Morgunblaðið - 10.11.1992, Síða 45
I
2oei JiiiaMrivóM .01 íiUDAfiuiciiíi'i cikíajíimudhom
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 10. NÓVEMBER 1992
45
bandsins og uppskipti á því í sex
hlutafélög.
Sumir menn voru undrandi á því
að ég skyldi skrifa forstjóranum
fyrrnefnt bréf dags. 17. apríl ’89.
Eg tel aftur á móti að eins og stað-
an var þá hjá Sambandinu væri
fullkomlega eðlilegt að biðja í bréfi
um skriflegar greinargerðir um
stöðu mála. Varaformaður og ritari
Sambandsstjómar voru með í ráð-
um um þessa málsmeðferð.
Því miður komust einhveijir fjöl-
miðlar á snoðir um þetta, sem var
óheppilegt. En það hafði engin
áhrif á viðhorf manna innan Sam-
bandsins.
Endurreisn
Þó að Sambandið sé á hnjánum
eins og er, þá hef ég samt trú á,
að það rísi upp aftur í einni eða
annarri mynd en þá því aðeins að
fólkið í landinu telji það þarft fyrir-
tæki; hafi verk að vinna og ráði
við verkefnin. Enda verði þau skil-
fmerkilega afmörkuð og ekki aðal
keppikeflið að vera stór, heldur að
bjóða góð kjör á því sviði sem það
haslar sér völl.
Þegar menn fara að horfa til
framtíðar meira en gert hefur verið
um hríð og ráðist verður í stofnun
nýrra samvinnusamtaka, hvort sem
það verður á rústum Sambandsins
eða á nýjum grundvelli, þurfa þeir
hinir sömu menn, sem til forystu
veljast, að kynna sér vel sögu Sam-
bandsins og gera sér grein fyrir
hveijar voru meginástæður fyrir
því hvemig nú er komið fyrir því.
Huga þarf vel að kostnaðarþætt-
inum sérstaklega. Þar á meðal að
gæta þess vel að yfirbygging á
rekstrinum sé í lágmarki. I hinum
harða heimi viðskiptanna í dag
þarf að halda öllum tekjum til haga,
stjórnunar- og öðrum rekstrar-
kostnaði niðri. Ég vil benda á sem
innlegg í umræðumar í dag, sem
víðsvegar eiga sér stað, að sam-
- vinnuhreyfíngin á íslandi lifir.
Mikilvægasti þáttur samvinnu-
starfsins fer fram í samstarfí og
viðskiptum hins almenna félags-
manns við hans kaupfélag. Að vísu
hafa of mörg kaupfélög orðið að
láta undan og hætta rekstri. En
sterku kaupfélögin halda velli og
þjóna félagsmönnum sínum af
krafti. Segja má, að samvinnu-
» hreyfíngin hafi tapað orrustu. En
nú þarf að fylkja liði til nýrra átaka.
Sambandið var um langt skeið
e kaupfélögunum skjól og skjöldur.
En það var þó aðeins hluti sam-
vinnustarfsins og ekki sá stærsti.
Hann var og er hjá kaupfélögunum.
Stefnumörkun
Vonandi fækkar kaupfélögunum
ekki meira en orðið er. Þó er sá
. möguleiki fyrir hendi. Þau sem eft-
ir lifa bera vonandi gæfu til þess
að starfa saman. Hafa samvinnu
og samráð, eftir því sem hentugt
þykir.
Það er hægt að stofna til sam-
vinnu á afmörkuðu faglegu sviði.
Líka er hægt að stofna til sam-
vinnusambands sem bundið væri
við ákveðin landsvæði. Þau svæða-
sambönd gætu svo myndað lands-
samband. En umfram allt ekki
þenja sig yfír of mikið. Sérstaklega
að fara sér hægt í byijun. Leggja
hiklaust niður þá þætti reksturins
sem ekki skila hagnaði, læra af
reynslunni.
Forðast að gefa tilefni til að
samvinnusamband verði bendlað
við pólitík.
Faglegt samvinnusamband t.d. í
verslun gæti orðið kaupfélögunum
traust lyftistöng. En þá verða
kaupfélagsstjóramir að hafa kjark
til þess að staðla vöruval verslana
sinna og standa við samkomulag
þar um. Þeir þurfa að gera sér
grein fyrir því að það er ekki hægt
að hafa sama vöraval í lands-
byggðarverslun og í stórmarkaði í
Reykjavík.
