Morgunblaðið - 29.07.1992, Qupperneq 35

Morgunblaðið - 29.07.1992, Qupperneq 35
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 29. JÚLF1992 35 Viðar G. Daníels- son - Minning Fæddur 3. júní 1925 Dáinn 21. júlí 1992 Svo er því farið: Sá er eftir lifir deyr þeim sem deyr en hinn dáni lifir í hjarta og minni manna er hans sakna. Þeir eru himnamir honum yfir. (Hannes Pétursson) Nú er hann dáinn, elskulegur tengdafaðir og afi, aðeins 67 ára að aldri. Framundan voru mörg góð ár, þar sem hann miðlaði okkur þessum yngri reynslu sinni, benti okkur áfram á muninn á réttu og röngu, góðu og illu. En við sem eftir lifum, verðum nú að halda lífs- hlaupinu áfram án leiðsagnar hans. Þó verður líf hans og starf okkur ávallt leiðarljós. Viðar var fæddur í Reykjavík 3. júní 1925, sonur Daníels Þjóð- björnssonar múrara og fyrri konu hans, Helgu Árnadóttur. Hann flutti til Akraness 1933, bjó þar á nokkrum stöðum, lengst á Vestur- götu 65. Árið 1947 giftist hann eftirlifandi eiginkonu sinni, Guð- rúnu Lilju Friðjónsdóttur. Þau eign- uðust fimm börn: Helga, fædd 1949, viðskiptafræðingur, búsett í Reykjavík; Daníel, fæddur 1951, efnafræðingur, búsettur í Reykja- vík; Viðar, fæddur 1956, rafmagns- verkfræðingur, búsettur í Reykja- vík; Lilja, fædd 1957, stjórnmála- fræðingur, búsett í Belgíu, og Frið- jón Már, fæddur 1961, líffræðing- ur, búsettur í Kópavogi. Árið 1989 fluttu þau hjónin til Reykjavíkur og bjuggu þar síðan. Fyrst þegar ég kynntist afa Við- ari bjó hann ásamt ömmu Gunnu á Skaganum (Akranesi) og þá sáum við fljótt nokkur helstu einkenna hans. Hann var hógvær, traustur og ráðagóður og ákaflega heima- kær. Hann gaf sér ávallt tíma til að hlusta á aðra og beið með að hafa skoðanir á hlutunum uns hann taldi sig hafa fengið nægar upplýs- ingar. Hann dáði ýmsa menn, bæði jafnaldra og frá fyrri tíð, en honum fannst skorta fyrirmyndir í nútím- anum til að benda ungu fólki á þegar það veldi sér lífsbraut. Samband afa og ömmu var ein- staklega fallegt og gott og í samein- ingu bjuggu þau sjálfum sér og börnum sínum gott og traust heim- ili, þar sem hlýja með staðfestu voru megineinkenni uppeldis barn- anna, sem best skyldi duga þeim þegar út í lífið væri komið. Þótt múraraiðn væri hin faglega menntun afa Viðars hafði hann sýnu meira gaman af að teikna og smíða. Og margir urðu uppdrætt- irnir að framtíðarhúsinu, áður en hann loks byggði sér draumahúsið. Þar gátu þau þó dvalið mun skemur en skyldi. Afi hafði líka yndi af ferðalögum og setti sig ekki úr færi að komast í góða og skemmti- lega ferð. Búnaður skyldi sem mest vera heimagerður. Heimasmíðaðir göngustafir og heimaframköllun á myndum voru því á tímabili sjálf- sagðir hlutir. Þetta sumar átti reyndar að verða mikið ferðasumar, en úr því gat ekki orðið. Afi varð fyrir ýmsum áföllum um ævina. Móður sína missti hann þeg- ar hann var barn og ungur að árum mátti hann sjá á eftir tveimur bræðrum sínum og föður yfir móð- una miklu. Síðar fylgdu ein systir hans og bróðir. Hann var því búinn að vinna sig í gegnum mörg áföllin þegar tvö stór áföll skullu á: Veik- indi og síðar aðgerð á ömmu Gunnu og síðar alvarleg fötlun Ingvars, sonarsonar hans. En öllu tók hann af miklu æðruleysi og var trúr þeirri lífsstefnu sinni að áföllum skyldu menn taka af ró og skynsemi og reyna að halda sínu striki, eftir því sem kostur væri. Með sama hugar- fari brást hann líka við síðasta áfall- inu, úrskurði læknavísindanna um að hann væri haldinn