Morgunblaðið - 29.07.1992, Page 44
SINDRI
terkur hlekkur
í íslensku iðnverki
Gæfan fylgi þér
í umferðinni
SJOVAOHALMENNAR
MORGUNBLAÐIÐ, AÐALSTRÆTI 6, 101 REYKJAVÍK
SÍMl 691100, SÍMBRÉF 691181, PÓSTHÓLF 1655 / AKUREYRI: HAFNARSTRÆTI 85
MIÐVIKUDAGUR 29. JÚLÍ 1992
VERÐ í LAUSASÖLU 110 KR.
Þorsteinn Pálsson sjávarútvegsráðherra ákveður 205 þúsund tonna þorskafla:
Hætta á miklu meiri veiði
yfirgæfi ég ríkissljómina
Örlítið skref til uppbyggingar á
þorskstofninum, segir aðstoðarfor-
stjóri Hafrannsóknastofnunar
„ÉG óttast, og er reyndar alveg sannfærður um, að ef ég hefði látið
reyna á ýtrustu kröfur af minni hálfu og yfirgefið ríkisstjómina vegna
þess að þær hefðu ekki náðst fram, þá hefði niðurstaðan að öllum
líkindum orðið miklum mun meiri veiði og minni verndun þorskstofns-
ins,“ sagði Þorsteinn Pálsson sjávarútvegsráðherra í samtali við Morg-
unblaðið í gær eftir að hann hafði kynnt fréttamönnum reglugerð sem
hann gaf út um leyfilegan hámarksafla á næsta fiskveiðiári. Jakob
Magnússon, settur forstjóri Hafrannsóknastofnunar segir um þá niður-
stöðu sem varð í gær, að það væri ofurlítið skref til uppbyggingar á
þorskstofninum, en hann hefði þó gjarnan viljað sjá það skref stærra.
Leyfilegur þorskafli landsmanna
fyrir fískveiðiárið sem hefst 1. sept-
ember nk. verður 205 þúsund tonn,
samkvæmt reglugerð þeirri sem
Þorsteinn Pálsson sjávarútvegsráð-
herra gaf út í gær. Samtals nemur
leyfður heildarafli kvótabundinna
tegunda á næsta ári 439 þúsund
þorskígildistonnum. Ríkisstjómin
->'undaði daglangt í gær um málið
og fékkst ofangreind niðurstaða
laust fyrir kl. 15.30. Sjávarútvegs-
ráðherra nefnir þessa niðurstöðu
málamiðlun. Sú málamiðlun felur
það ekki í sér að úthlutað verði úr
Hagræðingarsjóði með þeim hætti
sem ráðherra hafði.lagt til.
Er Morgunblaðið spurði sjávarút-
vegsráðherra hvort það hefði aldrei
komið til greina í hans huga að
standa og falla með eigin sannfær-
ingu og leggja til á ríkisstjómar-
fundinum að hámarksafli þorsks
yrði takmarkaður við 190 þúsund
tonn, sagðist hann hafa lagt aðalá-
herslu á að flnna lausn og ná sam-
stöðu um málið, þar sem hann hefði
> óttast afleiðingar þess að láta reyna
á ýtrustu kröfur. „Þess vegna taldi
ég réttlætanlegt og reyndar nauð-
synlegt út frá þjóðarhagsmunum
að gera slíkt samkomulag," sagði
Þorsteinn Pálsson.
Þeir Davíð Oddsson forsætisráð-
herra og Jón Baldvin Hannibalsson
utanríkisráðherra sögðust í sam-
Dansktskip
strandaði í
Breiðdalsvík
DANSKA skipið Erík Boye frá
Marstal strandaði fyrir utan höfn-
ina á Breiðdalsvík á níunda tíman-
um i gærkvöldi. Lágfjara var um
það Ieyti sem skipið strandaði, og
óttast er að leki hafi komist að
því. Skipið flutti 900 tonn af salti
frá Þýskalandi og var Breiðdals-
vík fyrsti viðkomustaður þess.
Engin slys urðu á mönnum.
Að sögn Magnúsar Armann hjá
Gunnari Guðjónssyni skipamiðlara
sf., afgreiðslu- og umboðsaðila
skipsins, voru 30 tonn af salti losuð
í Breiðdalsvík, og skipið var komið
um 80-100 metra frá höfninni er
það tók niðri. Skipið er 900 tonn
að stærð og átti eftir að koma við
á nokkrum stöðum á landinu.
