Morgunblaðið - 29.07.1992, Side 20
20
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR. 29. JÚLÍ 1992
Stj órnarandstaðan í Serbíu ræðst að ráðamönnum:
Panic heiðarlegur en leik-
soppur harðlínuaflanna
Belgrad. Frá Karli Aspelund.
Á blaðamannafundi í Belgrad í gær gerði Vuk Draskovic, formaður
helsta stjórnarandstöðuflokks Serbíu, harða hríð að stjórnvöldum og
sagði þau vera að færa landið æ nær alræðisstjóm. Hann sakaði stjóm-
ina og einkum forsetann, Slobodan Milosevic, um að safna í kringum
sig klíku sem væri staðráðin í að halda í völdin. Stjórnvöld notfærðu
sér vopnaða hermdarverkamenn til að koma málum sínum áleiðis.
Draskovic sagði að
Milan Panic, for-
sætisráðherra þess
sem eftir er af
Júgóslavíu (Serbíu
og Svartfjalla-
lands) léti stjóm-
málamenn harðl-
ínuaflanna, sem
flestir voru hátt-
settir í valdatíð
kommúnista, misnota sig. „Milosevic
fékk Panic hingað til að nota hann
sem skálkaskjól og Panic verður að
átta sig á þessu. Þessi Hollywood-
ferðalög forsætisráðherrans leiða at-
hygli umheimsins frá því sem stjóm-
in í Belgrad er að gera og það er
nákvæmlega það sem valdaklíkan
stefndi að“.
Draskovic viðurkenndi að hafa átt
fund með Panic stuttu áður en hinn
síðamefndi var settur í embætti en
flokksformaðurinn neitaði að skýra
frá viðræðum þeirra, þær hefðu ver-
ið trúnaðarmál. „En ég skildi að
Panic er heiðarlegur og duglegur
maður. Það er skaði að hann skuli
láta fara með sig eins og leikbrúðu,
enn meiri synd að hann skuli þurfa
að taka þátt í þessu stríði. Panic
verður að koma heim og taka til,
síðan getur hann ætt um útiönd eins
og hann vill“.
Stjóm Serbíu dró í gær til baka
frumvarp um þjóðnýtingu fjölmiðla-
samsteypunnar Politika en stjómar-
andstseðingar höfðu harðlega mót-
mælt áformunum sem þau sögðu
jafnast á við afnám fjölmiðlafrelsis.
Skömmu síðar var það lagt fram á
ný nær óbreytt.
í gærkvöldi var haldinn fundur
milli forsætisráðherra Serbíu og rit-
stjómar NIT-Politica. Fundinum lauk
með því að ritstjóm NIT-Poiitica
gekk út. Að honum loknum sagði
ritstjóri Politica í samtali við Morgun-
blaðið: „Forsætisráðherra gerði að
okkur tómt grín. Móðgaði okkur og
blaðið og sakaði okkur um lygar um
leið og við opnuðum munninn." í
framhaldi af því bætti einn ritstjór-
anna við: „Nú er úti um friðinn í
Belgrad. Næstu dagar verða þeir
afdrifaríkusutu sem júgóslavneska
þjóðin hefur gengið í gegnum síðan
í lok síðari heimsstyijaldarinnar."
Á blaðamannafundi í Genf í gær
lýsti Panic friðarvilja sínum. „Ég vil
ekki beijast. Ég er enginn Saddam
Hussein." Ráðherrann heldur til
Lundúna í dag til viðræðna við John
Major forsætisráðherra en Bretar
hafa forystu á hendi í Evrópubanda-
laginu þessa mánuðina. Breska
stjómin hyggst kalla saman alþjóð-
lega ráðstefnu um málefni þjóðanna
sem áður byggðu Júgóslavíu. Panic
sagðist ekki setja nein skilyrði fyrir
friðarsamningum. Stjóm sín viður-
Reuter
Lögreglumenn rannsaka bifreið lögreglustjórans Giovanni
Lizzio sem mafían myrti í borginni Kataníuy á Sikiley í fyrra-
kvöld.
Glíman við starfsemi mafíunnar á Sikiley:
Amato vill að leyniþjón-
ustan skerist í leikinn
Rómaborg. Reuter.
