Morgunblaðið - 07.01.1993, Page 44
égj|f EIMSKIP
Æmmf VIÐGREIÐUM ÞÉR LEIÐ
MORGVNBLADIÐ, ADALSTRÆTI 6, 101 REYKJA VÍK
SÍMI 691100, SÍMBRÉF 691181, PÓSTHÚLF 1555 / AKUREYRI: HAFNARSTRÆTI 85
FIMMTUDAGUR 7. JANÚAR 1993
VERÐ í LAUSASÖLU 110 KR.
EES-frumvarp samþykkt við aðra umræðu
Lokaumræða um
-EES hefst í kvöld
FRUMVARP til laga um Evrópskt efnahagssvæði, EES, var
samþykkt á Alþingi í gær með 32 atkvæðum gegn 23. Hjá
sátu 6 stjórnarandstæðingar og 2 þingmenn voru fjarstadd-
ir. Ein grein frumvarpsins af fimm var felld brott að til-
lögu meirihluta utanrikismálanefndar.
Frumvarpinu var með 38 at-
kvæðum gegn 19 vísað til þriðju
og síðustu umræðu sem hefst
klukkan 20.30 í kvöld. Á þingfund-
inum { gær klofnuðu allir þing-
flokkar utan tveir, Alþýðufiokks-
menn samþykktu frumvarpið ein-
róma og Alþýðubandalagsmenn
höfnuðu því. Tveir sjálfstæðis-
'“%ienn greiddu atkvæði gegn frum-
pHj
Bensínsjálf-
sali fyrir
greiðslukort
varpinu, Eyjólfur K. Jónsson og
Eggert Haukdal. Ein kvennalista-
kona og fimm framsóknarmenn
sátu hjá við atkvæðagreiðsluna í
gærkvöldi, en fjarstaddir voru Ingi
Björn Albertsson úr Sjálfstæðis-
flokki og Gunnlaugur Stefánsson,
Alþýðuflokki.
Setníng laganna heimilar
staðfestingu
Greinar 1, 2, 3 og 5 voru sam-
þykktar með fyrrgreindum hætti
en 4. grein um heimild ráðherra
til að setja reglur um framkvæmd
samningsins felld niður með 43
atkvæðum gegn 17. Þannig sam-
þykktu þingmenn við aðra um-
ræðu að heimila þegar eftir setn-
ingu laganna staðfestingu EES-
samningsins fyrir íslands hönd,
lagagildi meginmáls hans hérlend-
is og skýringu íslenskra reglna til
samræmis við samninginn.
Sjá einnig þingsíðu bls. 27.
Morgunblaðið/Þorkell
JÓLIN KVÖDD Á ÞRETTÁNDANUM
NÝR bensínsjálfsali, sem
tekur við greiðslukortum,
hefur verið tekinn í notk-
un á bensínstöð Skeljungs
norðan við Miklubraut, sá
fyrsti sinnar tegundar hér
á landi.
Rússar semja við Stálsmiðjuna og Fiskafurðir og greiða í fiskí
Breytingar gerðar á fiinni
Hámarksúttekt í sjálfsalan-
um, sem verður í notkun utan
venjulegs afgreiðslutlma,
verður fyrst um sinn 3.000
krónur. Búnaðurinn leitar
heimilda hjá greiðslukortafyr-
irtækjunum og unnt er að fá
kvittun, ef viðskiptamenn
óska eftir því.
Sjálfsalinn tekur við öllum
viðurkenndum greiðslukort-
um, sem og viðskiptakortum
Skeljungs.
Sjá frétt á bls. B3.
rússneskum frystítogurum
VINNA er hafin við breytingu á rússneskum togara hjá Stál-
smiðjunni hf., en Stálsmiðjan og Fiskafurðir hf. hafa gert
samning við rússneska útgerðarfyrirtækið Belamork Basa-
goslava frá Múrmansk um viðamiklar breytingar á vinnslu-
dekki fimm tvö þúsund tonna frystitogara. Samningurinn
hljóðar upp á hátt í tvö hundruð milljónir króna og greiðir
rússneska fyrirtækið fyrir breytingarnar með fiski sem Fisk-
afurðir munu koma í verð á innlendum og erlendum markaði.
Innstæða húsnæðisspamaðarreikninga þrefaldaðist í fyrra
Imilegg-1,2 milljarðar
INNSTÆÐA húsnæðissparnaðarreikninga hjá viðskiptabönk-
um og sparisjóðum þrefaldaðist í fyrra frá árinu á undan en
samkvæmt áætlun peningamáladeildar Seðlabankans námu
heildarinnlegg í fyrra tæpum 1,2 milljörðum króna, en inn-
stæða á reikningunum nam 611 milljónum í árslok 1991.
