Morgunblaðið - 10.11.1992, Page 42
42
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 10. NÓVEMBER 1992
Unglingameistaramót íslands
Einvígi Hannesar og Héðins
Skák
Margeir Pétursson
HANNES Hlífar Stefánsson
vantar aðeins herslumuninn á
að verða stórmeistari í skák,
hann fékk bronsverðlaun á
fimmta borði á Ólympíuskák-
mótinu i Manila og hann vann
fyrstu sex skákirnar á Ungl-
ingameistaramóti íslands í
Kópavogi um helgina. Eftir
þessa upptalningu halda lik-
lega flestir að Hannes hafi
orðið unglingameistari íslands
1992 án þess að blása úr nös.
En þrátt fyrir mikinn styrk-
leika Hannesar og stórstígar
framfarir hans á þessu ári
dugði þetta ekki. Helgi Ass
Grétarsson, 15 ára, sigraði
hann í siðustu umferð. Það gaf
Héðni Steingrímssyni tækifæri
á að ná Hannesi og það nýtti
Héðinn sér af öryggi.
Hannes og Héðinn hlutu báðir
sex vinninga og verða að tefla
einvígi um titilinn og/erð á skák-
mót erlendis. Helgi Áss Grétars-
son náði ekki sínu besta, jtapaði
" óvænt fyrir Magnúsi Erni Úlfars-
syni í fimmtu umferð og síðan
fyrir Héðni. Helgi hafði þó úr-
slitaáhrif á niðurstöðuna með því
að vinna Hannes og náði þriðja
sæti ásamt Kristjáni Eðvarðs-
syni.
Úrslit mótsins
1.-2. Héðinn Steingrímsson og
Hannes Hlífar Stefánsson, 6 v.
3.-4. Helgi Áss Grétarsson og
Kristján Eðvarðsson, 5 v.
5. Páll Agnar Þórarinsson, 4 'h v.
6. -13. Snorri Karlsson, Bragi
Þorfinnsson, Magnús Örn Úlfars-
son, Ólafur B. Þórsson, Guð-
mundur Daðason, Bjöm Þorfinns-
son, Jón Viktor Gunnarsson og
Hlíðar Þór Hreinsson, 4 v.
14.-15. Stefán Andrésson og Eyj-
ólfur Gunnarsson, 3 'h v.
16.-20. Guðmundur Sverrir Jóns-
son, Torfi Leósson, Arinbjöm
Barbato, Bergsteinn Einarsson
og Lárus Knútsson, 3 v. o.s.frv.
Það munu vafalaust margir
fylgjast spenntir með einvígi
Hannesar og Héðins, sem báðir
era bráðefnilegir en að mörgu
leyti ólíkir skákmenn. Hannes,
sem er tvítugur, er nú atvinnu-
maður í skák. Hann hefur verið
afar iðinn við bæði taflmennsku
og æfingar síðustu tvö árin og
árangurinn eftir því. Héðinn er
aðeins 17 ára. Eftir að hann varð
óvænt íslandsmeistari 1990 hefur
nokkuð hægt á framförunum
enda hefur hann einnig náð góð-
um námsárangri í menntaskóla.
Þegar Héðinn grípur í tafl er þó
ávallt við miklu að búast. í haust
tók hann t.d. þátt í atskákmóti
Skákfélags Hafnarfjarðar og
Hellis og var þá hálfum vinningi
fyrir ofan Hannes, sem varð ann-
ar.
Mótið fór fram í félagsheimili
Taflfélags Kópavogs og skák-
stjórar vom Haraldur Baldursson,
formaður TK, og Ólafur H. Ólafs-
son. Að sögn Haraldar gekk
mótshaldið vel fyrir sig, en þetta
er í fyrsta sinn sem það er ekki
haldið í Reykjavík.
Jóhann á millisvæðamót
Jóhann Hjartarson og Svíinn
Ferdinand Hellers þurfa ekki að
tefla aukakeppni um sæti á milli-
svæðamóti eins og gert var ráð
fyrir eftir að þeir deildu öðru
sætinu á svæðamótinu í Öster-
sund í Svíþjóð í sumar. Mótið var
haldið hálfu ári á undan öllum
öðmm svæðamótum og það var
ekki fyrr en í síðustu viku að
Alþjóðaskáksambandið skýrði
viðkomandi skáksamböndum frá
því að svæðamót Norðurlandanna
gæfl þijú sæti á millisvæðamót,
en ekki tvö eins og svæðisforset-
inn, Svíinn Christer Wáneus,
sagði þó keppendum ranglega
fyrir mótið.
