Morgunblaðið - 13.01.1993, Síða 4
4
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 13. JANÚAR 1993
Ljósmynd ómar Ragnarsson
Þakplötur flettust af -
Plötur á austurhluta þaks flugskýlisins flettust af í áhlaupinu á mánudag og er hönnungargalla í þakfestingum
kennt um, en þakið átti að standast veðurofsa eins og þann sem gerði á mánudag. Á myndinni sést niður um
þak skýlisins.
VEÐUR
Heimild: Veðurstofa íslands
(Byggt á xeðufspá kt. 18.1S í gaar)
. II-1 II' - II' .1 ■ .1 11,1.1.""," 1.1.,,.. .■y"”. " :Wy,'- ■ '
VEÐURHORFUR I DAG, 13. JANUAR
YFIRLÍT: Um 600 km austur af Langanesi er 938 mb lægð, sem þokast
austur. Yfir Norður-Grænlandi er 1.012 mb hæð. Afram verðurfrost um
allt land, víðast á bilinu 3-8 stig.
SPÁ: All hvass eða hvass. Snjókoma eða skafrenningur um norðan-
vert landið en mun hægarí og þurrt að mestu syðra. Frost um altt land.
VEÐURHORFUR NÆSTU DAGA:
HORFUR Á FIMMTUDAG, FÖSTUDAG OG LAUGARDAG: Fremur hæg
norðaustan eða breytileg átt. Smá él við norðausturströndina, annars
víðast biart veður. Frost á bilinu 6-18 stig, kaldast inn til landsins.
Nýir veðurfregnatímar. 1.30, 4.30, 7.30, 10.45, 12.46, 16.30, 18.30,
22.30. Svarsími Veðurstofu Islands - Veðurfregnir: 880600.
o
Heiðskírt
/ f f
r f
f f f
Rigning
Léttskýjað
* / *
* /
/ * /
Stydda
Hálfskýjað
* * *
* *
* * *
Snjókoma
Skýjað
Alskýjað
V ^ V
Skúrir Slydduél É1
Sunnan, 4 vindstig.
Vmdörin sýnir vindstefnu
og fjaðrimar vindstyrk,
heil flöður er 2 vindstig^
10° Hitastig
V Súld
= Poka
•J
FÆRÐA VEGUM: (Kf. 17.30 fgær)
Faert er um Hellisheiði og Þrengsli, einnig um flesta vegi á Suðurlandi
og með suðurströndinni austur á Fáskrúðsfjörð. Þar fyrir austan hefur
verið versta veður í dag, og vegir víðast illfærir eða ófærir. Ofært er um
Mosfellsheiði. Þá er fært fyrir Hvalfjörð og um aðalvegi í Borgarfirði.
Einnig um Heydal og norðanvert Snæfellsnes og um Dalasýslu vestur
í Reykhólasveit, en ófært er um Fróðárheiði, Kerlingarskarö, Bröttu-
brekku og Laxárdalsheiði. Fært er frá Brjónslæk til Patreksfjarðar og
Bíldudals. Á norðanveröum Vestfjörðum er ennþá beðið átekta með
dalsheíði er fær. I Eyjafirði og í Þingeyjarsýslum hefur ekki tekist að
opna þá vegi sem til stóð að moka, vegna veðurs.
Upplýsingar um færð eru veittar hjá Vegaeftirliti f síma 91-631500 og
í grænni línu 99-6315.Vegagerðin.
VEÐUR VÍÐA UM HEIM
kl 12.00 í gær að ísl. tíma
Akureyri
Reykjavík
híti veöur
+3 snjókoma
+4 alskýjaö
4
Helsinki 1
Kaupmannahöfn S
Narssarssuaq
Nuuk
Osfö 2
Stoklchótmur 2
Þórshöfn 2
haglélás.kist.
snjöé)
léttskýjaö
+16 snjökoma
vantar
skýjaö
tkýjaö
slydduéi
Aigarve
Amsterdam
Barceiona
Beritn
urucago
Feneyjar
Frankfurt
Hamborg
London
LosAngeies
Lúxemborg
Madrid
Maiaga
Mailorca
Montreal
NewYork
Orlando
París
Madeira
Róm
Vín
Weshington
Wirmipeg
18 heiöskírt
6 léttskýjaö
18 heiðskírt
3 fignlng
+2 rigningós.kist
6 boka
8 rigning í t. klit
3 stydda á i. kist
5 hálfskýjað
S skúrás-kist
vantar
5 skúrás. klst.
4 þokumóða
18 heiðlkírt
15 láttskýjað
+14 alskýjað
vantar
vantar
8 skýjað
17 léttskýjað
16 léttskýjað
vantar
vantar
+10 snjókoma
Nýja flugskýlið á Keflavíkurflugvelli
Hönnunargalli í
þakfestingum
HÖNNUNARGALLI í þakfesting-
um flugskýlisins á Keflavikur-
flugvelli varð til þess að þakplöt-
ur flettust upp af um helmingi
af austurhluta þaksins í tveimur
áhlaupum, nú síðast á mánudag.
Að sögn Guðmundar Pálssonar,
framkvæmdastj óra tæknisviðs
Flugleiða, bera kanadískir verk-
takar alla ábyrgð á tjóninu. Auk
þakskaðans hafa komið í ljós
frostskemmdir í brunavama-
kerfi.
