Morgunblaðið - 29.07.1992, Side 42

Morgunblaðið - 29.07.1992, Side 42
42 MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR. 29. JÚLÍ 1992 Kallaðu á mig þegar sjónvarps- Hvar endar þetta: Sama vald- fréttirnar byija. Ég ætla að beitingin á heimilinu? sofna snemma. PtarjptttMitliifr BRÉF HL BLAÐSINS Aðalstræti 6 101 Reykjavík - Sími 691100 - Símbréf 691222 Síbyljumengim og óþarfa tafir Frá Ragnari Halldórssyni: Innan skamms verða breytingar á farþegaflutningum milli sveit- arfélaga í nágrenni höfuðstaðar- ins. Tilgangur þessara lína er að benda á hvað betur má fara í fram- tíðinni. Til mikilla óþæginda hefur verið hljómtækjahávaði í bílunum sem engin leiðrétting hefur fengist á þrátt fyrir umkvartanir sem jafn- vel hafa verið ræddar í bæjarstjóm Hafnarfjarðar. Mengunarhávaði af þessu tagi þekkist ekki í Strætisvögnum Reykjavíkur enda ókurteisi og tillitsskortur við far- þega. Mörgum líður illa að hlusta á síbyljuna en fróðir menn segja Skaðlegur fréttaflutningur Frá Magnúsi Axelssyni: Það er hörmulegt þegar slys eiga sér stað hvar og hvemig sem þau ber að höndum. Það er þó enn verra þegar fjölmiðlar sjást ekki fyrir í fréttaflutningi af slysum. Fréttaflutningur Morgunblaðsins og þó sérstaklega Bylgjunnar (um- fjöllun Eiríks Jónssonar) er ekki til þess fallin að draga úr afleiðing- um slysa heldur eykur skaðann sem slys veldur. Við drögum ekki úr því áfalli sem Tatíana Dímitrova hefur orðið fyrir. Það er hræðileg lífsreynsla að ganga í gegn um það sem hún þarf að þola. Við óskum henni alls góðs um alla framtíð. Að sjálf- sögðu er eðlilegt að henni verði bætt það tjón sem hún hefur orðið fyrir og eðlilegast að óvilhallir aðilar, dómstólar, ákveði þær bæt- ur. En þetta var slys og ekkert annað en slys. Það fara tug þús- undir bifreiða út í umferðina á hveijum morgni. Það koma ekki allir heilir heim. Slys í umferðinni verða oftast fyrir mistök einhvers. Við fullyrðum að slys af þessu tagi sem hér varð eru miklu fátíð- ari en umferðarslys og afleiðing- amar ekki nærri eins alvarlegar þótt sárar séu. Enginn skilur betur en við hve hárið er hverri konu mikilvægt. Skaðinn er skeður. Að öllum lík- indum mun Tatíana fá bætur og hárið vex aftur. En skaðinn af fréttaflutningnum er ekki kominn í ljós. Á hárgreiðslustofunni Kristu vinna um 30 manns. Umfjöllun fjölmiðla hefur sett atvinnuöryggi þessa hóps í verulega hættu. Að- för sem þessi að fyrirtæki getur valdið því að fyrirtæki líður undir lok. Það er skaði sem verður ekki eingöngu vegna mistaka, heldur af fljótfærni eða hugsunarleysi mannanna sem um fjalla. Við lýsum því hér með yfír að við, sem öll emm fagmenn í hár- greiðslu, lýsum fullu trausti á Hönnu Kristínu Guðmundsdóttur hárgreiðslumeistara, hennar starfsfólk og fyrirtækið Kristu. Reynsla hennar og hæfni er óve- fengjanleg og fagmennskan í fyrirrúmi. Hún er verðugur keppi- nautur okkar um hylli viðskipta- vinanna. Það eru engar líkur á að það fari að streyma út frá henni við- skiptavinir með skemmt eða illa meðhöndlað hár nú frekar en endranær. F.h. Intercoiffure félaga á íslandi, MAGNÚS AXELSSON. að þeir sem venja sig á hana við vinnuna verði háðir henni líkt og ávanalyfi. Nýir stjórnendur ættu að koma í vega þetta, það er bæði skylt og nauðsynlegt. Ávanaþraut á ekki að trufla ökumenn og far- þega. Nauðsynlegt er að halda réttri tímaáætlun. Aðalsök, að svo hefur ekki ávallt verið, hefur verið hjá farþegum. Tillitsleysi þeirra er oft með ólíkindum. Allir sem við geta komið ættu að hafa kort, þá geng- ur allt fljótar og betur. Fólk við biðskýli hefur oftast nægan tíma til að hugsa sitt mál. Korthafar eru með allt á hreinu. Kortlaus tekur sér góðan tíma og séu þeir margir fer allt í rusl. Þeir stilla sér upp við bílstjórann byija í ró og næðí að rísla í vösum og skjóð- um, fínna kannski