Morgunblaðið - 29.07.1992, Síða 41

Morgunblaðið - 29.07.1992, Síða 41
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 29. JÚLÍ 1992 41 SIMI 32075 U53V3ÍSSL FJCH3SSí5aö?i atK&í SSIMSii<«>:~5s us&iKXwmsm& -ezihvev smm msm amms sLmnTcœ •^sheldon m vx.wma oc«m« •ívýLUESmiœS ^«»AXnxUEJt?£Rv)5 ..m&mm .. ««**• Aispg^tj Aðalhlutverk: Charles Grodin og Bonnie Hunt. Sýnd í A-sal kl. 5,7,9 og 11. Sýnd í B-sal kl. 4,6, 8 og 10. Miðaverð kr. 450 á allar sýningar - alla daga. STALLONE • ESTELLE GETIY fint íbs tÍMticd op fcis gpíftmíut. Nw, ibrt detnisg «p me s&eefc. STOPP EÐA MAMMA HLEYPIR AF Óborganlegt grín og spenna. Sýnd í C-sal kl. 5,7,8 og 11. Miðaverð kr. 300 kl. 5 og 7 alla daga. Á STÓRU TJALDI í SPtCTHAi. ricoRÐING . „Heil smfónia af grini, spennu og vandræðum." St. Bemhards-hundurinn „Beethoven" vinnur alla á sitt band. REGNBOGINN SIMI: 19000 Morgunblaðið/Vilmundur Hansen Benedikt, Rakel og yrðlingarnir fjórir sem þau drápu. Trékyllisvík: Ungir minkabanar Trékyllisvík. RAKEL Valgeirsdóttir 9 ára og Benedikt Þorgeirsson 11 ára í Árnesi í Trékyllisvík lentu heldur í ævintýri nú fyrir skömmu, þegar þau voru að þjóla í átt að Árnesstöpum. Hundurinn Valur sem var með þeim byijaði allt í einu að gelta og láta ófriðlega. Þegar krakkarn- ir fóru að athuga hvað gengi á og elta hann gengu þau fram á minkayrðling og síðan grem. Grenið var niðri við sjó í steypu og járnadrasli sem hent hafði verið úr Árneskirkjugarði í fyrrasumar. Rakel hjólaði heim til að láta vita, en Benni vaktaði grenið. En eins og oft vill verða þá var henni ekki trúað í fyrstu. Tók hún því prik og hljóp af stað. Meðan á þessu stóð varnaði Benni minknum útgöngu með gijótkasti og óhljóðum. Benni taldi víst að hann hefði hæft yrð- linginn, en þegar hann nálgaðist stökk hann á fætur og hljóp inn í grenið. Krakkarnir sögðu að mink- arnir hefðu hvæst mikið og að það hefði verið ógeðsleg fýla úr greninu. Krakkarnir ákváðu því næst að taka til sinna ráða og fara sjálf á minkaveiðar. í fyrstu héldu þau að þetta væri bara einn yrðlingur, en svo heyrðu þau í fleirum undir steini rétt hjá. Því næst fóru þau að pjakka með prikinu undir steininn og réðst þá einn yrðlingurinn á það með miklum krafti og galt þess með lífi sínu. Rakel sagði að þau hafi verið búin að pikka svo oft í yrðlinginn að hann hafi allur verið orðinn úfinn og tættur og prikið útatað í blóði. Krakkarnir voru bún- ir að vera í um tvo tíma á veiðum þegar Valgeir Benediktsson grenja- maður kom á vettvang með byssu og hjálpaði börnunum við að aflífa afganginn. Tiltæki krakkana vakti mikla athygli ferðamanna því bílar stoppuðu og menn fylgdust áhuga- samir með. Einn kom meira að segja út til þeirra og hjálpaði þeim um stund. Alls veiddu krakkarnir fjóra yrðlinga og eina læðu í þessari fyrstu veiðiferð sinni og að sögn Hrefnu Þorvaldsdóttur í Amesi voru þau ansi lúin eftir þennan erfiða dag. - V.Hansen Akranes: Upplýsingaskilti við höfnina Akranesi. Morgunblaðið/J6n Gunnlaugsson SETT hefur verið upp við höfnina upplýsingaskilti þar sem saga