Morgunblaðið - 10.11.1992, Page 63
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 10. NÓVEMBER 1992
63
Eikaborgararall
Steingrímur vann snjórallið
Morgunblaðið/Úlfar Ágústsson
Kristín Magnúsdóttir í hópi vina og ættingja í aldarafmælisveislunni.
Hundrað ára og
nýhætt búskap
ísafirði.
KRISTÍN Magnúsdóttir, fyrrum húsfreyja í Efri-Engidal í Skutuls-
firði, varð 100 ára 5. nóvember. Hún bauð til veglegrar veislu í mat-
sal Fjórðungssjúkrahússins á ísafirði í tilefni afmælisins. Þar flutti
bæjarsljórinn á ísafirði ávarp og tilkynnti um gerð trjálundar í svo-
nefndum Stóra parti í iandi Engidals sem mun bera nafn Kristínar.
Börn hennar og Jóns Magdal Jónssonar og börn mágkvenna hennar
stofnuðu sjóð til kaupa á orgeli fyrir kapelluna á Fjórðungssjúkrahús-
mu.
Kristín er þriðji ættliðurinn sem
býr í Efri-Engidal, en Sigurgeir son-
ur hennar, sem alla tíð hefur búið
með foreldrum sínum, hefur tekið
við búrekstrinum.
Böm tveggja systkina foreldra
Kristínar voru tekin í fóstur á heimil-
ið þegar feður þeirra dóu. Eitt þeirra,
Jón Magdal Jónsson, varð síðar eigin-
maður Kristínar og bjuggu þau allan
sinn búskap í Engidal. Kristín og Jón
eignuðust 6 böm, Sigurgeir bónda í
Engidal, Guðnýju, vistmann á Kópa-
vogshæli, Jón Jóhann, leigubílstjóra
á ísafirði, Halldór, flugvirkja í
Reykjavík, Magnúsínu, sem býr með
bróður sínum í Engidal, og Magða-
lenu, ljósmóður á Landspítalanum.
Kristín gegndi húsmóðurstörfum
í Engidal þar til hún var komin á
98. aldursár. Þá fór hún á Fjórðungs-
sjúkrahúsið á ísafirði, þar sem fæt-
urnir vom famir að bila og sjónin
að daprast. Hún lætur það þó ekki
aftra sér frá að sælqa daglega leik-
fimiæfíngar. Starfsfólk sjúkrahúss-
ins sagði að hún virtist fylgjast n\jög
grannt með búskapnum í Engidal og
hefði alltaf svör á reiðum höndum
um hvar Sigurgeir bóndi væri stadd-
ur þá stundina sem hann væri ekki
inni við til að svara í síma.
Smári Haraldsson bæjarstjóri
færði afmælisbaminu blómakörfu
frá bæjarsjóði og flutti ávarp þar sem
hann tilkynnti að bæjarsjóður hefði
ákveðið að hefja ræktun birkiskógar
í svokölluðum Stóra parti í landi
Engildals og myndi hann bera nafn
Kristínar.
Magðalena Ingimundardóttir syst-
urdóttir Jóns Magdals flutti ræðu í
hófínu og tilkynnti um stofnun minn-
ingarsjóðs til kaupa á orgeli í kapell-
una í Fjórðungssjúkrahúsinu, en gef-
endur em böm Kristínar og Jóns
Magdals og systra Jóns, Jóhönnu
Jónsdóttur, sem gift var Ingimundi
Ögmundssyni, og Jónu, sem gift var
Þorgeiri Olafssyni, en þau bjuggu
öll á ísafírði.
- Úlfar
Steingrímur Ingason vann
snjórall Eikaborgara og Bif-
reiðaíþróttaklúbbs Reykjavíkur,
sem fram fór á laugardaginn í
nágrenni Þingvalla. Steingrímur
ók Nissan að vepju og bauð með
sér Páli Kára Pálssyni sem að-
stoðarökumanni og hann fagnaði
því sigri í þessari frumraun sinni
í rallakstri. í keppninni tryggðu
félagarnir Baldur Jónsson og
Guðmundur Pálsson á Mazda sér
bikarmeistaratitilinn í flokki
óbreyttra bíla, eftir harða á
keppni á árínu við Óskar Ólafs-
son og Jóhannes Jóhannesson á
Suzuki.
