Morgunblaðið - 10.11.1992, Síða 1

Morgunblaðið - 10.11.1992, Síða 1
72 SIÐUR B STOFNAÐ 1913 257. tbl. 80. árg. ÞRIÐJUDAGUR 10. NOVEMBER 1992 Prentsmiðja Morgunblaðsins Borís Jeltsín heimsækir Bretland Böndin treyst með vináttusamningum Lundúnum. Reutnr. ^ Lundúnum. Reuter. BORIS Jeltsín, forseti Rússlands, kom í opinbera heimsókn til Bretlands í gær. Hann ræddi meðal annars við John Major, forsætisráðherra Bretlands, og Rússland Fasteignir fari upp í skuldirnar Helsinki. Frá Lars Lundsten, fréttaritara Morgunblaðsins. JÚTÍJ Deijabín, sendiherra Rússlands í Finnlandi, telur ekki ólíklegt, að Rússar vilji fá að greiða skuldir sínar við Finna með fasteignum eða jafnvel eign- arhlut í ýmsum náttúruauðlind- um. Kemur þetta fram í viðtali við sendiherrann í stærsta dag- blaði í Finnlandi, Aamulehti. Rússar skulda finnsku ríkis- ábyrgðastofnuninni 2,5 milljarða fínnskra marka, 29,5 milljarða ÍSK., en áhugi hennar fasteignavið- skiptum erlendis er talinn mjög tak- markaður og svo er einnig um fínnsku bankana, sem eiga sömu upphæð útistandandi hjá Rússum. Aftur á móti er talið, að ekki sé loku fyrir það skotið, að finnsk iðn- fyrirtæki hafí áhuga á greiðum aðgangi að rússneskum hráefnum. Hugmyndir Rússa um fasteignir í stað peninga voru nokkuð uppi á borðinu þegar Borís Jeitsín, forseti Rússlands, var hér í sumar en bent er á, að erfítt geti verið að meta fasteignir í Rússlandi til fjár eins og nú er ástatt í landinu. að fundi þeirra loknum undirrit- uðu þeir fyrsta vináttusáttmála ríkjanna frá árinu 1766. Breskur embættismaður sagði að í viriáttusáttmálanum væri kveðið á um hvernig samskipti ríkjanna ættu að vera í framtíðinni, auk þess sem ríkin skuldbyndu sig til að virða vestræn gildi í efnahags- og stjórnmálum. „Það er mjög heppilegt að þessi heimsókn á sér stað nú þegar umbótastefnan mæt- ir andstöðu í Rússlandi og hún ger- ir okkur kleift að sýna stuðning okkar við umbætur og lýðræðisþró- un,“ sagði embættismaðurinn. Borís Jeltsín sagði að vináttu- samningurinn myndi binda enda á „hernaðarlega móðursýki og húg- myndafræðileg átök“ sem hefðu einkennt samskipti ríkjanna til þessa. í dag ávarpar Jeltsín sameigin- legan fund beggja deilda breska þingsins, snæðir hádegisverð með Elísabetu drottningu og flytur ávarp í kauphöllinni í Lundúnum. Rúm hálföld frá „Kristallsnóttinni“ Um 40.000 manns söfnuðust saman í Munchen í Þýskalandi í gær til að mótmæla kynþáttahatri en þá voru jafnframt liðin 54 ár frá „Kristallsnóttinni", sem var nokkurs konar upphaf að gyðingaofsóknum nasista. í gær fór allt friðsamlega fram en í fyrradag grýttu öfgafullir vinstrimenn Helmut Kohl kanslara og Richard von Weizsacker, forseta Þýskalands, þegar þeir fluttu ræður og töluðu gegn útlendingahatri. Sjá Stjórnleysingjar ...“ á bls. 30. Skyndifundur utanríkisráðherra Evrópubandalagsins í Brussel GATT-viðræður verði taf arlaust teknar upp aftur Brussel. Frá Kristófer M. Kristinssyni, fréttaritara Morgnnblaðsins. Utanríkisráðherrar Evrópu- bandalagsins (EB) vöruðu í gær við alvarlegum afleiðingum yfir- vofandi viðskiptastríðs á milli bandalagsins og Bandaríkjanna og hvöttu til, að samningaviðræð- ur við Bandaríkjamenn um niður- greiðslur á landbúnaðarvörum yrðu teknar upp aftur tafarlaust. Þá höfnuðu þeir kröfum Frakka um að fresta frekari samninga- umleitunum en birta þess í stað fyrirætlanir um refsitolla á banda- rískar vörur á Evrópumarkaði. í yfirlýsingu ráðherranna er bent á, að stigmagnandi viðskiptastríð á milli Bandaríkjanna og EB yrði öllum til tjóns. Ráðherrarnir ítreka þess Utanríkisráðherra Noregs á Norðurlandaráðsþingi Hefðbundið öryggissamstarf Norðurlanda ekki útilokað Árósum. Frá Ólafi Þ. Stephenaen, blaðamanni Morgunblaðsins. THORVALD Stoltenberg, utanríkisráðherra Noregs, lét falla ummæli, sem túlkuð eru svo, að hann hafi vitfað gefa í skyn, að Norðurlöndin kynnu innan tiðar að starfa saman í