Morgunblaðið - 10.11.1992, Side 51
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 10. NÓVEMBER 1992
51
Minning
Fjóla Hólmgeirs
dóttír frá Hjalla
Fædd 24. mars 1910
Dáin 17. október 1992
í heiðardalnum er heimabyggð mín
hér hef eg lifað glaðar stundir
Hvergi vorsólin heitar skín,
en hlíðarbrekkunum undir.
Og fólkið þar er svo fijálst og hraust
falslaust vinmál þess og ástin traust.
Já þar er glatt, það segi eg satt
og sælt að eiga þar heima.
(Þ. Erlingsson)
Þessar kunnu ljóðlínur koma mér
í hug, þegar ég lít til baka og rifja
upp kynnin af minni góðu mág-
konu, henni Fjólu á Hjalla, sem nú
er horfin okkur.
Hún var dalabarn, fædd í byrjun
annars áratugar aldarinnar. Hún
ólst upp við þau kröppu kjör, sem
fátækt alþýðufólk bjó yfirleitt við á
þeim árum. Þá ólust börnin upp við
að læra hin ýmsu verk og vinna
með hinum fullorðnu, strax og þau
gátu, í þá daga þótti það sjálfsagð-
ur hlutur. Fjóla ólst upp á býli
skammt frá heiðarbrún. Þaðan er
fagurt útsýni. Stór og fagur skógur
umlukti býlið á þijá vegu. Ullarfoss
og Skipapollur í Skjálfandafljóti
skammt neðan túns. Túnið var lítið
og bratt og engjar litlar. Þarna var
því ekki mögulegt að hafa stórt bú.
Á þessum árum var þó hægt, með
þrotlausu erfiði og sparsemi, að
framfleyta sér af litlu búi.
Foreldrar Fjólu, Guðfinna Sigur-
jónsdóttir og Hólmgeir Björnsson,
byijuðu sinn búskap í Fremstafelli
í Kinn og þar fæddist Fjóla. Þau
bjuggu þar stuttan tíma og lá leiðin
þaðan í Hriflu í Ljósavatnshreppi.
Þaðan urðu þau einnig að fara eft-
ir fáein ár. I Fossseli í Reykdæla-
hreppi bjuggu þau mestallan sinn
búskap, vinsæl og virt af öllum
nágrönnum sínum. Börnin urðu
þijú; Fjóla, Sigrún Kristbjörg og
Njáll. Einnig ólu þau upp bróður-
dóttur Hólmgeirs, Bergþóru Berg-
þórsdóttur. Sigrún varð kona mín,
húsfreyja á Brettningsstöðum í
Laxárdal, í Tungugerði á Tjörnesi
og síðast á Húsavík. Njáll giftist
Aðalbjörgu Þorvaldsdóttur, ekkju
Ketils Sigurgeirssonar í Stafni. Þau
fluttu í Víða í Reykjadal, ásamt
Hólmgeiri. Guðfinna var þá látin.
Síðast bjuggu þau hjónin á Narfa-
stöðum. Þau dvelja nú í Hvammi,
dvalarheimili aldraðra á Húsavík.
Fjóla mun, eftir að hún varð full-
orðin, hafa unnið eitthvað utan
heimilis, á Húsavík og víðar. Árið
1930 var hún í húsmæðraskólanum
á Laugum í Reykjadal. Skömmu
síðar kynntist hún Stefáni Jóni
Tómassyni frá Brettningsstöðum í
Laxárdal. Þau giftu sig árið 1932
og hófu búskap í Glaumbæjarseli,
sem er næsti bær sunnan við Foss-
sel. Bærinn í Glaumbæjarseli var
einn af þessum eldgömlu torfbæjum
og ekki hefur verið vistlegt fyrir
ungu hjónin að flytja þar inn, þvi
bærinn var búinn að standa í eyði
í nokkrun tíma. Ég man það vel
hve umgengnin í þessum gamla bæ
var góð, allt fágað og hreint, eftir
að ungu hjónin fluttu inn. Þarna
bjuggu þau til vorsins 1936. Þá
hafði gengið yfir sá mesti snjóavet-
ur er elstu menn muna. Fjóla og
Stefán fluttu ásamt Fossselsfjöl-
skyldunni að Hömrum í Reykjadal.
Árið 1938 urðu þau að flytjast það-
an og lá þá leið beggja fjölskyldn-
anna í Hjalla. Þar bjuggu síðan
Fjóla og Stefán allan sinn búskap,
eða í rúm þijátíu ár.
