Morgunblaðið - 10.11.1992, Side 19
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 10. NÓVEMBER 1992
19
Frönsk kvikmyndahátíð
Celine
Kvikmyndir
Sæbjörn Valdimarsson
„Celine“. Sýnd í Háskólabíói.
Leiksljóri og handrítshöfundur
Jean-Claude Brísseau. Aðal-
leikendur Isabelle Pasco, Lisa
Hérédia. Frönsk. Gaumont
1992.
Pasco, sem er starfandi hjúkr-
unarkona í smábæ í Frakklandi,
er nýbúin að jafna sig á uppsögn
kærasta síns og hjartaáfalli sem
fylgdi í kjölfarið, er á vegi hennar
verður stúlkan Hérédia. Hún er
niðurbrotin og minnug eigin rauna
bjargar Pasco henni frá drukkn-
un. Ogæfa Hérédiu stafar af því
að fyrir örfáum dögum lést faðir-
inn í örmum hennar og tjáði henni
á andlátsstundinni að hún væfi
tökubarn. Sökum þessa fór svo
kærastinn frá henni skömmu síð-
ar, fjölskyldunafnið og laganámið.
Pasco er fengin til að hugsa
um Hérédiu um sumarið og með
aðstoð jógaæfinga og hugleiðslu
tekst henni að beina huga stúlk-
unnar á jákvæðar brautir á ný,
samfara því sem á milli þeirra
skapast einlæg ást.
Myndin er tekin á fallegu sumri
í frönsku sveitahéraði sem skapar
einstaklega hlýlegan og notalegan
ramma í kringum angurværa sög-
una. Ýjað er að að meira en vin-
átta skapist milli kvennanna, líkt
og húp sé ekki ein saman nóg til
að laða fram þær heitu og fögru
tilfinningar sem ráða ríkjum í
gamalli myllu eitt sumar í Frans.
Konurnar eru dável leiknar af
Isabellu Pasco og Lisu Hérédiu
sem koma þessum viðkvæmu,
kannski nær að segja ofur brot-
hættu persónuleikum, óaðfinnan-
lega til skila. Þær eru hluti sum-
arfegurðar markarinnar sem fell-
ur í einu kuldagjóstri mest á
blómaflóðið á mörkinni. Celine líð-
ur hinsvegar fyrir yfirgengilegan
seinagang sem einkum kemur til
sögunnar í leiðum leikfimiæfing-
um og lótusstellingum enda virkar
myndin mikið betur er hún snýr
að tilfinningamálum persónanna
en þá hún veltir sér uppúr dulúð
og yfirskilvitlegum hlutum. Þá er
eina karlhlutverkið undarlega á
skjön við ljóðræna framvindu
myndarinnar. Ljúf, falleg og
svæfandi.
Madame
Bovary
Kvikmyndir
Arnaldur Indriðason
Madame Bovary. Sýnd ! Há-
skólabíói. Leiksijóri: Claude
Chabrol. Aðalhlutverk: Isabelle
Huppert, Christophe Malavoy,
Jéan-Francois Balmer og Jean
Yanne.
Nýjasta mynd franska ný-
bylgjuleikstjórans Claude Chab-
rols er kvikmyndagerð hinnar
frægu bókar Madame Bovary með
Isabelle Huppert í titilhlutverkinu.
Um er að ræða stórmynd á
franskan mælikvarða sem endur-
skapar nítjándu aldar smábæjarlíf
oní minnstu smáatriði í búningum,
húsbúnaði og byggingum og segir
hina harmþrungnu sögu Bovary,
sem leitaði að ást og spennu og
rómantík í leiðinlegt líf sitt en
fann aðeins svik, örvinglun og
örvæntingu og hlaut grimmileg
örlög.
Frásagnarháttur myndarinnar
er eins langt frá því sem maður
á að venjast í hinum daglegu has-
ar- og spennumyndum bíóanna,
þar sem klippt er á fimm sek-
úndna fresti og myndavélin er á
sífelldri hreyfingu, og hægt er að
komast. í samanburði er mynd
Chabrols líkari ljósmynd en kvik-
mynd, ríkulega skreytt með bún-
aði hins horfna tíma. Myndin er
140 mínútur að lengd og maður
fínnur til lengdarinnar í hægri
frásögninni. Eins og bókin á
myndin kannski best heima á
náttborðinu.
Isabelle Huppert er mjög góð
í aðalhlutverkinu og tekst vel að
lýsa fyrst vonbrigðunum með
hjónaband sitt og læknisins Char-
les Bovary, sem er leiðindagaur
hinn mesti en besta skinn, síðan
lífsfyllingunni sem hún finnur
með viðhaldi sínu, harminum þeg-
ar hún kemst að því að drauma-
prinsinn vill ekki með hana hafa
þegar hún ætlar að hlaupast á
brott með honum og loks hinum
harmrænu endalokum þegar Bo-
vary sér heiminn hrynja í kringum
sig og ákveður að grípa til örþrifa-
ráða.