Gerðar höfðu verið ráðstafanir
til að aukakeppni þeirra Jóhanns
og Hellers færi fram á Akureyri
í desepiber, en af henni verður
ekki.
Millisvæðamótið fer fram í Biel
í Sviss næsta sumar og verða
keppendur 64-70 talsins. Mótið
verður teflt eftir svissnesku kerfi
og gefur 12 sæti í áskorendaein-
vígjunum. Þetta verður í þriðja
sinn sem Jóhann teflir á milli-
svæðamóti. Fyrst sigraði hann í
Szirak í Ungveijalandi árið 1987
og komst í áskorendaeinvígin þar
sem hann sigraði Kortsnoj en var
sleginn út af Karpov. Jóhann
tefldi einnig á millisvæðamótinu
í Manila 1990.
íslandsmót 15 ára og yngri
Um næstu helgi, 13. til 15.
nóvember, fer fram keppni í
drengja- og telpnaflokki á Skák-
þingi Islands. Mótið er opið öllum
fæddum 1977 og síðar. Tefldar
verða 9 umferðir eftir Monrad-
kerfi og er umhugsunartími 40
mínútur á skák fyrir keppanda.
Ef næg þátttaka fæst, verður
sérstakur telpnaflokkur, annars
tefla þær með drengjunum.
Fyrstu þijár umferðirnar verða
tefldar föstudaginn 13. nóv. frá
kl. 19-23. Næstu þijár iaugar-
daginn 14. nóv. frá kl. 13-18 og
síðustu þijár umferðirnar sunnu-
daginn 15. nóv. frá kl. 13-18.
Teflt verður í húsakynnum skák-
hreyfingarinnar í Faxafeni 12,
Reykjavík. Þátttökugjald er kr.
800. Innritun fer fram á skákstað
föstudaginn 13. nóv. kl.
18.30-19.
Haustmót Taflfélags
Kópavogs 1992
Haustmót TK er að þessu sinni
haldið sem nokkurs konar helgar-
mót og hefst fimmtudaginn 12.
nóvember kl. 20. Tefldar verða
sex umferðir eftir Monrad-kerfi
og er umhugsunartími ein og
hálf klukkustund á fyrstu 30 leik-
ina og síðan hálftími til að ljúka
skákinni. Fyrsta umferðin er tefld
á fimmtudagskvöldið, önnur á
föstudagskvöld kl. 20, sú þriðja
á laugardaginn kl. 10 árdegis og
sú fjórða sama dag kl. 16.
Fimmta umferðin er tefld á
sunnudaginn kl. 10 árdegis og
sú sjötta og síðasta sama dag
kl. 16.
Teflt er í nýjum og vistlegum
húsakynnum Taflfélags Kópa-
vogs í Hamraborg 5, Kópavogi.
Skráning er á miðvikudagskvöld-
ið og áður en mótið hefst.
Immopar-keppnin í París
í dag hefst í Parísarborg hin
árlega útsláttarkeppni Immopar-
fasteignafyrirtækisins í atskák.
Keppendur eru 16 talsins og í
fyrstu umferðinni mætast:
Karpov, Rússlandi, 2.615 - Bare-
ev, Rússlandi, 2.670,
Júsupov, Rússlandi, 2.640 -
Salov, Rússlandi, 2.655,
Adams, Englandi, 2.610 - An-
and, Indlandi, 2.690,
Gelfand, Hvíta-Rússlandi, 2.685
- Shirov, Lettlandi, 2.710,
Timman, Hollandi, 2.665 - Judit
Polgar, Ungvl., 2.575,
Kamsky, Bandaríkjunum, 2.655
- Lautier, Frakklandi, 2.580,
Polugajevskí, Rússlandi, 2.640 -
Short, Englandi, 2.680,
Kramnik, Rússlandi, 2.625 -
Kasparov, Rússlandi, 2.790.
