Morgunblaðið - 13.01.1993, Blaðsíða 6
6
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 13. JANÚAR 1993
Sjónvarpið
18 00 DlDliiEnil ►Töfraglugginn
OflHnflLrill Pála pensill kynnir
teiknimyndir úr ýmsum áttum. Um-
sjón: Sigrún Halldórsdóttir.
18.55 ►Táknmálsfréttir
19.00 ►! flutningum (Trying Times: Mov-
ingDay) Bandarísk stuttmynd. Barb-
ara er að flytja úr húsi sínu eftir 20
ára búsetu þar en þegar flutnings-
mennimir koma þykir henni þeim lít-
ið svipa til fagmannanna sem hún
hélt sig hafa ráðið til verksins. Höf-
undur er Bemard Slade, leikstjóri
Sandy Wilson og í aðalhlutverkum
em þau Candice Bergen og Keanu
Reeves. Þýðandi: Sverrir Konráðs-
son.
19.30 hfCTTIQ ► Staupasteinn
« ICI IIII (Cheers) Bandarískur
gamanmyndaflokkur með KirstieAU-
ey og Ted Danson í aðalhlutverkum.
Þýðandi: Guðni Kolbeinsson.
20.00 ►Fréttir og veður.
20-40 hJCTTID ►Á tali hjá Hemma
rlLI lln Gunn Skemmtiþáttur
Hemma Gunn verður líflegur og fjöl-
breyttur eins og vant er. Meðal ann-
ars verður sýnt atriði úr My Fair
Lady, dregið í getraun þáttarins og
böm miðla af speki sinni. Aðalgestur
Hemma að þessu sinni er Kári Þor-
grímsson, bóndi í Garði í Mývatns-
sveit. Stjórn útsendingar: Egill Eð-
varðsson.
21.55 ►Samherjar (Jake and the Fat
Man) Bandarískur sakamálaflokkur
með William Conrad og Joe Penny í
aðalhlutverkum. Þýðandi: Kristmann
Eiðsson. (4:21)
23.00 ►Ellefufréttir og dagskrárlok
ÚTVARP/SJélÍVARP
STOÐ TVO
16.45 ►Nágrannar Ástralskur framhalds-
myndaflokkur um góða granna.
17.30 DIDUICCIII ►Tao Tao Teikni-
Dfinnncrm myndaflokkur.
17.50 ►Óskadýr barnanna Leikin stutt-
mynd fyrir böm.
18.00 ►Halli Palli Brúðumyndaflokkur
með íslensku tali.
18.30 ►Falin myndavél (Candid Camera)
Endurtekinn þáttur frá síðastliðnu
laugardagskvöldi.
19.19 ►19:19 Fréttir og veður.
20.15 ►Eirikur Viðtalsþáttur í beinni út-
sendingu. Umsjón: Eiríkur Jónsson.
Stöð 2 1993.
20.30 íhpnTTID ►Stoðvar 2 deildin
Ir HU11 ln Bein útsending frá
tveimur leikjum á íslandsmeistara-
mótinu í 1. deild karla í handknatt-
leik. Stöð 2 1993.
21.10 hJCTTip ►Melrose Place Nýr
rfLl IIH bandarískur mynda-
flokkur fyrir ungt fólk á öllum aldri.
(5:22)
22.00 ►Spender II Breskur spennumynda-
flokkur um rannsóknarlögreglu-
manninn Spender. (4:6)
22.50 ►Tíska Tíska og tískustraumar eru
viðfangsefni þessa þáttar.
23.15 tflf|tf||V||n ►Götudrottning-
nVlnMV Rll arnar (Tricks of the
Trade) Lífið lék við Catherine Cram-
er þar til daginn sem eiginmaður
hennar heittelskaður fínnst myrtur á
heimili gleðikonu. Catherine ákveður
að finna þessa konu og í sameiningu
ákveða þær að reyna að leysa þetta
dularfulla mál. En fyrst þarf að
breyta Catherine í götudrottningu.
Þetta er létt spennumynd með gam-
ansömu ívafi. Aðalhlutverk: Cindy
Williams og Markie Post. Leikstjóri:
Jack Bender. 1989. Lokasýning.
Bönnuð börnum. Maltin gefur bestu
einkunn.
0.50 ►Dagskráriok
Ósamvinnuþýður? - Spender er litið gefinn fyrir námskeið
þau og þjálfun sem hann er skikkaður í af yfirboðurum sínum.