sjúkdómi, sem mannlegur máttur réði ekki við. Hann vildi að sá úrskurður setti sem fæst úr skorðum og hver og einn skyldi laga sig að því sem fyrst. Hann háði stutt en mjög erfítt dauðastríð. Núna, að leiðarlokum, er okkur efst í huga þakklæti fyrir að hafa átt þess kost að eiga samleið með þessum góða og skynsama fyrir- myndarmanni. Megi minningin um hann ylja ömmu Gunnu og okkur hinum um hjartaræturnar og verða okkur vegvísir um ókomin ár. Blessuð sé minning hans. Margrét Magnúsdóttir, Hjalti og Ingvar Daníelssynir. Viðar Guðbjörn Daníelsson, tengdafaðir minn, lést 21. júlí síð- astliðinn eftir stutta og erfiða bar- áttu við ólæknandi sjúkdóm. Viðar varð 67 ára 3. júní síðastliðinn og óraði þá engan fyrir þvi að svo stutt væri eftir af ævi hans. Tengdapabbi var ljúfur maður. Yfir honum ríkti mikil ró og skipti hann sjaldan skapi. Á meðan við hjónin dvöldum er- lendis hófumst við handa við hús- byggingu og nutum í því sambandi dyggrar aðstoðar tengdaföður míns. Hann var ætíð okkar helsti ráðgjafi enda mikill hagleiksmaður, sem var fljótur að sjá hvernig best væri að hafa hlutina. Þegar við spurðum hann ráða voru svörin skýr og úthugsuð, því þá var hann. löngu búinn að hugsa út í málin, en beið með tillögurnar þar til spurt var. Tengdapabbi var ekki einungis okkar helsti ráðgjafí. Hann tók hreinlega við byggingunni eftir fok- heldingu og sá um hana eins og sína eigin. Ætíð gætti hann hags- muna okkar. Við gátum vart heppn- ari verið, því annar eins þúsund- þjalasmiður og Viðar var er vand- fundinn nú á tímum. Viðar bar virðingn fyrir starfi sínu og lét aldrei frá sér fara neitt verk öðruvísi en að það væri óað- finnanlegt. Sem lítið lýsandi dæmi þá minnist ég þess að múrsteins- hleðsla í arni í sumarbústað for- eldra'minna var ætíð til vandræða þar til tengdapabbi mætti á staðinn og aðstoðaði við hleðsluna. Eftir það hefur hún setið vel föst, þrátt fyrir mikið álag. Þó Viðar væri dagfarsprúður maður og ekki mjög áberandi, þá hafði hann metnað, metnað fyrir börn sín, starf sitt og stétt, enda hafa börn hans og Guðrúnar, eftir- lifandi konu hans, komist vel áfram. Þau hafa fengið að njóta góðrar menntunar og umhyggju í foreldra- húsum. Viðar var kallaður burt á besta aldri og mjög óvænt og þó það sé sárt þá lifa áfram góðar minningar um góðan mann sem ekki lét mikið fyrir sér fara en var ætíð til taks er á þurfti að halda. Ég kveð tengdaföður minn með virðingu og þökk, þökk fyrir allt það sem hann gerði fyrir mig, eigin- mann minn og böm. Elsku Guðrún, ég bið góðan Guð að styrkja þig í þessari miklu sorg og gefa þér krafta til að takast á við framtíðina. Anna Elísabet Ólafsdóttír. ÓlafurH. Gunnars son - Minning Fæddur 20. janúar 1943 Dáinn 6. júlí 1992 Við Ólafur Halldór Gunnarsson voram bekkjarbræður í Myndlista- og handíðaskóla íslands. Á okkur var tíu ára aldursmunur og hann nokkuð sjóaður í veraldlegu útstá- elsi og hefur eflaust fundist ég vera hálfgerður kettlingur. Eigi að síður urðum við fljótlega góðir félagar og ég tel mig hafa lært talsvert af honum, einkum varðandi tæknilega vinnu og eldri Iist. Hann hafði nokk- urt forskot á mig, bæði vegna ald- urs og vegna þess að hann byijaði í MHI mörgum árum áður, en þurfti þá að hætta af einhverri ástæðu sem ég kann ekki að nefna. Við vorum löngum stundum tveir einir í grafíkkjallaranum, og lýsir það honum nokkuð vel, hve löngum tíma hann eyddi í undirbúningsvinnu við að fægja koparinn eða slípa stein- ana. Sú