Morgunblaðið - 10.11.1992, Side 4

Morgunblaðið - 10.11.1992, Side 4
i- scer mav.'A /öA .01 huoaœjigim qigajswudhom MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 10. NÓVEMBER 1992 Hafnasamband sveitarfélaga Gjaldskrá hafna hækkar um 3% Á ÁRSFUNDI Hafnasambandsins var samþykkt að hækka gjald- skrá hafna um 3% frá og með næstu áramótum og gildir sú verð- hækkun fyrir árið 1993 að óbreyttri verðlagsþróun. Enn fremur var samþykkt að hraða samræmingu á þjónustugjöldum hafnanna. Á fundinum kynnti hafnarmála- stjóri tillögur að hafnaáætlun fyrir tímabilið 1993 til 1996, ásamt yfirliti um framkvæmdir árið 1992. Samkvæmt bráðabirgð- auppgjöri fyrir árið 1992 hefur verið unnið í höfnum landsins fyr- ir, 1.214.000.000 krónur. Hlutur ríkisins er 826.300.000 en fjárveit- in árið 1992 var 762.300.000 krónur. Vegna breytinga á hafnalögum ,vaf samþykkt að vekja athygli á nokkrum atriðum svo sem að tek- ið verði fullt tillit til annarra sam- gangna milli byggðarlaga við upp- byggingu hafna og stofnun hafna- samlaga. Að tekið verði mið af fyrirhugaðri sameiningu sveitarfé- laga og að ekki verði dregið úr ríkisstyrkjum til einstakra þátta í stofnkostnaði svo sem hafnarvoga, löndunarkrana og hafnsögubáta. VEÐUR Þá segir í frétt frá sambandinu, að samþykkt hafí verið tillaga um að ríkið hætti að veita styrk til dráttarbrauta og upptökumann- virkja. Var sú tillaga samþykkt með 21 atkvæði gegn 11 en 23 fulltrúar sátu hjá. Loks voru samþykktar breyt- ingar á lögum sambandsins um að stjómarmönnum yrði fjölgað úr sex í átta og skal einn stjómar: maður vera úr hveiju kjördæmi. í stjóm voru kjömir; Hannes Valdi- marsson hafnarstjóri, Reykjavík, Sturla Böðvarsson bæjarfulltrúi og Alþingismaður, Stykkishólmi, fyrir Vesturland og var hann jafn- fram endurkjörinn formaður Hafnasambandsins, Einar Garðar Hjaltason bæjarfulltrúi ísafirði, fyrir Vestfirði, Brynjar Pálsson formaður hafnarstjómar Sauðár- króki, fyrir Norðurland vestra, Guðmundur Sigurbjömsson hafn- arstjóri, Akureyri, fyrir Norður- land eystra, Þorvaldur Jóhannsson bæjarstjóri, Seyðisfirði, fyrir Aust- urland, Ólafur M. Kristinsson hafnarstjóri, Vestmannaeyjum, fyrir Suðurland og Eyjólfur Sæ- mundsson formaður hafnarnefnd- ar Hafnarfirði fyrir Reykjanes. Innan Hafnasambandsins eru 60 hafnir og sátu fundinn 138 fulltrúar og gestir. Morgunblaðið/Björn Blöndal Lágmarksvinnsla er þessa dagana hjá Vogum hf. í Njarðvík. Þar starfa nú um 25 manns en sú tala gætí tvöfaldast á næstunni. Um 100 ný störf að skap- ast í Keflavík og Njarðvík Keflavfk. ATVINNULEYSIÐ á landinu er hvergi meira en á Suðurnesjum og þá sérstaklega í Keflavík og Njarðvík þar sem samkvæmt nýj- ustu tölum eru 297 manns skráðir VEÐURHORFUR I DAG, 10. NOVEMBER YFIRLIT: Á Grænlandshafi er allviðáuumikil 965 mb lægð, sem á að þokast au8tnorðaustur. Heldur mun kólna í veðri. SPÁ: Norðanátt. Stinningskaldi er sums staðar vestast á landinu en mun hægari austanlands. Él vestanlands en bjartviðri suðaustan- og austanlands. VEÐURHORFUR NÆSTU DAGA: HORFUR Á LAUGARDAG: Fremur hæg breytileg eða vestlæg ótt. Víða léttskýj- að. Svalt (veðri og víða frost, einkum inn til landsins. HORFUR Á MIÐVIKUDAG: Nokkuð hvöss norðanátt. Éljagangur um allt norðan- vert landið en bjart veður syðra. Vægt frost. HORFUR Á FIMMTUDAG: Minnkandi norðvestanátt