Morgunblaðið - 29.07.1992, Page 17

Morgunblaðið - 29.07.1992, Page 17
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 29. JUU 1992 17 unarbandalag Evrópu (EFTA) gæti ekki búist við að samningar við EB fælu í sér sams konar reglur og þegar um tvenn alþjóðasamtök væri að ræða.“ Já, hvað skyldi kallinn nú meina með þessu? Um ávinninginn af EES EES/EB-sinnar hafa margoft fullyrt um hinn gífurlega ávinning, sem íslendingum á að falla í skaut vegna EES-samningsins. I þessum fullyrðingum er allt morandi í hjásögli og get ég því aðeins nefnt það stærsta, rúmsins vegna. 1) Fullyrt er að vegna niðurfelling- ar tolla af fiski, fram yfír það sem nú þegar er gert?, muni íslendingar hagnast um 1—2 milljarða á ári. En fróðlegt væri að fá einnig áætlaðar tölur um þann kostnað, sem dragast verð- ur frá þessum gróða. Það kostar peninga að halda EES uppi, greiða fólki laun, greiða þýðing- arkostnað, greiða utanlands- ferðir embættismanna og ráð- herra, greiða í þróunarsjóð o.s.frv. Hvað kostar það allt saman á ári, og hvað verður þá mikið eftir af tollaniðurfellingar- gróðanum? 2) I skýrslu sinni til Alþingis í fyrra sagði utanríkisráðherra (og hef- ur reyndar margbent á það sama í sjónvarpsviðtölum) að þessi niðurfelling tolla af fiski sé alls ekki aðalávinningurmn. Meginá- vinningurinn sé sá, að eftir EES: „Þá væru komin skilyrði til þess að byggja hér upp háþró- aðan matvælaiðnað, að fara framhjá uppboðsmörkuðum Evrópubandalagsins, að komast með háþróaða, fullunna neyt- endavöru undir íslenzkum vöru- merkjum beint inn á neytenda- markaðinn, að auka vinnsluskil- yrði þessarar framleiðslu í inn- lendum höndum ...“ Og Alþýðublaðið segir: „EES- samningurinn felur í sér að toll- múrar á fískinnflutningi á unnum físki frá íslandi á Evrópumarkað myndu hrynja. Þar með myndi ís- land hætta að vera stórútflytjandi á óunnum fiski og fiskvinnsla myndi stóreflast um allt land“. Já, já, þetta lítur nú allt vel út, og betur að satt væri og auðvitað vonandi, en það er nú svo að skoð- anir eru skiptar og ekki víst að vin- imir í EB líti svona á málið. Það vekur a.m.k. hjá mér ónotalegan ugg, þegar ég sé fréttir eins og lesa mátti í innblaði Morgunblaðsins hinn 24. júní si., en þar segir í grein með fyrirsögninni: — Fiskveiðiþjóð- irnar munu áfram sjá EB fyrir hrá- efni til vinnslu — „Grundvallar- spurningin í þessu máli er, hvernig, á hvaða vinnslustigi, fiskurinn komi inn fyrir landamæri bandalagsins og hvernig hann sé fluttur. Allt bendir til þess, þrátt fyrir mikla mótstöðu fískveiðiþjóðanna, einkum við norðanvert Atlantshafíð, að megnið af fiskinum verði áfram flutt inn óunnið eða lítið unnið og fari beint í smásölu eða til frekari virðisauka í verksmiðjum innan EB“. Og síðar í greininni: „Undir venjulegum kringumstæðum geti Norðurlöndin áfram haldið stöðu sinni sem ráðandi innflytjandi á físki til Evrópubandalagsins, en all- ar tilraunir til þess að breyta ríkj- andi mynstri muni leiða til þess, að EB muni leita á aðrar slóðir eftir fiski“. Þetta eru nú svona frekar ónota- legar skoðanir, ef réttar reynast. Það kemur alltaf að þessu sama. Menn eru alltaf að gylla þennan samning, segja hálfar sögur, hálfan sannleika, búa til glassúr utan um vonda köku. Menn eiga ekki að vera hjásögl- ir, sér í lagi ekki þegar um svo þýðingarmikið mál er að ræða og hér er á dagskrá, heldur segja bara eins og er, segja sannleikann og allan sannleikann. Þá er miklu betra að átta sig. Miklu meiri líkur á að rétt ákvörðun sé tekin. En menn verða náttúrulega að hafa þor og dug til þess að taka ákvörðun. Það dugir ekki að fela sig út í horni, hvorki í þingsölum né annars stað- ar. Ég ber miklu meiri virðingu fyrir þeim mönnum, sem hreinlega viðurkenna að þeir séu heittrúaðir EB-sinnar, eins og t.d. Karl Stein- ar, Björn Bjarnason, Jón Baldvin og Davíð Oddsson, heldur en þeim mönnum, sem mig grunar að séu andvígir bæði EES- og EB-aðild eða a.m.k. mjög vantrúaðir á ágæti hennar — en þora ekki að segja það upphátt, heldur kjósa að fela sig á bak við þögnina. Og það er einmitt um það, sem ég ætla að skrifa næst — um póli- tískt hugleysi. í því sambandi ætla ég að leyfa mér hér að lokum að fá að láni til- vitnun úr einu landsblaðanna, en hún er svona: „Þau eru verst hin þöglu svik að þegja yfir öllu röngu.“ Höfundur erflugstjóri og lögfræðingur. Kviknaði í mosa út frá grillkolum ELDUR kom upp í mosa í Berserkjahrauni á Snæfellsnesi í fyrra- kvöld eftir að óvarkár ferðalangur hafði hellt heitum grillkolum á jörðina og yfirgefið staðinn. Ferðamenn sem gistu í tjaldi í gerðu lögreglunni viðvart. Ferða- nágrenninu urðu varir við reyk og mönnunum hafði hins vegar tekist að slökkva eldinn þegar lögreglan kom á staðinn. Að sögn lögregl- unnar í Stykkishólmi kviknaði í mosa á um það bil 30 fermetra svæði. í einu og sama leiktækinu, vasadiskó og tölvuleikur. Þú getur valið um Knattspymu - Tennis eða Kappakstur. Tækinu fylgja sterió heyrnartæki og það er með sjálfvirkum stoppara á spólu - frábær hljómgæði. Heimilistæki hf SÆTÚNI8 SÍMI691515 ■ KRINGLUNNISÍMI6915 20 TOYOTA AUKAHLUTIR TILBUINN í FRÍIÐ! • Svefntjald á pallinn • Palldýna • Ljósahlífar • Kælibox • Húddhlífar Úrvalsvara - aðaleinkenni Toyota aukahluta. Nýttu þér ráðgjöf okkar og sendingarþjónustu. Og svo er bara að drífa sig. Góða ferð! ® TOYOTA Aukahlutir NÝBÝLAVEGI6-8 KÓP. SÍMI634400

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.