Morgunblaðið - 10.11.1992, Page 7
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGLJR 10. NÓVEMBER 1992
7
Stálgrindarhús á Bíldudal brann til grunna
Talið að kviknað hafi
í út frá rafsuðuneista
STÁLGRINDARHÚS við Tjarnarbraut í Bíldudal brann til grunna
aðfaranótt sunnudags og talið er að tjónið nemi nokkrum milljón-
um kr. í húsinu var starfrækt fiskverkun og verkstæði.
Það var íbúi við Tjarnarbraut
sem gerði lögreglu og slökkviliði
viðvart um kl. 3 um nóttina. Hús-
ið var klætt að innan með einangr-
un og spónaplötum og brann allt
sem brunnið getur í húsinu.
Lögreglan á Bíldudal telur
nokkuð víst að kviknað hafi í út
frá rafsuðu; neisti hafi leynst í
einangrun eða tréverki, en fyrr
um kvöldið var unnið við að sjóða
sperru í loft hússins.
Húsið er nýlegt og var unnið
að því að stækka það. Saltfisk-
verkun er í húsinu og búið var að
setja upp lausfrystibúnað og
frystipressur í húsið og var ráð-
gert að hefja þar rækjuvinnslu.
Einnig voru veiðarfæri, verkfæri
og vörur í húsinu, sem eyðilögðust
í brunanum. Mildi þótti, að vind
Handteknir
við imibrots-
tilraunir
LÖGREGLAN handtók tvo
unga menn sem gerðu tilraun
til að brjótast inn í bifreiðar og
bílskúr við Bólstaðarhlíð um
fimmleytið aðfaranótt laugar-
dagsins. Mennirnir voru með
járnstöng og höfðu reynt að
spenna upp bílhurðir og hurð á
bílskúr.
*
íbúi í Bólstaðarhlíð varð var við
ferðir mannanna og gerði lögreglu
aðvart. Á meðan hann lýsti mönn-
unum fyrir lögreglu færðu þeir sig
frá bílum við götuna að bílskúr
íbúans, og reyndu að bijótast þar
inn. ítrekaði íbúinn þá enn frekar
ósk sína um aðstoð lögreglu.
Lögreglan brást skjótt við og
handtók mennina, sem voru ölvað-
ir.
------»■ ♦ -----
hreyfði ekki á meðan húsið brann
því skammt undan er stórt beiting-
arhús, sem hefði hæglega getað
orðið eldinum að bráð ef vindur
hefði staðið þannig.
Það tók slökkvilið um 45 mínút-
ur að slökkva mesta eldinn en
slökkvistarfi lauk þó ekki fyrr en
kl. 9.30 á sunnudagsmorgun.
Griðastaður
rjúpunnar
Veiðimenn eltast við ijúpuna
upp til fjalla og fara misjafnar
sögur af gengi þeirra við veið-
arnar. Þessi ijúpa hefur þó
séð sitt óvænna og ákveðið
að leita á öruggan stað, því
hún tyllti sér á þak bifreiðar
við Lyngháls. Skotveiði er
bönnuð innan borgarmark-
anna og það virðist ijúpan
vita, eins og fjölmargar aðrar
ijúpur, sem orðið hefur vart
við á svipuðum slóðum undan-
farið.
Þingvallavegur
Lægsta til-
boð helming-
ur af áætlun
TILBOÐ voru opnuð í tveimur
vegaútboðum í gær. Lægsta til-
boð í lagningu Þingvallavegar,
frá Búrfellsvegi að Heiðará, var
51% af kostnaðaráætlun Vega-
gerðarinnar. Lægsta tilboð í
gerð vamargarðs við Kúðafljót
var 61% af áætlun.
Kaflinn á Þingvallavegi sem
boðinn var út er tæpir fimm km
að lengd. Ljúka á verkinu fyrir
15. júní á næsta ári. Sextán tilboð
bárust, öll undir kostnaðaráætlun
sem var 25 milljónir kr. Árvélar
sf. á Selfossi áttu langlægsta til-
boðið, tæpar 12,8 milljónir kr.,
sem er 51% af kostnaðaráætlun
V egagerðarinnar.
Boðinn var út 700 metra langur
varnargarður við Suðurlandsveg
um Kúðafljót. Verkinu á að Ijúka
á þessu ári. Gunnar og Kjartan
sf. á Egilsstöðum áttu lægsta til-
boðið af þrettán sem bárust. Til-
boð fyrirtækisins var 4,6 milljónir
kr. sem er 61% af kostnaðaráætlun
en hún hljóðaði upp á 7,6 milljón-
ir kr.
Cétuuiy/
lj •__L: :_I_
Heimilistæki til innbyggingar
Itölsk framleiðsla sem sameinar óskir nútímafólks
um útlit, gæði og óreiðanleika.
TRÍÓ
HelluborS,
bökunarofn og
uppþvottavél,
allt í einu tæki.
Veggofn
MeS ytri kælinau,
stillanlegri klukku
til aS kveikja eSa
slökkva á ofninum.
Ofnar
Undir borS meS
stjórnborS fyrir hellur.
Fleiri gerSir.
'jrf' Jel -:wt
I
Rofaborð
Fyrir venjulegar hellur
eSa keramik-hellur.
60 cm breitt,
Ijóst eSa dökkt.
Kaeli- og
frystiskápar
Margar stærSir
/og gerSir.
Uppþvottavél
Falleg lausn þegar
byggja á vél inn í
innréttinau.
6 þvottakerfi
18 mínútoa hraSþvottur.
U
l
Helluborð
2 venjulegar hraShellur
eSa gashellur meS
elektrónískri neistakveikju.
Hægt aS fá hvítt lok.
Kæli- og
frystiskápar
Margar stærSir
og gerSir.
Helluborð
4 venjulegar hellur,
innbyggt rofaborS.
Einnig til keramik-hellur.
&
PFAFF
Verslunin PFAFF hf.
Borgartúni 20
105 Reykjavík
Sími 62 67 88
ÍSLENSKUR BÆKLINGUR OG VERÐLISTI