Að sögn Skapta Ottesen á Hótel
Bláfelli í Beruvík var lágfjara um
níuleytið, og verið gæti að skipið
hefði farið vitlausu megin við bauju
" *a leiðinni út úr höfninni.
tölum við Morgunblaðið í gær vera
sáttir við þá niðurstöðu sem fékkst.
Talsmenn hagsmunasamtaka í
sjávarútvegi gagnrýndu í gær að
aflaheimildir Hagræðingarsjóðs
verði ekki notaðartil aðjafna niður-
skurð á þorskafla milli svæða og
töldu ýmsir að ekki hefði verið kom-
ið nægilega til móts við tillögur
fískifræðinga. En Matthías Bjarna-
son þingmaður Sjálfstæðisflokksins
gagnrýndi niðurstöðu ríkisstjómar-
innar mjög harðlega, sagði hana
dapurlega og óskiljanlega ósann-
gimi og að svo virtist sem stefnt
væri að því að koma ákveðnum
byggðarlögum í eyði.
Sjá fréttir og viðtöl á bls. 19
og miðopnu.
Innfluttar
kartöflur
á markað
í BYRJUN næstu viku verður
heimilaður innflutningur á
erlendum kartöflum, og
verða þær væntanlega á boð-
stólnum í kríngum 10. ágúst,
en þegar hefur verið opnað
fyrir innflutning á stórum
bökunarkartöflum. Að sögn
Kolbeins Ágústssonar sölu-
stjóra hjá Sölufélagi garð-
yrkjumanna er uppskera á
kartöflum og útiræktuðu
grænmeti almennt um þrem
vikum síðar á ferðinni nú en
í meðalári vegna óhagstæðs
tíðarfars í vor.
Kolbeinn sagði að erlendar
kartöflur yrðu væntanlega á
markaðnum í um hálfan mánuð,
en bökunarkartöflur yrðu þó
fluttar inn eitthvað frameftir
haustinu. Hann sagði að fram-
boð á útiræktuðu grænmeti
væri talsvert um þessar mundir,
og þannig væri hvítkál og blóm-
kál komið á markaðinn í tals-
verðum mæli, og verð á kínak-
áli hefði hríðlækkað vegna mik-
illar uppskeru.
„Það má segja að þetta sé
allt saman um þrem vikum á
eftir miðað við það sem er í
venjulegu ári vegna tíðarfarsins
í vor þegar kalt var og dimmt.
Sem dæmi má nefna að í fyrra
var töluvert af kínakáli og blóm-
káli komið á markaðinn í lok
júní,“ sagði hann.
MorgunDlaOiO/ujami.
Ráðherra kynnir reglugerð
Þorsteinn Pálsson sjávarútvegsráðherra kynnti reglugerð um aflaheim-
ildir næsta flskveiðiárs á blaðamannafundi í gærdag.
Fiskur virð-
ist forðast
sléttan botn
RANNSÓKNIR sem rússneskir
vísindamenn hafa framkvæmt
benda til að fiskur hverfi af mið-
um sem svo mikið hefur verið
togað á að botninn er orðinn slétt-
ur. Hafrannsóknarstofnun telur
hinsvegar ólíklegt að þetta fái
staðist.
Gervihnattamyndir af fiskimið-
unum við Kúrileyjar og Kamtsjatka-
skaga sýna að á helstu togslóðum
þar er hafsbotninn orðið jafnsléttur
og „flugvöllur" en rannsóknir og
aflaskýrslur sýna að þar fer fisk-
gengd þverrandi.
Jakob Magnússon starfandi for-
stjóri Hafrannsóknarstofnunar segir
að þótt ljóst sé að botntrollið breyti
botninum eitthvað sé það ósannað
mál hvort botnlagið hafí áhrif á fisk-
inn.
Sjá nánar á bls. 1C.
♦ ♦ ♦
Vestmannaeyjar:
4 ára dreng-
ur beið bana
BANASLYS varð í Vestmannaeyj-
um um klukkan þijú í gærdag,
er ekið var á 4 ára dreng og
móður hans á gangbraut á
Strandvegi. Drengurinn var flutt-
ur með sjúkraflugvél til Reykja-
víkur, en lést er þangað var kom-
ið. Móðirin er ekki talin í lífs-
hættu.
