunnar hér á landi.
Þetta var merkileg frétt, en við-
brögðin við henni voru óveruleg eða
engin í helstu fjölmiðlum. Það var
ekki fyrr en í júlí að umræðuþáttur
um aðra frétt frá Moskvu var flutt-
ur á Rás 1 í Ríkisútvarpinu, sú frétt
var um tengsl kommúnsta við KGB,
um 1970.
Sigurlaugur Brynleifsson
Umræðuþátturinn var mjög eft-
irtektarverður, þar sem kom fram
að mat fyrsta viðmælanda að með
birtingu skjalanna væri full nauð-
syn á að endurskoða stjórnmála-
sögu allt frá 1921 og fram á okkar
daga vegna nýrra skjalfestra heim-
ilda um erlenda stjórnun á einum
íslenskum stjómmálaflokki á
ákveðnu tímabili. Þessi staðreynd
mun öllum augljós, en þó reyndi
annar viðmælandinn að drepa henni
á dreif með kjánalegum samanburð-
arfræðum, sá þriðji hélt sér að
umræðuefninu og neitaði að ganga
inn í lygavefinn, sem annar viðmæl-
andi reyndi að vefa.
Eins og komið er, á eftir að upp-
lýsa tengsl íslenskra kommúnista
við móðurflokkinn, en væntanlega
birtast frekari heimildir úr skjala-
söfnum Komintern og KGB. Rann-
sókn á valdaferli sovéska kommún-
istaflokksins fer nú fram í Rúss-
landi og krafist hefur verið af nú-
verandi valdhöfum að flokkurinn
verði bannaður, á þeim forsendum
að hann sé flokkur glæpamanna
og hafi ráðið sem slíkur allt frá
1917 til misheppnaðs valdaráns í
ágúst á sl. ári. Dómur er væntanleg-
ur í haust eða næsta vetur. Enginn
veit um málalok, en samkvæmt
mati rússneskra sagnfræðinga og
viðtölum við þá í fjölmiðlum, virð-
ast þeir flestallir þeirrar skoðunar
að saga Sovétríkjanna frá 1917, sé
saga glæpamanna og stjórnar
þeirra. Sú skoðun fellur að kenning-
um Luckacs sem vitnað er til í upp-
hafi þessarar samantektar um rétt-
lætingu glæpsins, og kenningarinn-
ar um skyldu forustumanna
kommúnistaflokksins að ljúga í fé-
lagana. Árangur þeirrar starfsemi
hér á landi var, að skoðun stjórn-
enda Komintern og KGB, hróss
verður.
Höfundur er rithöfundur og
fræðimaður.
[vusumarskolinn
PC eða Macintosh námskeið fyrir 10 -16 ára
2ja eða 3ja vikna námskeið í júni, júlí eða ágúst. Kennt frá 9-12 eða
13-16 fimm daga vikunnar. jj
Mj«SI h«gsta»tt vsrd
Tölvu- og verkfræðiþjónustan
VerkfræðistofaHalldórsKristjánssonar (T)°
Grensásveai stofnuð 1. mars 1986
P ó N 1 K R Ö F L S I M 1 - G R Æ N T N íi M E R 9 9 6 6 8 0
TJÖLD FRÁ
6.995 kr.
KÆLIBOX
FRÁ 1.895 kr
KOLAGRILL
1.995 kr.
TJALDDYNUR
SVEFNPOKAR
FRÁ 3.490 kr.
FERÐAGASGRILL
3.990 kr.
GRILLKOL
199 kr.
ÁLDÝNUR
FRÁ499 kr.
POTTASETT
1.695 kr.
INNIHATŒ) IHAGKAUP FYRIR
VERSLUNARMANNAHELGINA
einnota bollar, glös, diska og hnífapör í miklu úrvali. Skoðaöu
verðið, úrvalið og gæðin í Hagkaup og þá kemstu að því að þú
þarft ekki að leita lengra. - m «■■■ m
Verslunarmannahelgin byrjar í
Hagkaup. - allt í einniferð
í Hagkaup færðu allt sem þú þarft fyrir útileguna
um Verslunarmannahelgina; vandaðar vörur á
^ ótrúlega góðu verði. Tjöld sem þú tjaldar á
augabragði, tjalddýnur, svefnpoka, bakpoka,
kolagrill, ferðagasgrill, kælibox, grillkol, gasluktir,