GIULIANO Amato forsætisráðherra Ítaíu hvatti leyniþjónustu
landsins og allra annarra landa til þess í gær að taka höndum
saman um að uppræta starfsemi mafíunnar. Voru það viðbrögð
hans við morðinu á Giovanni Lizzio, lögreglustjóra í Kataníu,
næst stærstu borg Sikileyjar. Mafían lét taka hann af lífi í fyrradag.
„Hryðjuverkastarfsemi var
lengi stærsti höfuðverkur leyni-
þjónustunnar en hefur nú verið
upprætt," sagði Amato. Hann
sagði að spyrja mætti hvaða þörf
væri fyrir leyniþjónustuna sneri
hún sér ekki að glæpastarfsem-
inni. Þyrfti hún að lauma mönnum
sínum inn í glæpahringina í því
markmiði að uppræta þá.
Amato sagði að engin vettlin-
gatök dygðu lengur í baráttunni
gegn mafíunni, trúverðugleiki rík-
isvaldsins væri í húfi. Yfirvöld
hefðu glatað verulegu trausti
vegna morða á dómurum og lögr-
eluforingju á Sikiley í sumar. Um
helgina ákvað stjórn Amato að
senda 7.000 manna herlið, þar á
meðal sérsveitir, til þess að að-
stoða lögregluna á Sikiley í glí-
munni við hina skipulegu glæpa-
starfsemi.
Lizzio er þriðji forsprakki bar-
áttunnar gegn mafíunni sem
myrtur er á Sikiley í sumar. í síð-
ustu viku var Paolo Borsellini
dómari veginn og fyrir tveimur
mánuðum var starfsbróðir hans
Giovanni Falcone myrtur. Báðir
létu lífið af völdum bílsprengju en
Lizzio var skotinn til bana er hann
ók heim að loknum vinnudegi.
FLOTTAMENN
Ráðstefna á vegum Sameinuðu
þjóðanna verður haldin í Genf
í dag til að ræða vandamál
vegna flóttamanna frá lýðveldum
fyrrum Júgóslavíu
Samkvæmt heimildum SÞ:
Fjöldi flóttamanna eykst um
10 þúsund á dag
500 þúsund manns, sem misst hafa
heimill sín, gætu látist í vetur ef
bardagar halda áfram
2,2 milljónir eru á flótta frá fyrrum
Júgóslavíu
Flestir þeirra 5.623
tlóttamanna sem
komu með lestum til
Þýskalands á sunnu-
dag og mánudag
bosniskar konur og
bðm frá Bosanski
Novi
Skiptlng flótta-
manna milli sam-
bandslanda sam-
kvæmt áætlun
þýsku stjórnarlnnar
Baden-Wúrttemberg 610
Bæjaraland 700
Berlln 110
Brandenburg 175
Bremen 50
Hamborg 130
Hessen 370
Mecklenburg-Vorpommem 135
Neðra-Saxland 465
Nordrhein-Westphalen 1.120
Rheinland-Pfalz 235
Saarland 70
Saxland 325
Sachsen-Anhalt 200
Slés\{ík-Holtsetaland 140
Thúringen 165
kenndi réttmæti sumra þeirra við-
skiptaþvingana sem Sameinuðu þjóð-
imar hefðu sett á sambandsríkið.
Jafnframt sagði ráðherrann að hann
myndi viðurkenna þau innbyrðis
landamæri milli lýðveldanna sem gilt
hefðu meðan landið var eitt og óskipt
en gaf i skyn að best væri að minni-
hlutahópar fengju sjálfsstjóm í eigin
málum.
Panic átti fund í Genf með fulltrú-
um Flóttamannahjálpar SÞ og Al-
þjóðarauðakrossins. Þjóðveijar hafa
gagnrýnt önnur Evrópuríki harðlega
fyrir að taka ekki við fleiri flótta-
mönnum en hundmð þúsunda flótta-
manna era nú í Ungveijalandi, Aust-
urríki og Þýskalandi. Auk þess hafa
hundrað þúsunda hrakist frá Bos-
níutil Króatíu og Serbíu. Fulltrúar
alþjóðastofnana óttast mjög um hag
flóttafólksins fari svo að það verði
að hírast í flóttamannabúðum í vet-
ur, einkum telja þeir að ástandið
verði slæmt í búðum í næstu ná-
grannalöndum Bosníu-Herzegóvínu.
