Morgunblaðið - 07.01.1993, Blaðsíða 26
26
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 7. JANÚAR 1993
Skipstjórafélag Norðlendinga
Réttindamenn at-
vinnulausir þó und-
anþágur séu veittar
SKIPSTJÓRAFÉLAG Norðlendinga vill að allur fiskur sem fer til
-^ vinnslu innanlands verði seldur á fiskmörkuðum og þá vill félagið einn-
ig að hafnar verði hvalveiðar á þessu ári. Þetta kemur fram í ályktun-
um sem samþykktar voru á aðalfundi Skipslgórafélags Norðlendinga
skipstjómarmanna verði undanþágu-
veitingar stórhertar. „Það er algjör-
lega óviðunandi að réttindamenn
gangi um atvinnulausir á meðan
undanþágur til skipstjómar em veitt-
ar í stórum stíl,“ segir í ályktun.
Þá er einnig skorað á sjávarút-
vegsráðherra að beita sér fyrir laga-
setningu um að allur fiskur sem fer
til vinnslu innanlands verði boðinn
upp á viðurkenndum fiskmörkuðum
eða í tengslum við þá og jafnframt
verði ákveðið lágmarksverð hinna
ýmsu tegunda út af mörkuðunum
eins og tíðkast erlendis.
Þá er skorað á stjómvöld að heíja
á árinu veiðar og nýtingu hvalastofna
jafnframt því sem gerð verði vísinda-
leg úttekt á stærð selastofnsins með
tilliti til þess hve stórt skarð hann
heggur í fiskistofna.
Aðalfundur Skipsljórafélags
Norðlendinga mótmælir einnig harð-
lega fyrirhuguðum skattahækkunum
stjómvalda á almenning í landinu.
„Við skiljum ekki þá hagfræði að á
samdráttar- og þrengingartímum séu
álögur á almenning stórauknar og
neysla þar með minnkuð með tilheyr-
andi fækkun atvinnutækifæra. Það
hlýtur að vera krafa launþega að
þessar ákvarðanir um skattahækk-
anir verði dregnar til baka.“
Nýja stjóm félagsins skipa Halldór
Hallgrímsson, Akureyri, formaður,
Þorbjöm Sigurðsson, Ólafsfirði,
varaformaður, Kristján Halldórsson,
Akureyri, ritari, en aðrir í stjóm era
Guðjón Guðjónsson, Skagaströnd,
Ami Bjamason, Akureyri, Aki Stef-
ánsson, Akureyri, Sigurður Haralds-
son, Dalvík, og Vigfús Jóhannesson,
Dalvík.
Gestur aðalfundarins var Guðjón
A. Kristjánsson, forseti Farmanna-
og fiskimannasambandsins, og flutti
hann erindi um lqara- og atvinnumál.
Námskeið í
aðferðarfræði
og stærðfræði
Háskólinn á Akureyri býður upp á tvö námskeið á vormiss-
eri í aðferðarfræði og stærðfræði, ef næg þátttaka fæst.
Kennsla hefst 19. og 20. janúar og verður á þriðjudags-,
miðvikudags- og fimmtudagskvöldum, kl. 18.00-19.30,
fram í maí. Umsjónarmenn námskeiðs í aðferðarfræði eru
dr. Kristján Kristjánsson og dr. Guðmundur Heiðar Frí-
mannsson. í námskeiðinu verður lögð áhersla á fræðileg
vinnubrögð, upplýsingaöflun, tölvunotkun, rökfræði og vís-
indalega aðferð. Fyrsti kennsludagur verður 20. janúar.
Umsjónarmaður námskeiðs í stærðfræði er dr. Stefán G.
Jónsson. í námskeiðinu verður lögð áhersla á rúmfræði,
algebru, tölfræði og fallafræði.
Bæði námskeiðin verða að fullu metin til eininga, þegar
kennaradeild fer af stað við skólann næsta haust, en ein-
skorðast ekki við væntanlega kennara.