, Börn þeirra urðu fjögur; Guðný,
Ásgeir, Erlendur og Guðfinna Hild-
ur. Guðný giftist Sigtryggi Bjarna-
syni frá Syðri-Tungu. Þau byggðu
nýbýlið Steindal. Hún lést árið
1977. Ásgeir giftist Guðrúnu Ág-
ústu Ólafsdóttur frá Borgarfirði
eystri. Þau búa að Hólabrekku í
Reykjadal. Erlendur giftist Árnýju
Bjarnadóttur frá Syðri-Tungu. Þau
þjuggu á Hjalla. Hann lést árið
1978. Guðfinna Hildur giftist Karli
Hjálmarssyni. Þau búa á Húsavík.
Fjóla og Stefán voru ákaflega
vinsæl og vel látin, glaðsinna og
greiðasöm. Að Hjalla var ætíð gott
að koma, enda var þar oft gest-
kvæmt. Þá var glatt á „Hjalla",
sungið og spilað, bæði á hljóðfæri
og spil og stundum slegið upp balli.
Hjallahjónin voru bæði söngelsk og
músíkölsk. Húsbóndinn lék bæði á
fiðlu og harmóniku. Húsmóðirin
lærði nótnalestur og orgelleik hjá
Guðfinnu frá Hömrum og átti sjálf
orgel. Hún átti líka þá guðsgjöf,
að hafa bæði mikla og fallega söng-
rödd. Hún starfaði mikið í kórum,
einkum kirkjukór sveitar sinnar.
Svo vönd var hún að virðingu sinni
á öllum sviðum, að til dæmis hætti
hún allri þátttöku í söngstarfi þegar
henni fannst söngrödd sín vera far-
in að gefa sig. Kórinn hennar skyldi
ekki skemmast af hennar völdum,
sagði hún. Þannig var hún hrein
og bein og hvergi mátti láta eftir
sig annað en það sem var best og
fullkomnast. Ef henni mislíkaði eitt-
hvað, þá var það sagt strax og
umbúðalaust. Slíkt er nú ekki alltaf
vinsælt, en þrátt fyrir það var hún
Fjóla mjög vinsæl. Allir fundu
hversu falslaus og trygglynd hún
var. Gamansemi og orðheppni var
henni eiginleg, reyndar þeim hjón-
um báðum. Að áliðnum desember
1969 dró ský fyrir hamingjusól, er
Stefán varð bráðkvaddur á heimili
sínu, 66 ára að aldri. Fáum vikum
fyrr höfðu þau hjónin látið búið í
hendur yngri syninum sinum Er-
lendi, þar sem heils Stefáns var
tekin að bila.
Næstu árin dvaldi Fjóla hjá börn-
um og venslafólki; á Hjalla, í Hóla-
brekku, í Steindal, í Glaumbæ og á
Narfastöðum. Þegar Hvammur,
vistheimili aldraðra á Húsavík, tók
til starfa, sótti hún strax um dvöl
þar. Við lát ástvinarins var fögnuð-
ur lífsins horfinn, henni virtist lífið
gleðisnautt orðið. Við þennan trega
bjó hún öll ókomin æviár. Auk þess
varð hún að sjá á bak tveggja bama
sinna, Guðnýjar og Erlendar, er
bæði létust í blóma lífsins, Guðný
43 ára og Erlendur 34 ára. í
Hvamm flutti Fjóla árið 1982 og
dvaldist þar til æviloka. Þar fann
hún öryggi og eignaðist vini meðal
vistmanna og starfsfólks. Á engan
mun hallað þótt ég nefni sérstak-
lega nafn Þórarins Þórarinssonar
frá Vogum í Kelduhverfi. Hann á
mikla virðingu og þakkir skildar
fyrir alla þá umhyggju sem hann
sýndi Fjólu í hvívetna. Guð blessi
hann fýrir það. Ég vil hér flytja
öllum aðstandendum hennar, nær
og fjær, samúðarkveðjur mínar,
sona minna og þeirra nánustu.
Nú hefur Fjóla á Hjalla kvatt og
ég sem mágur hennar í 52 ár hef
margs að minnast og ótal margt
að þakka. Ég mun aldrei gleyma
glaðværa og gestrisna heimilinu
hennar á Hjalla. Heldur ekki hjálp-
semi hennar og stuðningi á erfiðum
stundum í mínu lífi. Eg er þess
fullviss að nú er hún komin til fólks-
ins síns, sem hún saknaði mest, úr
vetrinum inn í sumarlöndin hinum
megin hafsins djúpa. Guð fylgi
kærri vinkonu.
Hákon Jónsson í Þórshamri.
+
Elskuleg eiginkona mín og móðir okkar,
BÁRA GUNNARSDÓTTIR,
Mávahlíð 32,
verður jarðsungin frá Dómkirkjunni miðvikudaginn 11.nóvember
kl. 15.00.
