Morgunblaðið - 13.01.1993, Side 2
2
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 13. JANÚAR 1993
Morgnnblaðið/Rúnar Þór
Snjómokstur um borð í Skutli
Rækjuskipið Skutull ÍS 180 leitaði til Akureyrar í ofviðrinu í vikubyijun og áður en haldið var á ný til veiða í gær þurfti að beija klaka-af skipinu
og moka snjó af dekkinu.
Töldu lyf-
ið prókaín
vera kókaín
HÉRAÐSDÓMUR Reykjavíkur
vísaði í gær frá ákæru á hendur
tveimur mönnum, 30 og 27 ára,
sem gefið hafði verið að sök að
hafa lagt á ráðin um fíkniefna-
smygl til landsins í ágóðaskyni.
Efni það sem mennirnir fengu
svo mann til að kaupa fyrir sig
erlendis reyndist vera staðdeyfi-
Iyfið prókaín en ekki kókaín eins
og þeir töldu.
Mönnunum var gefið að sök að
hafa vorið 1990 fengið mann til
að fara fyrir sig til Amsterdam að
kaupa kfló af hassi og annað af
amfetamíni. Sá hafi farið og tjáð
þeim við heimkomu að hann hefði
keypt og póstsent 800 grömm af
kókaíni. Eftir að sendingin var sótt
í póst handtók lögreglan mennina
tvo og kom þá í ljós að í pakkanum
var ekki kókaín heldur staðdeyfilyf-
ið prókaín.
Akæruvaldið taldi þetta refsi-
verða tilraun til innflutnings fíkni-
efna til landsins í ágóðaskjmi og
voru mennimir tveir ákærðir þess
vegna í desember síðastliðnum en
málið kom upp í maímánuði árið
1990. Héraðsdómur Reykjavíkur
vísaði í gær málinu frá að kröfu
veijenda beggja mannanna.
♦ > ♦----
Þvælingur á íslenskum saltfiski í Hollandi og Frakklandi
Gámar SIF skoðaðir á ný
Rotterdam. Frá Kristófer Má Kristinssyni fréttaritara Morg-unblaðsins.
GÁMAR með saltfiski frá Sölusambandi íslenskra ferskfiskfram-
leiðenda, sem skoðaðir voru í Rotterdam í Hollandi á mánudag,
voru skoðaðir að nýju í Frakklandi í gær. Að sögn Jóns Friðjóns-
sonar lyá SÍF virðist ástæðan sú að innri markaður EB sé í raun
ekki orðinn til. Gámar frá SH verða skoðaðir í dag.
Sölvi seldur
GENGIÐ var endanlega frá
kaupum Hraðfrystihúss Grund-
arfjarðar hf. á togaranum Sölva
Bjarnasyni BA af Útgerðarfé-
lagi Bílddælinga hf. á fundi full-
trúa fyrirtækjanna seint í gær-
kvöldi. í gær fékkst samþykki
stærstu veðkröfuhafa og ann-
arra kröfuhafa fyrir sölunni, að
sögn Marteins Friðrikssonar
stjómarformanns HG hf.
Marteinn sagði að afsal og önn-
ur skjöl um söluna færu til sýslu-
mannsins á Patreksfirði í dag enda
þyrfi að ganga frá málum við
sýslumann svo hægt yrði að forða
skipinu frá nauðungaruppboði sem
auglýst er klukkan 16 í dag. Hrað-
frystihúsið tekur væntanlega við
skipinu í Reykjavíkurhöfn síðdegis
í dag og hefur sjómönnunum verið
boðið að halda skipsrúmi sínu.
Gámar SÍF voru skoðaðir í Rott-
erdam á mánudag, eftir nokkra
bið. Tekin voru sýni úr hveijum
gámi, en ekkert athugavert fannst.
Þegar gámamir voru komnir á
sölustað í Frakklandi í gær var
þess krafist, að þeir yrðu skoðaðir
að nýju. „Frönsk yfirvöld virðast
ekki viðurkenna þessa úttekt hol-
lenskra yfirvalda á vöru, sem fer
inn í Frakkland. Innri markaðurinn,
sem tók gildi um áramótin, virðist
því ekki vera alveg virkur, en ég
held að um byrjunarörðugleika sé
að ræða,“ sagði Jón Friðjónsson
hjá SÍF í samtali við Morgunblaðið.
Skoðunarmennirnir höfðu
ekki vit á fiskmati
Miklar tafír urðu á afgreiðslu
íslenskra sjávarafurða við toll- og
heilbrigðisskoðun í Rotterdam í
gær. Gámur hlaðinn ísuðum karfa
tafðist í rúmlega íjórar klukku-
stundir vegna þess að skoðunar-
mennimir höfðu ekki vit á fiskfnati
og treystu sér ekki til að taka
gáminn út. Sérfræðingar vom
kallaðir út og þegar þeir komu á
staðinn var innihald gámsins
umsvifalaust úrskurðað gæðavara.
Það vakti athygli viðstaddra að
fiskmatsmennimir vissu hvað var
í gámnum áður en hann var
opnaður og án þess að sjá
fylgiskjölin. Þeir þefuðu í áttina að
gámnum og sögðu að í honum
væri gæðakarfi frá íslandi.
