Morgunblaðið - 13.01.1993, Qupperneq 15
V
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 13. JANÚAR 1993
15
Katta á milli í
Griótaþorpinu
Undan
skilningstrjenu
Egil Egilsson
Við mennskir segjum ketti hafa
níu líf. Værir þú, lesandi minn,
köttur, kæmistu að því að kettir
hafa aðeins eitt líf og verða eins
og við að nota það út í æsar til
kattamenntunar og þroska. Þess
vegna eru vinir mínir, kettirnir í
Grjótaþorpinu, sínotandi allar
stundir til mals, til skoðunar um-
hverfísins, til athugunar veiði-
möguleika á störum. Þeir hafa með
sér ákveðna virðingaröð, og fátt
eykur virðingu meðal katta eins
og að veiða stara. Sá köttur sem
veiðir stara er æðra settur og ræð-
ur stærra svæði en aðrir kettir.
Því dvelur sá köttur lengi við átið,
uns hann verður bitinn fló. Það er
sönnun veiðihyggju og kattlegs
fláttskapar að bera flóabit. Einnig
sannast þær dyggðir sem helst
mega prýða einn kött af tættum
eyrum, sama hreystimerki og and-
litsör er skylmingamanninum.
Þannig er þetta almennt meðal
katta. En kettirnir í Gijótaþorpi
eru þó nokkuð rómantískir fegurð-
arhyggjumenn. En enginn veit af
því, vegna þess að eigendur þeirra
skortir einmitt þá sömu eiginleika,
og þeir sjá þá ekki hjá köttum sín-
um. Fegurðarskyn kattanna er
annað en okkar hinna að því leyti
að þeim finnst t.d. blóm ekki fal-
leg. Blóm merkja í þeirra ríki ekki
annað en kattasalerni eða felustað
fyrir rómantík, og sem slík eru þau
nytsamleg. Ketti þykir ber mold
og gijót fallegast. Kettir hafa líka
kímnigáfu. Þeir mjálma um okkur
mennina að við höfum níu líf eða
meira, líkt og við segjum um þá.
Því til staðfestingar taldist ketti
nágranna mlns til að lögfræðingur
nokkur hér í bænum hefði a.m.k
fjórtán líf. „Ég sá það,“ sagði hann
við köttinn í þarnæsta húsi.
„Hvernig veistu,“ sagði kisi í
þarnæsta.
„Jú, þessi lögfræðingur lá dauð-
ur í þarnæstu götu þrettán nætur
í fyrrasumar. Hann reis alltaf upp
hvern morgun, og virtist ákveðinn
í að byija nýtt líf hvern morgun
sem hann reis upp.“
„Lögfræðingar eru og verða lög-
fræðingar. Hver trúir þeim,“ sagði
kisi í þamæsta. Hann var ekki
talinn sérlega greindur meðal
katta.
„Það er ekki lögfræðingurinn
sem á að trúa, heldur ég með mín
augu,“ sagði nágrannakötturinn.
Þetta skildi ekki kisi í þarnæsta.
„Hann hefur þá að minnsta kosti
þrettán líf,“ sagði hann hugsi.
„Fjórtán,“ sagði hinn rökvísi
köttur nágrannans niður til hins.
(Hann sat uppi á gijótvegg, en
hinn undir, eins og var við hæfí.)
„Þrettán,“ sagði sá undir, því
að naeðal katta líkt og meðal
manna fer þráinn saman við
heimskuna.
„Þrettán dauðum fylgja fjótán
líf,“ sagði köttur nágrannans.
„Lögfræðingurinn er að lifa núna
sínu fjórtánda.“
„Þú ferð með fleipur," sagði kisi
í þarnæsta. „Þrettán dauðdagar.
Þrettán líf. Punktur og basta. Ég
6.