Spender neyðist
til að taka sér frí
Fer I heimsókn
til frænku
sinnar og fær
þar verkefni
sem hann
kærir sig ekki
um
STÖÐ 2 KL. 22.00 Spender er ekk-
ert sérstaklega hamingjusamur mað-
ur. Yfirmaður hans hefur þröngvað
honum til að taka frí, sem er ekkert
sérstakt ánægjuefni frekar en lík-
amsþjálfunin, samskiptanámskeiðin
og læknisskoðanimar sem lögreglu-
maðurinn verður að umbera undir
stjóm Gillespies. Spender fer í heim-
sókn til frænku sinnar, Mabel, og fær
þar verkefni sem hann gæti lifað án;
að leita uppi Robbie frænda sem
hefur ekki látið í sér heyra í átta
mánuði. Eftirgrennslan Spenders
kemur honum í kynni við hina ógeð-
felldu Voume-fjölskyldu og leiðtoga
hennar, Frank. Voume-íjölskyldan
er ein glæpaklíka sem hikar ekki við
að beita ofbeldi. Þegar Frank ræðst,
með mönnum sínum, inn á heimili
fyrrverandi eiginkonu Spenders er
vini okkar nóg boðið og hann ákveð-
ur að láta það eftir sér að fá ærlega
útrás.
„Ég veit ég drepst
ekkert þannig ■■■
Þátturinn
fjallar um
vegalaus börn
og segir frá lífi
nokkurra
ungmenna
RÁS 1 KL. 22.35 í kvöld verður
endurtekin á Rás 1 fléttan „Ég veit
ég drepst ekkert þannig". Þátturinn
ijallar um vegalaus böm og segir frá
lífi þeirra Önnu, Margrétar, Kolbeins
Freys, Viðars og Bóbó. Þetta er ann-
ar þáttur af tveimur, sem fjallar um
götuböm og líf þeirra. Sá fyrri var
fluttur um miðjan mars sl. og nefnd-
ist „Mamma elskaði mig út af lífinu".
Formið á þáttunum, sem kallað er
flétta, er svo til nýtt í íslensku út-
varpi og hafa aðeins verið fluttir tveir
slíkir þættir áður í fullri lengd. Á
erlendum málum nefnist fléttan
„montage“, en í þessum þáttum em
raunverulegir atburðir settir fram á
leikrænan hátt. í þættinum í kvöld,
sem þeir Þórarinn Eyijörð og Hreinn
Valdimarsson gerðu, fá hlustendur
þannig að heyra raunvemlega frá-
sögn ungmennanna á því hvers konar
lífí þau lifa.
Öryggis-
net
Ég hef víst áður minnst á
hinar undarlegu „veður-
hæðarlýsingar" fréttamanna
og veðurfræðinga. Enn stag-
ast þeir ýmist á hnútum, vind-
stigum, metram á sekúndu
eða jafnvel kílómetram á
klukkustund og hver veit
hvað. Ekki kann undirritaður
að greina á milli þessara hug-
taka. Fréttastofumar verða í
samráði við veðurstofuna að
fínna eina mælieiningv sem
hinn almenni útvarps- og
sjónvarpsáhorfandi skilur.
Annars er hætt við að vamar-
orðin komist ekki óbrengluð
til almennings. I það minnsta
kannast undirritaður við fjöl-
marga er skilja ekki þennan
hugtakaleik er leiðir hugann
enn einu sinni að margum-
ræddu öryggishlutverki ljós-
vakamiðlanna. Hefur þetta
hlutverk eitthvað breyst í
seinni tíð?
Nýstaöa?
í nýjasta Gjallarhomi, blaði
Heimdallar, þar sem Guð-
mundur Jaki fer á kostum í
aðalviðtaíinu er minnst á ljós-
vakamiðlana. í forsíðugrein
segir um öiyggishlutverkið:
Ef eitthvað er þá hafa eink-
areknu fjölmiðlarnir sinnt því
betur en ríkisfjölmiðlarnir að
koma upplýsingum um válynd
veður og aðrar hættur til
landsmanna .. .Framfarir í
fjarskiptum með tilkomu ljós-
leiðara og gervitungla hafa
svo endanlega gert út af við
goðsögnina um öryggishiut-
verk ríkisútvarpsins. Og nýj-
ustu fréttir segja okkur að
innan árs verði dreifikerfi
Stöðvar 2 og Byigjunnar orðið
jafn víðfeðmt og ríkisíjölmiðl-
anna.