vinna sem tók mig tíu mín- útur var margra daga verk fyrir hann. Þessi fullkomnunarárátta má hafa verið 'honum fjötur um fót í myndlistinni. Einar Hákonarson sem var yfír- kennari í fijálsu myndlistardeildinni í MHÍ á þessum árum sýndi okkur uppörvandi áhuga og kom þessum Erfidrykkjur Glæsileg kaffi- hlaðborð faliegir saiir og mjög góð þjónnsta. Upplýsingar f síma 2 23 22 FLUGLEIDIR HÓTGL LOFTLEIÍIR myndum sem við vorum að gera inn á alþjóðlega grafíkbiennala, og meira að segja tókst honum að koma okkur með nokkrum harm- kvælum, að mér skilst, inn í grafík- félagið. Ég yfirgaf það hins vegar nokkuð fljótlega, en Óli var þar virkur félagi. Ég kom honum svo inn á SÚM-sýningu um svipað leyti, og vora þetta einu sýningar hans. Hann fékk nokkuð harða gagnrýni og sárnaði það, og það hefur eflaust átt hlut að máli að hann dró sig í hlé á þessu sviði. Að skólatíð lokinni kom hann reglulega í heimsókn til okkar Möggu og dvaldi lengi í hvert sinn, og borðaði þá gjarna með okkur að kvöldi. Á þessum dögum komst ég að því að hann var líkamlega veikur og hann varð að gæta sín að borða ekki allan mat. Þessir heimsóknardagar fóru í umræður um myndlist, listaverkabókum og listtímaritum flett og einnig komu oft upp umræður um trúmál og lífs- spurningar sem hann velti mikið fyrir sér. Ekki tók ég eftir miklum breytingum á Óla þessa tíð sem ég þekkti hann, og til að lýsa hinu staðfasta útliti hans, þá finnst mér eins og hann hafi gengið í sama leðuijakkanum öll þessi ár. Þó ég muni ekki sérstaklega eftir leður- ilminum af jakkanum fann Magga alltaf nálægð hans með nefinu. Með þeim orðum kveð ég og vona að nýjar víðáttur opnist. Helgi Þ.F. og fjölskylda. + Ástkær eiginkona mín, móðir, tengdamóðir og amma, AÐALHEIÐUR ÁGÚSTA AXELSDÓTTIR, Baugholti 20, Keflavík, lést í Sjúkrahúsi Keflavíkur 27. júlí síðastliðinn. Jarðarförin auglýst síðar. Fyrir hönd aðstandenda, Brynleif ur Jóhannesson. + Ástkær eiginmaður minn, EINAR ÞORSTEINSSON mjólkurfræðingur, Bergen, Noregi, lést þann 26. júlí sl. Fyrir mína hönd og vandamanna, Mary Þorsteinsson. Móðir okkar, KRISTÍN JÓNSDÓTTIR frá Loftsstöðum, lést á Hrafnistu í Reykjavik sunnudaginn 26. júlí. Ólöf Steingrimsdóttir, Ragnhildur Sóley Steingrímsdóttir, Bjarni Steingrímsson. + Hjartkær eiginmaður minn og faðir okkar, KNÚTUR JÓNSSON, Hávegi 62, Siglufirði, verður jarðsunginn frá Siglufjarðarkirkju laugardaginn 1. ágúst kl. 11.00 f.h. Þeim sem vildu minnast hans er bent á Krabbameinsfélag ís- lands eða aðrar líknarstofnanir. Anna Snorradóttir og börn. + Ástkær eiginkona mín, móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma, KRISTJANA VIGDÍS HAFLIÐADÓTTIR, Hjarðarholti 18, Akranesi, lést 27. júlí síðastliðinn. Útför hennar fer fram frá Akraneskirkju föstudaginn 31. júlí kl. 14.00. Jón Z. Sigríksson, Hrönn Jónsdóttir, Halldór Jóhannsson, Börkur Jónsson, Valgerður S. Sigurðardóttir, Þorsteinn Jónsson, Hrefna Steinþórsdóttir, barnabörn og barnabarnabörn. Birting afmælis- og minningargreina Morgunblaðið tekur afmælis- og minningargreinar til birting- ar endurgjaldslaust. Tekið er við greinum á ritstjórn blaðsins á 2. hæð í Aðalstræti 6, Reykjavík og á skrifstofu blaðsins í Hafn- arstræti 85, Akureyri. Athygli skal á því vakin, að greinar verða að berast með góðum fyrirvara. Þannig verður grein, sem birtast á í miðvikudagsblaði að berast síðdegis á mánudegi og hliðstætt er með greinar aðra daga.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.