Morgunblaðið - 10.11.1992, Qupperneq 39
- MORGtfNBLAÐIÐ
VIDSKIPTI/ATVINNVLÍF fimmtudagur W. 'Növember 1992
39
Orkumál
Norskir raforkuframleið-
endur hefja útflutning
Norskir raforkuframleiðendur geta andað nokkuð léttar eftir
að ríkið heimilaði árlegan útflutning fimm milljarða kOóvatt-
stunda af rafmagni. Með því færast um fimm af hundraði raforku-
framleiðslu í landinu frá ofmettuðum heimamarkaði yfir á arðvæn-
lega útflutningsmarkaði.
Stjómmál hafa lengi staðið í
vegi reglubundins raforkuútflutn-
ings frá Noregi. Náttúruvemdar-
sinnar óttuðust að virkjunarfram-
kvæmdir færa úr böndunum ef
leyft yrði að selja framleiðsluna
úr landi. Jafnframt hafa talsmenn
þungaiðnaðar lagst gegn útfiutn-
ingi enda vilja þeir eðlilega fá sem
mest af ódýrri orku til eigin nota.
Mikið offramboð raforku, í kjölfar
þess að markaðsöflunum var
sleppt lausum, hefur þvingað fram
breyttan hugsunarhátt.
Ovíst er þó hversu arðvænlegur
útflutningurinn kann að reynast.
Raforkuverði í Svíþjóð, Danmörk
og Þýskalandi er gjaman haldið
leyndu. Hins vegar er útflutnings-
verð fastákveðinnar og tryggrar
raforku miklu hærra en það sem
fengist hefur fyrir sveiflukennda
umframorku.
Tveir af þessum fimm milljörð-
um kílóvattstunda munu koma frá
raforkuframleiðendum sem reist
hafa dýrar vatnsaflsvirkjanir á síð-
astu árum. í þeim hópi er vandinn
mestur og útflutningsleyfum verð-
ur deilt niður á fyrirtækin í hlut-
falli við aukningu framleiðsluget-
unnar á níunda áratugnum. Þrír
milljarðar kílóvattstunda skiptast
síðan á milli allra framleiðenda í
samræmi við skráða framleiðslu
1. janúar 1992.
HÓPUR fjárfesta í Banda-
ríkjunum undir forustu verð-
bréfafjárfestans Johns Heads
hefur boðið 500 miiyónir doll-
ara fyrir Norður-Ameríkudeild
Skandia Group Insurance Co.
Tilboðið kemur fram þremur
vikum eftir að Skandia hætti við
almennt hlutafjárútboð í deildinni
Skandia America Corp., sem er
áttunda stærsta tryggingafélag
Bandaríkjanna. Skandia hefur
áður lýst því yfir að Skandia
America, sem hefur höfuðstöðvar
í New York, væri til sölu þar sem
móðurfélagið vildi draga úr rekstri
innan tryggingageirans.
Tilboði Heads hefur enn ekki
verið svarað og hefur stjórnarfor-
maður Skandia America, Johannes
Útflutningskvótamir verða selj-
anlegir og ætlunin er að setja á
stofn sérstaka kvótamiðlun. Sam-
kvæmt kenningunni munu kvót-
arriir með tímanum færast yfír til
þeirra framleiðenda sem nýta auð-
lindir þjóðfélagsins best.
Norrby, neitað að tjá sig um mál-
ið. Norrby er einnig einn af aðal-
forstjórum Skandia Group.
Nákvæmar upplýsingar um efni
tilboðsins reyndust heldur ekki
fáanlegar hjá John Head og sam-
starfsaðilum. Þeir upplýstu þó að
boðnar hefðu verið 400 milljónir
dollara í reiðufé og um 100 milljón-
ir dollara í verðbréfum.
Kauptilboðið kemur á tíma þeg-
ár samdrátturinn á Norðurlöndum
hefur tekið sinn toll hjá Skandia.
Félagið hefur þurft að þola mikið
tap af fjárfestingum í fasteignum
og verðbréfum. Lánardrottnar fé-
lagsins hafa hótað að hækka vexti
og bjóða verri viðskiptakjör ef fé-
lagið bætir ekki fjárhagsstöðu
sína. Sala Skandia America er lið-
ur í þeirri áætlun félagsins.
Fjármál
Kauptilboð í Skand-
ia Bandaríkjunum
Flugrekstur
Bandarísk flugfélög leggjast
gegn tvíhliða afnámi hafta
The Economist og Reutér
FULLTRÚAR breskra og banda rískra flugmálayfirvalda komu
saman í júlí síðastliðnum til að ræða tvíhliða afnám hafta. Við
upphaf fundarins urðu þeir fyrir ónæði sem olli því að verkefna-
skráin varð skyndilega svo yfirgripsmikil að hverfandi líkur eru
á samkomulagi í bráð. Inn á fundinn bárust fréttir af tilboði Brit-
ish Airways um að kaupa 44% hlut í USAir.
Við fyrstu sýn ætti bandarísk-
um flugmálayfirvöldum að reynast
auðvelt að leggja blessun sína yfir
tilboð British Airways í USAir,
fjórða stærsta flugfélag Banda-
ríkjanna. BA býðst til að dæla 750
milljónum dala (42,3 milljarðar
ÍSK) í þjakað bandarískt flugfélag
sem þarf nauðsynlega á nýju fjár-
magni að halda. Á móti kemur að
samstarf félaganna myndi auð-
velda BA að fmna farþega í
Bandaríkjunum.
