Morgunblaðið - 29.07.1992, Síða 29
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 29. JÚLÍ 1992
I
29
ÁRNAÐ H.EILLA
Ljósmyndastofan Nærmynd
HJÓNABAND. Gefín voru saman
hinn 27. júní Ólína Kristín Mar-
geirsdóttir og Haraldur Valur Har-
aldsson af sr. Jónu Kristínu Þor-
valdsdóttur í Grindavíkurkirkju.
Þau eru til heimilis á Hringbraut 67.
Ljósmynd: Sigr. Bachmann
HJÓNABAND. Gefín voru saman
hinn 20. júní Ásta Lilja Baldursdótt-
ir og Leifur Garðarsson af sr. Ein-
ari Eyjólfssyni í Fríkirkjunni. Þau
eru til heimilis á Álfaskeiði 84,
Hafnarfírði.
yósmynd: Kristbjörg Eyvindsdóttir
HJÓNABAND. Gefin voru saman
hinn 11. júlí Jenny Mandal og
Hreggviður Eyvindsson af sr. Gun-
illa Drotz á Hárenge-slott í Svíþjóð.
Þau eru til heimilis í Svíþjóð.
Lóósmynd: Ljósmyndarinn Jóhannes Long.
HJÓNABAND. Þetta eru brúð-
hjónin Ingibjörg Hauksdóttir og
Ingþór Ásgeirsson. Þau voru gefin
saman í Lágafellskirkju 4. júlí sl.
af séra Jóni Þorsteinssyni. Heimili
þeirra er á Langholtsvegi 152.
Ljósmyndastofan Nærmynd
HJÓNABAND. Gefin voru saman
hinn 4. júlí Katrín Westlund og
Karl Guðjónsson af sr. Guðmundi
Óskari Ólafssyni í Dómkirkjunni.
Þau eru til heimilis í Veghúsum 17.
Ljósmynd: Ljósmyndarinn Jóhannes Long.
HJÓNABÁNDD. Þetta eru brúð-
hjónin Kristbjörg Gísladóttir og
Ragnar Schram sem voru gefin
saman í Bessastaðakirkju 4. júlí sl.
af séra Jón Dalbú. Heimili þeirra
er á Meistaravöllum 7.
Ljósmyndastofan Nærmynd
HJONABAND. Gefín voru saman
hinn 5. júlí Elfa Bára Bjarnadóttir
og Samuel Guðmundsson af sr. Sig-
urði H. Guðmundssyni í Víðistaða-
kirkju. Þau eru til heimilis í Flúða-
seli 74.
Ljósmynd: Ljósmyhdarinn Jóhannes Long.
HJÓNABAND. Þetta eru brúð-
hjónin Berglind Þórðardóttir og
Eggert Guðmundsson sem gefín
voru saman í Árbæjarkirkju 4. júlí
sl. af séra Guðmundi Þorsteinssyni.
Heimili þeirra er á Suðurvangi 15,
Hafnarfirði.
Ljósmynd: Sigr. Bachmann
HJÓNABAND. Gefín voru saman
hinn 4. júlí Sigurbjörg Hallgríms-
dóttir og Kristján Jónsson af sr.
Áma Bergi Sigurbjörnssyni í Viðev-
jarkirkju. Þau eru til heimilis í
Gnoðavogi 26, Reylq'avík.
BRUÐKAUPSVEISLUR
Perlan á
Öskjuhlíð
perlan sími620200
• •
Oðruvísi tertur
Hvað er terta? í hugum nútíma ís-
lendinga er það íburðarmikil sæt kaka
með ijóma, kremi og ávöxtum. Þessar
stríðstertur eða Hnallþórur em sér-
stakar fyrir okkur íslendinga, sem
kunnum okkur stundum ekkert hóf í
viðureigninni við þær. Við erum þó
ekki eina’þjóðin, sem bakar tertur.
