Morgunblaðið - 10.11.1992, Qupperneq 56
56
MQRGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 10. NÓVEMBER 1992
STJÖRNUSPÁ
eftir Frances Drake
Hrútur
(21. mars - 19. apríl)
Láttu ekki draga úr þér
kjarkinn. Þú þarft samt
ekki að trana þér fram eða
reyna að þröngva skoðun-
um þínum upp á aðra.
Naut
; (20. apríl - 20. maf)
Góður dagur til að sinna
fjármálum. Þú nýtur þín í
samskiptum við aðra og
færð fullan stuðning sam-
starfsmanna.
Tvíburar
(21. maí - 20. júní)
Dugnaður þinn skilar
árangri. Ekki eru allir jafn
samstarfsfúsir. Þér líkar vel
gangur mála á vinnustað.
Krabbi
(21. júní - 22. júlf) >*$S
Láttu ekki efasemdir ann-
; arra draga úr sjálfstrausti
þínu. Þú þarft að lesa á
milli línanna til að skilja
hugarástand ástvinar.
Ljón
(23. júlí - 22. ágúst)
Þér finnst skorta á skilning
og umhyggju ástvinar.
Farðu þér hægt til kvölds,
en þá snúast málin til betri
vegar.
í Meyja
(23. ágúst - 22. september)
Fyrri hluta dags sinnir þú
málum heimilisins, en fé-
lagslífið heillar þegar kvöld-
ar. Sátt og samlyndi ríkir
milli ástvina.
Vog
(23. sept. - 22. október)
Þér hættir til að vanmeta
kosti þína. Það finnur þú
þegar þér er falið að Ieysa
áríðandi verkefni í vinnunni.
Sþorðdreki
(23. okt. - 21. nóvember) ^((0
. Láttu ekki peningaáhyggjur
* íþyngja þér þegar þú heim-
sækir vini. Heimsóknin
verður þér til ánægju og
gefur þér nýjar hugmyndir.
Bogmaður
(22. nóv. - 21. desember) &
Þú þarft ekki að hika við
að takast á við vandamál
heima fyrir. Efasemdir í
eigin garð halda aftur af
þér, en Iíttu á björtu hlið-
arnar.
Steingeit
(22. des. - 19. janúar)
,Ekki er alltaf allt sem sýn-
!ist. Treystu eign dóm-
greind. Kvöldið verður
ánægjulegt og einlægni rík-
ir hjá ástvinum.
Vatnsberi
(20. janúar - 18. febrúar) ðh
Farðu eigin leiðir að lausn
verkefnis og láttu ekki aðra
afvegaleiða þig. Treystu
eigin ákvörðunum, þær
færa þig að settu marki.
Fiskar
1(19. febrúar - 20. mars) Sí
Þótt einhver virðist annars
hugar er ekki verið að snið-
ganga þig. Félagslífíð er líf-
legt og ástin blómstrar.
Stjörnusþána á að lesa sem
dœgradvól. Sþár af þessu tagi
byggjast ekki á traustum grunni
.vísindalegra staóreynda.
DYRAGLENS
GRETTIR
SMÁFÓLK
I THINK YOU WEKE BOKN
CRABBY, YOU'RE CRAB5Y NOU),
AN0 you'll BE CRABBY FOR
THE RE5TOF YOUR LIFE..
f^r
Eg held að þú hafir fæðst fúl, þú Það sem eftir er ævi minnar?
ert fúl núna, og þú munt verða fúl
það sem eftir er ævi þinnar.
Það sem eftir er ævi þinnar. Það
er léttir.
BRIDS
Umsjón: Guðm. Páll
Arnarson
Bandaríkjamaðurinn Eric
Rodwell er engum líkur í sögnum.
Nema kannski fastamakker sín-
um, Jeff Meckstroth! En hér er
Rodwell með annan félaga, Jim
Green. Staður og stund er kana-
díska boðsmótið, sem haldið var í
Toronto í febrúar sl. Mótherjarnir
eru Cliff Russell og ísraelinn (
Samuel Lev.
Austur gefur; NS á hættu.
Vestur
♦ ÁG
V 7632
♦ 10843
♦ 1073
Norður
♦ D9654
¥ÁD9
♦ Á7
♦ 542
II
Suður
♦ K1032
V G10854
♦ DG
♦ K6
Austur
♦ 87
VK
♦ K9652
♦ ÁDG98
Vestur Norður Austur Suður
Russell Green Lev Rodwell
- - 1 tígull 1 hjarta
2 tíglar Dobl* 3 lauf 3 spaðar!
Pass 4 hjörtu Pass 4 spaðar
Pass Pass Pass
*neikvætt dobl.
Útspil: tígulfjarki.
Lev fékk fyrsta slaginn á tígul-
kóng og skipti yfír í ás og drottn-
ingu í laufi. Rodwell átti þann slag
á kóng, fór inn á borð á tígulás
og spilaði spaða að kóng og ás
vesturs. Russel skilaði laufi, sem
Rodwell trompaði.
Sagnir bentu til fyrir að Lev
ætti 5-5 í láglitunum. Fyrirfram
var besta vinningsvon Rodwells sú
að Lev ætti spaðaás og Russel þá
hjartakóng. Einmitt þess vegna
hafði Rodwell spilað spaðanum úr
borðinu, til að veijast ás blönkum.
En nú leit út fyrir að hjartakóngur-
inn væri í austur.
Spilið ynnist aldrei nema hjarta-
kóngurinn væri blankur, svo
Rodwell spilaði nú hjarta á ásinn
til að kanna málið. Þegar kóngur-
inn datt, tók hann spaðadrottningu
og lagði upp.
Það var vandað hjá Rodwell að
prófa hjartað fyrst, áður en hann
tók spaðadrottningu. Ef austur var
með Kx í hjarta var sennilegt að
spaðinn lægi 3-1 og þá hugðist
Rodwell svína fyrir spaðagosann
. til að sleppa einn niður. Það mun-
ar um hvern slag á hættunni.
SKAK
Umsjón Margeir
Pétursson
Á unglingameistaramóti ís-
lands fyrir 20 ára og yngri, sem
fram fór í Kópavogi um helgina,
kom þessi staða upp í skák þeirra
Bergsteins Einarssonar (1.550)
og Hannesar Hlífars Stpfáns-
sonar (2.445), alþjóðlegs meist-
ara, sem hafði svart og átti leik.
Bergsteinn, sem þó er aðeins 11
ára, hafði sýnt af sér mikinn
stöðuskilning í byrjuninni og feng-
ið yfirburðatafl. Hann gerði síðan
þau mistök að opna taflið á drottn-
ingarvæng og Hannes náði hættu-
legum sóknarfærum. Bergsteinn
lék síðast 27. b2 — b3.
27. - Hxb3l, 28. axb3 - Dxb3,
29. Db2 - De3+, 30. Dd2? (Hvít-
ur gat ennþá varist með þvf að
láta drottninguna af hendi og leika
30. Kbl! Staðan eftir 30. —
Hxb2+, 31. Hxb2 er þá engan
veginn Ijós, en e.t.v. ætti svartur
að reyna 30. - Hb3!?) 30. —
Rd3+, 31. Kc2 - Hb2+, 32. Kc3
— Dd4 mát. Þeir Hannes Hlífar
Stefánsson og Héðinn Steingríms-
son munu á næstunni tefla einvígi
um titilinn „Unglingameistari ís-
lands 1992“.
(
(
i
i
i
i
i
i
i
i
i
í
í