Nils Jörgen Bruun, fréttaritari
Morgunblaðsins í Kaupmannahöfn,
skrifar: Allir flokkar í þjóðþinginu
era nú sammála-um að bjóða mörg
þúsund flóttamönnum frá bardaga-
svæðunum í gömlu Júgóslaviu að fá
timabundna landvist í Danmörku.
Áhersla verður lögð á að mæður með
lítil böm og særðir fái landvist en
ríkisstjómin hyggst þó sjá til þess
að enginn flóttamannanna fái póli-
tiskt hæli til frambúðar. Einnig verð-
ur komið í veg fyrir að fólkið geti
sótt um félagslega aðstoð en séð
verður fyrir öllum nauðþurftum þess
með sérstökum framlögum.
Fangelsisflótti Escobars:
Dómsmálaráðherr-
ann og yfirmenn í
hemum settir af
Bogota. Reuter.
CESAR Gaviria forseti Kólumbíu vék í gær Eduardo Mendoza aðstoð-
ardómsmálaráðherra úr embætti vegna flótta fíkniefnafurstans Pablos
Escobars úr fangelsi í síðustu viku. Mendoza, sem er náinn vinrn- og
samstarfsmaður forsetans, hafði rætt við Escobar í fangelsinu í leyfis-
leysi og var haldið þar sem gisl næturlangt. Gaviria leysti einnig þrjá
háttsetta herforingja frá störfum. Áður hafði yfirmaður flughersins
verið settur af og einnig stjórnandi fangelsisins sem Escobar var vistað-
ur i.
Hafín hefur verið rannsókn á
meintri aðild hersins að flótta Esco-
bars og samverkamanna hans. Níu
hermenn hafa verið handteknir og
era þeir sakaðir um að hafa þegið
mútur af Escobar til þess að auð-
velda honum flóttann.
Birt var í gær bráðabirgðaskýrsla
um fangelsisflóttann. Þar kemur
fram að stjómvöld hefðu falið hem-
um að taka fangelsið yfír daginn
áður. Það var þó ekki gert fyrr en
næsta dag og flýði Escobar í millitíð-
inni.
Starfsmenn fangelsisins voru úr
röðum óbreyttra borgara og er talið
að sumir þeirra hafi jafnvel verið á
mála hjá fíkniefnasölunum. Ríkis-
stjómin ákvað í byijun síðustu viku
að láta flytja Escobar í tryggara
fangelsi. Skyldi það gert klukkan
þijú eftir hádegi á þriðjudag. Var
sú ákvörðun tekin þar sem sannanir
höfðu fengist fyrir því að hann hefði
stjórnað glæpastarfsemi úr fangels-
inu, þ. á. m. mannránum, aftökum
og fjöldamorðum. Herinn hlýddi ekki
fyrirmælunum fyrr en klukkan 7:30
næsta morgun og var Escobar þá
flúinn.
Að kvöldi þriðjudags, eftir að fyrir-
mæli um töku fangelsins voru gefin
en 10 tímum áður en herinn lét til
skarar skríða, fóru tveir embættis-
menn í fangelsið til viðræðna við
fanga sem tóku þá í gíslingu. Nutu
fangamir aðstoðar fangavarða til
þess, segir í skýrslunni sem birt var
í gær. Varð að senda sérsveitir hers-
ins inn í fangelsið til að bjarga þeim
en þá var Escobar horfinn. Er hann
í skýrslunni sagður hafa komist und-
an er fangelsið varð skyndilega raf-
magnslaust. Engar eðlilegar skýring-
ar hafa fundist á rafmagnsleysinu.
------»-♦■-4-----
Kenýa tekur
við flóttafólki
frá Sómalíu
Nalróbí. Reuter.
STJÓRNVÖLD í Kenýa ákváðu í
gær að taka við 600 flóttamönnum
sem höfðu komið með skipum frá
Sómalíu. Margir þeirra voru að-
framkomnir af hungri.