U-ftlÉfe-
31* ^aULJ---
Stórhöfða 17, við Gullinbrú,
sími 67 48 44
stend við það og legg mitt eina líf
að veði fyrir það.“
Með það voru þeir komnir í katt-
arhár saman, líkt og um hylli
bleyðunnar í þar-þarnæsta húsi
væri að tefla. Orgin vöktu yfirrit-
aðan, því að þetta var um nótt
rétt hjá húsi hans, þar sem skiln-
ingstijeð stendur. Hár og sneplar
úr eyram flugu um. En kötturinn
í þarnæsta var sterkur á katta-
vísu,. Eftir smábardaga varð visk-
an og rökhyggjan að lúta í lægra
haldi fyrir grófgerðum styrk
heimskunnar. Jafnt þótt þessi lög-
fræðihgur gengi á þeirri stundu
um bæinn og hið rétta væri að
þrettán dauðdögum hans í fyrra-
sumar hér í Gijótaþorpi fylgdu
fjórtán líf. Hið fáa sem líkt er með
lífí mannheima og kattheima er,
að þar sigrar styrkur heimskunnar
oftast sannleikann, réttlætið og
rökhyggjuna. Nágrannakisi var
hrakinn burt frá vegg sínum og
frá málstað sínum, blóðugur og
rifinn. „Og ég sem hef bara eitt
líf. Ég verð að nota það vel. Ég
get ekki sóað því áfram í fáfengi-
lega hluti eins og að beijast fyrir
sannleikanum — og tapa. Ég er
hættur að beijast fyrir sannleikan-
um. Úr því að mér var bara gefið
eitt líf, en ekki fjórtán (eða þrett-
án, það má einu gilda) ætla ég
mér að nota mér þá kænsku sem
mér var gefin svo ríkulega í kas-
sagjöf til að koma mér áfram á
kostnað annarra katta.“
Hann þefaði óvin sinn uppi og
sagði: „Þú hefur rétt fyrir þér.
Hann er á sínu þrettánda. Fram-
vegis skulum við vinna saman.
Þegar við erum sammála skalt þú
taka allar ákvarðanir, sen þegar
við erum ósammála, skal ég ráða.
Þetta er jafnrétti."
Því játaði heimski kötturinn.
Eftir það hafa þeir unnið saman
að kattamálum. Þeim hefur orðið
vel ágengt.
TIL SOLU
Hótel Akranes, Bárugötu 15, Akranesi, er
til sölu, bæði húseign og rekstur.
Um er að ræða húseign ca 750 ferm. að
stærð. Á 1. hæð er dans- og veitingasalur,
ölkrá og pizza skyndibitastaður, ásamt 12
herbergjum á efri hæð.
Til greina kemur að selja reksturinn sér.
Allar upplýsingar gefur:
Fyrirtœkjasala
Fyrirtœkjaþjónusta
Baldur Brjánsson
framkvstj.
Ilaínarstnrti 20, 4. h,ró. sími 620080
v
\ —7j
r'Ír^'
f\°,d ' fi
f ^ * r”
T^W^TTTT^f-XTT^TTTTT
Breytingar á reglum
um kílómetragjald og
ökutækjastyrk
Sönnun akstursþarfar
- akstursdagbók
Þeir launþegar sem hyggjast í fram-
tali 1994 gera kröfu um að fá kostnað
dreginn frá ökutækjastyrk og/eða
kílómetragjaldi sem þeir fá greitt á
árinu 1993 þurfa frá byrjun þess árs
að sanna akstursþörf með því að
færa akstursdagbók eða aksturs-
skýrslu.
í akstursdagbók eða akstursskýrslu
skal skráð hver ferð í þágu launa-
greiðanda, dagsetning, ekin vega-
lengd, aksturserindi, nafn og kenni-
tala launamanns og skráningar-
númer ökutækis. Skal færa þessi
gögn reglulega og skulu þau vera
aðgengileg skattyfirvöldum þegar
þau óska þess.
Krafa um útfyllingu akstursdagbókar
eða akstursskýrslu vegna sönnunar
á akstri í þágu launagreiðanda er
óháð því hvort launþegi fær fastan
RSK
RÍKISSKATTSTJÓRI
ökutækjastyrk eða fær greitt sam-
kvæmt framlögðum akstursreikn-
ingi.
Frádráttarbær kostnaður
Tll þess að fá kostnað á móti öku-
tækjastyrk frádreginn við álagningu
1994 þurfa launamenn að skila með
framtali sínu eyðublaði RSK 3.04,
nefnt ökutækjastyrkur og ökutækja-
rekstur, og gera þar grein fyrir
sannanlegum kostnaði við rekstur
ökutækisins. Gildir þetta um alla,
hvort sem greiddur er fastur öku-
tækjastyrkur eða kílómetragjald.
Samkvæmt þessu verða allir þeir
sem fá greidda ökutækjastyrki eða
kílómetragjald að halda saman
öllum upplýsingum um kostnað
vegna reksturs ökutækisins, svo
sem bensín, viðgerðir, tryggingar,
hjólbarða o.s.frv.
Varðandi nánari upplýsingar er
vísað til skattmats ríkisskattstjóra í
staðgreiðslu samkvæmt auglýsingu
RSKnr. 3/1993.
vír TUvt V
/'>■
■J,.í7
LZ.
AWl'
\ f i
tíhlxfi
HVÍTA HOSIÐ / SÍA