Undirritaður er ekki alveg
sammála því að einkaíjölmiðl-
amir hafí staðið sig betur við
að miðla upplýsingum um
óveður. Þar standa ríkisfjöl-
miðlar sig alveg piýðilega.
En vissulega ber að endur-
skoða þessi mál í ljósi þess
að dreifíkerfí Stöðvar 2 og
Bylgjunnar er orðið býsna
víðfeðmt.
Ólafur M.
Jóhannesson
UTVARP
RÁS1
FM 92,4/93,5
6.55 Bæn.
7.00 Fréttir. Morgunþáttur Rásar 1.
Hanna G. Sigurðardóttir og Trausti Þór
Sverrisson. 7.30 Fréttayfiriit. Veður-
fregnir. Heimsbyggð. Jón Ormur Hall-
dórsson.
8.00 Fréttir. 8.10 Pólitíska homið. 8.30
Fréttayfiriit. Úr menningarlifinu. Gagn-
rýni. Menningarfréttir utan úr heimi.
9.00 Fréttir.
9.03 Laufskálinn. Afþreying í tali og tón-
um. Umsjón: Finnbogi Hermannsson.
(Frá Isafirði.)
9.45 Segðu mér sögu, „Ronja ræningja-
dóttir" eftir Astrid Lindgren. Þorleifur
Hauksson les eigin þýðingu (15).
10.00 Fréttir.
10.03 Morgunleikfimi með Halldóru
Bjðmsdóttur.
10.10 Árdegistónar.
10.45 Veðurlregnir.
11.00 Fréttir.
11.03 Samfélagið í nærmynd. Umsjón:
Ásdís Emilsdóttir Petersen, Bjarni Sig-
tryggsson og Margrét Ertendsdóttir.
11.53 Dagbókin.
12.00 Fréttayfiriit á hádegi.
12.01 Að utan.
12.20 Hádegisfréttir.
12.45 Veðurfregnir.
12.50 Auðlindin. Sjávarútvegs- og við-
skiptamál.
12.57 Dánarfregnir. Auglýsingar.
13.05 Hádegisleikrit Útvarpsleikhússins,
„Einu sinni á nýársnótt" eftir Emil Brag-
inski og Eldar Rjazanov. Áttundi þáttur
af tíu. Þýðing: Ingibjörg Haraldsdóttir.
Útvarpsaðlögun: lllugi Jökulsson. Leik-
stjóri: Hjálmar Hjálmarsson. Leikendur:
Rúrik Haraldsson, Valdimar ðrn Flyg-
enring, Ólafía Hrönn Jónsdóttir, Hjálm-
ar Hjálmarsson, Guðrún Þ. Stephen-
sen og Steinn Ármann Magnússon.
13.20 Stefnumót. Listir og menning,
heima og heiman. Umsjón: Bergþóra
Jónsdóttir, Halldóra Friðjónsdóttir og
Sif Gunnarsdóttir.
14.00 Fréttir.
14.03 Útvarpssagan, „Hershöfðingi
dauða hersins" eftir Ismaíl Kadare.
Hrafn E. Jónsson þýddi, Amar Jónsson
les (8).
14.30 Einn maður; & mörg, mörg tungl
Eftir: Þorstein J.
15.00 Fréttir.
15.03 (smús. Skotartil sjós, fjórði og loka-
þáttur skoska tónvísindamannsins
Johns Pursers frá Tónmenntadögum
Rikisútvarpsins sl. vetur. Kynnir: Una
Margrét Jónsdóttir.
16.00 Fréttir.
16.05 Skíma. Fjölfræðiþáttur. Umsjón:
Ásgeir Eggertsson og Steinunn Harð-
ardóttir. Jóhanna K. Eyjólfsdóttír og
Unnur Dís Skaptadóttir litast um af
sjónarhóli mannfræðinnar og fulltrúar
ýmissa deilda Háskólans kynna skóF
ann. 16.30 Veðurfregnir. 16.45 Fréttir.
Frá fréttastofu barnanna.
17.00 Fréttir.
17.03 Að utan. (Áður útvarpað í hádegis-
útvarpi.)