Skattaafsláttur sem fylgt hefur húsnæðissparnaðarreikning-
um nemur fjórðungi árlegs innleggs og má því áætla að ef
allir reikningseigendur nýta sér skattaafslátt af innleggi sið-
asta árs muni hann geta numið tæpum 300 milljónum. Sam-
■^væmt breytingum sem Alþingi samþykkti fyrir jól verður
skattaafsláttur vegna húsnæðissparnaðarreikninga lækkaður
í þrepum, um 5% á hveiju ári, og afnuminn 1997.
„Ég tel mikil mistök að skemma
þennan reikning og vona að það verði
lagfært. Það er mjög góð reynsla af
honum eftir að fólk fór að átta sig
_á honurn," segir Baldvin Tryggvason,
Tiparisjóðsstjóri SPRON.
Innstæður húsnæðissparnaðar-
reikninga hafa margfaldast á síðustu
árum. I lok nóvember í fyrra höfðu
innstæður aukist úr 611 millj. árið
1991 í 1.540 milljónir. Endanlegar
upplýsingar um innstæður í bönkum
og sparisjóðum liggja ekki fyrir en
samkvæmt upplýsingum Seðlabank-
ans má áætla að þær hafi numið
1.800 milljónum króna í árslok.
Húsnæðisspamaðarreikningamir
byggjast á 3-10 ára bindingu og
vextir eru 6,9% að meðaltali eða 6,5%
í íslandsbanka, 7% í Landsbankanum
og Búnaðarbankanum og 7,1% hjá
sparisjóðunum.
Baldvin Tryggvason benti á að á
öllum Norðurlöndunum væri boðið
upp á sambærilega innlánsreikninga
sem veittu fólki kost á skattaívilnun
samhliða spamaði. „Þetta er einfald-
lega gert til að auka spamað. Ef
menn eru á annað borð að tala um
það í alvöru að skattleggja fjár-
magnstekjur hljóta þeir að verða að
koma til móts við þá sem vilja leggja
í spamað til síðari tíma.“
Fiskafurðir hf. hafa keypt þorsk
af rússneskum frystitogurum að und-
anfömu. Forsaga málsins er sú að
forráðamenn Fiskafurða voru ekki
sáttir við meðferð fisks sem Rússam-
ir lönduðu hér og lögðu til úrbætur.
Forsvarsmenn Stálsmiðjunnar og
Fiskafurða fóm til Múrmansk og
gerðu útgerð togaranna sem hér um
ræðir tilboð um að setja upp nýtt
vinnslukerfi á vinnsludekkinu.
Að sögn Skúla Jónssonar, for-
stjóra Stálsmiðjunnar, verða sett upp
færibönd, blóðgunarkör, vogir og
vélar. Undirverktaki Stálsmiðjunnar
er Formax hf., en vogir koma frá
Marel hf. Vinna hefur hafist við
fyrsta togarann, Bemhard Koenen,
sem liggur við Ægisgarð. Næsti tog-
ari kemur um miðjan mánuðinn en
ráðgert er að endurbótunum á skip-
unum fimm verði lokið í byijun apríl.
„Það að slíkir samningar nást má
fyrst og fremst rekja til þess að lög-
um um bann við löndunum erlendra
skipa var breytt," sagði Skúli.
Skúli fullyrðir að Stálsmiðjan hafi
boðið Rússunum betri lausn en aðrir,
og nefndi í því sambandi að næsti
togari sem hingað kemur hafí verið
í breytingum í Þýskalandi. Þær
breytingar hafi ekki tekist sem skyldi
og hafí togarinn verið frá veiðum.
Líkur á fleiri verkefnum
Jón Sigurðarson, forstjóri Fiskaf-
urða, kvaðst telja að meira yrði um
slík verkefni. „Við sjáum um að selja
fyrir þá físk og tökum hluta af þeim
greiðslum til að borga fyrir þessar
breytingar. Ég tel að það verði meira
um slík verkefni og ég vona það.
íslendingar eru ekki endilega sam-
keppnisfærir með verð en þeir hafa
mikla reynslu af útgerð og rekstri
fískiskipa. Þessi útgerð rekur um 50
skip alls, þar af um 39 stóra tog-
ara,“ sagði Jón.
Morgunblaðið/Júlfus
Frystitogara breytt
Rússneski togarinn Bernhard Koenen þar sem hann liggur við
Ægisgarð í Reykjavík en breytingar á honum eru þegar hafnar.