Morgunblaðið - 29.07.1992, Qupperneq 31
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 29. JÚLÍ 1992
31
Sigurborg Þórðar-
dóttir - Kveðjuorð
Fædd 10. janúar 1937
Dáin 19. júlí 1992
Það eru þung spor er falla til
fylgdar tengdamóður minni og vin-
konu til hinstu hvíldar. Hún var
sterkur persónuleiki með mikla út-
geislun og ríka kímnigáfu. Oft var
hlegið dátt í Urðarbakkanum og
sumarbústaðnum fyrir austan er
hún af sinni kunnu frásagnarsnilld
var að riQa upp skondin atvik af
mönnum og málefnum. Hjálpsemi,
greiðvikni og fórnfýsi voru henni í
blóð borin, hún kastaði aldrei til
hendinni. Það var nostrað við allt
og alla. Hversu mörg verkefni er
hún hafði með höndum, átti hún
alltaf tíma aflögu. Alltaf var hún
mætt fyrst allra til að leggja fram
krafta sína ef eitthvað stóð til hjá
nánustu fjöldskyldu eða vinum. Hún
var mikið náttúrubam og með
grænar hendur eins og ég sagði
alltaf. Það blómstraði allt í návist
hennar. Þær eru margar perlur
minninganna. Með þessum fátæk-
legu orðum kveð ég mæta konu er
reyndist mér ávallt sem móðir.
Hafi þún þökk fyrir allt og allt.
Þín ást var aldrei bundin vanans böndum,
þinn bjarta hug gat enginn vetur fryst,
þú réttir mér þín blóm með báðum höndum,
þú brostir til mín síðast ein og fyrst.
- Við þína gröf var auðsæ augum mínum
hver ástgjöf þín, svo nærstæð, hrein og ljós,
- og ég, með lífið fullt af fómum þínum,
lét falla á þína kistu eina rós.
Og nú á mótum minna og þinna vega
er margt sem hvorki veit ég eða skil;
samt ber ég fram þá bæn í mínum trega:
Guð blessi, - ef hann er nokkur til.
Víst efa ég flest sem aldin fræði Iofa
en ef að dánir lifa finnumst við,
og hvort sem er mun okkur ljúft að sofa
í Islands gömlu moldum hlið við hlið.
(Guðm. Böðvarsson)
Guðrún.
Hvað er hægt að segja þegar
dauðinn klippir á lífsstreng og svipt-
ir menn kærleiksvini? Hvað er hægt
að muna best, þegar lífsfljótið brýst
fram með fullum þunga og ber með
sér dýrmæta minnisdropa með eðli
Kveðjuorð:
Karl
Eiríksson
Við andlát afa okkar, Karls Ei-
ríkssonar í Öxl, langar okkur að
minnast hans með nokkrum orðum.
Við eigum mjög góðar minningar
tengdar honum og erum lánsöm að
hafa þó átt hann að allt til fullorð-
insára. Afí hafði mjög góð áhrif á
okkur öll og minnumst við sérstak-
lega góðlátlegrar stríðni hans og
skemmtilegra stunda, enda var afí
skapgóður.
Sem börn heimsóttum við oft afa
og ömmu í sveitina og var alltaf
jafn erfitt að fara þaðan og eftir-
væntingin mikil að koma aftur.
Ekki var síður vel tekið á móti okk-
ur seinni árin í Giljaseli. Oft var
tekið í spil eða afi og amma sátu
með pijónana eða aðrar hannyrðir
og ófáar ullarflíkur og fallega muni
hafa þau látið frá sér um ævina.
Dugnaðurinn var alla tíð mikill og
komu þau 15 börnum á legg, sem
öll eru á lífi.
Elsku amma, guð gefi þér styrk
á þessari stundu. Þó afi sé horfínn,
eigum við alltaf hlýjar minningar
um hann.
Barnabörnin í Grindavík.
VJterkurog
k-J hagkvæmur
auglýsingamiðill!
spegilsins og við stöndum á bakkan-
um og skoðum langt lífshlaup okk-
ar vinkvennanna, í blíðu og stríðu?