Þátttakendur skulu hafa stúdentspróf eða sambærilega
menritun og eru beðnir að innrita sig á skrifstofu Háskól-
ans við Þingvallastræti, kl. 9-12, í síðasta lagi 15. janúar
nk. eða hringja í síma 1-17-70 og fá sent umsóknareyðu-
blað. Umsókninni skal fylgja námskeiðsgjald 11.500 kr., sem
veitir einnig aðgang að öðrum námskeiðum við skólann.
Nemendur, sem skráðu sig á haustönn við Háskólann,
þurfa ekki að greiða námskeiðsgjald.
Upplýsingar um námskeiðin veitir skrifstofa Háskólans á
Akureyri, sími 1-17-70.
Frekari upplýsingar veita dr. Stefán G. Jónsson um stærð-
fræðina og dr. Kristján Kristjánsson um aðferðarfræðina.
Háskólinn á Akureyri.
HÁSKÓUNN
Á AKUREYRI
sem haldin var fyrir skömmu.
í ályktun sem samþykkt var á
fundinum er skorað á undanþágu-
nefnd að með tilliti til atvinnuástands
Fólskuleg nauðgnn
DNA-grein-
ing bendir til
.sektar manns
ÞÆR niðurstöður sem fyrir liggja
í DNA-greiningu á blóðsýni sem
tekið var úr svokölluðum sólbaðs-
stofuræningja benda sterklega til
að hann sé sekur um fólskulega
nauðgun konu á Akureyri í júlí í
fyrra. Lokaniðurstöður rannsókn-
arinnar, sem gerð er í Bretlandi,
hafa þó ekki borist enn.
Gunnar Jóhannsson lögreglufull-
trúi hjá Rannsóknarlögreglunni á
Akureyri sagði að granur hefði beinst
^að umræddum manni í september.
Blóðsýni var tekið úr honum í októ-
ber og það sent til rannsóknar í Bret-
landi. Maðurinn var handtekin eftir
rán á sólbaðsstofu í Reykjavík 6.
nóvember sl. og hefur verið í gæslu-
varðhaldi í Síðumúlafangelsi síðan.
Maðurinn braust inn í hús á Akur-
eyri í fyrra, þar sem kona og tvö
böm hennar sváfu. Hótaði maðurinn
að gera bömum konunnar mein léti
hún ekki að vilja hans og ógnaði
henni með hnífi. í fyrstu var annar
maður undir grun, en DNA-greining
leiddi sakleysi hans í ljós. Gunnar
sagði rannsókn ekki að fullu lokið.
Maðurinn sem um ræðir er 26 ára
gamall, búsettur í Hafnarfirði og
hefur hann margoft komið við sögu
^-lögreglunnar.
Morgunblaðið/Rúnar Þór
Námskeið haldin þar til fiskur berst
Vinnsla hefst í frystihúsi Útgerðarfélags Akur-
eyringa eftir helgi, en á meðan ekki er hráefni
til vinnslu hefur starfsfólkið setið á námskeið-
um. Þegar ljósmyndari Morgunblaðsins kom
við í matsal ÚA í gær var Magnús Ólafsson
sjúkraþjálfari að halda erindi.
Félagar í Verkalýðsfélaginu Einingii í nágraimasveitarfélögiinum
Meira greitt í atvinnu-
leysisbætur en áður
MUN MEIRA fé var greitt í atvinnuleysisbætur til félagsmanna í
Verkalýðsfélaginu Einingu sem búsettir eru í Eyjafjarðarsveit á
nýliðnu ári, en var árið þar á undan og hið sama gildir um Einingar-
félaga sem búsettir eru í Svalbarðsstrandarhreppi og Árskógshreppi.
í fyrra voru 963 félagsmönnum
í Verkalýðsfélaginu Einingu greidd-
ar atvinnuleysisbætur samtals að
upphæð tæplega 75 milljónir króna.
Langmest var greitt til félagsmanna
á Akureyri eða 48,2 milljónir til 497
félagsmanna.