Ameríkanar og Bretar baka „tart“ og
„flan“, og eru þær tertur líkari því, sem
við köllum bökur. Botn með fyllingu
úr ávöxtum, kremi eða grænmeti. Þjóð-
verjar, Svisslendingar og Austurríkis-
menn búa til geysigóðar tertur og þeir
sem koma til Danmerkur hafa kannski
séð Dani „hygge sig med en lagkage".
Hér áður fyrr voru lagkökur kallaðar
tertur. Hvort sem kakan heitir terta,
lagkaka eða baka, er það tilefnið sem
ræður gerð hennar, en nú er sumar
og því búum við til eina sumartertu
með rabarbara og hvönn og aðra með
blómkáli og tómötum.
Sumarterta m/rabarbara og
hvönn
1 pk engiferkex (ginger snap) 200 g
50 g smjör
2 dl mjólk
1 msk „ötker“ búðingsduft (sem á
að hita)
1/2 dl sykur
1/4 tsk vanilludropar
1 tsk rifinn sítrónubörkur
2 egg
1 lítil dós kotasæla án bragðefna
1 meðalstór rabarbaraleggur
1 meðalsver hvannaleggur, helmingi
styttri en rabarbaraleggurinn
1-2 msk dökkur púðursykur
1 bökumót eða springmót
bökunarpappír
Umsjón: KRISTÍN GESTSDÓTTIR
Teikningar: SIGURÐUR ÞORKELSSON
1. Klippið bökunarpappír eftir botni
mótsins og setjið á hann.
2. Setjið engiferkexið í plastpoka og
metjið með kökukefli.
3. Bræðið smjörið, setjið saman við
mulið kexið og þrýstið á botn köku-
mótsins.
4. Hristið saman mjólk og búðings-
duft, hellið í pott og látið sjóða,
setjið sykur sáman við og síðan
kotasælu, vanilludropa og sítrónu-
börk. Hellið yfir kexmulninginn í
mótinu.
5. Áfhýðið hvannalegginn og skerið í
sneiðar, skerið rabarbaralegginn í
sneiðar, stráið þessu ofan á mótið.
Stráið púðursykri yfir.
6. Hitið bakaraofn í 190 C, blástursofn
í 170 C, setjið í miðjan ofninn og
bakið í 50-60 mínútur.
Blómkáls/tómatterta
Botninn: ,
1 1/2 dl heilhveiti
2 1/2 dl hveiti
1 tsk fínt þurrger
1/2 tsk salt
1 msk matarolía
1 lítið egg
1 dl fingurvolgt vatn
bökunarpappír
kökumót m/lausum botni, 20 sm í
þvermál.
1. Setjið heilhveiti, hveiti, þurrger og
salt í skál.
2. Setjið matarolíu, egg og fíngurvolgt
vatn út í. Hrærið saman.
3. Skerið hring af bökunarpappír eftir
kökumótinu, setjið á botninn og
þrýstið deiginu jafnt á botninn og
upp með börmunum. Leggið hreint
stykki yfír mótið og látið lyfta sér
á eldhúsborðinu í 30 mínútur.
Fyllingin:
um 500 g blómkál
1 1/2 dl milt saltvatn
1 egg
1/2 tsk salt
1/4 tsk pipar
1 lítil dós kotasæla án bragðefna
2 dl rifínn mjólkurostur, sú tegund sem
ykkur hentar
2 meðalstórir tómatar
1. Setjið saltvatn í lítinn pott, skiptið
blómkálinu í litlar greinar og sjóðið
í vatninu í 5 mínútur.
2. Hrærið saman egg, salt, pipar og
kotasælu, setjið 1 msk af blómkáls-
soðinu og setjið saman við. Setjið
kotasælu saman við.
3. Setjið blómkálið á botninn, hellið
síðan eggja/kotasælublöndunni yf-
ir. Stráið mjólkurostinum yfir.
4. Skerið tómatana í sneiðar og raðið
ofan á.
5. Hitið bakaraofn í 190 C, blástursofn
í 170 C, setjið í miðjan ofninn og
bakið í 40-50 mínútur.