Morgunblaðið - 29.07.1992, Síða 43
43
MORGUNBLAÐÍÐ MlÐVlKUDAGUR 29. JÚLÍ 1992
Það fór vel um fólkið í bátnum á leiðinni út að Drangey.
Sjálfsbjörg gerir það
ómögnleg’a mögnlegt
Frá Guðjóni Emilssyni:
Eflaust eru margir sem telja
útilokað að fara með stóran hóp
af fötluðu fólki yfir hálendi lands-
ins. En þá kenningu hefír Sigríður
Kristinsdóttir fararstjóri og að-
stoðarfólk hennar afsannað ræki-
lega. Við hjónin áttum þess kost,
nú í annað sinn, að fara með þeim
í ferð yfír hálendið. í fyrra fórum
við yfír Sprengisand til Húsavíkur
og nú í sumar yfír Kjöl til Hofsóss.
Lagt var af stað í ferðina hinn
10. júlí síðastliðinn og komum við
fyrst í Skygnisskóg í Biskups-
tungum þar sem Björn bóndi Sig-
urðsson tók á móti okkur. Jón bró-
ir hans var með okkur og buðu
þeir bræður í kaffí og með því.
Veðrið lék þá við okkur með glaða
sólskini, eins og var nánast alla
ferðina. Þaðan var lagt á Kjöl og
tók Jón þá við leiðsögn og fræddi
okkur um margt sem fyrir augu
bar.
Á leiðinni norður skoðuðum við
meðal annars Blönduvirkjun og fór
rútan inn í göngin þar sem mér
var tjáð að við værum komin um
100 metra niður í jörðina. Því
næst var haldið á Hofsós þar sem
hótelstjórinn, Valgeir Þorvaldsson,
tók á móti okkur. Um kvöldið bauð
hann okkur á kvöldvöku í 200 ára
gömlu pakkhúsi þar sem heimafólk
stóð fyrir fjölbreyttri dagskrá með
söng og ýmsum skemmtiatriðum.
Við vorum svo heppin að þama
voru staddir Gunnar Guðbjömsson
óperasöngvari og Jónas Ingimund-
arson píanóleikari og höfðu allir
mikla ángæju af framlagi þeirra
félaga til kvöldvökunnar.
Daginn eftir var farið með bát
út að Drangey. Þá var norðan
andvari og svolítil alda en enginn
varð sjóveikur og verður sjóferð
þessi sjálfsagt mörgum ógleyman-
leg. En nú skal farið fljótt yfír
sögu og eftir að hafa meðal ann-
ars komið að Hólum og skoðað
ýmislegt markvert nyrðra var hald-
ið heim á leið. Síðasti áfanginn var
Hreðavatnsskáli þar sem veislu-
matur beið okkar. Laust fyrir mið-
nætti var svo lagt af stað heim í
fallegu veðri þar sem fullt tungl
lýsti upp spegilsléttan sjóinn í
Hvalfírðinum. Allir sem hlut eiga
að máli eiga þakkir skildar fyrir
mjög skemmtilega ferð og ekki
má gleyma Hannesi bílstjóra, sem
var einstaklega lipur og hjálpsam-
ur og taldi ekki eftir sér að fara
útúrkróka svo að við gætum séð
sem mest. Með þessari ferð sann-
aði fólkið hjá Sjálfsbjörg að ekkert
er ómögulegt ef vilji og samtaka-
máttur er fyrir hendi. Guð blessi
ykkur öll.
GUÐJÓN EMILSSON,
Skólabraut 5, Seltjarnamesi.
HEILRÆÐI
T
Liggja eiturefni á glámbekk í bílskúrnum þínum? Hellið
aldrei eiturefnum á gosflöskur?
Pennavinir
Tvítug íslensk stúlka sem búsett
er í Bandaríkjunum óskar eftir
pennavinum á öllum aldri. Áhuga-
málin eru ferðalög, íþróttir og úti-
vist, kvikmyndir og tónlist:
Kristín Baldursdóttir Elsliger,
601 East Prospect Ave.,
Apt. 2c,
Mt. Prospect,
Illinois,
60056 U.S.A.
Þýsk 32 ára éins barns móðir
langar að skrifast á við íslenskar
mæður. Skrifar á ensku auk þýsku:
Maria Schwebach,
Schulstrasse 7a,
D-5509 Kelle am See,
Germany.
LEIÐRÉTTING
Ummæli um
lyfjanotkun
Morgunblaðinu hefur borist
eftirfarandi athugasemd frá
Rósu Ólafsdóttur, íþróttakenn-
ara:
„Ég vil gjaman að fram komi
leiðrétting vegna viðtals, sem birtist
við mig 26. júlí undir „Hvar era
þau nú“. Ég ræddi þar um stórmót
í vaxtarrækt sem ég tók þátt í er-
lendis og misnotkun á lyfjum út frá
því. Ég vil koma því á framfæri, að
í íþróttagreinum innan íþróttasam-
bands íslands sé ekki um misnotkun
á lyfjum að ræða svo vitað sé.
I umræddu viðtali átti ég meira
við misnotkun á lyfjum erlendis,
einkum í vaxtarrækt. Því fjölmiðlar
hafa verið duglegir að fræða okkur
um slíka misnotkun, einkum ef
menn hafa verið dæmdir í keppnis-
bann þar sem þeir hafa fallið á lyfja-
prófí og misst þar af leiðandi jafn-
vel heimsmeistaratitla."
Rósa Ólafsdóttir
íþróttakennari
BE§m HEHSUEÆKIM
er að sofa á ekta rúmdýnu
lyn
sem passar hæð þinni og pyngd
Hús^apaliöIIin
BÍL.DSHÖFÐA 20 - 112 REYKJAVÍK - SÍMI 01-681100
SIMINNHJA. OKKUR ER 91-68 11 99
Til sölu Dethleffs 490T hjðlhýsi
árgerð 1991. Hjólhýsið er 5 m langt og því fylg-
ir stórt fortjald. Hjólhýsinu getur fylgt land í
Húsafelli með heitu og köldu vatni ásamt raf-
magni að kostnaðarlausu í tvö ár.
Upplýsingar í símum 93-51378 og 93-51374.
JIÍ0ripwM$itS>i&
Metsölublað á hverpm degi!
NITESTAR Hollowfibre
C° KG ARSTÍÐ VERÐ
NS3 -10° 1.9 VorSumHau 4.900,-
MARCO POLO
C KG ARSTIÐ VERÐ
300 -10° 1,9 VorSumHau 6.500.-
350 -15° 2.0 Heilsárs 6.900.-
400 -20° 2.1 Heilsórs 7.300,-
450 -25° 2.2 Heilsórs 7.975.-
FAGFOLKIFERÐAVORUM
ÞJÓNUSTA CÆÐI ÞEKKING
ICARUS
Polarguarcf
C° KG ARSTIÐ VERÐ
170 -25° 1.9 Heilsórs 10.300,-
190 -35° 2.2 Heilsórs 13.800.-
Svefnpohar
verð oo gæði við allra hæfi
APPOLO
hringdu - við sendum bæhling
Sendum einnigT pósfhröfu...
-U Gæsnchinn
C° KG ARSTIÐ VERÐ
1000 -30° 1.6 Hellsárs 17.900.-
1 kg gæðagæsadúnn
EXPEDITION -45° 2.0 Hellsórs 23.000,-
1.5 kg gæöagæsadúnn
...þar sem ferðalagið bqrjar!
SEGLAGERÐIN
ÆGIR
EYJASLÓÐ 7 • REYKJAVÍK • SÍMI91-621780 • FAX 91-623853