ekkert gjald við hæfí, skella þá hundrað eða þús- undkrónum á bekkinn og fimm- þúsundkarl er ekki undantekning! Bankinn springur. Þá er tekið upp ávísanahefti í ró og næði og byij- að að skrifa. Ekki er þó vitað að í gangi séu víxlar og veðbréf. Þetta eru staðreyndir ef einhver skildi taka þetta sem grín. Ekki mun þetta vera að skapi bílstjóranna. Það er því annars staðar að leita orsakanna. Gætu Strætisvagnar Reykjavíkur hugsað sér að taka upp svona fyrirkomulag? Meðan á svona löguðu stendur væri hægt að aka marga kílómetra, ekki auð- veldar það stundvísina. Svona víxlarastarfsemi er hlutverk banka en ekki áætlunarbifreiða. Það ættu nýir stjómendur að athuga. Það er bannað að tmfla bíl- stjóra í akstri og þó umfram allt í þéttsetnum vögnum í mikilli umferð. Nýir stjómendur ættu að koma í veg fyrir það sem oft hef- ur skeð að kjaftaskúmar og þvarg- arar klíni sig upp að ökumönnum, svo að segja upp í fangið á þeim, og láti móðan mása. Kurteisissva- rendur telja það skyldu sína að horfast í augu við viðmælanda sinn og bílstjórar hafa því orðið að vera „hálsliðamjúkir að hofmanna sið“ eins og stendur í kvæði Gríms Thomsens. Slíkt er hættulegt í miklum umferðarþunga og veldur óróa hjá farþegum. Nýju fyrirtæki er árnað heilla. RAGNAR HALLDÓRSSON Miðvangi 41, Hafnarfirði HOGNI HREKKVISI Víkveiji skrifar ótt lofthiti hafi ekki verið ýkja mikill að undanfömu, miðað við sama árstíma í „eðlilegu ár- ferði“ hefur verið mjög bjart og fagurt veður hér á vestanverðu landinu að undanförnu. Víkveiji hefur orðið þess var að fólk kann að meta blíðuna langþráðu, þótt vart nokkur maður gangi út frá henni sem vísri, og hver og einn segi sem svo „er á meðan er“. Því er ekki að neita að á dögum sem þeim sem hafa ríkt í Reykjavík og nágrenni undanfarna daga hefur stolt Víkveija yfir borginni og ná- grenni síður en svo minnkað. Til að mynda hefur verið heldur dá- samlegt að fá sér kvöldgöngu að vinnudegi loknum í Elliðaárdalnum og mæta borgarbúum á tveimur jafnfljótum, á reiðhjóli, eða jafnvel í hjólastólum. Heimilishundurinn fylgir gjarnan ákveðnum göngu- mönnum og fær Víkveiji dagsins ekki betur séð en það séu óþarfa bönn úti um víðan völl á gönguleið- um Reykvíkinga, þegar hundar éru annars vegar. Þeir mega ýmist alls ekki vera þar sem fólk er, eða eigendum þeirra er gert skylt að hafa þá tjóðraða. Víkveiji hefur iðulega mætt hundaeigendum á göngu, sem líta einfaldlega fram- hjá boðum og bönnum um hunda og hafa hunda sína ótjóðraða án þess að þeir séu til nokkurs ama fyrir aðra vegfarendur. XXX Sömu sögu er að segja af ann- arri gönguparadís okkar Reykvíkinga og ekki síðri Elliða- árdalnum, en þar á Víkveiji við Heiðmörk. Heiðmörk er ótrúleg náttúruperla rétt við borgarmörk- in. Trén þar eru mörg hver orðin hreint ótrúlega há, göngustíga- kerfið orðið vel þróað og nýtilegt og útsýnið út yfír Esjuna, Akra- fjall, Snæfellsnes og Sundin blá er slíkt á fögrum dögum, eins og að undanförnu, að lygi er líkast. að verður ekki annað sagt en Tommi sá sem á veitinga- staðinn Hard Rock Café hafi hald- ið upp á fimm ára afmæli staðar- ins með stæl sl. sunnudag. Múgur og margmenni safnaðist saman á Kringlutorginu í blíðviðrinu, þar sem við vægu verði var hægt að festa kaup á útigrilluðum ham- borgurum, hlusta á rokktónlist og fylgjast með glæfrastökki Tomma úr 55 metra háum krana - svoköll- uðu teygjustökki, sem mun vera nýtt glæfratískufyrirbæri sem er að ryðja sér til rúms úti í hinum stóra heimi. Tommi fékk slíka kynningu á afmælisdaginn, að hún jafnast áreiðanlega á við margra mánaða auglýsingaherferð. Báðar sjónvarpsstöðvarnar sögðu frá há- tíðinni í máli og myndum og sýndu glæfrastökkið. Hann er greinilega enginn nýgræðingur í kynningar- starfseminni hann Tommi.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.