Forstjóri USAir, Seth Scofíeld,
fullyrðir að samningurinn muni
tryggja atvinnu 47.000 starfs-
manna félagsins og auka sam-
keppni bandarískra flugfélaga. í
bréfi til Bills Clintons, nýkjörins
forseta Bandaríkjanna, undirstrik-
aði Scofíeld jafnframt að USAir
og BA ættu samtals 334 þotur í
pöntun hjá Boeing-verksmiðjun-
um.
En í reynd kallar tilboð BA á
víðtæka lagabreytingu og gagn-
gera endurskoðun núgildandi loft-
ferðasamnings Bretlands og
Bandaríkjanna. Samkvæmt alrík-
islögum mega eriendir aðilar ekki
ráða yfir bandarísku flugfélagi.
Reyndar fullyrðir BA að málum
verði hagað þannig að USAir
muni ráða sér sjálft. Hæpið verður
þó að teljast að sérhæfður kaup-
andi með svo brýna hagsmuni feli
alfarið óskyldum og óháðum aðil-
um að ávaxta 750 milljónir dala.
Við samningaborðið hefur kom-
ið í ljós að breskir og bandarískir
embættismenn hafa ólíkar hug-
myndir um hvernig beri að afnema
höft á flugi yfir Atlantshafíð.
Bandaríkjamenn vilja einfaldlega
fella úr gildi reglur um hvaða flug-
félög megi lenda á hvaða flugvöll-
um í millilandaflugi. Yflrlýst
markmið bresku embættismann-
anna era hins vegar mun metnað-
arfyllri. Þeir vilja að öllum flugfé-
lögum verði heimilt að fjárfesta
og fljúga að vild bæði innan og á
milli beggja landa.
Áköf andstaða stóra bandarísku
flugfélaganna, United, American
og Delta, dregur stórlega úr likum
á nýjum tvíhliða loftferðasamn-
ingi. Sú andstaða kann að virðast
undarleg í ljósi þess að flugfélögin
þrjú státa af lægsta kostnaði í
greininni og myndu trúlega standa
sig vel í samkeppni hvar sem er
í heiminum. Félögin skipta á milli
sín nærri tveimur þriðju hlutum
innanlandsflugs í Bandaríkjunum
og vissulega vilja þau færa út
kvíarnar í öðram heimshlutum.
En einmitt vegna þess hve
Bandaríkjamarkaður er gífurlega
stór hagnast erlend flugélög mun
meira á einstökum tvíhliða eða
tveggja landa gagnkvæmum
samningum við Bandaríkin. Steph-
en Wolf, forstjóri United, hefur til
dæmis bent á að í Singapore sé
aðeins einn stór flugvöllur á meðan
þeir skipti hundraðum í Bandaríkj-
unum. Með því að leggjast gegn
endurskoðun loftferðasamningsins
við Bretland hindra flugfélögin
jafnframt að helsti keppinautur
þeirra í millilandaflugi kaupi sér
leið inn á Bandaríkjamarkað í
gegnum USAir.
Stóra bandarísku flugfélögin
þijú vilja því að samgönguráðu-
neytið hætti öllum tilraunum til
að ná fram tvíhliða afnámi hafta,
en leggi þess í stað áherslu á eitt
alþjóðlegt samkomulag um fijáls-
ar flugsamgöngur. í skiptum fyrir
heimamarkaðinn fengju bandarísk
flugfélög þá aðgang að öllum
heiminum.
Embættismenn í Washington
segja aftur á móti að einn alþjóð-
legur loftferðasamningur sé
óraunhæfur kostur. En með
nokkram tvíhliða samningum er
ætlun þeirra að opna Evrópu fyrir
bandarískum flugfélögum. Stand-
ist áætlanir á hinn gríðarstóri innri
markaður Evrópubandalagsins að
ná til flugsamgangna árið 1996.
Nýlegur tvíhliða loftferðasamn-
ingur Bandaríkjanna og Hollands
er þegar farinn að þrýsta á aukið
fijálsræði í flugsamgöngum innan
bandalagsins. Samningur við Bret-
land gæti kippt stoðunum undan
allri opinberri verðstýringu og
hringamyndun flugfélaga í Evr-
ópu.
Félag íslenskra stórkaupmanna boðar
til haustfundar fimmtudaginn
12. nóvember nk. kl. 12:00
íSkálanum, Hótel Sögu.
Gestur fundarins verður Þórir Gunnarsson,
veitingamaður í Tékkóslóvakíu. Þórir hefur um u
nokkurt skeið rekið veitingastaðinn Restaurant
Reykjavík í Prag og mun hann skýra frá reynslu
sinni af viðskiptum í Austur-Evrópu og segja frá
þeim tækifærum, sem bjóðast mönnum í inn-
og útflutningsviðskiptum.
Þátttökugjald með hádegisverði er kr. 2.500.
Vinsamlega tilkynnið þátttöku í síma 678910.
FUNDURINN ER ÖLLUM OPINN
HHH precision
hjöruliöskrossar
Þekking Reynsla Þjónusta
FALKIN N
SUÐURLANDSBRAUT 8. SÍMI 814670