og él á Norðausturlandi en nokkuð bjart veður suðaustanlands. Breytileg eða suðlæg átt og snjókoma vestantil. Áfram frost. Nýlr veðurfregnatímar: 1.30, 4.30, 7.30, 10.45, 12.45, 16.30, 19.30, 22.30. Svarsfmi Veðurstofu islands — Veðurfregnir: 990600. O <á Heiðskírt Léttskýjaö / / / / / r r f Rigning * / * * / / * f Slydda Hálfskýjað * * * * * * * * Snjókoma * Skýjað Alskýjað V $ ❖ Skúrir Slydduél Él Sunnan, 4 vindstig. Vindörin sýnir vindstefnu og fjaðrimarvindstyrk, heil fjöður er 2 vindstig.^ 10° Hitastig Súld Þoka V riig.. si FÆRÐA VEGUM: (Kl. 17.30 ígær) Á Suðvestur- og Vesturlandi er víða hálka á vegum en greiðfært að öðru leyti. Vel fært í nágrenni Reykjavíkur og austur.um Suðurland og til Aust- fjarða, en hálka er á fjallvegum á Austfjörðum. Ágæt færð er fyrir Hvalfjörð um allt Vesturland, vestur fyrir Gilsfjörð og til Patreksfjarðar og þaðan til Isa- fjarðar, einnig er fært norður yfir Holtavörðuheiði og til Hólmavíkur og þaðan til (safjarðar. Hálka er viða á þessu svæði. Fært er um Norður- og Norðaustur- land og til Austfjarða, en hálka er sums staöar á fjallvegum. Upplýsingar um færð eru veittar hjá Vegaeftirliti í síma 91-631500 og í grænni línu 99-6315. Vegagerðin. VEÐUR VÍÐA UM HEIM kl. 12.00 í gær að ísl. tima Akureyri Reykjavfk Mti veður 3 skýjað 1 snjóél Bergen 8 alskýjaí Helsinki +1 skýjað Kaupmannahöfn 6 léttskýjaó Narssarssuaq +8 léttskýjað Nuuk +3 atskýjaö Osló 3 alskýjaö Stokkhólmur 3 léttskýjað Þórshöfn 6 skýjað Algarve 18 léttskýjað Amsterdam 9 þokumóða Barceiona 17 þokumóða Berfín 4 léttskýjað Chicago 7 skúr Feneyjar 14 heiðskfrt Frankfurt 5 skýjeð Glasgow 10 rigning Hamborg 6 léttskýjað London 12 alskýjað LosAngeles 17 alskýjað Lúxemborg 6 þoka Madríd vantar Malaga 17 rigning Mallorca 21 léttskýjað Montreal +7 léttskýjað NewYork heióskirt Oriando 21 súld Paris 9 atskýjað Madeira 21 skýjað Rém 20 þokuméða Vin 5 léttskýjað Washington 41 mistur Winnipeg +1 snjékoma atvinnulausir. En vonir standa nú til að ný störf skapist fyrir um 100 manns á næstunni þar af um 70 í Keflavík og um 20—30 í Njarðvík. í Keflvík mun atvinnu- leysistryggingasjóður greiða laun 70 starfsmanna í 2 mánuði og í Njarðvík er vonast til að um 20—30 manns fái vinnu hjá fisk- vinnslufyrirtækinu Vogum hf. sem hyggst kaupa og vinna þorsk af rússneskum fiskiskipum fyrir Bandaríkjamarkað. Drífa Sigfúsdóttir forseti bæjar- stjómar Keflavíkur sagði í samtali við Morgunblaðið að þegar væri búið að ráða fyrsta starfsmanninn og fleiri yrðu ráðnir á næstu dögum. Drífa sagði að samkvæmt reglum atvinnuleysistryggingasjóðs bæri að bjóða þeim vinnu sem lengst væru búnir að vera atvinnulausir og sú vinna sem unnin yrði mætti ekki vera í samkeppni við aðra. Drífa sagði að á næstu dögum yrði haft samband við þá aðila sem rétt ættu á að fá vinnu 'samkvæmt reglum sjóðsins og þeim fundin verkefni. Drífa sagði að nokkur fyrirtæki bæði erlend og innlend hefðu sett sig í samband við Keflvíkurbæ meD fyrirspumir um aðstöðu á svæðinu. Hún sagði að þar væri margt athygl- isvert sem vert væri að skoða og gæfi tilefni til bjartsýni en hún gæti ekki nefnt neitt ákveðið því hér væri enn um trúnaðarmál að ræða. Sigurður Garðarsson hjá Vogum hf. sagði að fyrirtæki sitt hefði gert samning við bandaríska aðila með vinnslu á þorski veiddum af rúss- neskum fiskiskipum