Morgunblaðið - 29.07.1992, Page 26

Morgunblaðið - 29.07.1992, Page 26
26 MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR. 29. JÚLÍ 1992 Fjórir sækja um stöðu skattsljóra FJÓRAR umsóknir hafa borist fjármálaráðuneyti um stöðu skattsljóra í Norðurlandsumdæmi eystra, en umsóknarfrestur rann út i lok síð- ustu viku. Nokkrar líkur eru á að skipað verði í stöðu skattstjóra í þessari viku. Að sögn Snorra Olsen, deildar- stjóra í fjármálaráðuneytinu, hafa ráðuneytinu borist fjórar umsóknir um embætti skattstjóra á Akureyri 'og vart sé von á fleirum þar sem póstur frá því fyrir helgi ætti að vera kominn til skila. Ekki sagði hann að upplýstist hverjir umsækj- endur væru fyrr en skipað yrði í stöð- una, en nú væri þegar farið að at- huga umsóknimar og því næst myndi fjármálaráðherra skipa nýjan skatt- stjóra í embætti. Hvort það yrði fyr- ir lok þessarar viku gæti oltið á önn- um ráðherra. Snorri sagði að það réðist af hög- Hrísey: Ferðamannaþjónusta er í beitingaskúrum FYRIR nokkru var opnuð í Hrísey minjagripasalan Rjúpan. Hún er í gömlum beitingahúsum við höfn- ina, en þar eru seldir handunnir miryagripir og auk þess boðið upp á kaffi og heimabakaðar kökur. Það er Sarah Hamilton sem rekur ferðamannaverslunina Rjúpuna ásamt Víkingi Smárasyni. Hún sagði að þau hefðu tekið á leigu gömul beitingahús niðri við höfn í Hrísey og þar hefðu þau innréttað verslun- ina f gömlum stíl og sett upp ýmiss konar skreytingar, gamla olíulampa og tæki og tól tengd sjómennsku og fiskverkun. Húsnæðið hefðu þau til reynslu í tvo mánuði og ef vel gengi kæmi til greina að þau fengju það til lengri tíma þannig að þar gæti verið ferðamannaþjónusta allt árið. Sarah sagði að í versluninni væru til sölu sérunnir postulínsminjagripir með merki sem væri sérhannað fyrir þessa vöru auk ýmissa annarra gripa með merki Hríseyjar, en annars væri lögð megináhersla á að þarna yrðu seldir munir sem framleiddir væru í Hrísey. Þegar væri nokkuð til af handunnum vörum sem Hríseyingar Morgunblaðið/Magnús Sarah Hamilton og Víkingur Smárason í Rjúpunni í Hrísey. hefðu gert og stefnt væri að því að auka þá iðju. Auk þessa er í Rjúpunni aðstaða til að bjóða gestum kaffl og heima- bakaðar kökur, svo ferðalangar geta átt þarna notalega stund. Nafnið Rjúpan sagði Sara að hefði verið valið vegna þess að rjúpan er, sem kunnugt er, einkennisfugl Hríseyjar og friðuð þar og er auk heldur í skjaldarmerki eyjarinnar. um þess aðila sem fyrir vali yrði hvenær hann gæti tekið við störfum, en Friðgeir Sigurðsson hefur gegnt stöðu skattstjóra til bráðabirgða síð- an fráfarandi skattstjóri, Gunnar Rafn Einarsson, lét af störfum. Hann sagði ennfremur að í lögum um tekju- og eignaskatt væri gert ráð fyrir því að skattstjóri hefði lokið prófí í lögfræði, hagfræði eða við- skiptafræði eða væri löggiltur endur- skoðandi. Frá þessu mætti víkja ef umsækjandi hefði aflað sér víðtækrar sérmenntunar eða sérþekkingar um skattalöggjöfína og framkvæmd hennar. Hátíðin Halló Akureyri: Morgunblaðið/Eiríkur Jarðborinn Narfi við Þelamerkurskóla. Á innfelldu myndinni er einn bormanna að sýsla við borinn. Jarðboranir á Laugalandi á Þelamörk: Komnir niður á nýja