Hvar byijar vinátta sem verður
svo sterk að einstaklingamir verða
hluti af tilvist? Við voram ungar
þegar við settumst í Samvinnuskól-
ann og þar tókust kynni sem ekki
slitnuðu þegar skólabjallan hringdi
okkur út í lífíð til fundar við lífsföru-
nauta, að byija að gefa líf, fylgjast
með börnunum, fylgjast með átök-
um, gleði, sorg og sigram í hópnum.
Nánd í gleði og sorg batt traust
vináttubönd. í þetta sinn hringir
dauðinn enn eina okkar út úr lífinu,
Sigurborgu Þórðardóttur.
Síðustu mánuðumir vora hennir
grimmir, þrek hennar mikið, barátt-
an vonlaus, en aldrei uppgjöf. Við
áttum ekkert að gefa henni til bata,
en kærleikurinn var fyrir löngu
sestur að í hópnum og úr honum
munum við móta bautastein þakk-
lætis fyrir langa samfylgd á bakka
fljótsins sem streymdi fram og taldi
okkur tímann, skammtaði gleði-
stundir, áhyggjur og hlátur sem
mun bergmála í sálum okkar, alltaf.
Við vinstúlkurnar sem stöndum
eftir á bakkanum, horfum döprum
augum niður eftir fljótinu sem tók
hana bestu okkar. Við eigum þó
mipningamar eftir, heyrum hlátur-
inn hennar og munum sögur af
fóiki fyrir vestan, sögur úr vinn-
unni, munum hve annt henni var
um fyrirtæki þeirra hjóna og þá sem
þar unnu. Þakklætið fyrir gleði-
stundirnar er sterkara en harmur-
inn.
Friðgeir, Þórður og öll fjölskylda
Sigurborgar eiga hlýhug okkar og
djúpa samúð.
Saumaklúbburinn.
NAMSMANNALINA B U N AÐ A R B A N K A N S
FYRIR HUGSANDI FÓLK
SEM BER SAMAN KJÖR, REYNSLU OG ÞJONUSTU
Það er engin tilviljun að Stúdentaráð Háskóla íslands og Samband íslenskra
námsmanna erlendis gengu til samstarfs við Búnaðarbankann!
Fyrir hverja? Alla námsmenn 18 ára og eidri
Lánafyrirgreiðsla, eldrl nemar Lánar námsmönnum sem komnir eru á 2. önn eða lengra 100% af lánsloforði LÍN
1. árs nemar Lánar námsmönnum á 1. önn 90% af lánsloforði en altt að 100% eftir það
Vaxtakjör 13.5% vextir fyrir alla námsmenn - líka 1. árs nema
Lánsform Yfirdráttarlán, reikningslán
Annar kostnaður Enginn
Svelgjanleiki endurgreiðslna Ef greiðala frá LÍN er lægri en lánsloforð t.d. vegna ófullnægiandi námsarangurs á nams- maður kost á að gera upp mismuninn með sumar- tekjum og/eða með því að ná tilskyidum náms- árangri í upptökuprófi að hausti. Móguleg skuld- breyting á láni ef tafir verða í námi s.s. vegna veikinda eða bams- burðar
Ábyrgðarmenn Elnn
Alþ|óðlegt hraðbankakort Já, sem gildir á 95.000 stöðum
Kostnaður við sfm- sendingu á 50.000 kr. 400 kr. þ.e. 150 kr. + 0,5% af upphæð
Kostnaður við að búa til 5.000 kr, ávísun, algengt vegna umsókna um skólavist 90 kr. þ.e. 0,5% af upphæð en lágmark er 90 kr.
Námsstyrkir A.m.k. 8
Yfirdráttarheimlld, ókeypis ef ekki nýtt 50.000 kr.
Ráðgjafi um LÍN Já
Afsláttur af flutningsgjaldi buslóða með Samskipum hf. 5%
Lán vegna búslóðaffutninga Já
Námslokalán Já
Fri tákkhefti Já, fyrstu 3
Skiputagsbók Já
Endurgreiðslukerfi námslána Já
►o
#
0
O
NAMSMANNALINAN - SVARAR KROFUM NAMSMANNA
>
LINAN <
BUNAÐARBANKINN
-Traustur banki