Morgunblaðið - 29.07.1992, Page 36
36
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR. 29. JULI 1992
fclk f
fréttum
AST
Julio búinn að finna þá réttu?
Spænski söngvarinn og hjarta-
knúsarinn Julio Iglesias er
sagður svo ástfanginn af nýjustu
kærustunni, að þess sé skammt að
bíða að brúðarmarsinn verði leikinn
og blásið verði til „hógværrar"
veislu með svona 6-700 boðsgestum
og fulltrúum frá öllum helstu slúð-
urblöðum ýmissra heimsálfa. Stúlk-
an, sem fáir vita hvað á sér marga
fyrirrennara, heitir Miranda og er
hollensk fyrirsæta.
Þeir eru orðnir margir mánuðim-
ir sem þau Julio og Miranda hafa
verið saman og víkja þau vart úr
Astfangið par, Julio og Miranda.
augsýn hvors annars. Miranda hef-
ur þótt efnileg fyrirsæta og var
komin með rífandi laun og mikla
vinnu, en hún hefur nú látið frek-
ari verkefni reka á reiðanum til að
geta verið nærri Julio sínum öllum
stundum. Miranda hefur nú sest að
í Indian Creek, þar sem Julio á
mörg hundrað fermetra athvarf, en
húsið er skammt utan við Miami í
Flórída og hefur hún verið kynnt
fyrir bömum söngvarans, sem era
tveir synir á táningsaldri. Miranda
er af sömu kynslóð, hún er aðeins
tvítug, en Julio er hins vegar 48
ára gamall.
Miranda segir að aldursmunurinn
skipti engu máli. Menn þroskist og
róist með aldrinum og þá verði þeir
færari um að gefa af sér í sambönd-
um. Hún vilji miklu fremur eiga 48
ára gamlan mann sem elski sig
heldur en yngri mann sem ekki
væri stólandi á. Julio segist elska
lífið og fegurð. Undir það falli kon-
ur og Miranda hafí til brunns að
bera alla bestu kosti þeirra hluta
sem hann elskar í lífinu. Því sé ást
sín til hennar eðlileg og óþvinguð.
„Það er eitt að þekkja fallega konu
og annað að vera ástfanginn af
henni," segir kempan.
Fararstjórarnir Gunnar Fjalar, Gréta og Kjartan Már með Úlfari
Eysteinssyni yfir saltfiskpottunum í eldhúsinu.
SUMARFRÍ
Saltfiskur og blús á
sólarströnd
Islendingar, sem eru í fríi á Mall-
orka á vegum ferðaskrifstofunn-
ar Samvinnuferða-Landsýnar, hafa
notið þess sem íslenskir listamenn
hafa fram að færa, bæði tónlistar-
menn, matreiðslumeistari, dans-
kennari, töframaður og grínari.
Úlfar Eysteinsson matreiðslu-
meistari reið á vaðið og matreiddi
saltfisk á spánska vísu, sem féll vel
í kramið hjá Iandanum. Hann kynnti
einnig nýtt og þjóðlegt snakk, djúp-
steikt saltfiskroð, sem mönnum lík-
aði vel.
Kristján Kristjánsson var næstur
og flutti blús á kvöldin. Honum ,til
aðstoðar vora Högni Rafnsson gít-
arleikari og Kjartan Már Kjartans-
son, fararstjóri, sem lék á fiðlu.
Sóley Jóhannsdóttir-danskennari
stóð þessu næst fyrir dansæfingum
og kennslu fyrir íslendingana og
Baldur Brjánsson og Þórhallur Sig-
urðsson sáu um grín og töfrabrögð.
Hljómsveitin Sálin hans Jóns míns
var með tónleika laugardaginn 18.
júlí og Einar Thoroddsen, læknir og
vínfræðingur, sló botninn í dag-
skrána síðustu viku júlímánaðar með
ráðleggingum um spænsk vín.
HAMINGJA
Hollenskhjón giftu
sig á Islandi
Hollendingamir Dick Berghuijs
og Irma Uyterlinde létu gefa
sig saman hjá embætti sýslumanns
Reykjavíkur á miðvikudag. Þau
kynntust á ferðalagi um ísland fyr-
ir fímm áram og sögðust strax
hafa heillast af landinu og komið
hingað nokkrum sinnum síðan þess.
Það var fyrir ári sem hjónin
ákváðu að láta gifta sig hér á landi
í kyrrþey og sögðu þau að það hefði
þurft mikla skipulagningu. Dick
sagði að Margrét Ömólfsdóttir hjá
hollensku ræðisskrifstofunni hefði
hjálpað þeim með formskilyrðin sem
þurfti að uppfylla við vígsluna. Dick
bætti því við að það mætti túlka
þetta bókstaflega því Margrét hefði
jafnframt verið svaramaður.
Hjónin nýgiftu komu til landsins
á sunnudag og hafa gist í tjaldi
síðan. Brúðkaupsnóttinni eyddu þau
þó á hótelherbergi í boði Hótel Esju.
Næstu fjórar vikur sögðust þau
ætla áð dvelja á íslandi og ferðast
um landið en að því loknu mundu
þau snúa heim og halda brúðkaup-
sveisluna.
Óskar H. Gunnarsson formaður Mjólkurdagsnefndar afhendir Berg-
Ijótu vinninginn. Við hlið hennar stendur Þorsteinn Bergmann eigin-
maður hennar og Hörður Daði sonur þeirra.
COSPER
UIoo
COSPER
Morgunblaðið/RAX
Brúðhjónin Dick Berghuijs og Irma Uyterlinde tilbúin í brúðkaups-
ferðina.
Ég hef engan tollskyldan varning, ég er að koma frá
Monte Carlo.
skemmtisigl-
ingu um
Karíbahaf
*
Ivor stóð mjólkurdagsnefnd
fyrir Mjólkurleik, en þar
gafst fólki færi á að svara
spurningunni: Með hveiju
finnst þér mjólkin best? Inn
bárust nær 40.000 svarseðlar
og var dregið um vinninga 30.
júní sl.
Góð verðlaun voru í boði og
meðal vinninga var m.a. ferð
til Karíbahafsins fyrir viðkom-
andi og fjölskyldu hans. Þegar
dregið var um þá ferð kom upp
nafn Bergljótar Þorsteinsdótt-
ur, Hlíðarhjalla 14, Kópavogi.
Hennar bíður því skemmtisigl-
ing um Karíbahafið ásamt eig-
inmanni og 2 ára syni. Einnig
var dregið um 500 aukavinn-
inga, mjólkurglasasett og inn-
kaupaskjatta. Nöfn vinnings-
hafanna birtust í auglýsingu í
Morgunblaðinu 19. júlí sl.