vatnsæð á 400 m dýpi BORANIR á Laugalandi ganga vel og gefa von um að stutt sé í að borinn nái niður að verulegu magni af vel heitu vatni. Þegar hefur holan gefið heitt vatn. Vatnsstreymi úr þessari nýju holu hefur ekki áhrif á vatnsrennsli úr öðrum borholum á svæðinu. Framz Arnason sagði að þessi hola, sem kölluð væri NLÞll eft- ir bornum Narfa og staðnum, Laugalandi á Þelamörk, væri ell- efta holan á svæðinu og sú önnur sem boruð væri á þessu ári. Hún væri nú rúmlega 400 metra djúp. Árangurinn væri í hlutfalli við þær vonir sem við borunina hefðu ver- ið bundnar. Upp úr holunni rynnu tæplega 3 lítrar á sekúndu af 76 gráða heitu vatni. Það gæfi von um að án þess að gera miklu meira mætti dæla úr holu þessari nálægt 10 sekúndulítrum af 80 stiga heitu vatni. Það teldu menn ekki fullnægjandi og líklegt væri að holan gæfí mun meira með því að bora lengra, allt niður á 700 til 800 metra dýpi. Það verk tæki sem næst 10 daga til viðbótar, svo vonandi yrði þetta góður verslunarmannahelgarvatnssopi sem þarna fengist. Franz taldi að nú væru bor- menn að nálgast þann berggang sem stefnt hefði verið að því að ná til og reiknað væri með að væri mikill hiti. Eitt af því sem gæfi góðar vonir væri, að það vatn sem streymdi nú þegar úr þessari nýju holu hefði ekki áhrif á straum þess vatns sem meðal annars væri notað til hitunar í Þelamerkurskóla. Áður hefði fengist vatn í nýjum holum, en það hefði verið sama vatnið og þar er. Af þessum sökum teldu menn fulla ástæðu til að halda áfram verki. Iðandi mannlíf um verslunarmannahelgina UM verslunarmannahelgina verður haldin á Akureyri hátíð sem kall- ast Halló Akureyri. Þetta verður fjölskylduhátíð þar sem flest skipu- lögð atriði verða í miðbæ Akureyrar og þar verður í boði fjölbreytt skemmtun fyrir alla aldurshópa. Vonir aðstandenda hátíðarinnar standa til að hún geti orðið fastur liður í mannlífi á Akureyri um verslunarmannahelgar komandi ára. Meðal dagskráratriða eru kvik- myndasýningar, dansleikir, útimarkaður, tónleikar, grillveisla á Ráð- hústorgi, gleðistundir með blandaðri dagskrá og í pylsuendanum alla dagana, föstudag, laugardag og sunnudag, verður Pakkhússpartý, sem stendur frá því dansleikjum lýkur fram til klukkan hálfsex að morgni. Sérstök útvarpsstöð verður starfandi með dagskrá allan sólar- hringinn hátíðardagana og hefur þegar tekið til starfa. Frumkvöðull og skipuleggjandi hátíðarinnar Halló Akureyri er Þrá- inn Lárusson veitingmaður, en hún er öll skipulögð með samráði við og með fyrirgreiðslu bæjaryfirvalda, sýslumanns og lögreglu. Að sögn Jóns Hauks Brynjólfs- sonar, talsmanns hátíðarinnar, hafa íjölmargir einstaklingar og fyrir- tæki gengið til liðs við aðstandendur Halló Akureyri, en meginhugmynd- in með þessari hátíð sagði hann að væri að koma á fjöldasamkomu með þátttöku bæjarbúa og bæjargesta á öllum aldri. Hér væri ekki verið að ffna til útisamkomu með hefð- bundnu fylliríisyfirbragði heldur umfram allt eftirsóknarverðri sam- komu með góðu mannlífi, þar sem fólk gæti gengið að fjölbreyttum dagskráratriðum, hver eftir sínum smekk. Mestu skipti að geta notið þess að vera í fjölmenni í fallegu umhverfí, miðborgarstemmningu í