17.08 Sólstafir. Tónlist á síðdegi. Um-
sjón: Gunnhild 0yahals.
18.00 Fréttir.
18.03 Þjóðarþel. Egils saga Skallagríms-
sonar. Ámi Björnsson les (8). Anna
Margrét Sigurðardóttir rýnir í textann
og veltir fyrir sér forvitnilegum atriðum.
18.30 Kviksjá. Meðal efnis er listagagn-
rýni úr Morgunþætti. Umsjón: Halldóra
Friðjónsdóttir og Sif Gunnarsdóttir.
18.48 Dánarfregnir. Auglýsingar.
19.00 Kvöldfréttir.
19.30 Auglýsingar. Veðudregnir.
19.35 „Einu sinni á nýársnótt" eftir Emil
Braginski og Eldar Rjazanov. Áttundi
þáttur af tíu. Endudlutt hádegisleikrit.
19.50 Fjölmiðlaspjall Ásgeirs Friðgeirs-
sonar.
20.00 íslensk tónlist.
- Búkolla fyrir klarínettu og hljómsveit
eftir Þorkel Sigurbjömsson. Einar Jó-
hannesson leikur með Sinfóniuhljóm-
sveit íslands; Petri Sakari stjómar.
- Verses and Cadenzas eftir John
Speight. Einar Jóhannesson leikur á
klarínettu, Hafsteinn Guðmundsson á
fagott og Sveinbjörg Vílhjálmsdóttir á
píanó.
20.30 Af sjónarhóli mannfræðinnar. Um-
sjón: Jóhanna K. Eyiólfsdóttir og Unnur
Dis Skaptadóítir. (Aður útvarpað í fjöl-
fræðiþættinum Skímu sl. miðvikudag.)
21.00 Listakaffi. Kristinn J. Nielsson.
22.00 Fréttir.
22.07 Pólitíska homið.
22.15 Hér og nú.
2227 Orð kvöldsins.
2230 Veðudregnir.
22.35 „Ég veit ég drepst ekkeri þannig."
Fléttuþáttur um Önnu, Margréti, Kol-
bein Frey, Viðar og Bóbó. Þáttinn unnu:
Hreinn Valdimarsson og Þórarinn Ey-
fjörð.
23.20 Andrarímur. Guðmundur Andri
Thorsson snýr plötum.
24.00 Fréttir.
0.10 Sólstafir. Endudekinn tónlistarþátt-
ur frá síðdegi.
1.00 Næturútvarp til morguns.
RÁS 2 FM 92,4/93,5
7.03 Morgunútvarpið. Kristín Ólafsdóttir
og Kristján Þorvaldsson. Eria Sigurðardótt-
ir talar frá Kaupmannahöfn. Veðurspá kl.
7.30. Pistill Sigriðar Rósu Kristinsdóttur á
Eskifirði. 9.03 9 - fjögur. Eva Ásrún Al-
bertsdóttir og Guðrún Gunnarsdóttir. Veð-
urspá kl. 10.45. 12.45 9 — fjögur heldur
áfram. Gestur Einar Jónasson til klukkan
14.00 og Snorri Sturluson til 16.00.16.03
Dægurmálaútvarp og fréttir. Stadsmenn
dægurmálaútvarpsins og fréttaritarar
heima og eriendis rekja stór og smá mál
dagsins. Veðurspá kl. 16.30.18.03 Þjóð-
arsálin. Sigurður G. Tómasson og Leifur
Hauksson sitja við símann. 19.30 Ekki
fréttir. Haukur Hauksson. 19.32 Blús.
Umsjón: Pétur Tyriingsson. 21.00 Vin-
sældalisti götunnar. 22.10 Gyða Dröfn
Tryggvadóttir og Margrét Blöndal. Veð-
urspá kl. 22.30.0.101 háttinn. Gyða Dröfn
Tryggvadóttir. 1.00Næturútvarp til morg-
uns.
Fréttir kl. 7, 7.30, 8, 8.30, 9, 10, 11, 12.
12.20, 14, 15, 16, 17, 18, 19, 22 og 24.
