Morgunblaðið - 13.01.1993, Side 34
34
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 13. JANÚAR 1993
félk í
fréttum
Flugfloti þeirra feðga.
FEÐGAR
Fimm úr sömu fjölskyldu í fluginu
Það er áreiðanlega ekki algengt
að fimm manns í sömu fjöl-
skyldunni hafi flugpróf og flug sem
sitt aðaláhugamál. Þannig er því
þó háttað með þá feðgana Óskar
Sigutjónsson og syni hans fjóra.
Þeir hafa allir flugpróf og eiga fjór-
ar flugvélar samtals, tvær þeirra
eru í einkaeign en hinar eiga þeir
í félagi við aðra. Þeir feðgar eru
frá Hvolsvelli en Óskar er sá eini
þeirra sem býr þar í dag og því
geta þeir notað flugvélarnar til að
hittast á miðri leið en segja má að
að þeir búi við alla suðurströndina
frá Höfn og allt til Reykjavíkur.
Þegar Oskar var inntur eftir
þessum mikla áhuga á flugi hvað
hann þetta vera þeirra „hesta-
mennsku". „Ég tók mitt einkaflug-
Morgunblaðið/Steinunn Ósk Kolbeinsdóttir
Myndin er tekin þegar þeir feðgar hittust allir í Vík í Mýrdal á flug-
vélunum sínum. F.v. Halldór, Óskar yngri, Ómar, Óskar eldri og
Garðar.
' ■ ■ ■ ■
Óskar Sigurjóns við flugvélina sína.
COSPER
COjPtR
- Þú hefðir nú getað keypt raunverulegan ramma.
mannspróf þegar ég var 57 ára og
hef því flogið í 10 ár. Ómar hefur
atvinnuflugmannspróf en hinir
einkaflugmannspróf. Óskar, yngsti
sonur minn, er sá eini af okkur sem
hefur atvinnu tengda fluginu en
hann er flugumferðarstjóri. Halldór
er skólastjóri í Vík en við, Garðar
og Ómar, vinnum allir hjá Austur-
leið,“ sagði Óskar en hann er
reyndar aðaleigandi Austurleiðar
og á auk sonanna fjögurra Ijórar
dætur. Hann var spurður að því
hvort þeir notuðu flugvélamar eitt-
hvað við vinnuna. Hann kvað svo
ekki vera en reyndar flygi hann
mikið inn í Þórsmörk á sumrin þar
sem Austurleið er með tvo skála
og þar hafa þeir komið upp flug-
velli. Annars kvað Óskar þetta vera
mest gert ánægjunnar vegna. Þeir
flygju aðallega milli Reykjavíkur,
Hellu, Víkur og Hornafjarðar en
einnig flygju þeir til Akureyrar og
Egilsstaða. Eina hindrunin í því að
hægt væri að fljúga lengri leiðir
væri að veðrið hér á landi. Það
væri sjaldnast það sama í öllum
landshlutum. „Svo er þetta orðið
ansi dýrt sport og hefur því dregið
úr einkaflugi. Allur kostnaður hef-
ur hækkað svo mikið, bæði skatt-
ar, skoðanir, eldsneyti og trygging-
ar og svo eru vélamar sjálfar orðn-
ar dýrari en áður var.“ Óskar, sem
er orðinn 67 ára, var að lokum
spurður að því hversu lengi hann
ætli að halda áram að fljúga. „Ég
má fljúga svo lengi sem ég hef
heilsu til.“
OSAMSTAÐA
Leggur furstinn
strangar línur?
Það hefur vakið nokkra at-
hygli meðal þeirra sem
fylgjast með högum tiginbor-
inna í gamla heiminum og nýja,
að eigi virðist allt vera með
felldu meðal furstafólksins í
dvergríkinu Mónakó. Yngsta
bam Rainiers fursta, Stefanía,
átti til að mynda sitt fyrsta bam
fyrir skömmu, en enginn af
hennar nánustu ættingjum var
hins vegar til staðar til að sam-
gleðjast. Þvert á móti fóm Raini-
er og eldri bömin Karólína og
Albert í veiðitúr til Frakklands,
brytjuðu þar niður akurhænur
og villisvín á meðan bamsfaðir
Stefaníu og flölskylda hans sáu
um að veita prinsessunni stuðn-
ing á þessum tímamótum í lífi
sínu.
Bamsfaðirinn er franskur
flsksali að nafni Daniel Ducra-
et. Hann er fyrram lífvörður
Stefaníu, en þau era ekki gift
og kann það að hafa áhrif á
viðbrögð fjölskyldunnar. Stefan-
ía hefur oft gert karli föður sín-
um skráveifur með villtu lífemi
sínu. Fjöllyndi í karlamálum,
nær algert klæðaleysi á sólar-
ströndum og sundlaugarbör(m-
)um og áfengisþol á nætur-
klúbbum hafa verið kennileiti
Stefaníu, en þó hefur hún þótt
stillast nokkuð í seinni tíð. Mis-
lukkaður poppsöngsferill og
sviplegur dauðdagi eiginmanns
Karólínu á sínum tíma hafa leik-
ið þar stórar rallur, en Stefanía
þótti sýna á sér nýjar hliðar í
gríðarlegri sorg Karólínu. Stóð
hún þétt við hlið systur sinnar
er mest var þörfín og því skýtur
nú skökku við að það sé ekki
endurgoldið í sömu mynt.
Tíminn hefur að mestu grætt
sár Karólínu og telja menn
ástæðuna fyrir því að hún fór
ekki að hlið systur sinnar vera
þá að Rainier hafi lagt strangar
línur. Hann hefur ekki dregið
dul á að Ducraet er ekki maður
að hans skapi.
Karólína leiðir harðsnúinn flokk veiðikvenna.
SKAUTAR
Hin nýju Torwill og Dean komin fram?
Ijós hvað raunveralega býr í
þessum krökkum," segir
Callaway.
Fyrsti maður til að hringja
í Callaway og óska henni til
hamingju með árangurinn á
breska meistaramótinu var
Christopher Dean. „Við höfum
enn reglulega samband," seg-
ir Callaway.
Betty Callaway heitir kon-
an sem stóð að baki
skautaparsins Torwill og
Dean sem urðu §órfaldir
heimsmeistarar og Olympíu-
meistarar á sínum tíma og
urðu síðan víðfrægir skemmti-
kraftar með skautasýningum
sínum. Er Torwill og Dean
létu af keppni í íþróttinni dró
Callaway sig í hlé og svipaðist
um eftir nýjum lærlingum.
Nú er hún komin fram á sjón-
arsviðið á ný með skautaparið
Justin Langing og Mariku
Humphreys sem era 19 og 15
ára gömul. Fyrir skömmu
urðu þau langyngsta skautap-
arið sem verður breskur
meistari í skautadansi.
„Ég leitaði vel og lengi, en
fann ekkert par sem ég hafði
sérstaka trú á fyrr en ég hna-
ut um þau Lanning og Hump-
hreys. Það er enn of snemmt
að geta sér til um hvort að
þau hafi burði til að ná Torw-
ill og Dean að getu. Þau era
enn mjög ung, en þau era
afar efnileg og vinna vel sam-
an. Sérstaklega hef ég hrifist
af getu Mariku. En það er
eitt að hafa burði til að gera Hin nýju Torwill og Dean? en á innfelldu myndinni er Betty Callaway.