góðu veðri, eins og spáð er að verði á Akureyrí um verslunarmanna- helgina. Grunnhugmynd hátíðarinnar er að sögn Jóns Hauks skipulögð skemmtidagskrá frá klukkan 18.00 alla dagana og allt fram til klukkan hálfsex að morgni fyrir þá sem lengst halda út næturgleði. Hann sagði að hátíðarsvæðið væri raunar allur Akureyrarbær. Á daginn væri hægt að njóta safna og sýninga af ýmsu tagi, íþróttaaðstöðu eins og hjólaskauta, golfs, minigolfs, sunds og fleira auk þess sem veitingastað- ir væru opnir að vanda. Kvöld- skemmtanir yrðu sem mest úti í góða veðrinu í göngugötunni og á Ráðhústorgi, en þar er verið að ljúka hellulögn þessa dagana, svo og dansleikir í 1929 og í Sjallanum. Sérstaka athygli vildi Jón Haukur vekja á útimarkaði í göngdgötunni á Akureyri sem hefst klukkan 10.00 á laugardagsmorgun og stendur fram eftir degi. Þar myndu kaup- menn og einstaklingar bjóða fram vörur af ýmsu tagi, og væri þeim sem hefðu hug á að nýta sér þetta tækifæri boðið að panta sér sölu- stæði, sem fengist án endurgjalds. Reyndar væri svo að allir dagskrár- liðir hátíðarinnar væru ókeypis, ekk- ert kostaði inn á hátíðina ef undan væru skildir dansleikir í veitinga- húsum bæjarins. Halló Akureyri hefst formlega á því að hljómsveitin Skriðjöklar kem- ur ríðandi inn á Ráðhústorg klukkan 17.00 á föstudag og heldur þar úti- hljómleika, en Skriðjöklar hafa í til- efni hátíðarinnar gefið út útsetningu sína á laginu Halló Akureyri, sem Lúdó og Stefán sungu á sínum tíma. Klukkan 18.00 alla hátíðardagana verða ókeypis bíósýningar í 1929, þar sem áður var Nýja bíó, en þar verða sýndar myndimar Litla hryll- ingsbúðin, Hárið og Purple Rain. Klukkan 20.00 alla dagana hefst skemmtidagskrá á Ráðhústorgi og stendur til klukkan 23.00. Þar verða hljómsveita- og söngvarakeppni, djasstónleikar, rokktónleikar og skemmtiatriði af ýmsu tagi. Hápunktur útiskemmtunar á Halló Akureyri verður risagrill- veisla, sem hefst á Ráðhústorgi klukkan 20.00 á sunnudagskvöld. Auk þess sem þar verður ljúffengur grillmatur verða á grillhátíðinni fjöl- breytt skemmtiatriði. Skemmtistaðir Akureyrar verða opnaðir klukkan 23.00 alla hátíðar- dagana. í 1929 leika Skriðjöklar fyrir dansi ásamt Loðinni rottu og þar verður ýmislegt upp á teningn- um, blautbolakeppni, fegurðarsam- keppni karla og fleira. I Sjallanum leikur hljómsveit Geirmundar Val- týssonar í hinni víðkunnu skagfirsku sveiflu. Að loknum dansleikjum hátíðar- innar verður brugðið á það nýmæli að efna til svonefnds Pakkhússpar- týs, sem verður i húsnæði því á Eyrinni þar sem Slökkvistöð Akur- eyrar verður í framtíðinni. Þar geta nátthrafnar safnast saman og skemmt sér við tónlist fram til klukkan hálfsex að morgni. Sérstök útvarpsstöð verður starf- andi allan sólarhringinn vegna há- tíðarinnar Halló Akureyri. Hún sendir út á FM 98,7 og hóf útsend- ingar í gær. Þar verður jafnóðum gerð grein fyrir dagskráratriðum hátíðarinnar og uppákomum sem gætu orðið með litlum fyrirvara, að sögn Jóns Hauks. Jón Haukur sagði að allur undir- búningur hátíðarinnar svo og sam- starf við sýslumann, bæjaryfírvöld og lögreglu hefði gengið afar hratt og vel.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.