Morgunblaðið - 13.01.1993, Side 7
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 13. JANÚAR 1993
7
sem er skattur til ríkissjóðs. Að auki
miðaði hann við að víxlamir fást
ekki greiddir fyrr en daginn eftir að
þeir eru lagðir inn í bankana, og því
bætist í raun einn dagur við lánstím-
ann.
Forvextir viðskiptavíxla eru nú
allt frá 16,25% í Búnaðarbanka til
18,85% í Islandsbanka, sem svarar
til 17,91-21,11% nafnvaxta.
Morgunblaðið/Eyjólfur Guðmundsson
Nokkur hús í Vogum voru umflotin sjó.
Sjór gekk yfír
land í Vogum
Vogum.
SJÓR flæddi yfír land í Vogum
á mánudagsmorgun og voru
dæmi um að hús væru umflotin
sjó, en ástandið var verst við
Akurgerði, en einnig við neðsta
hluta Hafnargötu og Brekku-
götu. Ekki er vitað um mikið
tjón, en þó mun sjór hafa kom-
ist inn i kjallara og fískvinnslu-
hús. Þá kastaði sjórinn stór-
grýti á hafnargarðinn þannig
að hann varð ófær.
Tjón varð á landi vegna sjó-
gangs, en sjórinn flæddi yfir
Minni-Vogatún, Stóru-Vogatún,
Suðurkotstún, Bræðrapartstún og
Tumakotstún.
- EG.
Viðskiptavíxlar banka og sparisjóða
Reykjavík-Egilsstaðir
Islandsflug
fær meðmæli
Flugráðs
FLUGRÁÐ mælir með því við sam-
gönguráðherra að hann veiti Is-
landsflugi hf. Ieyfi til áætlunar-
flugs milli Reykjavíkur og Egils-
staða á móti Flugleiðum. Tvær
umsóknir bárust um flugleiðina,
frá íslandsflugi og Flugfélagi
Austurlands. Flugfélag Austur-
lands á við bágan fjárhag að striða
og er fyrirtækið í greiðslustöðvun
eins og stendur.
Leyfíð verður veitt með þeim skil-
yrðum að sætaframboð verði ekki
meira en 10% af heildarsætafram-
boði á umræddri flugleið í vetrar-
áætlun og sumaráætlun samkvæmt
mati samgönguráðuneytisins. Flug-
leiðir halda 90% af sætaframboði á
flugleiðinni.
Flugráð er umsagnaraðili um um-
sóknimar. Samgönguráðherra veitir
leyfið í framhaldi af umsögn þess.
♦ ♦ ♦----
Myndlyklar
uppseldir
MYNDLYKLAR fyrir læstar
sjónvarpsútsendingar hafa ekki
verið fáanlegir hjá Heimilistækj-
um hf. að undanförnu og er í
fysta lagi vön á nýrri sendingu
um næstu mánaðamót.
Að sögn Veigars Óskarssonar,
verslunarstjóra hjá Heimilistækj-
um, hefur ekki enn verið tekin
ákvörðun um hvort fluttir verða inn
einrása eða Ijölrása myndlyklar en
nokkur verðmunur er á þeim. Með
tilkomu Sýnar muni væntanlega
skapast þörf fyrir fjölrása mynd-
lykla.
Hjálpargagn
fyrír heimilisbókhaldið
og skattframtalið
Allt að 33% vextir
gagnvart seljanda
Eitt af markmibum íslandsbanka er oð standa vel
ab upplýsingagjöf til vibskiptavina bankans. Þeir eiga því kost á ab fá
heildaryfirlit yfir vibskipti sín vib bankann á árinu 1992.
Á vibskiptayfirlitinu kemur fram staba innlána og skulda vibskiptavinarins
um áramót, ásamt ýmsum upplýsingum um vexti og margt fleira.
Hér er um ab rœba hjálpargagn sem kemur ab góbum notum vib heimilis-
bókhaldib og þá ekki síbur vib gerb skattframtalsins.
Þú pantar yfirlitib í naestu afgreibslu íslandsbanka, þjónustugjald er 7 90 kr.
NAFNÁVÖXTUN 45 daga viðskiptavíxils gagnvart seljanda er frá
28,51% til 33,07% í bankakerfinu, samkvæmt útreikningum hagfræð-
ings Félags íslenskra iðnrekenda.
Samkvæmt útreikningum Yngva
Harðarsonar, hagfræðings FÍI, er
nafnávöxtun 100 þúsund króna 45
daga viðskiptavíxils gagnvart selj-
anda 33,07% hjá íslandsbanka,
32,26% hjá sparisjóðunum, 28,84%
hjá Landsbanka og 28,51% hjá Bún-
aðarbanka. Nafnávöxtun 60 daga
viðskiptavíxils er 30% hjá Islands-
banka, 28,94% hjá sparisjóðum,
26,21% hjá Landsbanka og 25,88%
hjá Búnaðarbanka.
Ekki liggur fyrir hver raunávöxt-
unin er, það er ávöxtun umfram verð-
bólgu, þar sem miðað er við forvexti
og ekki er ljóst hve verðbólga verður
mikil næstu tvo mánuði.
í útreikningum sínum tók Yngvi
mið af forvöxtum bankanna og
kostnaði að frátöldu stimpilgjaldi
ÍSLAN DSBAN Kl
- í takt við nýja tíma!
Víxlar:
Sýnd er upphœö víxla, gjalddagi, forvextir og
kostnabur vib kaup á víxlum (þ.m.t. stimpilgjöld),
vanskilakostnabur og staba í árslok
(ógreiddir víxlar).
Skuldabréf:
Fram koma gjaldfallnar afbarganir, verbbœtur
og vextir, afborganir af nafnverbi, greiddir
dráttarvextir og vanskilakostnabur. Áfallnir
vextir frá síbasta gjalddaga til áramóta og
eftirstöbvar skulda um áramót.
Innlónsreikningar:
Fram koma allar bankabcekur, Sparileibir, orlofsreikningar,
gjaldeyrisreikningar og abrir sparireikningar sem skrábir
eru á kennitölu vibskiptamanns. Tilgreindir eru innborg-
abir vextir og verbbcetur á árinu og staba í árslok.
Tékkareikningar:
Fram koma, auk innvaxta og stöbu um áramót,
þeir yfirdráttarvextir sem vibskiptamabur hefur greitt
á árinu vegna yfírdráttarheimildar.
Náfnávöxtun viðskiptavíxla
gagnvart seljanda
Reiknuð erávöxtun 100 þús. kr.
viðskiptavíxils í 45 og 60 daga
45 daga
33,07%
32,26%
H 28,94 28,84%
60daga
30,00
28,51%
25,88