NÆTURÚTVARPIÐ
1.00 Nasturlög 1.30 Veðuriregnir. 1.35
Glefsur Úr dægurmálaútvarpi miöviku-
dagsins. 2.00 Fréttir. 2.04Tengja. Kristján
Sigurjónsson leikur heimstónlist. 4.00
Næturlög. 430 Veðurfregnir. Næturiögin
halda áfram. 5.00 Fréttir. 5.05 Gyða Dröfn
Tryggvadóttir og Margrét Blöndal. 6.00
Fréttir af veðri, færð og flugsamgöngum.
6.01 Morguntónar. 6.45 Veðurfregnir.
Morguntónar hljóma áfram.
LANDSHLUTAÚTVARP Á
RÁS2
8.10-8.30 og 18.03-19.00 Útvarp Norð-
urland. 18.35-19.00 Útvarp Austurland.
18.35-19.00 Svæðisútvarp Vestfjarða.
AÐALSTÖÐIN
FM 90,9 / 103,2
7.00 Það hálfa væri nóg. Morgunþáttur
Aðalstöðvarinnar. Umsjón: Davíð Þór
Jónsson. 9.05 Katrin Snæhólm Baldurs-
dóttir. 10.00 Böðvar Bergsson. 13.00 Jón
Atli Jónasson. 16.00 Sigmar Guðmunds-
son. 18.30 Tónlist. 20.00 Magnús Onri
Schram. 24.00 Voice of America.
BYLGJAN FM 98,9
6.30 ÞorgeirÁstvaldsson og Eirikur Hjálm-
arsson. 9.06 íslands eina von. Sigurður
Hlööversson og Eria Friðgeirsdóttir. 13.10
Ágúst Héðinsson. 16.05 Reykjavík siðdeg-
is. Hallgrimur Thorsteinsson og Auðun
Georg. 18.30 Gullmolar. 20.00 Kristófer
Helgason. 23.00 Kvöldsögur. Eirikur Jóns-
son. 24.00 Næturvaktin.
Fréttir á heila tímanum frá kl. 7 til kl.
18 og kl. 1930, iþráttafréttir kl. 13.00.
BROSIÐ FM 96,7
7.00 Kristján Jóhannsson. 9.00 Grétar
Miller. 12.00 Hádegistónlist. Fréttir kl.
13.00. 13.05 Rúnar Róbertsson. 16.00
Ragnar Örn Pétursson og Hafliði Kristjáns-
son Fréttayfirlit og iþróttafréttir kl.
16.30. 18.00 Lára Yngvadóttir. 19.00
Ágúst Magnússon. 22.00 Plötusafnið.
Jenny Johanssen. NFS ræður ríkjum á
milli 22 og 23. 1.00 Næturtónlist.
FM 957 FM 95,7
7.00 Steinar Viktorsson. 9.05 Jóhann Jó-
hannsson. 12.10 Valdis Gunnarsdóttir.
14.05 ívar Guðmundsson. 16.05 Ámi
Magnússon ásamt Steinari Viktorssyni.
Umferðarútvarp kl. 17.10.18.05 Gullsafn-
ið. Ragnar Bjarnason. 19.00 Sigvaldi Kald-
alóns. 21.00 Haraldur Gíslason. 24.00
Valdís Gunnarsdóttir, endurt. 3.00 ívar
Guðmundsson, endurt. 5.00 Árni Magn-
ússon, endurt.
huóðbylgjan
Akureyri FM 101,8
17.00-19.00 Pálmi Guðmundsson. Fréttir
frá fréttastofu Bylgjunnar/Stöðvar 2 kl.
18.00.
SÓLIN FM 100,6
7.00 Guðjón Bergmann. 9.00 Birgir Ö.
Tryggvason. 12.00 Arnar Albertsson.
15.00 Pétur Árnason. 18.00 Haraldur
Daði. 20.00 Djass og blús. 22.00 Sigurð-
ur Sveinsson.
STJARNAN FM 102,2
7.00 Jóhannes Ágúst. 9.05 Sæunn Þóris-
dóttir. 10.00 Barnasagan. 11.00 Ólafur
Jón Ásgeirsson. 13.00 Ásgeir Páll. Öska-
lög. Bamasagan endurtekin kl. 17.15.
17.30 Lifið og tilveran. Ragnar Schram.
19.00 íslenskir tónar. 20.00 Eva Sigþórs-
dóttir. 22.00 Guðmundur Jónsson. 24.00
Dagskráriok.
Bænastund kl. 7.15,9.30,13.30,23.50.
Fréttir kl. 7, 8, 9, 12, 17, 19.30.