„Það var skemmtileg tilbreyting
að keppa í snjónum og barátta til
síðustu metra. Ég gat ekki nýtt
hestöflin til fulls í hálkunni, en
mikill snjór var á sumum köflum
leiðanna, sem gerði keppnina öðm-
vísi en önnur röll ársins og var
spennandi viðfangs," sagði sigur-
vegari Eikaborgararallsins, Stein-
grímur Ingason, í samtali við Morg-
unblaðið. Hann lauk keppnisári rall-
ökumanna í öðru sæti til íslands-
meistara á eftir Ásgeiri Sigurðs-
syni, sem ekki tók þátt í þessari
lokakeppni. Að sama skapi keppti
Rúnar Jónsson ekki vegna háls-
meiðsla, sem hann hlaut eftir veltu
í Norðurlandarallinu og faðir hans,
Jón Ragnarsson, ók Mazda bíl
þeirra ásamt Sveinbjörgu dóttur
sinni. Luku þeim keppni í fjórða
sæti eftir varkáran akstur. Hafa
nú átta manns sem eru S fjölskyldu
bræðranna Ómars og Jóns prófað
rallakstur, ýmist sem ökumenn eða
aðstoðarökumenn, gegnum tíðina,
sem hlýtur að vera einsdæmi í rall-
heiminum.
Baldur sonur Jóns hefur sýnt
mikla hæfni undir stýri á árinu, en
hann byijaði að keppa í vor á fjór-
hjóladrifnum Mazda keppnisbíl og
vann flokk óbreyttra bíla í þeim
mótum sem hann lauk keppni og
vann bikarmeistaratitil Bílgreina-
sambandsins fyrir vikið eftir harða
keppni við Óskar Ólafsson. Úrslitin
í þeirri stigakeppni réðust eimmit í
Danskur sagnfræðingur skrifar í Politiken
Gagnrýnir álit nefndar um
mál Eðvalds Hinrikssonar
Kaupmannahöfn. Frá Sigrúnu Davíðsdóttur, fréttarítara Morgunblaðsins.
DANSKUR sagnfræðingur, Bent Bliidnikow, fjallar um mál Eðvalds
Hinríkssonar í grein sem birtist á sunnudag í danska dagblaðinu
Politiken. Þar gagnrýnir hann niðurstöður sérfræðinganefndar
þeirrar sem dómsmálaráðherra fól að fjalla um mál Eðvalds.
í inngangi greinar Bludnikows
segir að þegar gyðingar hafi flust
frá Þýskalandi á fjórða áratugnum
hafi hluti þeirra leitað til Norður-
landanna en þar hafi engan griða-
stað verið að fínna. „Landamærin
voru lokuð. ísland fylgdi sömu stefnu
og t.d. Danmörk: erlendir gyðingar
voru óvelkomnir. Það er kaldhæðnis-
legt að einn þeirra Eistlendinga, sem
sennilega tók þátt í gyðingaútrým-
ingunum á stríðsárunum, fann
griðastað á íslandi og nýtur enn
frelsis á eyjunni sem virtur samfé-
lagsþegn.“ Bludnikow rekur gang
málsins hér á íslandi og gagnrýnir
niðurlag álitsgerðar þeirra Eiríks
Tómassonar og Stefáns M. Stefáns-
sonar frá 30. september. Hann gerir
athugasemd við þau orð í álitinu að
ekki sé hægt að komast að eigin-
legri niðurstöðu um mál Eðvalds
vegna þess hve aðstæður hafí verið
flóknar í Eistlandi í stríðinu og vegna
þess að of langur tími sé liðinn síðan.