í Árskógshreppi vora félags-
mönnum í Einingu greiddar um 2-
milljónir í atvinnuleysisbætur og
fengu á liðnu ári 43 greiddar út
bætur, en á árinu 1991 voru 20
félagsmönnum greiddar atvinnu-
leysisbætur samtals að upphæð um
883 þúsund kr. í Amameshreppi
fengu 24 atvinnuleysisbætur á liðnu
ári, samtals um 2,3 milljónir, en
árið á undan vom greiddar út tæp-
lega 1,8 milljónirtil 21 félagsmanns.
Mikil aukning varð í Eyjafjarðar-
sveit, en árið 1991 fengu 12 Eining-
arfélagar búsettir þar atvinnuleysis-
bætur að upphæð um 1,1 milljón
kr. Á nýliðnu ári voru greiddar út
tæplega 3 milljónir í atvinnuleysis-
bætur til 27 félagsmanna.
Um einni milljón króna meira var
greitt í atvinnuleysisbætur til Ein-
ingarfélaga í Svalbarðsstrandar-
hreppi á síðasta ári miðað við árið
á undan eða rúmlega 3 milljónir.
í Skriðuhreppi voru greiddar út
440 þúsund krónur í atvinnuleysis-
bætur móti um 230 þúsundum árið
á undan. Þá voru greiddar út rúm-
lega 200 þúsund kr. í atvinnuleysis-
bætur til Einingarfélaga í Öxndæla-
hreppi, en þar hefur Eining ekki
áður greitt út atvinnuleysisbætur.
Svipuð upphæð var greidd út til
félagsmanna í Glæsibæjarhreppi
eða um 240 þúsund krónur og eins
var nánast sama upphæð greidd í
atvinnuleysisbætur til Einingarfé-
laga á Dalvík eða um 6,6 milljónir
og þá var ástandið einnig svipað á
Grenivík bæði árið 1991 og 1992.
Sama má segja um Ólafsfjörð þar
sem greiddar voru út um 6,5 milljón-
ir á liðnu ári í atvinnuleysisbætur
til Einingarfélaga bæði árin, en
heldur fleiri voru á skrá þar í fyrra
eða 123 á móti 109 árið á undan.
í Hrísey voru greiddar út árið
1991 um 280 þúsund krónur í at-
vinnuleysisbætur til 7 félagsmanna
Einingar, en á nýliðnu ári fengu 44
félagsmenn greiddar út um 1,2
milljónir króna í bætur.
------» ♦ ♦-------
Líkur á góðri
skíðavertíð
MIKILL snjór er nú í Hlíðarfjalli
og er opið þar alla daga frá kl.
13-18.45 og lengur á þriðjudögum,
miðvikudögum og fimmtudögum.
Um helgar er opið frá 10-17. „Mið-
áð við árstima er ástandið mjög
gott, það hefur ekki verið svona
mikill snjór hér og gott færi á
þessum tíma um alllangt skeið,“
sagði ívar Sigmundsson forstöðu-
maður Skiðastaða.
Skíðaskóli í Hlíðarfjalli byrjar á
mánudag, 11. janúar. Þá er starfsemi
Skíðaráðs kominn í fullan gang og
er stór hópur bama og unglinga við
æfmgar 3-5 sinnum í viku.
„Það er áhugi fyrir skíðaíþróttinni
meðal almennings hér þrátt fyrir að
tveir síðustu vetur hafi verið nær
ónýtir á þessum vettvangi og mér
sýnist að þetta verði hin besta skíða-
vertíð," sagði ívar.
Skíðastaðir í Hlíðarfjalli eru um 7
kílómetra frá Akureyri og era áætl-
unarferðir þrisvar á dag. í Hlíðar-
fjalli eru 4 lyftur, sem flytja samtals
um 3.000 manns á klukkustund og
nær sú hæsta upp í 1.000 metra hæð
og er hæsta lyfta á landinu.
Sölumenn - f astagestir
Ókeypis gisting
á Akureyri
Hótel Harpa býður verðandi fasta-
gestum upp á ókeypis gistingu í eina
nótt í janúar og febrúar.
Komið og kynnið ykkur þjónustu
okkar og hagstætt verð, sem sniðið
er að ykkar þörfum.
Góð gisting á hóflegu verði
í hjarta bæjarins.
Sími 96-11400
Ath. að Hótel Harpa er ekki í símaskránni.