Að sögn lögreglunnar 1 Vest-
mannaeyjum voru konan og dreng-
urinn á leið yfir gangbraut á Strand-
vegi, vestan gatnamóta Strandvegar
og Heiðarvegar. Er þau voru komin
út á miðjan veginn urðu þau fyrir
bifreið er ekið var vestur Strandveg.
Bæði hlutu höfuðáverka og voru
flutt á sjúkarhús. Áverkar drengsins
voru það alvarlegir að hann var flutt-
ur til Reykjavíkur með sjúkraflug-
vél. Hann lést síðar á sjúkrahúsi
þar.
Nýjar deilur eru risnar innan Fjölmiðlunar sf:
Sljómin ákvað ein
að selja hlut í Stöð 2
STJÓRN Fjölmiðlunar sf. hefur selt hlutabréf félagsins í íslenska út-
varpsfélaginu að nafnvirði 150 milljónir króna á genginu 1,6. Að sögn
Jóhanns J. Ólafssonar, stjórnarformanns í Fjölmiðlun sf., kom gott til-
boð í hlutabréfin sem stjórninni þótti ekki stætt á að hafna. Kaupandi
hlutabréfanna er Útheiji hf. Að sögn Skúla Jóhannessonar, eins af
eigendum Fjölmiðlunar sf., ríkir mikil óánægja meðal eigenda Fjöhniðl-
unar sf. með þessa ákvörðun.
Stjórn Fjölmiðlunar sf. er, að sögn
Jóhanns, sammála um þessa ákvörð-
un en stjómina skipa auk hans Har-
aldur Haraldsson og Jón Ólafsson.
Ákvörðunin um að selja hlutabréfin
var ekki formlega borin undir hlut-
hafa utan stjómar. „Enda hefur
stjórnin heimild til að taka slíka
ákvörðun án þess. Þegar hlutabréfin
í eignarhaldsfélagi Verslunarbank-
ans voru seld, var það ekki borið
undir eigendur eignarhaldsfélags-
ins,“ segir Jóhann.
Hann segir að boðaður verði fund-
ur með sameigendum í ágúst þar sem
þeim verði tilkynnt salan. „Við höfum
auk þess haft samband við menn,
og 60% til 70% innan þessa hóps
samþykkja söluna.“
Skúli Jóhannesson segir að mikil
óánægja sé ríkjandi meðal hluthafa
í Fjölmiðlun sf. með vinnubrögðin
sem viðhöfð hafí verið við söluna.
„Ef stjóminni er heimilt að gera
þetta er það gjörsamlega siðlaust.
Ég geri ráð fyrir að stjórn Fjölmiðl-
unar sf. séu eigendur að Utheija og
hún sé með þessu að selja sjálfri sér
hlutabréfín," segir Skúli.
Hann segir að Jóhann J. Ólafsson
hafí falið Páli Magnússyni að af-
henda hluthöfum hlutabréf sín. „Nú
er það greinilega afturkallað og bréf-
in okkar seld félagi sem við höfum
enga vitneskju um. Ég hefði talið
eðlilegt að kalla til félagafundar þar
sem staða kaupendanna væri upp-
lýst.“
Hann segir að samband verði haft
við lögfræðing út af málinu í dag.
„Það hefur ekki verið alger einhugur
um stjómarmennina innan hlutafé-
lagsins og þarna slá þeir fyrir neðan
beltisstað," segir Skúli.
Samkvæmt upplýsingum Morgun-
blaðsins hafa verið væringar innan
hluthafahópsins allt frá því fyrir síð-
asta aðalfund íslenska útvarpsfé-
lagsins, þar sem segja má að þeir
Jóhann J. Ólafsson, Jón Ólafsson og
Haraldur Haraldsson hafí orðið undir
í stjómarkjöri en hin fylkingin innan
Fjölmiðlunar með þá Ásgeir Bolla
Kristinsson, Skúla Jóhannesson og
Jóhann Óla Guðmundsson í farar-
broddi styrkt stöðu sína í félaginu
með því að hafa samvinnu við aðra
helstu hluthafahópa í stjómarkjör-
inu.