I fyrstu umferðinni hljóta augu
flestra að beinast að viðureign
heimsmeistarans við hinn 17 ára
gamla Kramnik, sem Kasparov
telur sjálfur að sé líklegur arftaki
sinn í framtíðinni. Takist Ka-
sparov að slá Kramnik út mætir
hann sigurvegaranum í viðureign
Polugajevskí og Short.
Jan Timman verður einnig í
eldlínunni gegn hinni 16 ára
gömlu Júdit Polgar. Það er ljóst
að Timman verður að tefla mun
betur en gegn Helga Ólafssyni í
sjónvarpinu um daginn ef hann
ætlar að eiga möguleika á að
veija titil sinn á mótinu. í fyrra
sló hann fyrst Karpov út og sigr-
aði svo Kasparov í úrslitunum.
Morgunblaðið/Jón M. Guðmundsson
Bændakór héraðsins söng nokkur lög undir stjórn Páls Helgasonar.
Bændur í Kjalarnesþingi
Fagna 80 ára afmæli Búnað-
arsambands Kjalarnesþings
Mosfellsbæ.
BÆNDUR og húsfreyjur í Kjalarnesþingi og gestir þeirra komu
saman laugardaginn 22. ágúst sl. í Viðey til þess að fagna því að
4 þessu ári eru 80 ár frá því að Búnaðarsamband Kjalarnesþings
var stofnað. Búnaðarsamband Kjalarnesþings er samtök búnaðarfé-
laga í Gullbringu- og Kjósarsýslu, og kaupstaðanna innan þeirra.
Breiðuvík
Biskup vísiter-
aði Hellnakirkju
í undirbúningsnefnd sátu Páll
Ólafsson í Brautarholti, Jón M.
Guðmundsson á Reykjum og
Hreiðar Grímsson á Grímsstöðum,
og skipulögðu þeir samkomuna
ásamt formanni búnaðarsam-
bandsins, Guðmundi Jónssyni á
Reykjum og Vál Þorvaldssyni
framkvæmdastjóra.
Viðey varð fyrir valinu vegna
langrar sögu stórbúskapar um
iddaraðir, bæði á klausturtímanum
og fram á þessa öld.
Fyrri hluti dagskrárinnar fór
fram utandyra á Viðeyjarhlaði, þar
sem safnast var saman síðdegis í
óvenjulegu blíðskaparveðri; sól-
skini og stafalogni. Fyrst flutti
heimamaður ágrip af sögu Viðeyj-
ar, sem bæði er merk í búskapar-
legu- og stjórnmálalegu tilliti. Síð-
an söng Bændakór héraðsins nokk-
ur lög undir stjóm Páls Helgason-
ar, einsöngvari var Sveinn Magn-
ússon Esjugrund.
Því næst var gengið til stofu og
sest að borðum. Veislustjóri var
Guðmundur Jónsson formaður.
Páll Ólafsson flutti hnitmiðað ágrip
af sögu Búnaðarsambands Kjalar-
nesþings í 80 ár, Haldór Blöndal
landbúnaðarráðherra, Salóme Þor-
kelsdóttir forseti Alþingis og Há-
kon Sigurgrímsson framkvæmda-
stjóri Stéttarsambands bænda
fluttu ávörp og ámaðaróskir, og
Jón Helgason formaður búnaðarfé-
lags íslands flutti ávarp og færði
Búnaðarsambandinu góðar óskir
og gjafír. Undir borðum skemmti
Sigrún Hjálmtýsdóttir í Túnfæti í
Mosfelisdal með söng og Iwona
Jágla iék undir, við feiknagóðar
undirtektir.
Alls sóttu 140 manns þessa
samkomu, gestir og bændafólk úr
héraðinu, ungir jafnt sem aldnir.
Menn vom á einu máli um að mjög
vel hefði til tekist, og að samkom-
an hefði staðfest mikla samstöðu
og sóknarhug bændafólks í Kjalar-
nesþingi.