Bjarni Vigfússon,
Ingibjörg Bjarnadóttir,
Vilborg Bjarnadóttir,
Gunnhildur Bjarnadóttir.
Þökkum auðsýnda samúð og hlýhug við andlát og útför
GÍSLA EIRÍKSSONAR
bifreiðastjóra.
Gaefa fylgi ykkur.
Kristfn Guðnadóttir
og aðstandendur.
Lokað
Skrifstofa okkar verður lokuð milli kl. 13 og 15 í
dag, þriðjudag, vegna jarðarfarar ÞÓRÐAR Þ.
ÞORBJARNARSONAR, borgarverkfræðings.
Almenna verkfræðistofan hf.,
Fellsmúla 26.
Lokað
Vegna jarðarfarar ÞÓRÐAR.Þ. ÞORBJARNAR-
SONAR, borgarverkfræðings, verður skrifstofa
Sorpeyðingar höfuðborgarsvæðisins bs. í Gufu-
nesi lokuð í dag, þriðjudaginn 10. nóvember, frá
kl. 13.00.
Bróðir okkar, + GUÐMUNDUR STEINSSON, Ránargötu 3a,
er látinn. Útförin hefur farið fram í kyrrþey að ósk hins látna. Þökkum innilega samúð.
Guðfinna Steinsdóttir, Sigurgeir Steinsson.
+
Systir okkar,
SIGURHELGA PÁLSDÓTTIR
hjúkrunarfræðingur,
Dvergabakka 26,
Reykjavík,
sem andaðist 1. nóvember sl. verður
jarðsungin frá Akureyrarkirkju í dag,
þriðjudaginn 10. nóvember, kl. 13.30.
Kristin Pálsdóttir og fjölskylda
Erling Pálsson og fjölskylda.
+
Vegna andláts og jarðarfarar eiginmanns, föður, stjúpföður og
sonar,
STEFÁNS GUÐMUNDAR JÓHANNSSONAR,
Lækjargötu 8,
Siglufirði,
vil ég þakka öllum þeim mörgu, nær og fjær, sem sýndu mér og
fjölskyldu minni samúð og vináttu og honum virðingu með nær-
veru sinni, blómum og kveðjum.
Guð blessi ykkur öll.
Fyrir hönd aðstandenda,
Ásta Björg Tómasdóttir.
+
Innilegar þakkir fyrir auðsýnda samúð
og hlýhug við andlát og útför litla
drengsins okkar,
REYNIS GÍSLA
PÉTURSSONAR.
Asta María Reynisdóttir, Pétur Árni Rafnsson,
Birna Pétursdóttir, Rafn Jóhannsson,
Svanfriður María Guðjónsdóttir, Reynir Gfsli Karlsson.
+
Okkar innilegustu þakkir til allra þeirra sem auðsýndu okkur sam-
úð og vináttu við fráfall og útför eiginkonu minnar, móður okkar,
tengdamóður og ömmu,
ELÍNBORGAR BATSEBU VAGNSDÓTTUR,
Ennisbraut 37,
Ólafsvik.
Ingólfur Gunnar Gi'slason,
Anton Gísli Ingólfsson,
Björk Ingólfsdóttir,
Vagn Ingólfsson, Una Erlingsdóttir,
Snædís Vagnsdóttir.
Birting afmælis-
og minningargreina
Morgunblaðið tekur afmæl-
is- og minningargreinar til
birtingar endurgjaldslaust.
Tekið er við greinum á rit-
stjórn blaðsins á 2. hæð í Aðal-
stræti 6, Reykjavík og á skrif-
stofu blaðsins í Hafnarstræti
85, Akureyri.
Athygli skal á því vakin, að
greinar verða að berast með
góðum fyrirvara. Þannig verður
grein, sem birtast á í miðviku-
dagsblaði að berast síðdegis á
mánudegi og hliðstætt er með
greinar aðra daga.
í minningargreinum skal hinn
látni ekki ávarpaður. Ekki eru
tekin til birtingar frumort ljóð
um hinn látna. Leyfilegt er að
birta tilvitnanir í ljóð eftir þekkt
skáld, og skal þá höfundar get-
ið. Sama gildir ef sálmur er birt-
ur. Meginregla er sú, að minn-
ingargreinar birtist undir fullu
nafni höfundar.
Við birtingu afmælisgreina
gildir sú regla, að aðeins eru
birtar greinar um fólk sem er
70 ára eða eldra. Hins vegar eru
birtar afmælisfréttir með mynd
í dagbók um fólk sem er 50 ára
eða eldra.
Mikil áhersla er á það lögð
að handrit séu vel frá gengin,
vélrituð og með góðu línubili.
I