varnarbanda- lagi, er hann flutti skýrslu um utanríkismál á 41. þingi Norður- landaráðs, sem hófst í Árósum í Danmörku í gær. Skýrsla Stolten- bergs markar tímamót í norrænu samstarfi. Norðurlandaráði hefur aldrei áður verið flutt skýrsla um utanríkismál. „Norðurlandaráð er nú þegar mikilvægur vettvangur umræðna um utanríkis- og öryggismál. Forsætisráðherrar Norðurlanda ræða í auknum mæli mál, sem varða utanríkisstefnu, á fundum sínum. Utanríkisráðherramir hittast oftar en áður,“ sagði Stolt- enberg. „Þróunin í Evrópu leiðir af sér samstarf Norðurlandanna um mál, sem áður voru ekki á dagskrá. Ég útiloka alls ekki, að innan skamms getum við séð fram á, að Norðurlöndin vinni saman, ekki aðeins að nýjum ör- yggismálanna, heldur einnig hin- um hefðbundnu. Einnig hér á það við, að því meir sem Norðurlönd- in taka þátt í sammna Evrópu- samstarfsins, þeim mun meiri möguleika á norrænt samstarf. Við verðum að ganga í EB til að vera með í norrænu samstarfi!" Ummæli Stoltenbergs um hugsanlegt samstarf um „hefð- bundnar hliðar öryggismálanna" Thorvald Stoltenberg vöktu athygli. Ein ástæða þess, að utan- ríkismál voru ekki rædd á þingum Norð- urlandaráðs í nærri 40 ár, var sú stað- reynd, að ís- land, Noregur og Danmörk eru í Atlantshafs- bandalaginu (NATO) en Finnland og Svíþjóð hafa fylgt hlutleysis- stefnu og staðið utan hernaðar- bandalaga. Undanfarnar vikur hafa þó verið miklar umræður í Finnlandi um hvort sækja beri um aðild að NATO og Finnland hefur, eitt hlutlausra ríkja, fengið áheyrnaraðild að Norður-Atlants- hafsráðinu, samstarfsvettvangi NATO og fyrrverandi Varsjár- bandalagsríkja. Finnland og Sví- þjóð hafa sótt um aðild að Evr- ópubandalaginu og verið hafa skoðanaskipti í löndunum um framtíð hlutleysisstefnunnar enda er markmið Evrópubanda- lagsins, að Vestur-Evrópusam- bandið verði í framtíðinni varnar- málaarmur bandalagsins og hafi herafla á að skipa. Utanríkismálin eru fyrirferðar- mikil á þingi Norðurlandaráðs og verða rædd sérstaklega á mið- vikudag en þá lýkur þinginu. Aðalefni þingsins er þó tillögur forsætisráðherra Norðurland- anna um nýskipan norræns sam- starfs. Gro Harlem Brundtland, forsætisráðherra Noregs, mælti fyrir tillögunum í gær og þing- menn munu ræða þær í dag. Annars vegar er þar lögð áhersla á samstarf Norðurlanda í málefn- um Evrópska efnahagssvæðisins og Evrópubandalagsins, hins veg- ar á að beina kröftunum að færri sviðum í Norðurlandasamstarfí. Sjá fréttir af Norðurlanda- ráðsþingi á miðopnu. vegna stuðning aðildarríkja EB við samningaviðræðurnar innan GATT °g leggja áherslu á farsæla lausn þeirra ekki einungis hvað varðar landbúnaðarafurðir, heldur og aðra þætti viðræðnanna. Framkvæmda- stjóm EB, sem fer með samningana fyrir hönd aðildarríkjanna, er hvött til að hefja nú þegar viðræður við Bandarílq'amenn til þess að ljúka megi samningunum fyrir lok þessa árs. Framkvæmdastjórn bandalagsins mun fjalla um samningana á fundi á morgun en ljóst er að umtalsverður ágreiningur er innan stjórnarinnar um áherslur og fyrirkomulag við- ræðnanna. Jacques Delors, forseti framkvæmdastjórnarinnar, liggur undir ásökunum um að hafa dregið taum Frakka í viðræðunum um land- búnað svo mjög, að Ray McSharry sá sig tilneyddan að segja af sér sem aðalsamningamaður EB um land- búnaðarmál. Ljóst er að fram- kvæmdastjómin verður að ná inn- byrðis samstöðu um áherslur og hlut- verkaskiptingu í viðræðunum. Það vakti athygli á fundi utanríkis- ráðherranna í gær, að Frakkar standa einir innan EB hvað varðar landbúnaðarmálin og afstöðuna til nýs GATT-samnings og að þessu sinni var engin samstaða með þeim og Þjóðveijum. Þá sagði Francois Mitterrand, forseti Frakklands, í sjónvarpsviðtali í gær, að það gæti orðið hættulegt Frakklandi að ein- angrast í þessari deilu og vekur það vonir um, að fulltrúar Frakka í við- ræðunum gerist samningafúsari.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.