Það er langbesti hluti myndar-
innar og Huppert glánsar í hlut-
verkinu. En Chabrol hefði að
ósekju mátt beita skærunum bet-
ur, draga frásögnina saman og
auka hraðann. Aldafarslýsing
hans stendur vel fyrir sínu, hliðar-
saga eins og sú um misheppnaða
fótaaðgerð læknisins á fátæklingi
nokkrum er styrkur, en myndin
reynir fullmikið á þolinmæði
áhorfandans.
IP5-
Fílaeyjan
IP5-Fílaeyjan („IP5-L’lile aux
phchidermes"). Sýnd i Háskóla-
bíói. Leikstjóri: Jean-Jaques
Beneix. Aðalhlutverk: Yves
Montand, Olivier Martinez og
Sekkou Sall.
Fyrst nokkur orð um franska
kvikmyndaviku: Hún er löngu orð-
inn fastur punktur í bíólífínu á ís-
landi og hún hefur tekið talsverðum
breytingum til batnaðar undanfarin
ár frá því sem var þegar áherslan
var á gamlar myndir, sem jafnvel
komust ekki í gegnum sýningarvél-
ina. Nú er allt bráðnýtt, elstu
myndir tveggja ára gamlar, en þær
nýjustu gerðar í ár og þær eru
þverskurður af því sem frönsk kvik-
myndagerð, einhver sú líflegasta í
heimi, hefur uppá að bjóða. Það
er synd að þurfa að kynnast því á
sérstökum vikum frekar en að fá
myndirnar reglulega í bíóin en c’est
la vie. Frönsk kvikmyndavika
auðgar a.m.k. bíólífíð verulega á
meðan hún stendur yfír.
Önnur nýjasta myndin á frönsku
vikunni í ár reyndist síðasta mynd
skemmtikraftsins Yves Montand
og það eitt gefur henni ákveðna
sérstöðu. Hún heitirþví forvitnilega
nafni IP5-Fílaeyjan, er gerð á þessu
ári og er eftir stílistann Jean-Jacq-
ues Beneix („Diva“, „Betty BIue“).
Hún hefst í stórborgarfirringu
Frakklands nútímans en boðar aft-
urhvarf til náttúrulegra gilda og
er á franska vísu í raun um leitina
að þessu sleipa kvikindi, sem fáir
vita nákvæmlega hvað er en kall-
ast ást. Montand persónan minnir
svolítið á vinina öldnu í Börnum
náttúrunnar, annarri vegamynd
Á flakki; Montand í Fílaeyjunni.
sem ferðast úr borg í sveit í leit
að fortíð og fábrotnara en auðugra
lífí.
Hvað hann er fæst ekki uppgef-
ið nákvæmlega, seiðkarl eða dýr-
lingur, helgur maður með lækning-
ármátt í sérstöku sambandi við
náttúruna og sérstaklega tré skóg-
arins. Hann verður á vegi tveggja
stórborgarbarna, tólf ára blökku-
drengs og araba um tvítugt og
saman ferðast þeir hver í sínum
tilgangi um sveitir Frakklands.
Myndin er gullfallega tekin og
fyndin og skemmtileg og hjartnæm
og harmræn í senn í leikstjórn
Beneix, eins fremsta kvikmynda-
gerðarmanns Frakka í dag. Hann
hefur gert umhverfísvæna mynd
um galdurinn sem býr í náttúrunni
en ekki síður mannvæna um gald-
uTinn sem býr í hreinni vináttu,
fornum ástum og nýjum og sam-
kennd einstaklinga af ólíkum kyn-
þáttum.
Montand er stórkostlegur í síð-
asta hlutverki sínu, aldinn og vís
sérvitringur. Allt það besta við
þessa hrífandi mynd er tengt hon-
um á einhvem hátt.
MARMOLEUM
GOLFEFNI UR RIKI
Jr ' ý
hseHIÍBHHÍ
ATTURUNNAR
á MARMOLEUM gólfefnum
í verslun okkar að Síáumúla 14
frá mánudegi til laugardags
í tilefni nýrrar litalínu.
MARMOLEUM er unniS úr náttúrulegum
efnum og er því fullkomlega vistvænt.
MARMOLEUM fæst í 68 litum.
MARMOLEUM býður heildarlausn í
gólfefnum með óteljandi samsetningar-
möguleikum.
Olöf Flygenring arkitekt og Júlía P. Andersen
innanhússarkitekt veróa í versluninni frá
klukkan 16-18 alla sýningardagana og
veita viðskíptavinum ókeypis ráðleggingar
um val á MARMOLEUM.
Gólf búnaður
SÍÐUMÚLA 14 • SÍMI (91) 813022