Guðmundur Pálsson sagði að
mannvirkið hefði ekki verið afhent
og væri þar af leiðandi enn á fram-
kvæmdastigi og í höndum verktak-
anna. „Við höfum óskað eftir ítar-
legum skýringum og greinargerð
um hvað gerðist vegna þess að
þama varð óhapp í mun minna
vindálagi en hönnunarforsendur
gerðu ráð fýrir,“ sagði hann. „Hönn-
un þakfestinga er greinilega orsaka-
valdurinn þama.“
Þá hafa orðið frostskemmdir f
eldvamakerfí en þegar þakið gaf
sig og kólnaði í byggingunni fraus
í leiðslunum sem vegna mistaka
átti að vera búið að tappa af. Sendi-
nefnd frá kanadíska verktakanum
er á leið til landsins að kanna og
meta tjónið. Enn er ekki vitað
hversu mikil töf verður á afhendingu
Morgunblaðið/Bjpm Biöndal
Starfsmaður Flugleiða með
sprungnar vatnspípur, en þegar
kólnaði innan dyra í skýlinu
fraus vatn í eldvamakerfi, sem
vegna mistaka hafði gleymst að
tæma.
skýlisins en Flugleiðir mun ekki
bera fjarhagslegt tjón vegna skað-
ans.
Enn mikil viðskipti
á Verðbréfaþingi
Ávöxtunarkrafan óbreytt
TÖLUVERÐ viðskipti voru með eldri spariskírteini rtkissjóðs á Verð-
bréfaþingi fslands í gær. Viðskiptin voru þó ekki eins mikil og í
fyrradag. Ávöxtunarkrafan breyttist óverulega í gær.
Viðskiptin á Verðbréfaþingi í í 7,40%, eða um 0,20%, og fimm
gær námu 76 milljónum, þar af ár væru eftir af bréfinu væri hagn-
seldust spariskírteini ríkissjóðs fyrir
42 milljónir, að sögn Tómasar Am-
ar Kristinssonar, starfsmanns
þingsins.
Mikil verðbréfaviðskipti fyrstu
daga ársins skýrast að hluta af
spákaupmennsku, menn kaupa
spariskírteini f von um að gengi
þeirra hækki næstu daga, eins og
fram kom í blaðinu í gær. Aðspurð-
ur um það hvemig menn gætu náð
sér í hagnað við lækkun ávöxtun-
arkröfu (hækkaðs gengis) sagði
Tómas Öm að þumalputtareglan
væri sú að menn margfölduðu lækk-
un ávöxtunarkröfunnar með ára-
fjöldanum sem eftir er af endur-
greiðslutíma bréfanna. Ef ávöxtun-
arkrafan lækkaði til dæmis úr 7,60
aðurinn 1%. Maður sem keypti
spariskírteini á eina milljón og
ávöxtunarkrafan lækkaði sama dag
um 0,20% fengi 10.000 kr. hagnað
þann daginn, hvort sem hann seldi
bréflð strax daginn eftir eða ætti
það áfram.
Þá hefur komið fram að menn
væra að losa sig við ríkisvíxla þessa
dagana. Tómas Öm sagði að með
því teldu menn sig væntalega vera
að komast hjá tjóni vegna verð-
bólgutoppsins í febrúar. Ríkisvíxl-
amir era með forvöxtum til skamms
tíma og ávöxtun þeirra getur farið
niður í ekki neitt ef verðbólgan stíg-
ur örar en menn reiknuðu með þeg-
ar þeir keyptu víxlana.
Kveðst hafa
aflífað dýrin
KYRKISLANGA, risakónguló
og eðlur, sem ungur maður
hélt i íbúð sinni i vesturbænum
og lögreglan ætlaði að aflífa,
höfðu verið fluttar í annað hús,
svo lögreglan greip í tómt.
Lögreglan gaf eigandanum sól-
arhrings frest til að koma með
dýrin á lögreglustöðina til deyð-
ingar. Eigandinn birtist á lög-
reglustöðinni á tilsettum tíma og
kvaðst vera búinn að afiífa dýrin,
en hræjunum hefði hann kastað í
sjóinn. Málinu er þar með lokið
af hálfu lögreglunnar.
Flensan fer
sér hægt
Fiensan, sem óttast var að
myndi herja á landsmenn, virð-
ist fara sér hægt. Að sögn Heim-
is Bjamasonar aðstoðarborgar-
læknis er fjölgun flensutilfella
óveruleg.
Hins vegar hafa þijár tegundir
kvefpesta verið í umferð samtímis
frá því í sumar. Hafa þær reynst
mörgum þungar ekki síður en
flensa og fólk verið rúmliggjandi
þeirra vegna.
Gekk af
slysstað
TALSVERÐAR skemmdir
urðu á fólksbifreið sem valt í
hálku og fór á toppinn við
Njarðarbraut í Keflavík um
klukkan ellefu í gærmorgun.
Að sögn Iögreglunar í Keflavík
virðist ökumaðurinn sem er seytj-
án ára gamall drengur hafa ekið
nokkuð greitt miðað við aðstæð-
ur. Þegar lögregian kom á vett-
vang var ökumaðurinn á bak og
burt. Hann hafði fengið far með
öðmm vegfarenda og komið sér
sjálfur á heilsugæslustöðina.
Ókumaðurinn reyndist ómeiddur
en bifreiðjn er mikið skemmd.