Sameinuðu þjóðimar hafa óskað
eftir að þjóðir heims sendi matvæli
og aðrar nauðsynjar til Sómalíu, þar
sem 4,5 milljónir manna búa við skort
og hundrað deyja úr hungri á hveij-
um degi. Stjórnvöld í Kenýa hýsa
nú þegar 26 þúsund Sómali, sem
hafa flúið landleiðina. Sómalir eru 7
milljónir talsins og 1 af hveijum 6
hefur flúið heimalandið.
Tími Honeck-
ers á þrotum
ERICH Honeker, fyrrverandi
leiðtogi austur-þýskra kommún-
ista, dvelst ennþá í sendiráði
Chile í Moskvu þrátt fyrir sögu-
sagnir þess efnis, að hann væri
í þann mund að yfirgefa það.
Honecker, sem er 79 ára, leitaði
hælis í sendiráðinu í desember
síðastliðnum, af ótta við að rúss-
nesk stjómvöld framseldu hann
til Þýskalands, þar sem hann á
margfalda manndrápsákæru yfir
höfði sér. Talið er að stjórnvöld
í Chile vilji að Honecker yfirgefí
sendiráðsbygginguna fyrir 1.
ágúst en þá stendur til að flytja
sendiráðið í annað húsnæði.
Blóðþegum
í Nizza dæmd-
ar bætur
DÓMSTÓLL í Nizza í Frakklandi
dæmdi í gær hinn ríkisrekna
blóðbanka borgarinnar til að
greiða þremur eyðnisjúklingum
andvirði 23 milljóna íslenskra
króna hveijum í miskabætur, en
þeir smituðust af HlV-veirunni
um miðjan síðasta áratug eftir
blóðgjöf frá bankanum. Þótti
sannað að um vítaverða van-
rækslu af hálfu ríkisins hefði
verið að ræða þar sem embættis-
menn hefðu látið hjá líða að leita
að HlV-veiram í blóðinu áður en
það var gefíð. Talið er að um
1200 franskir blóðgjafar hafí
smitast af veirunni eftir slíka
blóðgjöf og af þeim eru 256 látn-
ANC boðar til
verkfalls
NELSON Mandela, leiðtogi Af-
ríska þjóðarráðsins (ANC) sagði
i gær að ráðið rflyndi hvergi hvika
frá þeirri ákvörðun að efna til
tveggja daga allsheijarverkfalls
í Suður-Afríku í næstu viku.
Hann sagði að verkfallið væri lið-
ur í baráttunni gegn stjórn hvíta
minnihlutans og krafðist þess að
bráðabirgðastjórn, með fulltrúum
allra kynþátta, yrði skipuð í stað
núverandi stjómar. Yfirlýsing
Mandela kom í kjölfar viðræðna
forseta Suður-Afríku, F.W. de
Klerks, og þarlendra kirkjuleið-
toga í því skyni að koma í veg
fyrir frekara ofbeldi í landinu og
freista þess að fá Afríska þjóðar-
ráðið aftur að samningaborði
með stjómvöldum.
Nýtt hneyksli
í Japan?
JAPANSKIR fjölmiðlar birtu í
gær ásakanir þess efnis, að
stjórnarflokkur Japans, Frjáls-
lyndi lýðræðisflokkurinn, tengd-
ist mútum, fjársvikum og skipu-
lagðri glæpastarfsemi. Hefur
Nobura Takeshita, fyrrverandi
forsætisráðherra, verið sakaður
um að hafa þegið milljónir doll-
ara frá viðskiptajöfri, sem situr
í fangelsi vegna fjársvika. Pen-
ingana á Takeshita síðan að hafa
notað til í baráttu sinni fyrir að
verða tilnefndur forsætisráð-
herraefni flokksins. Takeshita
vann og varð forsætisráðherra
en sagði af sér tveimur áram
síðar vegna fjármálahneykslis.
Páfi heim af
sjúkrahúsi
JÓHANNES PÁLL páfi fór í gær
heim af sjúkrahúsinu þar sem
hann gekkst undir skurðaðgerð
fyrir tveimur vikum. í aðgerðinni
var góðkynja æxli fjarlægt úr
ristli hins 72 ára gamla páfa og
eru læknar hans bjartsýnir á, að
hann muni brátt ná sér að fullu.
Talsmenn páfagarðs sögðu í gær
að páfinn myndi taka sér frí frá
störfum næstu tvo mánuði meðan
hann væri að jafna sig eftir að-
gerðina.