I stjóm Búnaðarsambands Kjal-
arnesþings eru nú; Guðmundur
Jónsson á Reykjum formaður,
Hreinn Ólafsson, Helgadal, Krist-
ján Oddsson, Neðra-Hálsi, Hreiðar
Grímsson, Grímsstöðum, Bjöm
Jónsson, Brautarholti, Ásgeir Pét-
ursson, Dalsbúi og Hafbergh
Þórisson, Lambhaga. Fram-
kvæmdastjóri er Valur Þorvalds-
son í Mosfellsbæ.
- Fréttaritari.
Laugarbrekku.
BISKUPINN yfir íslandi vísiter-
aði Hellnakirkju laugardaginn
10. október. Kirkjukór Hellna-
sóknar hélt upp á 50 ára af-
mæli sitt sama dag. Tíðarfar
hefur verið fremur gott í haust,
afli trillubáta hefur verið treg-
ur.
Biskupinn yfír íslandi, herra
Ólafur Skúlason, vísiteraði Hellna-
kirkju, laugardaginn 10. október.
Með biskupi vom prófasturinn
séra Ingiberg Hannesson og
sóknarpresturinn séra Rögnvaldur
Finnbogason. Sóknamefndin var
viðstödd vísitasíuna, Finnbogi
Lárusson, formaður, Ólína Gunn-
laugsdóttir og Krístín Valdimars-
dóttir. Biskup lofaði mikið kirkju
og kirkjugarð. Að vísitasíu lokinni
var guðsþjónusta í kirkjunni.
Biskupinn predikaði, prófastur og
sóknarprestur þjónuðu fyrir altari.
Organisti var Key Lúðvíksson,
Hellissandi. Kirkjukór Hellna- og
Búðarsóknar söng. Kirkjusókn var
mjög góð, 60 manns vom í kirkju.
Eftir messu bauð söfnuðurinn
öllum viðstöddum til kaffidrykkju
í veitingahúsinu Arnarbæ í Arnar-
stapa. Þar var haldið upp á hálfr-
ar aldar afmæli kirkjukórs Hellna-
sóknar sem stofnaður var 1942
af Sigurði Birkis þáverandi söng-
málastjóra Þjóðkirkjunnar og var
það fyrsti kirkjukórinn sem stofn-
aður var á Nesinu. Stofnendur
yoru þá 16 en nú er aðeins einn
af stofnendum eftir í kórnum. Nú
hefur söngfólki í Hellna- og Búðar-
sókn verið saméinað í einn kór.
Ræðuhöld vom yflr borðum. For-
maður sóknamefndar, Finnbogi
Lámsson, rakti sögu kirkjukórsins
í hálfa öld en hann er búinn að
vera í kórnum síðan að hann var
stofnaður og organisti í kirkjunni
í 47 ár en er nú hættur því starfí.
Uppfluttir kórfélagar voru boðnir
í afmælið og komu þeir víða að
og var fjölmenni í Arnarbæ. Af-
mælisgestir rómuðu mjög veiting-
arnar, biskup, prófastur, sóknar-
prestur og aðrir aðkomugestir
lýstu mikilli ánægju yfír að vera
með okkur á þessum merku tíma-
mótum kirkjukórsins. Safnaðar-
konur unnu að öllum undirbúningi
afmælisins og var frammistaða
þeirra með miklum myndarbrag.
Þetta var mjög ánægjuleg stund
bæði í kirkjunni og Arnarbæ. Allt
fór vel fram og var öllum til mik-
illar ánægju.
Tíðarfar hefur verið fremur
gott í haust það hefur ekki komið
föl á jörð á láglendi ennþá. Nætur-
frost voru í síðustu viku. Flestir
bændur eru vel heyjaðir og heyin
vel verkuð. Dilkar em svipaðir að
vænleika og í fyrra. Talsvert hefur
verið um að kindur hafl orðið af-
velta í haust og hafa margar drep-
ist af þeim sökum.
Nú róa sex trillur með línu og
fjórir með færi frá Arnarstapa og
hefur afli verið fremur tregur
bæði á línu og færi og gæftir stop-
ular. Gert er ráð fyrir að fímm til
sex trillur rói með línu í vetur frá
Arnarstapa, en um 40 bátar réru
þaðan í sumar þegar flest var og
aflinn sem farið hefur um höfnina
í sumar er um 65 milljóna króna
virði.
- Finnbogi.