Akranesshafnar er kynnt í máli og myndum. Það var forseti ís- Iands, frú Vigdís Finnbogadóttir, sem afhjúpaði skiltið þegar hún var í opinberri heimsókn á Akra- nesi 3. júlí sl. Upplýsingaskiltið er staðsett við hlið hafnarhússins og er einkar hag- anlega komið fyrir. Á skiltinu er rakin byggingarsaga hafnarinnar á mjög smekklegan hátt. Þar kemur fram að Akranes hafi snemma orðið útróðrarbær og hafi aðstaða fyrir báta verið í vörum sem staðsettar voru þar sem núverandi höfn er, en stærri skip þurft að liggja úti fyrir legufæri. Nær öld er nú liðin síðan Thor Jensen lét gera bryggju í Steinsvör. Böðvar Þorvaldsson keypti eignir Thors 1899 og lét byggja bryggju við verslunarhús sín. Sveit- arfélagið lét byggja fyrstu báta- bryggjuna í Steinsvör 1908. Bjami Ólafsson lét byggja fyrstu stein- bryggjuna í Lambhúsasundi 1915 og síðan var steypt upp smábáta- bryggja. Rétt norðan við þessa bryggju var byggð vélbátabryggja 1926 og var hún 45 metra löng en var lengd um 15 metra ári síðar. Fyrsta hafnarnefnd var skipuð á Akranesi 1928 og á fyrsta fundi hennar var ákveðið að fá Finnboga R. Þorvaldsson verkfræðing og síðar prófessor, föður Vigdísar forseta, til ráðuneytis um frekari hafnargerð. Haustið 1928 kom mikill marsvína- vaða inn á Krossvík og sátu mörg dýr föst. Heimamenn nýttu sér hval- rekann eftir fóngum, en það sem eftir stóð var selt og fengust 2.9Í0 krónur fyrir fenginn sem varð fyrsti vísir að Hafnarsjóði Akraness. Árið 1930 hófust síðan hafnarfram- kvæmdir í Krossvík að tilsögn Finn- boga verkfræðings. Gerður var garð- ur út frá kletti, sem nefnist Kanna, neðst í Heimaskagaklettum, skammt sunnan við Teigavör. Gerður var 70 metra langur garður, þar sem hægt var að landa afia og skipa út vörum. Þessi garður var síðan lengdur og er hluti núverandi hafnargarðar. A árunum 1944-45 var smíðuð ný bátabryggja skammt norðan við hafnargarðinn og á uppfyllingu milli bryggjunnar og hafnargarðsins var Síldarverksmiðjan byggð. Markviss Upplýsingaskiltið við höfnina. uppbygging hafnarinnar stóð síðan yfir næstu árin og sýnu mest á árun- um 1956-58. Þá er sementbryggjan m.a. byggð og veitir hún mun betra skjól. Alllangt hlé varð nú á hafnargerð nema hvað byggð var feijubryggja fyrir Akraborgina 1975 og flot- bryggja fyrir smábáta 1984. Þeim mun meiri áhersla var lögð á styrk- ingu og brimvöm, m.a. komið fyrir geysiöflugum brimvamargörðum úr gijóti, en vinnu lauk við hana 1991. A einni öld hefur tekist að breyta höfninni á Akranesi úr ótryggðum lendingarvömm í þá lífhöfn sem raun ber vitni um. - J.G. Ljósmynd/Jóhannes Long Þróttur fær gervigrasvöll Fyrir nokkru gerðu Markús Om Antonsson, borgarstjóri og Tryggvi Geirs- son, formaður knattspyrnufélagsins Þróttar, með sér samning sem heimilar Þrótti undirbúning alútboðs á gervigrasvelli á svæði félagsins. Á grundvelli tilboða verður síðan gerður samningur við félagið um framkvæmdina og fjármögnun félagsins á næstu árum. Myndin var tekin þegar samningurinn var undirritaður.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.