Með þessu er hægt að ná há-
marksárangri á nýtingu ijármagns
og húsnæðis. Síðast en ekki síst
verðlag (útsöluverð) vöra yrði svo
hagstætt sem verða má.
Samvinnuhugsjónin
- Það er verðið á vörunni og vöru-
gæði sem fólk metur mest. Auk
þess góða þjónustu og gott viðmót
starfsfólks.
Kaupfélögin sópa ekki til sín við-
skiptum út á samvinnuhugsjónina
eina.
Það er æskilegt að fólk viti um
vefarana í Rochdale, frumkvæði
þeirra og baráttu fyrir bættri versl-
un. Einnig er gott að fólk viti um
þrengingar þingeysku bændanna á
sínum tíma þegar þeir voru að
koma Kaupfélagi Þingeyinga á
legg. En af hvetju stofnuðu þeir
kaupfélag? Þeim hefur ábyggilega
ekki verið hugsjón í huga. Heldur
vora þeir að leita leiða til að bæta
kjör sín, drýgja litlar tekjur sínár
með því að reyna að ná betri kjör-
um við innkaup á lífsnauðsynjum
en þeir höfðu haft. Frá því á árdög-
um samvinnuhreyfingarinnar á
landi hefur margt breyst. í staðinn
fyrir verslunareinokun fárra kaup-
manna er nú komin hörð sam-
keppni um verslunina.
Félagsverslun, þ.e. verslun sam-
vinnumanna, hefur náð góðum
árangri víða úti á landsbyggðinni
en í heildina tekið gengið illa á
Stór-Reykjavíkursvæðinu.
Samvinnuverslun
framtíðarinnar?
Hvemig væri að velta málefnum
samvinnuverslunarinnar rrokkuð
fyrir sér? Er víst að við séum með
besta fyrirkomulagið félagslega?
Er okkar félagsform sem við búum
við hjá kaupfélögunum það besta?
Er víst að kaupfélögin nái best til
félagsmanna sinna með samvinnu-
skipulaginu? Kemur ekki annað
félagsform til mála hjá kaupfé-
lögunum? Hvað um hlutafélög, að
breyta kaupfélögum í hlutafélög?
Úthluta hlutabréfum til félags-
manna, hlutabréfum sem væru
hluti (t.d. helmingur) af eign fé
kaupfélags og væri úthlutað til fé-
lagsmanna í hlutfalli við stofnsjóðs-
eign eða viðskipti ákveðið tímabil.
Þeta eru ekki tillögur heldur
vangaveltur. Vonandi er samvinnu-
mönnum þetta ekki svo viðkvæmt
mál að um þau megi ekki ræða.
En ef til er leið til þess að auka
félagslegan áhuga fyrir verslun í
almenningseign, því þá ekki að
skoða málið?
Höfundur er fyrrverandi
kaupfélagsstjóri í Borgarnesi og
sat ístjórn Sambandsins um
árabil, m.a. sem formaður.
HÁRKÚR
Áhrifaríkur hárkúr með
Biotíni
fyrir hár,
húðog
neglur.
Vítamín,
stein-
efni,
amínó-
sýrur,
protein.
Hugsaðu vel um hárið!
BIO-SEIEN UMB.SIMI 76610
PAÐ ER ENGIN TILVIUUN AD
ERU MEST
SELDU
TÖLVUR
Á ÍSLAMDI
HYUNDAi Super 386SL - 20MHz
4MB vinnsluminni
Super VGA lággeisla litaskjár
85MB harður diskur
• Verð kr. 94.900.-
HYUNDAI CS 386DX - 40MHz
4MB vinnsluminni
Super VGA lággeisla litaskjár
85MB harður diskur
• Verð kr. 124.900.-
HYUNDAI CS 486DX - 33MHz
4MB vinnsluminni
Super VGA lággeisla litaskjár
85MB harður diskur
• Verð kr. 169.000.-
G
Verð m/ VSK miðað við staðgreiðslu.
DOS 5.0, Windows 3.1 og mús
fylgja hverri tölvu.
Tæknival
Skeifan 17, sími 68 16 65
V