Hann dregur einnig í efa að álits-
gerðin sé hlutlæg. Nefnir hann að
þar sé ekki tekið tillit til skýrslu
finnska lögreglumannsins Olavi Vi-
herluoto en hann heimsótti Eistland
í október 1941. Sagt hefur verið frá
þessari skýrslu í íslenskum fjölmiðl-
um en hún er varðveitt í finnska
þjóðskjalasafninu. í henni er því
haldið fram að Eðvald hafí sjálfur
stjórnað pyntingum í fangelsi í Tall-
inn. Ennfremur er vitnað í þau orð
Eðvalds að hann og félagar hafi
tekið fjörutíu gyðinga af lífi. Bludn-
ikow gagnrýnir einnig að í álitsgerð-
inni sé ekki sýnt fram á ósannindi
í málflutningi Eðvalds. T.d. hafi
Eðvald í samtölum við fjölmiðla neit-
að því að hann þekkti eisteska gyð-
inga, fólk sem hann þó sannanlega
handtók. „Álitsgerð nefndarinnar er
fyrst og fremst lögfræðileg úttekt á
formlegum lögfræðilegum efnum.
En hún er ekki nema veikburða til-
raun til sagnfræðilegrar greinar-
gerðar um mál Eðvalds og þar er
ekki reynt á sjálfstæðan máta að
draga fram nýjar upplýsingar," seg-
ir í grein Bludnikows.
Ennfremur segir Blúdnikow að
stöðugt séu að koma fram nýjar
upplýsingar um málið og dregur
stórlega í efa að íslenskum stjórn-
völdum verði til lengdar stætt á því
að styðja Eðvald. Vitnar hann í þá
áminningu Júrijs Resetovs, sendi-
herra Rússlands, að íslandi beri
skylda til að hlíta reglum þjóðaréttar
um stríðsglæpi.
Morgunblaðið/Gunnlaugur Rögnvaldsson
Faðir og synir í rallinu. Baldur Jónsson og Guðmundur Pálsson
urðu bikarmeistarar í flokki óbreyttra bíla á Mazda 323 4x4, en
faðir Baldurs, Jón Ragnarsson, ók j stað Rúnars, sem var meiddur
á hálsi. Þeir feðgar hafa staðið sig vel síðustu ár og nýliðinn Baldur
ótrúlega vel á fyrsta árí, aðeins 19 ára gamall.
þessu síðasta ralli, en Baldur hafði
10 stiga forskot á Óskar áður en
hún hófst. „Ég keyrði ekki vel í
byijun, en þegar við settum sams-
konar snjódekk og Óskar undir fór
okkur að ganga betur og við náðum
að sigla fram úr honum. Fyrir síð-
ustu sérleiðina hafði reyndar gengið
það vel að við vorum famir að eygja
möguleika á sigri, því Steingrímur
var aðeins átta sekúndum á und-
an,“ sagði Baldur um keppnina um
helgina.
„En ég sprengdi fljótlega á síð-
ustu leiðinni og ákvað þá að aka
bara nógu hratt til að vera á undan
Óskari og tryggja bikarinn í flokkn-
um, en það var gaman að finna
lyktina af sigurlaununum. Árið hef-
ur gengið ótrúlega vel og ég átti
ekki von á þessum árangri á fyrsta
ári, ætlaði bara að dóla á eftir Ósk-
ari í mótum ársins. Við höfum að
vísu fjórhjóladrifinn bíl á móti fram-
drifsbíl hans, en okkar bíll er líka
Qögur hundruð kg þyngri. Mig
langar að skipta um bíl fyrir næsta
ár, draumabíllinn er nýr fjórhjóla-
drifinn Ford Eseort, en hann verður
of dýr í keppnisformi. Minni bíll er
líklega betri kostur. í upphafi þessa
árs ætluðum við að renna mótin á
6-8 dekkjum, en lentum í það mik-
illi keppni að eftir tímabilið vorum
við búnir að slíta 24 dekkjum, sem
er þó lítið miðað við aflmestu bílana
í rallinu. En það er gaman hve
flokkur óbreyttra bfla hefur vaxið
og næsta ár verður vonandi enn
betra í flokknum," sagði Baldur,
sem .nú er rallökumaður í fremstu
röð, með sama blóð í æðum og
Rúnar bróðir, Jón faðir hans og
Ómar frændi, sem allir hafa orðíð
íslandsmeistarar í rallakstri.
