Morgunblaðið - 10.11.1992, Síða 25
MjORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 1-0. NÓVEMBER 1992
25
sé komin langt fram úr efninu, en
hann á þar ekki lítinn þátt sjálfur.
Verkalýðshreyfíngin hefur haft
um það forystu í síðustu samning-
um, að þeir tryggðu efnahagslegan
stöðugleika og sköpuðu skilyrði sem
væru atvinnulifinu lífvænleg.
Á móti væri tryggt að ekki yrði
vegið að lífskjörum þeirra sem búa
við lökust kjör. Staðið væri þannig
að málum af ríkisvaldi og atvinnu-
rekendum, að þeir gerðu ekki ein-
hliða aðgerðir, sem rýrðu þau kjör
sem um var samið. Með því væri
verið að sprengja þessa aðferð við
gerð kjarasamninga eitthvað langt
fram í tímann.
Það er eins og þetta hafi ekki
verið öllum að skapi. Sú ákvörðun
skipafélaganna að hækka farm-
gjöld, nú þegar staðan í atvinnulífi,
ekki síst sjávarútvegi er mjög erfið,
veikir mjög trúna á það að hægt
sé að gera samkomulag sem eitt-
hvert gagn sé að.
Aðgerðarleysi ríkisstjórnarinnar
til stuðnings atvinnulífinu vekur
nokkra furðu og það að hún láti
flokk utan stjórnar taka þar frum-
kvæði um aðgerðir. Þá er það einn-
ig nokkuð undrunarefni hvernig
hún gengur fram í aðgerðum sem
að þrýsta upp vöxtum á peninga-
markaði.
Það er ljóst að verkalýðshreyf-
ingin getur ekki fallist á aðgerðir
sem fyrst og fremst leggja þungar
byrðar á launafólk en hlífa fjár-
magni og eignatekjum. Ef í alvöru
er stefnt að samkomulagi um að-
gerðir í atvinnumálum, sem létta
eiga kostnaði af atvinnulífinu verð-
ur fleira að fylgja með.
Á síðasta þingi Verkamannasam-
bands íslands og sem ítrekað var á
sambandsstjórnarfundi þess nú í
október, lýsir það sig reiðubúið að
leggja því lið að fulltrúar vinnu-
markaðar, stjórnvalda og banka
standi að samhæfðri stefnu um
lausnir í atvinnulífi.
Þessu fylgja þó ýmis skilyrði um
framgang mála. Auk almennra að-
gerða í þágu atvinnulífsins, sem
meðal annars lúta að því að sköpuð
verði fleiri störf og aukið verðmæti
framleiðslunnar, verður að vernda
lífskjör þeirra sem erfiðast eiga.
Því miður virðast stjórnvöld og
atvinnurekendur vera að klúðra
samkomulagsmöguleikum. Enn er
þó tími til að leita skynsamlegra
lausna, en hann er ekki ótakmark-
aður.
Höfundur er starfsmaður
Verkamannasambands íslands.
Ráðstefna
um glasa-
frjóvgun
RÁÐSTEFNA á vegum Banda-
lags kvenna í Reykjavík um
„Glasafrjóvgun í nútíð og fram-
tíð“ verður haldin 12. nóvember
í Borgartúni 6 kl. 18.
Um þetta viðkvæma mál halda
framsöguerindi Dögg Pálsdóttir,
deildarstjóri í heilbrigðis- og trygg-
ingamálráðuneytinu, Ólafur W.
Stefánsson, skrifstofustjóri dóms-
og kirkjumálaráðuneytis, Vilhjálm-
ur Árnason, dósent við Háskóla ís-
lands, og Þórður Óskarsson, dósent.
Ávarp flytur Jóhanna Sigurðar-
dóttir, félagsmálaráðherra, sem
gegnir störfum heilbrigðisráðherra
um þessar mundir. Lög og reglu-
gerðir hafa ekki verið settar um
þetta mál, sem brennur á fleirum
en maður ætlar. Ráðstefnuna setur
Sjöfn Sigurbjömsdóttir, formaður
Bandalags kvenna í Reykjavík.
Ráðstefnan er öllum opin.
(Fréttatilkynning)
VÁRORIALISTÍ
Dags. 10.11.1992. NR. 108
5414 8300 1130 4218
5414 8300 1326 6118
5414 8300 3052 9100
5421 72“
5422 4129 7979 7650
5221 0010 9115 1423
Ofangreind kort eru vákort,
sem taka ber úr umferð.
VERÐLAUN kr. 5000.-
fyrir þann, sem nær korti
og sendir sundurklippt til
Eurocards.
KREDITKORT HF.,
Ármúla 28,
108 Reykjavík,
sími 685499
Efþú kaupir sófasett eða borðstofuhúsgögn í verslun okkar fer
nafnið þitt í lukkupott. Laugardaginn 12. desember verður nafn
eins kaupanda dregið út í beinni útsendingu á Bylgjunni og fær
hinn heppni vöruna endurgreidda„.Já, ENDURGREIDDA.
Allir sem koma í verslun okkar að Btejarhrauni 12 Hafharfirðifá
ttekifieri tilað takaþátt í auðveldrigetraun. Næstu laugardaga drögum
við úr nöfihum þátttakenda og í verðlaun eru 5 standlamparfirá Ítalíu.
Fylgstu vel með á Bylgjunni og leggðu leið þína í GP Húsgögn.
HUSG0GN - HAFNARFIRÐI
Bæjarhrauni 12 - sími (91) 65 1234
ANDVIRÐIÐJ'
TIL BAKA!
l\S&.
Annab tilbob í spariskírteini
ríkissj óbs verbur mibviku-
daginn 11. nóvember
Næstkomandi miðvikudag fer fram 2. tilboð í
spariskírteini ríkissjóðs. Um er að ræða hefðbundin
verðtryggð spariskírteini í eftirfarandi flokkum:
Flokkur Lánstími Gjalddagi
l.fl.D 1992 5 ár 1. febrúar 1997
l.fl.D 1992 10 ár 1. apríl 2002
Þessir flokkar eru skráðir á Verðbréfaþingi íslands
og er Seðlabanki íslands viðskiptavaki þeirra.
Spariskírteinin verða seld með tilboðsfyrirkomu-
lagi. Löggiltum verðbréfafyrirtækjum, verðbréfa-
miðlurum, bönkum og sparisjóðum gefst einum
kostur á að gera tilboð í spariskírteinin samkvæmt
tilteknu tilboðsverði. Lágmarkstilboð er
kr. 5.000.000 að nafnverði.
Aðrir sem óska eftir að gera tilboð í spariskír-
teinin eru hvattir til að hafa samband vib
framangreinda aðila, sem munu annast
tilboðsgerb fyrir þá og veita nánari
upplýsingar.
Öll tilboð í spariskírteinin þurfa að hafa borist
Lánasýslu ríkisins fyrir kl. 14, miðvikudaginn
11. nóvember. Tilboðsgögn og allar nánari
upplýsingar eru veittar hjá Lánasýslu ríkisins /
Þjónustumiðstöð ríkisverðbréfa, Hverfisgötu 6,
í síma 62 60 40.
LÁNASÝSLA RÍKISINS RÍKISVERÐBRÉFA
Hverfisgötu 6, 2: hæö, 150 Reykjavík, sími 91- 62 60 40
GOTT FÓLK