Yfírheilbrigðisnefnd EB kemur
saman í dag og er gert ráð fyrir
að hún afgreiði samræmd eyðublöð
vegna þessa nýja fyrirkomulags
landamæraeftirlits.
Urðu að skilja
„tollinn“ eftir
í flugstöðinni
ÞEIR flugfarþegar sem ekki
komust úr landi frá Leifsstöð í
fyrradag vegna óveðurs, og urðu
frá að hverfa, fengu ekki að taka
með sér það sem þeir höfðu
keypt í verslun Fríhafnarinnar,
heldur þurftu að skilja það eftir
í vörslu tollvarða og starfs-
manna Flugleiða.
Að sögn Gottskálks Ólafssonar
yfirtollvarðar era engin ákvæði í
lögum eða reglugerðum sem heim-
ila að fólki sé leyft að flytja inn
tollfijálsan vaming til landsins við
aðstæður sem þessar. Hann sagði
að þeir sem hætt hefðu með öllu
við utanferð vegna þeirra tafa sem
urðu í fyrradag hefðu fengið vör-
umar endurgreiddar, en ekki hafi
verið endurgreitt ef einhveijar
vomur hafi verið á fólki um hvort
það mundi fara úr landi næstu
daga.
Guðmundur Karl Jónsson, fram-
kvæmdastjóri Fríhafparinnar,
sagði við Morgunblaðið að algeng-
ast væri að fólk, sem lenti í því
að flug væri fellt niður, teldi best
að fá þá hluti sem það hefði keypt
geymt hjá tollgæslunni þar til af
ferðinni verður. Telji hins vegar
einhveijir það ekki henta kveði
starfsreglur fyrirtækisins á um að
endurgreiða skuli það sem keypt er.
Albert hættir 1 vor
ALBERT Guðmundsson, sendiherra í París, lætur af embætti
í vor, samkvæmt heimildum Morgunblaðsins. Hann verður sjö-
tugur i október og á þá að hætta samkvæmt reglum um há-
marksaldur embættismanna.
Þorsteinn Ingólfsson, ráðu-
neytisstjóri utanríkisráðuneytis-
ins, sagði í gær að búið væri að
ganga frá starfslokum Alberts.
Hann vildi ekki greina frá því
hvemig gengið hefði verið frá
málum, það væri einkamál við
viðkomandi starfsmann sem ekki
ætti erindi í fjölmiðla en tók fram
að enginn ágreiningur væri um
það. Aðspurður vildi hann ekki
staðfesta að Albert hætti 1. apríl,
sagði einungis að hann ætti að
láta af embætti í október sam-
kvæmt reglunum og síðan færi
það eftir uppgjöri á orlofsmálum
hvenær hann hætti.
Albert sagði í samtali við
Morgunblaðið í gær að ekki hefði
verið samið um nein starfslok
við sig. Hann yrði sjötugur í
október og lögum samkvæmt
ættu menn að hætta þá. Að-
spurður hvort hann yrði þá í
sendiherraembættinu til þess
tíma sagði hann: „Já, það hefur
ekki verið samið við mig um eitt
eða neitt annað.“
Reynt að kveikja í bíl í Siglufirði
Skemmdarverk unnin á
sama jeppa í þriðja sinn
SNEMMA á þriðjudagsmorgun var reynt að kveikja í jeppa í Siglu-
firði, troðið var tusku í stútinn á bensíntanknum og kveikt í, en
ekki kviknaði þó í bílnum. Þá var skorið á tvö dekk undir jeppan-
'um og brunablettir voru í sætum en skorið hafði verið í áklæðið
og eldur borinn að troðinu sem sviðnaði.
t dag
Tölvustýröur snjómokstur
Starfsemi Vegaeftirlits ríkisins er
sífellt að verða tölvuvæddari 18
Utanríkisráðherraefni í vanda
Grunur leikur á að Warren Christo-
pher utanríkisráðherraefni Banda-
ríkjanna hafi logið að bandaríska
þinginu fyrir 13 árum 21
HM í hondbolta ú íslandi
Markaðsstjóri Ferðamálaráðs for-
maður framkvæmdanefndar 43
Leiðarí
EES og framtíðin 22
Úr verínu
► Sjósókn hér við land jókst í
fyrra - Salan á fískmörkuðunum
heima og ytra - Vel gengur að
veiða sOd í trollið - Offramboð á
sfld i Evrópu.
Myndosögur
► Drátthagi blýanturinn -
Myndir ungra listamanna - Sér-
stæður steinn - Þrautir - Fugla-
ger - Fiskur á sundi - Leikhom-
ið.
Þetta er í þriðja skipti á um það
bil mánuði sem skemmdarverk era
unnin á jeppanum sem er af gerð-
inni Lada og í eigu Matthíasar
Jóhannssonar, kaupmanns í Siglu-
firði. Lögregla telur að sami maður
hafí verið að verki í öll skiptin.
Frá því snemma í desember hafa
alls átta dekk undir bílnum verið
eyðilögð með því að skorið hefur
verið á þau.
Það má mikil mildi vera að ekki
kviknaði í jeppanum í gærmorgun,
að mati lögreglu, og hefði tankur-
inn einfaldlega getað sprangið í
loft upp hefði eldur komist í hann,
en jeppinn stóð við hús Matthíasar
í fárra metra fjarlægð frá glugga.