eftir að þeir hefðu unnið og sent þeim sýnishom. Hins vegar hefði þeim gengið erfið- lega að afla fjármagns til að geta keypt nægjanlegt magn af fiski til að geta staðið við samninginn. Nú væri þó loks að rofa til og útlit fyr- ir að tekist hefði að útvega fjármagn til að koma þessari vinnslu af stað. Sigurður sagði að hér væri um að ræða samning um vinnslu á allt að 3.000 tonnum á ári og vonaðist hann til að ef allt gengi eftir, þá yrði hægt að heíja vinsluna fyrstu vik- umar í desember. Stjóm Sambands sveitarfélaga á Suðumesjum sat á fundi á fimmtu- daginn og ræddi atvinnumálin á svæðinu og Ieiðir til úrbóta. Þar var fjallað um uppbyggingasjóð atvinnu- lífsins á Suðumesjum og hvernig best og virkast væri að stofna slíkan sjóð. Þar var fært til bókar að heppi- legast væri að stofna slíkan sjóð með verktakafyrirtækjum á Kefla- víkurflugvelli, Byggðastofnun, ríkis- sjóði, sveitar- og bæjarsjóðum á Suðumesjum og öðrum aðilum á svæðinu. Stærð sjóðsins yrði 1.000 miHjónir og yrði hann undir meiri- hlutastjóm sveitarfélaganna á svæð- inu. Sveitar - og bæjarsjóðir leggðu fram 200 milljónir eftir íbúafjölda, en verktakar, Byggðastofnun og rík- issjóður legðu fram 800 milljónir. -BB Meintur árásarmaður á Flateyri látinn laus Beðið samanburðar á skothylki og byssunni Atvinnurekendur á Flateyri vísa fíkniefnaneytendum úr starfi MAÐURINN, sem kærður var fyrir að hafa skotíð að tveimur Flateyr- ingum aðfaranótt laugardags, hefur nú verið látínn laus. Lögreglan á Isafirði hafði farið fram á gæsluvarðhaldsúrskurð yfir manninum, en dró þá beiðni tíl baka, þar sem hún taidi sig hafa upplýst það sem máli skipti. Beðið er niðurstöðu samanburðar á skothylki, sem fannst á vettvangi, og byssu þeirri, sem fannst í herbergi mannsins. Tveir Flateyringar leituðu tii lög- reglunnar aðfaranótt laugardagsins og kærðu mann fyrir að hafa skot- ið á sig með haglabyssu, en skotið geigaði. Mennimir tveir munu hafa komið í heimsókn í verbúðina á Flateyri fyrr um nóttina og skamm- ast vegna fíkniefnaneyslu þar. Sá sem grunaður er um að hafa skotið úr byssunni hvarf á brott og er talið að hann hafi þá farið og sótt byssuna. Þegar hann svo skömmu síðar varð var við tvímenningana á götunni skaut hann að þeim, að því er þeir tjáðu lögreglu. Við rannsókn í herbergi manns- ins í verbúðinni fannst 5 skota haglabyssa og 52 skot í hana. Mað- urinn neitar enn öllum sakargiftum, en hann og tveir félagar hans hafa viðurkennt fíkniefnaneyslu um nóttina. Rannsókn þess hluta máls- ins er lokið og nokkuð Ijóst að þarna hafí verið um litla neyslu að ræða og ekki talið tengjast sölu. Maðurinn, sem er 30 ára, hefur nú verið látinn laus, þar sem rann- sókn málsins er að mestu lokið og ekki talið að hann sé hættulegur umhverfi sínu eða að hann tefji rannsókn málsins. Hjá Hjálmi hf. á Flateyri fengust þær upplýsingar að nú þegar hefur verið gripið til aðgerða við að vísa fólki, sem uppvíst hefur orðið að fikniefnaneyslu, fyrirvaralaust úr vinnu og húsnæði á vegum fyrir- tækisins. Atvinnurekendur á staðn- um eru tilbúnir til að vinna með lögreglu varðandi fíkniefnaneyslu og sagði einn forráðamanna hjá Hjálmi hf. að ekki hefðu fengist nægjanlegar upplýsingar hjá lög- reglunni um það fólk, sem lægi undir grun og er brotlegt.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.