Sigurvegari rallsins um helgina
var líka mjög sáttur við tímabilið.
Hann vann tvö mót, varð tvívegis
í öðru sæti og einu sinni í því þriðja.
„Mér finnst skemmtilegast við þetta
keppnisár að hafa smíðað minn eig-
in keppnisbfl, sem ekkert hefur bil-
að í mótunum. Ég gerði mistök í
akstri í síðustu keppni og féll úr
keppni, en bíllinn hefur aldrei klikk-
að,“ sagði Steingrímur. „Keppnin
um helgina var mjög spennandi, égr
snarsneri bílnum á lokaleiðinni milli
tveggja metra hárra snjóbarða,
komst þó fljótt af stað að nýju, en
mátti engan tíma missa miðað við
stöðuna fyrir leiðina. Ég slapp þó
með skrekkinn þar sem Baldur tap-
aði tíma á sprungnu framdekki. Það
þurfti að keyra varlega í hálkunni,
yfirleitt var ég í fimmta gír og not-
aði tog vélarinnar til að koma hon-
um áfram, spilaði lítið á gírskipting-
ar. Aflið nýttist hvort eð er ekki
við þessar aðstæður. Það var ljúft
að enda tímabilið með þessum
sigri,“ sagði Steingrímur.
Blúdnikow segir að stjómvöld og
fjölmiðlar á íslandi hafi slegið skjald-
borg um Eðvald. Opinber umræða
hafí stöðvast um leið og dómsmála-
ráðherra skipaði nefnd um málið.
En jafnvel þótt Pressan og Stöð 2
hafi birt mikilvægar upplýsingar um
málið hafi almenningur og stjómvöld
ekki haft áhuga á að taka það upp.
Aðrir fjölmiðlar hafi þagað.
Bludnikow er 38 ára gamall sagn-
fræðingur sem starfar við þjóð-
skjalasafnið í Kaupmannahöfn. Bók
eftir hann sem kom út í fyrra vakti
mikla athygli. Heitir hún „Eins og
þeir væru alls ekki til“ og greinir
m.a. frá því hvemig Danir vísuðu
gyðingum á dyr fyrir stríð og við
upphaf þess.
Fréttaritari Morgunblaðsins
ræddi við Bludnikow eftir að greinin
birtist. Það vekur athygli hve þung-
orður hann er í garð íslendinga.
Aðspurður segist hann ekki geta
neitað því að uppmni sinn kunni að
eiga þátt í því hvemig hann fjallar
um efnið. Bludnikow er gyðingur
og segir hann að þótt hálf öld sé
liðin frá helförinni þá vilji hann reyna
að koma í veg fyrir að þessir atburð-
ir falli í gleymsku. Því gleymskan
sé forsenda þess að þeir endurtaki
sig. Bltidnikov segir að gagnrýni sín
beinist fyrst og fremst að því að
ekki sé rétt að láta staðar numið á
þessari stundu við rannsókn á máli
Eðvalds.
IffiNN MN
fjQlskyloa?
Heildarvinningsupphæðin:
124.072.631 kr.
45. lelkvika - 7. nóvember 1992
Röðin: 112-1X1-122-1122
13 réttir: 31 rööá 1.080.630 - kr.
12 réttir: 725raðirá 29.090 - kr.
11 réttir: 8.695 raðir á 2.560 - kr.
10 réttir: 62.288 raöirá 750 - kr.
Engin var meö 13 rétta á íslandi aö þessu sinni en 18 raöir
komu fram meö 12 rétta. Muniö aö getraunasölu lýkur
klukkan 13:00 á laugardag. 1X2 - ef þú spllar tll aS vlnna I
—tyrir þig og þiru fjölskyklul